Morgunblaðið - 07.03.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985
15
Herdís Þorgeirsdóttir, ritstjóri
Mannlífs.
ur um friðarhreyfingar. Hvor
tveggja teljast til tilfinningamála
í meðvitund margra íslendinga og
því sjaldan rædd nema út frá gef-
inni og fyrirfram markaðri póli-
tískri línu. En hér eru málefni
þessi reifuð á breiðum grundvelli
og í víðara samhengi. Held ég líka
að sú tíð sé í nánd að æ fleiri taki
að íhuga þau yfirvegað og hleypi-
dómalaust.
Þá sýninst ætlunin að birta í
Mannlífi svipmyndir af fólki sem
lengi hefur staðið i sviðsljósinu.
Þannig eru í þessum fyrsta ár-
gangi stuttir þættir um Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta, Styrmi
Gunnarsson, ritstjóra, og Ásgeir
Aukin þjónusta
við skíðafólk og
fjárhagsbagga
létt af borginni
— segir Davíð
Oddsson, borgarstjóri,
um sölu Skíðaskálans
í Hveradölum
„Skíðaskálinn var búinn að vera
verulegur baggi á borginni og ég tel
því að sala hans sé af hinu góða,“
sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri,
er hann var spurður um þá umræðu,
sem orðið hefur að undanfornu
vegna ákvörðunar borgarstjórnar
Reykjavíkur, að selja skíðaskálann í
Hveradölum.
Davíð Oddsson sagði að fjár-
hagsbyrði borgarinnar af rekstri
skáians hafi numið um 3 milljón-
um króna á ári. „Nú er ljóst að
kominn er maður sem ætlar sér að
gera skálanum vel til. Hann er að
auka þjónustu við skíðafólk og
aðra þarna á svæðinu, þótt breyt-
ingarnar, sem hann er að gera í
tengslum við skálann, séu umdeil-
anlegar og kannski hvað útlit
snertir ekki til bóta. En það er
mikill misskilningur að tala eins
og skálinn sé að fara. Menn hafa
haldið því fram að svo mikil saga
tengdist skálanum að það mætti
ekki selja hann. Sagan verður auð-
vitað áfram tengd skálanum. Hins
vegar er ljóst, að með þessum
hætti aukast nýtingarmöguleikar
skálans verulega fyrir skíðafólk
auk þess sem hann hættir að vera
baggi á borgarsjóði," sagði borg-
arstjóri.
Sigurvinsson, knattspyrnumann.
Mikill vandi er að setja saman
mannlýsingar svo vel fari — að
segja með fullri einurð það eitt
sem satt er og rétt, en þó með
stillingu og máta, hógværð og að-
gát. Held ég að Mannlíf rati nokk-
uð vel þann meðalveg.
Fleira er í ritinu, svo sem þættir
um tískuna, alþjóðleg stjórnmál
og frægðarpersónur sem hátt ber
á þeim vettvangi þessi árin, að
ógleymdum stuttum en gagnorð-
um þáttum um bókmenntir og
listir.
Að öllu samanlögðu þykir mér
rit þetta vera bæði skemmtilegt og
líflegt. En hversu lengi mun það
lifa? Ef íslendingar væru ekki tvö
hundruð og fjörutíu þúsund held-
ur tvær og hálf milljón væri
vandalaust fyrir það að komast af.
Hitt ber vott um bæði stórhug og
bjartsýni útgefandans, Fjölnis hf.,
að bjóða upp á svona glæsilegt rit
fyrir okkar smáa markað.
SAMSVIÐSTÆKNI
Maharishi
Samsvióstækni Maharishi sameinar þekkingu á samsviö-
inu, eins og því er lýst af skammtaeðlisfræði, og huglæga
reynslu af samsviöinu sem fæst með iðkun tækninnar Inn-
hverf íhugun. Með tækninni Innhverf íhugun er samsviðið
lífgað í vitund iökandans. Við það verða hugsanir hans og
athafnir sjálfkrafa í samræmi við lögmál náttúrunnar.
Almennur kynningarfyrirlestur verður í kvöld kl. 20.30 að
Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóðleikhúsinu).
ÍSLENZKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ.
Metsölublað á hverjum degi!
Samkvæmt ákvæðum nýrrar byggingareglugerðar á nú
að nota þrefalt gler, eða gler með samsvarandi
einangrunargildi, í nýbyggingar á íslandi.
K-glerið frá Glerborg er svarið við auknum einangrunar-
kröfum.
Enn sem fyrr er Glerborg í fararbroddi íslenskra
glerframleiðenda og býður nú húsbyggjendum tvöfalt
gler með mun betra einangrunargildi en venjulegt þrefalt
gler hefur. K-gler Glerborgar er ný tegund glers, þar sem
önnur glerskífan er húðuð sérstöku einangrandi efni sem
hleypir sólarljósi ogyl inn, en kemur í veg fyrirað hitinn
streymi út. K-glerið frá Glerborg uppfyllirákvæði hinnar
nýju byggingareglugerðar, það minnkar hitunarkostnað,
en veitir óskert og fullkomið útsýni.
Einangrunarglldi glers:
Tegund elnangrunarglers Loftrúm mllll glerja K-glldl K-glldl m/argon
Venjulegt tvöfalt gler I2mm 3,0 2,8
Venjulegtþrefaltgler I2mm 2,l 1,9
K-gler tvöfalt (diaplus) I2mm 1,8 1,45
Einangrunargildi er mælt í W/m2 og kallast k-gildi. Því
lægri sem k-gildistalan er, þeim mun betri einangrun.
Glerborgar K-qlerið sannar að stundum er..„
K-gler. Elnangrunarhúð á innanverðu glerinu.
Hafðu samband strax
við sölumenn okkar og
fáðu nánari upplýsingar.
K-glerið á erindi til
allra húsbyggjenda í dag.
K-gler. Sólarljós nær óhlndrað f gegn,
90% af hitanum haldlð Innl.
GLERBORG HE
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI53333
, ...Ivöfalt f,
betra en þreialt!
05 42