Morgunblaðið - 21.03.1985, Page 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
67. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hóta árásum
á farþegaþotur
Muuma, Bahrain, og Nikósíu, 20. man. AP.
ÍRAKAR réðust úr lofti á sex borgir í íran og olíuútflutningsmiðstöð frana i
Kharg-eyju. Hæfðu þeir íranskt skip við Kharg og fórust sex úr áhöfn þess í
árásinni. Olíumannvirki löskuðust ekki og heldur ekki tvö skip, sem lestuðu
olíu.
Hundruð útlendinga voru fluttir
með sérstökum flugvélum Luft-
hansa og tyrknesks flugfélags frá
Teheran til Evrópu í dag. Var sel-
flutningurinn skipulagður eftir
hótanir fraka um að skjóta niður
allar flugvélar á flugi í lofthelgi
frans. Treysta útlendingar tak-
markað á ríkisflugfélag íran, sem
flýgur enn áætlunarferðir að degi
til og hagnast hefur á því að önnur
flugfélög hafa hætt flugi til Teheran.
Hussein Musavi forsætisráð-
herra íran sagði hótun fraka að
granda öllum flugvélum vera til
marks um sturlun. Ef írakar gerðu
alvöru úr hótun sinni yrði flugvöll-
urinn i Bagdað eyðilagður í eld-
flaugaárás og höfuðborgin lögð í
rúst.
frakar gerðu loftárásir á „valin
skotmörk" í borgunum Tabriz,
Hamadan, Dezful, Bushehr, Kerm-
anshah og Isfahan. Ráðist var á
hinar þrjár fyrsttöldu í kvöld en
hinar í morgun. Fregnir hafa ekki
borist um afleiðingar árásanna.
Þá kváðust frakar hafa fellt
4.000 hermenn á fenjasvæðinu á
suðurhluta landamæranna og
manntjón írana næmi því 27.200
mönnum frá því 11. marz. Segjast
írakar hafa hrundið innrás frana á
svæðinu og vera að „hreinsa til“
þar um slóðir. Einnig sögðust frak-
ar hafa skotið niður íranska orr-
ustuþotu yfir íran í dag.
Að sögn fraka héldu franir uppi
árásum á Basra í suðurhluta frak
og landamæraborgirnar Mandali
og Khanaqin. Sögðu þeir lítið tjón
hafa hlotizt, en sendingar útvarps-
ins í írak, sem heyrðust í London,
voru rofnar og sagt að loftárás
væri yfirvofandi.
Lukkunar pamfílar
Bretarnir Graham Barwell og David Gully höfðu ástæðu til að fá sér snúning
meÖ dönsurunum í söngleik, sem nú er sýndur í Lundúnum, því þeim voru
afhentar í gær ávísanir fyrir vinning í knattspyrnugetraun Littlewoods. Unnu
þeir hvor um sig tæp 800 þúsund sterlingspund, eða um 40 milljónir króna.
AP/ Símamynd
ísraelskir hermenn á eftirlitsferð við yfirgefnar byggingar á suðurbakka
Litani-árinnar í suðurhluta Líbanon, þar sem róstusamt hefur verið síðustu
daga.
Reynt að grafa
unaan Gemayel
Beirvt, 20. nn AP.
Harðir bardagar voru háðir þriðja
daginn í röð í hafnarborginni Sídon í
suðurhluta Líbanons og hafa 10
manns a.m.k. týnt lífi og 40 særst.
Þar eigast við stjórnarhermenn og
bardagasveitir kristinna manna,
sem er aðskilnaðarhreyfing úr flokki
falangista.
Leiðtogi andróðursmanna í
flokki Amins Gemayel forseta,
Samir Geagea, var skipaður yfir-
maður bardagasveitanna i dag í
stað Abu Nader frænda Gemayels,
sem gerður var að leiðtoga
löggjafarsamkomu aðskilnaðar-
samtakanna. Tilgangurinn er að
grafa undan forsetanum og efla
ítök samtakanna á svæðum krist-
inna.
Sveitir Geagea náðu mestum
hluta landsvæða kristinna norðan
við Beirút úr hendi stjórnarhers-
ins í síðustu viku. Talsmenn að-
skilnaðarmanna segja tilgang
sinn ekki að sækjast eftir sjálfs-
forræði kristinna manna í Líban-
on. Gemayel sagði á ríkisstjórnar-
fundi í dag að hann teldi uppreisn
bardagasveitanna vera svar við
myndun öfgahópa múhameðstrú-
armanna í Beirút.
Uppreisn sveita kristinna hófst
12. marz og kvörtuðu aðskilnað-
armenn yfir því að Gemayel léti
stjórnast af Sýrlendingum og
hann hefði verið of undanlátssam-
ur við múhameðstrúarmenn.
Stýriflaugarnar í Belgíu:
Sigur fyrir stjórn
Belgíu og NATO
Braasel, 20. marz. AP.
