Morgunblaðið - 07.03.1985, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.03.1985, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985 + Útför móöur okkar ömmu og langömmu, GUDRÚNAR H. S/EMUNDSDÓTTUR, Reykjavikurvegi 29, Skerjafirói, sem lést i Hafnarbúöum 1. mars fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 8. mars kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna. Högni Jónsson. + Eiginkona min, RANNVEIG SVANHVÍT BENEDIKTSDÓTTIR, Langholtsvegi 4, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 5. mars. Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna. Halldór Ásgeirsson. + Móöir min og tengdamóöir, KRISTÍN E. EINARSDÓTTIR frá Noröfirði, Noröurbrún 1, Reykjavfk lést i Hátúni 10 B aö kvöldi 5. mars. Lilja Sveinsdóttir, Hjörtur Einarsson. + Eiginmaöur minn, faöir, afi, tengdafaöir og bróöir, BRAGI HINRIKSSON, er lést aö heimili sinu i Noregi þann 25. febrúar sl. veröur jarö- sunginn frá Fossvogskirkju i dag, 7. mars, kl. 13.30. Ingibjörg V. Jóhannsson, Elísabet Bragadóttir, Helga Maria Bragadóttir, Ingibjörg Bragadóttir, Bragi Þór Bragason, barnabörn og aórir aöstandendur. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, ÓLÓF HALLDÓRSDÓTTIR, Steinageröi 14, veröur jarösungin frá Bústaöakirkju föstudaginn 8. mars kl. 3.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóö Ólafs Freys Hjaltasonar i Bústaöakirkju. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Systir okkar, GUDLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Frikirkjunni i Reykjavik föstudaginn 8. mars kl. 13.30. Eyrún Guömundsdóttir, Lilia Guómundsdóttir, Laufey Guömundsdóttir. + STURLA STEINDÓR STEINSSON, Suöurgötu 4, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. mars kl. 15.00. Britt Steinsdórsson, Steinn Einar Steinsson. + Sonur okkar og bróöir, EINAR ÞÓR AGNARSSON, Smyrilsvegi 29, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. mars kl. 15.00. Ellnborg Þórarinsdóttir, Æ var Agnarsson, Agnar Einarsson, Ragnar K. Agnarsson, Erna Agnarsdóttir. + SVEINN HJÁLMARSSON, Vesturbergi 48, Reykjavik frá Svarfhóli Svfnadal, veröur jarösunginn frá Hallgrimskirkju Saurbæ laugardaginn 9. mars kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vilja minnast hans láti Hailgrímskirkju i Saurbæ njóta þess. Vandamenn. Minning: Bragi Hinriksson framkvœmdastjóri Fæddur 29. maí 1931 Dáinn 25. febrúar 1985 Mig langar til að kveðja vin minn og fyrrverandi vinnuveit- anda, Braga Hinriksson, með fá- einum orðum. Hann lést á heimili sínu í Noregi 25. febrúar sl. aðeins 54 ára gamall. Árið 1965 þegar ég kynntist for- eldrum Braga, datt mér ekki í hug að eg ætti eftir að eiga svona mikil samskipti við afkomendur þessara góðu hjóna, Elísabetar M. Júlíus- dóttur, ættaðrar frá Seyðisfirði, og Hinriks Jónssonar, trésmiðs frá Dýrafirði, sem bæði eru nú lát- in. Þeirra börn voru: Margrét ljós- móðir í Reykjavík, Valur, sem lést aðeins 55 ára, Gylfi framkvæmda- stjóri í Reykjavík og yngstur var Bragi. Bragi kvæntist Ingibjörgu V. Jóhannssonar árið 1952 og áttu þau fjögur börn: Elísabetu Þóru, sem búsett er í Bandaríkjunum, hún á eina dóttur, Lindu; Helgu Maríu, sem búsett er í Kópavogi, hún á einn son, Braga; Ingibjörgu, sem