Morgunblaðið - 07.03.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.03.1985, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985 - fundur framhaldsskólanema á Lækjartorgi í dag eru framfaramál“ Frá Kfingu í „Hollendingnum fljúgandi" en hér eru tveir einsöngvarar að syngja ásamt Söngsveitinni Fflharmóníu. Sinfóníuhljómsveit íslands leikur. „MENNTUN skal meta að verðleik- um því menntunarmál eru framfara- mál“ er yfirskrift útifundar sem framhaldsskólanemar ætla að efna til á Lskjartorgi I dag kl. 15. Að fundinum standa nemenda- félðg mennta- og fjölbrautaskóla á Suður- og Vesturlandi auk Iðn- nemasambands íslands. í fréttatilkynningu frá félögunum segir, að tilefni fundarins sé að vekja athygli á kjarabaráttu kennara og þeirri aðstöðu sem skapast hefur hjá framhaldsskóla- nemum. Ræðumenn á fundinum verða einn fulltrúi Iðnnemasam- bandsins, einn fulltrúi frá hinum nemendafélögunum og einnig hef- ur Kennarasambandi íslands ver- ið boðið að senda fulltrúa sinn. Að fundinum loknum ætla fram- haldsskólanemar að afhenda rík- isstjórninni ályktun fundarins. Morgunblaðinu hafa borist stuðningsyfirlýsingar ýmissa fé- laga við baráttu kennara, þ.á m. Iðnemasambandi íslands, Kenn- arafélagi Vestmannaeyja, Kennarafélagi Reykjavíkur, Fé- lagi bókasafnsfræðinga og Sam- tökum kvenna á vinnumarkaðin- um. Hartmut Welker eðlilegt. Maður verður að leggja sig allan fram kvöld eftir kvöld þó svo að dagskráin sé sú sama. Hver sýning er ný og sjálfstæð og allt getur skeð — eitthvað getur farið úrskeiðis ef maður passar sig ekki,“ sagði Balslev. Bæði voru þau sammála um að auðveldara væri að syngja svona verk í sviðsuppfærslu fremur en í konsertuppfærslu. Eins og þau sögðu, þá þekkja þau verkið til hlýtar og því gætu þau sýnt þær tilfinningar, sem verkið á að miðla, betur, með því að leika hlutverkið heldur en syngja það einungis. Wagner og Strauss eru uppáhalds-tónskáld beggja og finnst þeim mikill munur á að syngja verk eftir þá heldur en aðra samtíðarmenn. „Það er svo mikil hreyfing í verkum þessara tveggja. Báðir eru þeir snilldar- tónskáld, sem tókst að semja mikil og fræg verk, en þó eru verk þeirra laus við allan þunga. Það er mikil tónlist í verkum þessara manna og því reynir það enn meira á söngv- arana að koma til móts við tón- listina," sagði Welker. Þau Welker og Balslev eru á ís- landi í fyrsta sinn. Welker sagði að honum fyndist lítið gróðurfar hér og eftir því hefði hann fyrst tekið. „Þetta er ekki svona í öðrum Evrópulöndum eða í Ameríku — þar er allt fullt af gróðri." En þetta gerir mér svo sem ekkert til — ég kom hingað til að syngja.“ Welker er búsettur í Karlsruhe í Þýskalandi, en kemur hingað beint frá París þar sem hann hef- ur verið að syngja í tvo mánuði. Balslev býr í Kaupmannahöfn, en hefur verið nýlega í Þýskalandi þar sem hún söng í verki eftir Strauss. „Kórarnir tveir sem taka þátt í verkinu á fimmtudaginn eru að syngja þetta í fyrsta sinn, svo að það var svo sem ekki hægt að bú- ast við fullkomleikanum á fyrstu æfingunni, en ég er viss um að æfingin skapar meistarann og höfum við þó nokkra daga til stefnu," sagði Balslev. Bæði vildu þau benda