Morgunblaðið - 07.03.1985, Side 37
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985
37
Þakka hjartanlega öllum þeim sem glöddu
mig á 80 ára afmælisdaginn 31. janúar síðast-
liðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Kristin Ólafsson,
Hörgshiíð 28,
Reykjavík.
Aðalfundur
Félags hesthúsaeigenda
í Víðidal
veröur haldinn í félagsheimili Fáks viö Bústaðaveg
fimmtudaginn 14. marz 1985 kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
1. Kosning fundarstjóra og embættismanna fund-
arins.
2. Skýrsla stjórnar — umræöur.
3. Skýrsla gjaldkera — umræöur.
4. Önnur mál.
Ath. Borin veröur fram tillaga þess efnis aö stjórn félagsins skuli nýta sér
framkvæmdavald sbr. 15 gr. laga félagsins tll aö halda áfram fram-
kvæmdum viö aö lagfæra sameiginlegt svæöi félagsmanna, Ijúka viö aö
snyrta hesthús, taöþrær og lóöir félagsmanna á kostnaö eigenda svo og
aö félagið láti gera geröi vestan vert viö A-tröö.
Viltu losnavið bakverldnn
og eymslin í hálsinum?
Þá skaltu reyna heilsudýnu og -kodda frá
Bay Jacobsen, viðurkennda framleiðslu sem skilar
ótrúlegum árangri.
Dýnan sér um að dreifa
þunga líkamans í svefninum,
þannig að blóðstreymi haldist
jafnt um allan skrokkinn, hún
heldur góðum hita á bakinu og
hefur notaleg nuddáhrif á
vöðvana.
Ummál: 70/80/90x190 cm.
Þykkt: Aðeins 3 cm og því
leggst hún ofan á dýnu sem
fyrir er.
Þyngd: 1,9 kg.
Verð: 3.260.- kr.
r'
Vinsamlegast sendið mér:
□ ..stk. heilsudýnu, breidd .
□ ..stk. kodda á kr. 1.390,-
NaílL
Koddinn tryggir höfðinu
og hálsinum rétta hvíldarstöðu
og réttur þéttleiki ásamt
góðum hita gerir það að
verkum að þú vaknar með
slaka háls- og axlarvöðva eftir
góðan nætursvefn.
Ummál: 45x55 cm.
Þykkt: 9-11 cm.
Verð: 1.390.- kr. _____P
—-------------------‘TTR
. cm x 190, á kr. 3.260.-
Símanr.
Heimili:
Póstnr.:
Sveitarfél.
Klippið seðilinn út og sendið með pósti til: Bústoð Pósthólf 192 230 Keflavík
v________________________________:_________________________________________________________*
Hvernig vœri að slá til strax í dag og senda okkur
útfylltan pöntunarseðilinn og við sendum þér vöruna
um hæl ípóstkröfu. 14 daga skilafrestur.
DREIFING
A fSLANDf
BOSTOÐ
Sími: 923377
230 Keflavík
BAB:
Skáldsaga eftir Siegfried Lenz
ÚT GR KOMIN á vegum Bókaklúbbs Almenna bókafélagsins skáldsaga
eftir þýska rithöfundinn Siegfried Lenz, sem í fréttatilkynningu frá BAB er
talinn einn af mestu höfundum 1‘ýskalands um þessar mundir og talinn með
þremur hinum stóru, þar sem hinir tveir eru Heinrich Böll og Giinter Grass.
Þessi skáldsaga nefnist á ís-
lensku Almannrómur (á þýsku
Stadtsgesprách) og þýðandi hennar
er Guðrún Kvaran málfræðingur.
í frétt BAB segir um efni sög-
unnar:
„Sagan gerist á stríðsárunum í
þorpi hernumdu af Þjóðverjum —
gæti verið í Noregi. Aðalpersón-
urnar eru skæruliðar og svo al-
menningur í þorpinu. Skæruliðar
vinna skemmdarverk og Þjóðverjar
taka 44 gísla og krefjast þess að
hinn ungi foringi skæruliðanna,
Daníel, gefi sig fram, að öðrum
kosti verði gíslarnir skotnir. Vita-
skuld harðbannar yfirstjórn
skæruliðahreyfingarinnar í land-
inu Daníel að skeyta þessu.
Meðal gíslanna eru feður, bræð-
ur, synir og vinir sumra af skæru-
liðunum, þá m. Daníels. Því næst
lýsir sagan hinu harða innra stríði
foringjans og skæruliöa andspænis
slíkum vanda, sem endar vitaskuld
með skelfingu, eins og alltaf gerist
í stríði.
Og síðan er það almannarómur-
inn í þorpinu. Hvert er viðhorf al-
mennings, og raunar þeirra skæru-
liða sem misst hafa ástvini sína,
gagnvart þeim unga manni sem
flestum finnst að beri ábyrgð á því
að gíslarnir yrðu skotnir — og
hvernig er hans eigin líðan — bæði
það sem eftir er striðsins og eftir
að stríðinu er lokið?
Almannarómur er með öðrum
orðum engin venjuleg stríðssaga,
heldur saga um ungt fólk í nauðum.
Það stendur andspænis skyldu-
verki sem það kemst ekki hjá að
inna af hendi, en er þó engan veg-
inn um það fært.“
Almannarómur er 211 bls.
Prentsmiðjan Oddi hefur sett,
prentað og bundið inn bókina.
MEMOREX DISKETTUR
FYRIR FAGMENNINA
Fylgdu í spor fagmannanna og fáðu þér
MEMOREX diskettur.
Við bjóðum þér þær á kynningarverði vikuna
4.-10. mars í tilefni sýningarinnar
„Tölvur ’85“ í Laugardalshöll.
Memorex diskettumar koma 100% villulausar
úr framleiðslu, hver einasta þeirra er
gæðaprófuð og endingin er fyrsta flokks.
Sölumenn eru í síma 91 -27333
acohf
Laugavegi 168-105 Reykjavík-Sími 91-27333