búsett er í Kópavogi, hún á eina dóttur, Elísabetu; Braga Þór, sem enn er í heimahúsum. Bragi og Ingibjörg fluttust í Kópavoginn 1963 og höfðu þá reist sér hús í landi foreldra hans, hús- ið stendur við Hlíðarveg. Bragi lauk námi í prentmyndum 1. maí 1947 og fékk meistarabréf 12. júní 1963. Hann vann hjá Prentmynd- um til ársins 1964 er hann flutti sig yfir til Kassagerðar Reykja- víkur sem þá hóf starfsemi sína. Vann hann þar til ársins 1972. Þá stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Gler og postulín, sem hann rak með sóma til síðasta dags. Hann var brautryðjandi í skreytingum á gleri og postulíni hér á landi og þó víðar væri leitað. Bragi opnaði ásamt fjölskyldu sinni verslun í Hafnarstræti 16 um áramótin 1973—74 og rak hann verslunina í 5 ár, en þá vildi hann ekki lengur keppa við viðskiptavini sína, en Bragi seldi í margar verslanir 1 Reykjavík og út á land. Nú urðu aukin umsvif sem kröfðust stærri markaðar, svo hann flutti fyrir 2 árum til Noregs og þaðan seldi hann til Danmerkur, Noregs og ís- lands. Það var gaman að kynnast Braga Hinrikssyni og fá að taka þátt í sköpun hans. Hann var ótæmandi fjársjóður nýrra hug- mynda og vann ótrauður við að koma þeim í framkvæmd. Það var lítill vandi að vera Braga Hin- rikssyni trúr, til dæmis má nefna að í gegnum árin vann hjá honum nemandi hans sem tók hæsta próf í sinni grein. Þegar Bragi lést var hann í óða önn að flytja starfsemi sína í nýtt húsnæði sem bæði var stærra og hentugra undir rekstur- inn, enda sérhannað eftir hug- mynd hans. Er sárt til þess að hugsa að hann hafi ekki getað not- ið þess, af því að þetta var búið að vera aðalhugðarefni hans síðustu tvö árin. Ekki má gleyma konu hans, sem var stoð hans og stytta í fyrirtækinu frá upphafi. Mun hún halda áfram með engu minni elju og með aðstoð sonar síns, Braga Þórs, sem mun verða stoð hennar og stytta. Ég bið Braga blessunar í nýjum heimkynnum og votta eftirlifandi eiginkonu og börnum okkar dýpstu samúð. K.G. Nú getur elsku afi minn ekki tekið á móti mér í maí, eins og við höfðum ráðgert. Við hlökkuðum svo mikið til að hittast. Það var svo margt sem ég ætlaði að gera með honum í sumar. Ég vildi óska þess að ég hefði tekið mér frí úr sveitinni í fyrra og heimsótt afa og ömmu, eins og mamma og pabbi vildu. Núna er það of seint. Ég veit þó að ég hitti afa seinna þar sem hann er núna og það huggar mig mest af öllu. Nafni Þann 25. febrúar sl. lést að heimili sínu í Malm í Noregi Bragi Hinriksson. Bar andlát hans að mjög snögglega. Þótt við vitum það flest, að eitt sinn skal hver deyja, kemur kveðjustundin stundum nokkuð þvert að manni svo ekki sé kveðið fastara að. Kynni okkar Braga hófust fyrir rúmlega tuttugu árum. Hann var þá að taka að sér forstöðu fyrir prentmyndagerð Kassagerðar Reykjavíkur, enda meistari í þeirri iðn, og vann að uppbyggingu hennar. Var staðið af miklum myndarskap að þessari deild Kassagerðarinnar í öllum grein- um, vélum og tækjum og var þetta talin ein fullkomnasta prent- myndagerð landsins. Veitti Bragi henni forstöðu til ársins 1972, að hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Gler og Postulín, sem var til húsa í Auðbrekku í Kópavogi allt þar til hann flutti starfsemi