áhorfend- um á að lesa sér til um verkið áður en sýningin hæfist, a.m.k. lesa yfir söguþráðinn því mun erfiðara er að fylgjast með söguþræði þar sem sviðsuppfærslan er ekki inn í myndinni. „Menntunarmál NÆSTU áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands verða í Háskólabíói í kvöld og hefjast að þessu sinni kl. 20.00, klukkan átta. Á efnisskrá tónleikanna er aöeins eitt verk, þ.e. óperan Hollendingurinn fljúgandi eftir Wagner. Óperan sem er í þremur þáttum, verður flutt í konsertformi og tekur flutningurinn tæpa þrjá tíma, segir í frétt frá Sinfóníuhljómsveitinni. Flytjendur ásamt Sinfóníu- hljómsveit íslands eru einsöngv- ararnir Lisbeth Balslev, Sylvia Stone, Hartmut Welker, Manfred Schenk, Ronald Hamilton og Sig- urður Björnsson. Ennfremur Söngsveitin fílharmónia, kórstjóri Guðmundur Emilsson og Karlakór Reykjavíkur, kórstjóri er Páll P. Pálsson. Stjórnandi tónleikanna er Klauspeter Seibel. Hann er ís- lenskum tónleikagestum að góðu kunnur frá fyrri tónleikum með Sinfóníuhljómsveit íslands. Hann er frá V-Þýskalandi og gegnir þremur stöðum þar: Aðalstjórn- andi sinfóníuhljómsveitarinnar i Nurnberg, fyrsti hljómsveitar- stjóri ríkisóperunnar í Hamborg og er auk þess prófessor við tón- listarháskólann á sama stað. Danska sópransöngkonan Lis- beth Balslev nam við tónlistarhá- skólann í Esbjerg og óperuskóla Konunglega leikhússins i Kaup- mannahöfn. Siðan hefur hún kom- ið fram víða i Evrópu, einkum í óperum eftir Strauss og Wagner. Mezzo-sópranhlutverk Mary verður i höndum bandarísku söngkonunnar Silviu Stone. Hún nam í Bandaríkjunum og Þýska- landi. Eftir að hún lauk námi hef- ur hún sungið fjöldann allan af mezzohlutverkum úr óperum og óratoríum beggja vegna Atlants- hafs. Þýski baritóninn Hartmut Welker mun fara með hlutverk Hollendingsins. Hann hefur sung- ið í öllum helstu óperuhúsum Evr- ópu, t.d. La Scala í Mílanó, í Flór- ens, París og víðar. Manfred Schenk syngur Daland. Hann hefur sungið flest meiri- háttar bassahlutverk við óperur um þvera og endilanga Evrópu og einnig Bandaríkiunum. Hann kom síðast fram á Islandi á Fidelio- tónleikum Sinfóníuhljómsveitar- innar í Háskólabíói í febrúar 1981. Ronald Hamilton, tenór, fer með hlutverk Eriks. Hann fæddist í Ohio í Bandaríkjunum og er menntaður við ríkisháskóla sama fylkis. Hann hefur komið fram í Madrid, Milanó og Leeds auk margra staða í A- og V-Þýska- landi. Sigurður Björnsson syngur hlutverk stýrimannsins fyrir Heinz Kruse sem forfallaðist á síðustu stundu. Uppselt er á tónleikana á fimmtudaginn en þeir verða endurteknir í Háskólabíói laug- ardaginn 9. mars nk., og hefjast þeir kl. 14.00. Blaðamaður Morgunblaðsins átti stutt viðtal við þau Hartmut Welker, sem er þýskur og Lisbeth Balslev, sem er dönsk, en þau eru í stærstu hlutverkunum og er þetta svo sannarlega ekki í fyrsta skipti Lisbeth Balslev sem þau koma nálægt meistara- verkum Wagners. Welker og Balslev þekkjast vel enda hafa leiðir þeirra oft legið saman í hinum ýmsu óperum. Það sama má reyndar segja um hina fjóra en þeir voru ekki komnir til landsins er viðtalið fór fram. „Jú, jú, auðvitað erum við mjög spennt. Spenningur og stress