Ríkisstjórn Belgíu og Atlantshafsbandalagið unnu sigur er
þing Belgíu studdi ákvörðun stjórnarinnar að hefja uppsetn-
ingu stýriflauga í landinu, í samræmi við samþykktir Atl-
antshafsbandalagsins. Atkvæði féllu þannig að 116 þingmenn
studdu uppsetningu flauganna og 93 voru á móti. Einn þing-
maður sat hjá og tveir voru fjarverandi.
Niðurstaða fékkst ekki fyrr en
eftir 15 klukkustunda langar um-
ræður, sem á stundum urðu all
snarpar. Voru sérfræðingar á báð-
um áttum um afstöðu þingsins,
þar til Luc van den Brande, for-
sprakki andstæðinga stýriflaug-
anna í flokki Maertens forsætis-
ráðherra , ákvað á síðustu stundu
að styðja ákvörðun stjórnarinnar.
Kvað hann einingu í flokknum
Tónlistin yfir-
gnæfði lestarskrölt
Stokkhólmi, 20. nurz. AP.
Nítján ára frjálsíþróttakona, Anita Sundberg, sem var efnilegur lang-
hlaupari, lézt samstundis er hún varð fyrir járnbrautarlest á æfingu í
dag. Var hún með hlustunartæki á höfði (vasadiskó) og heyrði ekki í
lestinni og hljóp í veg fyrir hana.
Sundberg var úti að skokka
nærri heimaborg sinni, Sollefteá
í Norður-Svíþjóð, er hún hljóp
yfir brautamót járnbrautar
akvegar, sem ekkert hlið er við.
sama mund kom farþegalest eft-
ir teinunum og skipti engum tog-
um að lestin ók á stúlkuna.
Segulbandstækið, af gerðinni
Walkman, var stillt eins hatt og
unnt var. Að sögn lögreglu-
stjórans í Sollefteá var enginn
möguleiki á að hún heyrði í lest-
inni nálgast. Sagði hann það
áhyggjuefni að stöðugt fjölgaði
skokkurum með slík tæki á höfði
og lýsti hann sig fylgjandi banni
við notkun slíkra tækja á al-
mannafæri.
mikilvægari en persónulegan
metnað sinn.
Embættismenn í höfuðstöðvum
NATO segja stuðning þingsins við
flaugarnar kunna að hvetja stjóm
Hollands til að ákveða uppsetn-
ingu 48 stýriflauga þar í landi. Bú-
ist er við ákvörðun stjórnarinnar
fyrir 1. nóvember.
Mikil gremja ríkti meðal leið-
toga hreyfingar, sem barist hefur
gegn uppsetningu flauganna í
Belgíu. Efndi hreyfingin til mik-
illa mótmælaaðgerða á sunnudag í
Brussel. Segjast forsprakkar
hennar munu einbeita sér að kosn-
ingunum 8. desember nk. og stuðla
að falli stjórnarinnar þá.
Stjórnin ákvað í síðustu viku að
hefja uppsetningu fyrstu 16 flaug-
anna af 48 í flugstöð í suðurhluta
landsins. Ákvörðunina studdu 111
stjórnarþingmenn af 113 og 5
þingmenn flokka íhaldsmanna og
óháðra, sem eru í stjórnarand-
stöðu. Atkvæði gegn ákvörðuninni
greiddu þingmenn Jafnaðar-
flokksins, umhverfissinnar,
kommúnistar og þingmenn
frönskumælandi þjóðernissinna.
Stýriflaugarnar, sem settar
verða upp í Belgíu, eru hluti af 572
stýriflaugum og Pershing-2-
flaugum, sem NATO ákvað 1979
að setja upp í Evrópu til að vega
upp á móti miklum fjölda SS-20-
flauga, sem Sovétmenn beina á
skotmörk í Evrópu.
Stækkun EB:
Leysist
deilan
í dag?
Braaœl, 20. marz. AP.
Utanríkisráðherrar ríkja Evr-
ópubandalagsins (EB) luku
fjórða fundardeginum án þess
að ná samkomulagi um skil-
mála fyrir inngöngu Spánar og
Portúgals og framlengdu fund
sinn um einn dag.
Ráðherrarnir hafa setið á
fundum frá þvi á sunnudag og
reynt að höggva á hnútinn. Bú-
ist er við að einhverjum
ágreiningsefnanna verði vísað
til leiðtogafundar EB i næstu
viku.
Helztu ágreiningsefnin eru
kröfur Spánverja um aðgang
fiskveiðifiota síns að fiskveiði-
lögsögu EB. Jaeques Delors,
forseti framkvæmdastjórnar
EB, sagðist i dag sjá þess
merki að árangur hefði náðst á
fundunum og batt 'nann vonir
við að á morgun tækist að út-
kljá óleyst ágreiningsefni.