sína fyrir tæpum tveim árum til Noregs. Þar vann hann af miklum dugnaði að uppbyggingu fyrirtækisins ásamt konu sinni, Ingibjörgu, og syni sínum, Braga. Fyrirtækið Gler og Póstulín er samofið átak þeirra hjóna, Ingibjargar og Braga, því það er fjölskyldufyrirtæki í orðs- ins fyllstu merkingu og er gleði- legt til þess að vita að Bragi yngri hefur látið stöðugt meira til sín taka um framgang þess. Vona ég að gæfa og gengi fylgi rekstri þess í framtíðinni. Ég átti símtal við Braga rétt fyrir jólin sl. Lét hann vel af sér og sagði mér m.a. að hann væri að flytja í nýtt húsnæði og var það greinilegt, að hann var búinn að ná traustri, viðskiptalegri fótfestu og hugði á landvinninga í þeim efnum. Hann hafði um árabil haft viðskipti við Danmörk og Noreg, en nú blasti Svíþjóð og Finnland við. Ég hygg að flutningur fyrirtæk- isins til Noregs, nær hringiðu stórra markaða, hafi verið Braga heillandi viðfangsefni, enda kom það oftar en ekki fram í samtölum okkar þegar við hittumst og rædd- um um allt mögulegt og ómögu- legt. Eins og áður er getið hófust kynni okkar Braga fyrir rúmum tuttugu árum. Ekki þar fyrir; ég kannaðist við hann í sjón áður, eins og svo marga af okkar ár- gangi, en í þá daga var Austur- strætið aðalatriðið og Langibar nafli heimsins. Það sem er ánægjulegt þegar litið er til baka er það, að margt af þessu fólki sem þá voru unglingar, grallarar þess tíma, hafa gert skyldu sina gagnvart íslensku þjóðfélagi og vel það. Það var skemmtilegt að ræða við Braga um menn og málefni. Hann hafði gott skopskyn, ákveðnar skoðanir en gætti þess að troða þeim ekki að manni; vildi frekar fjalla um þær frá ýmsum hliðum og komu oft upp sérkenni- leg sjónarhorn, sem sýndu skarpa hugsun. Hann var gætinn og vandaður í umtali ef persónur bar á góma, en helst vildi hann ræða um ýmis málefni, sem báru að í það og það skiptið. Ég þakka forsjóninni fyrir að hafa átt þess kost að kynnast jafn ráðhollum og ágætum dreng. Ég votta þér, Bassý mín, og börnunum dýpsjtu samúð. Ásgeir Nikulásson Leiðrétting NAFN höfundar minningarorða um Axel Thorsteinsson, sem birt voru hér í blaðinu í fyrradag, mis- ritaðist. Minningarorðin voru eftir Hrefnu Sigríði Bjartmarsdóttur (ekki Bjartmannsdóttur). Þetta leiðréttist og er beðist velvirð- ingar á mistökunum. + GUDMUNDUR G. HAGALÍN rithðfundur veröur jarösunginn frá Reykholtskirkju, Borgarfiröi, laugardaginn 9. mars kl. 14.00. Rutuferö frá Umferöarmiöstööinni i Reykjavik kl. 11.00 fh. Unnur Sigrföur og Þór Hagalfn. + Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, GUÐNI ÞORSTEINSSON múrarameistari, Selfoasi, veröur jarösunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 9. mars kl. 13.30. Eggert Guönason, Emma Guðnadóttir, Guömundur Guönason, Guöfinna Guönadóttir, Ásdis Guónadóttir, Benedikta Guönadóttir, Hulda Guönadóttír, Ásgeir Guönason, barnabörn og Valborg Gisladóttir, Ágúst Eiriksson, Fjóla Guómundsdóttir, Jóna Vigfúsdóttir, Eövarö Torfason, Leifur Eyjólfsson, Páll Árnason, Pálmi Jónsson, Þyri Axelsdóttir, barnabarnabörn. + Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför fööur okkar, GUÐMANNS ÍSLEIFSSONAR bónda Jórvik (Álftaveri. Börnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.