Morgunblaðið - 07.03.1985, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.03.1985, Qupperneq 20
20 MOBGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985 LÍNUEFNI BLÝ-TEINATÓG FLOTTEINN NÆLON-TÓG STÁLVÍR allskonar SNURPIVÍR 28m/m 6x24x7 800 mtr. rúllur KARAT LANDFESTATÓG 50% aukinn styrkleiki BAUJUSTENGUR ÁL, BAMBUS, PLAST BAUJULUKTIR ENDURSKINSHÓLKAR ENDURSKINSBORÐAR LÍNUBELGIR NETABELGIR BAUJUBELGIR ÖNGLAR — TAUMAR MÖRE- NETAHRINGIR NETAKEÐJA NETALÁSAR NETAKÓSSAR LÓÐADREKAR BAUJUFLÖGG NETAFLÖGG FISKKÖRFUR FISKGOGGAR FISKSTINGIR SALTSKÓFLUR ÍSSKÓFLUR FLATNINGSHNÍFAR FLÖKUNARHNÍFAR BEITUHNÍFAR KÚLUHNÍFAR SVEÐJUR VASAHNÍFAR STÁLBRÝNI HVERFISTEINAR í KASSA OG LAUSIR RAFMAGNS- HVERFISTEINAR • BÁTASAUMUR SKIPASAUMUR EIRSAUMUR exterior FYLLIEFNI ÚTI — INNI POlYSTRfPPA LAKK- OG MÁLN- INGARUPPLEYSIR NÚ EINNIGl FULLKOMIN MÁLN- INGARÞJÓNUSTA ALLIR LITIR OG ÁFERÐIR Á VEGGI, GÓLF, GLUGGA, VINNUVÉLAR OG SKIP. ÁNANAUSTUM SÍMI 28855 Opiö laugardaga 9—12 Við þurfum ekki konur með byssur — eftir Aslaugu Ragnars Það gladdi margan jafnréttis- sinnann er það spurðist í vetrar- byrjun að tekizt hefði „þver-póli- tísk“ samstaða fjölmargra kvennasamtaka — þar á meðal úr öllum stjórnmálaflokkum — um aðgerðir í tilefni af því að nú er kvennaáratug Sameinuðu þjóð- anna að ljúka. Ekki fer á milli mála að nokkuð hefur miðað í jafnréttisátt á kvennaáratugnum. Því fer þó fjarri að jafnréttisbar- áttunni sé lokið. Lok kvennaára- tugarins eru ekki annað en upphaf þeirrar baráttu sem framundan er. Á kvennaáratugnum hafa ís- lenzkar konur — í öllum flokkum og öllum stéttum — komið auga á nauðsyn þess að geta starfað sam- an á „þver-pólitískum“ grundvelli til þess að þoka sérmálum sínum áleiðis. Slíkt samstarf hefur þó gengið brösótt eins og dæmin sanna. Nægir í því sambandi að benda á Rauðsokkuhreyfinguna sálugu, Kvennaframboðið og Kvennalistann. Rauðsokkuhreyf- ingin leystist upp í frumeindir sín- ar fyrir nokkrum árum og komið er í ljós að hvorki Kvennaframboð né Kvennalisti eru þverpólitískar hreyfingar eins og til var stofnað, heldur réttir og sléttir vinstri stjórnmálaflokkar, og er út af fyrir sig ekkert við því að segja. Þverpólitísk samstaða kvenna er erfiðleikum háð. Til þess að hún sé framkvæmanleg þarf til að koma sanngirni, félagsþroski og einlægur vilji þeirra sem að standa. Með öðrum orðum — það verður að virða leikreglur. Ein helzta leikreglan er sú að standa saman um það sem sameinar en láta það sem sundrar liggja á milli hluta. Á þessu hefur hvað eftir annað orðið misbrestur og það verður að segjast eins og er að konur sem eru lengst til vinstri í stjórnmálum eru þær sem hvað eftir annað hafa rofið hina þver- pólitísku samstöðu. Þær koma fram og setja úrslitakosti sem gera samstöðuna óaðgengilega og stundum algjörlega útilokaða. Þar með leika þær ekki einungis þær konur grátt sem telja sig hægri sinnaðar og koma úr samtökum þar sem enginn vafi leikur á póli- tískri afstöðu, heldur einnig og raunar miklu fremur þær konur sem vilja sem minnst vita af tog- streitu stjórnmálaflokka en vilja vinna að jafnrétti og sérmálum kvenna án þess að þurfa í leiðinni að flækjast í flokkspólitískt þras sem eru sérmálum kvenna með öllu óviðkomandi. Nýjasta dæmið um það hvernig konur lengst til vinstri bregðast í hinni þverpólitísku samstöðu er sú ákvörðun Samtaka kvenna á vinnumarkaði að gera það að úr- slitaatriði og skilyrði fyrir þátt- töku sinni í fundi sem Samstarfs- nefnd kvenna 1985 heldur í Há- skólabíói á alþjóðlegum baráttu- degi kvenna, 8. marz, að Gladys Baez, fulltrúi skæruliða í Nicar- agua, verði ræðumaður á fundin- um. í kjölfar Samtaka kvenna á vinnumarkaði hafa svo siglt Kvennafylking Alþýðubandalags- ins, Kvennaframboðið og Kvenna- listinn. Þessi samtök meta sem sé meira fulltrúa umdeildrar skæru- liðahreyfingar í Mið-Ameríku en samstöðu íslenzkra kvenna. Það er vitað mál að stjórnmálasamtök hérlendis sem erlendis greinir á í afstöðu sinni til skæruliðahreyf- inga í Nicaragua og víðar um heimsbyggðina, og skæruliði úr fjarlægri álfu, sem þar að auki er með öllu óþekktur hér á landi, á vitaskuld ekkert erindi á fyrstu þverpólitísku samkomu íslenzkra kvenna á lokaári kvennaáratugar- ins. Kjörorð kvennaáratugarins eru jafnrétti, framþróun, friður. Ekki er ástæða til að efast um það að Gladys frá Nicaragua sé ötull tals- maður jafnréttis og þróunar, en að hún sé friðarsinni leyfi ég mér að bera brigður á. Vopnaður skæru- Nicaraguakonan með riffil. „Ekki er ástæða til þess að efast um það að Gladys frá Nicaragua sé ötull talsmaður jafnrétt- is og þróunar, en að hún sé friðarsinni leyfi ég mér að bera brigður á. Vopnaður skæruliði er ekki að boða frið ... “ liði er ekki að boða frið, hvorki í sínu eigin landi né utan þess. Með- fylgjandi mynd sem dreift hefur _ Þaöer sama hvernig þú reiknar... Útkoman veröur alltaf sú sama: Þú færð mest fyrir peningana, þegar þú kaupir MAZDA! Til dæmis MAZDA 323 árg. 1985: Hann kostar aðeins kr. 337.900 MEST FYRIR PENINGANA i nazDa BILABORG HF Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.