fylg- ir alltaf, jafnvel eftir að hafa hundrað sinnum sungið sama hlutverkið," sagði Balslev. „Æf- ingarnar taka mikinn tíma, svo að við höfum lítið séð af íslandi enn sem komið er. Hins vegar ætlum við að reyna að bæta úr því á föstudaginn ef veður leyfir. Ég held að spenningur eigi að fylgja söngvurum — annað væri ekki „Hollendinguriim fljúgandi" fluttur í kvöld í Háskólabíói „Ætla að leika, syngja og kannski dansa“ — segir Árni Tryggvason, sem heldur upp á 30 ára afmæli sem skemmtikraftur á morgun VÉG ÆTLA að monta mig svolítið í Austurbæjarbíói annað kvöld,“ sagði Arni Tryggvason leikari þegar hann kynnti blaðamönnum skemmtun, sem haldin verður á morgun í tilefni af 30 ára afmæli hans sem skemmti- Morgunblaðið/Bjarni Árni Tryggvason leikari kynnir skemmtun, sem haldin verður í Austur- bæjarbiói á raorgun. Tilefnið er 30 ára afmæli Árna sem skemmtikrafts. krafts. Árni er einn af þekktustu leik- urum landsins og byrjaði feril sinn á sviðinu fyrir 38 árum. Sem skemmtikraftur hefur hann nú starfað í 30 ár, þ.e. á skemmt- unum ýmiss konar, sem ekki tengjast leiklistinni beint. „Ann- ars finnst mér leiðinlegt hvað fólk vill skilja „skemmtana- bransann" frá annari list, þetta er einungis einn hliðarangi af leiklistinni," sagði Árni. „Ég byrjaði í Bláu stjörnunni og fór þá með atómljóð eftir Tómas Guðmundsson. Þessi ljóð held ég að séu hvergi til nema hjá mér.“ Árni sagði að á skemmtuninni á morgun yrði vonandi eitthvað fyrir marga. „Ég þori ekki að segja eitthvað fyrir alla,“ sagði hann og hló. „Mér fannst sjálf- sagt að fara eftir nýjustu tísku í skemmtanalífinu og halda slíka skemmtun. Þetta er mjög vin- sælt núna, t.d. hefur Ómar Ragnarsson haldið slíkar skemmtanir og ekki má gleyma Ríó tríói, Megasi og fleiri. Ég ætla að flytja atriði sem ég hef flutt áður, t.d. í revíum og á skemmtunum fyrir 30 árum. Að vísu verð ég ekki einn um hituna, því það verður með mér valið lið fólks, sem hefur allt fengist við þetta áður. Þetta fólk er Róbert Arnfinnsson, sem hóf ferill sinn sem harmonikkuleikari í Hrisey sumrin 1939 og 1940, Guðrún Stephensen, Sigurður Sigur- jónsson, Jón Sigurbjörnsson, Rúrik Haraldsson, örn Árnason, Þóra Friðriksdóttir, Einar G. Sveinbjörnsson, ómar Ragn- arsson, Randver Þorláksson og Jörundur Guðmundsson, sem hefur haft af því drjúgar tekjur í mörg ár að herma eftir mér. Auk þess verða tónlistarmennirnir Haukur Heiðar, Jónas Þórir, Ólafur Gaukur, Stefán Jökulsson og Bjarni Sveinbjörnsson, kynn- ir verður Gunnar Eyjólfsson og leikstjóri er Sigríður Þorvalds- dóttir. Kristinn Daníelsson og Páll Ragnarsson sjá siðan um að lýsa allt fagurlega upp og Jón Ragnarsson, sem frægur er fyrir hjólastólarall, er framkvæmda- stjóri þessa alls“. Árni kvað þetta fólk ætla að sýna ýmsar kúnstir. „Sjálfur leik ég og syng og dansa jafnvel dá- lítið, en það er að vísu ekki ákveðið enn,“ sagði hann kíminn. Hann klykkti síðan út með þeim orðum, að nóg hefði verið skrifað um skakið við Hrísey að sinni og mætti gjarnan vekja athygli á skemmtan þessari í Austurbæj- arbíói kl. 23.30 á morgun og er það hér með gert.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.