Morgunblaðið - 07.03.1985, Side 51

Morgunblaðið - 07.03.1985, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985 51 Listtherapisti eða listmeðferðarfræðingur Kennari skrifar: Það er nú nokkuð langt um liðið síðan Sigrún M. Proppé kom fram í beinni útsendingu hjá Ríkisút- varpinu og auglýsti eftir nafni á starfsgrein þá er hún hefur numið erlendis undanfarin ár. Nokkrar tillögur komu í lesendadálkum dagblaðanna skömmu síðar en eft- ir því sem ég best veit hefur engin þeirra enn náð fótfestu. Starfs- greinin sem svo erfiðlega gengur að nefna á íslenska tungu ber er- lenda heitið Art thcrapy eða list meðferð en vandamálið er að finna nafn á þann sem fæst við list meðferð. Það vill nú þannig til að ég og vinir mínir höfum með okkur eins- konar saumaklúbb þar sem lítið er saumað en mikið pælt og skrafað. Eitt af eftirlætisumræðuefnum okkar er nýyrðasmíð enda ís- lenskumagister í hópnum, en auk hans tveir kennarar, einn læknir, einn sálfræðingur og tveir versl- unarmenn. Reynslusvið hópsins er því nokkuð vítt og ætti það að hjálpa til við nýyrðasmíðina. Það verður þó að segjast eins og er að þrátt fyrir margra mánaða pæl- ingar og svita erum við engu nær um starfsheiti fýrir Sigrúnu Proppé. Við höfum lesið okkur heilmikið til um listmeðferð og komist að Skrifið eða hringið til Velvakanda því, að orð eins og listþjálfi sem okkur skilst að hafi verið notað á ríkisspítölum er allsendis ófull- nægjandi. Bæði er að therapy er ekki þjálfun í hefðbundnum skiln- ingi þess orðs og eins hitt að orðið gefur til kynna að verið sé að þjálfa listsköpun sem er mjög fjarri lagi. Orðið listmeðferðar- fræðingur er að öllum líkindum eina orðið sem er nothæft þó við höfum verið tregir til að sam- þykkja það hingað til þar sem okkur þótti orðið nokkuð þung- lamalegt. Samkvæmt rannsóknum okkar er aðeins ein önnur lausn, en það er að íslenska orðið therap- ist og Sigrún Proppé yrði þá list therapisti Það er ljóst að orðið meðferð er eina nothæfa orðið sem við eigum yfir therapy og sá sem hefur num- ið fræðin um listmeðferð er list- meðferðarfræðingur hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það er ljóst að þó orðið sé nokkuð þung- lamalegt þá er það eina lausnin sem ekki felur í sér íslenskun á erlendu orði. En hvað um það, þetta er okkar lausn á málinu og við skorum á þá sem ekki eru ánægðir með þessa lausn að láta frá sér heyra og koma þá með betri tillögur þó við teljum það næsta víst eftir margra mánaða rannsóknir að betri tillögur séu ekki til. Með von um að vegur listmeðferðar verði sem mestur á íslandi og listmeð- ferðafræðingar nái hér sem fyrst varanlegri fótfestu. Heil- ræðavísa Hörður Vilhjálmsson. Heilræðavísa að gefnu til- efni og má túlka sem athuga- semd við athugasemd lögfræð- ings í Morgunblaðinu föstu- daginn 15. febrúar sl. „Ef lögmanni leyfist ástunda lógík sem kennd er við hunda í einrúmi ætti hann að dunda en ei fram á ritvöll að skunda.“ Ekki allar á kostakjörum Sigrún Jónsdóttir, Suðurgötu, Keflavík, skrifar: Ég get alls ekki orða bundist, þar sem ég hef lesið í dagblöðun- um undanfarið um ágóða hjá ferðaskrifstofu hér í borg, aðeins um 7 milljónir. Þá er búið að borga starfsmönnum skrifstof- unnar nokkur hundruð þúsund í aukaþóknun á laun fyrir árið 1984. Ekki skil ég hvernig nokkur ferðaskrifstofa getur látið fólkið trúa því að allar þessar ferðir sem eru auglýstar séu kostakjör. Ég hef farið mjög oft með erlendri ferðaskrifstofu til suðurlanda, það eru kostakjör. Ekki veit ég hvern- ig í þessu liggur en eitt veit ég að þessi sama ferðaskrifstofa hefur fjárfest nú aðeins á nokkrum ár- um í stórri fasteign við Austur- stræti þar sem er Ferðaskrifstof- an Samvinnuferðir/Landsýn. Hvernig náið þið svona miklum gróða, er lagt svona mikið á ferð- irnar sem þið seljið okkur? Stundin okkar skemmtileg Nú þegar allir eru kvartandi og kveinandi ætla ég að senda þakk- arbréf. Ég vil þakka fólkinu sem er með Stundina okkar. Það hefur staðið sig með prýði í vetur. Fjöl- breytt og skemmtilegt. Hún Lóló er svo sæt, og Óli prik sniðugur og líka þessi Bjössi bolla. Ég er hissa á blöðunum að taka ekki viðtöl við þessa stjórnendur og krakkana sem leika. Það væri gaman að vita hvað þau hugsa. Eitt finnst mér þó að, mér finnst að allt efni eigi að vera íslenskt, ekki myndir frá öðrum löndum. Vonandi verður það tekið til greina. Getur Þor- steinn Marelsson ekki verið kynn- ir stundum og gaman væri að fá Ásu aftur. Vonandi verður jafn gaman áfram. Margrét Reynisdóttir Tilboðsverslunín Barónsstíg 18 býður meira en helmings afslátt meöal annars á þessum vörum: Herraskór Verö: 795.00. Litur: brúnir. Tilboðsverslunin Barnónsstíg 18. S: 23566. diners

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.