Morgunblaðið - 21.03.1985, Qupperneq 19
MORGIJNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1986
19
konsertarnir, fiðlukonsertarnir
tveir og konsertinn fyrir 2 fiðlur
og hljómsveit í d-moll, en mikið af
verkum Bachs frá þessum árum
hefur glatast. Sorgin settist að f
hjarta Bachs, þegar kona hans,
María Barbara, dó skyndilega frá
4 lifandi bðrnum þeirra. 18 mán-
uðum síðar kvæntist hann öðru
sinni, stúlku tvítugri að aldri að
nafni Anna Magdalena, sem gekk
4 börnum hans í móður stað og ól
honum 13 til viðbótar.
Dáleikar þeir, sem Johann Seb-
astian hafði notið við hirðina i
Cöthen dvlnuðu þegar Leopold
prins kvæntist konu sem var gjör-
sneydd tónlistargáfu, var sem fót-
um væri kippt undan stöðu Jo-
hanns Sebastian. Honum fannst
sér ofaukið og fór að svipast um
eftir öðru starfi. Árið 1722 dó
kontorinn við Tómasarkirkjuna í
Leipzig, hinn nafntogaði Johann
Kuhnan. Yfirvöld kirkju og borgar
í Leipzig lögðu ofurkapp á að fá
vinsælt tónskáld þess tíma, Georg
Philip Telemann, til starfans, en
hann gaf ekki kost á sér. Þá ákvað
Johann Sebastian að sækja um
starfið og var einn fjögurra um-
sækjenda. Hirðmúsíkant frá
Darmstadt varð þá fyrir valinu, en
þegar hann dró umsókn sína til
baka, mæiti hann með Johanni
Sebastian Bach.
Löngun til að helga sig kirkju-
legum tónsmíðum að nýju ásamt
bættri aðstöðu til menntunar
barna sinna hefur sennilega riðið
baggamuninn, þegar Bach ákvað
að segja lausri vel launaðri stöðu
sinni í Cöthen og taka upp kant-
orstarf í Leipzig fyrir V* hluta
þeirra föstu launa, sem honum
voru tryggð við hirðina í Cöthen.
„Messa J.S. Bachs í h-
moll hefur sérstöðu
meðal tónsmída hans og
er auk þess einstök
meðal allra tónverka,
enda af sumum talin
„mesti tónskáldskapur
allra tíma“. Verkiö hef-
ur aö því er fullvíst má
telja aldrei veriö flutt í
heild frá dögum Bachs.“
Hann vann að Jóhannesarpassí-
unni, sem var nærri fullbúin til
flutnings. Kantorstarfið við Tóm-
asarkirkjuna og skólann fól í sér
margar skyldur af ólíkum toga,
m.a. að hafa umsjón með flutningi
kirkjulegrar tónlistar í 4 kirkjum
borgarinnar. Til þess var Johann
Sebastian ráðinn frá 30. maí 1723,
og er þannig bókfært hjá yfirvöld-
um staðarins: „Fyrst hið bezta
liggur ekki á lausu verðum við að
sætta okkur við það sem í boði
er.“!
Þar með hófst nýr kapítuli í
sögu kirkjulegrar tónlistar, sem á
sér enga hliðstæðu. Á þeim dögum
voru 59 helgidagar kirkjuársins í
Leipzig lögboðnir, og ein af skyld-
um kantorsins var að leggja til
kantötu, annaðhvort frumsamda
eða aðra úr safni kirkjunnar fyrir
hvern helgidag. Vitað er, að Jo-
hann Sebastian samdi a.m.k.
fimm ólíkar gerðir af kantötum
fyrir hvern helgidag ársins eða
minnst 295, auk nokkurra verald-
legra. Þar við bætast stóru kór-
verkin, Jóhannesarpassían
1722—'23, Magnificat 1723,
Mattheusarpassían 1729, Markús-
arpassían, sem nú er glötuð að
hluta, og H-moll messan 1733 —
en fyrst lokið 1748, tveim árum
fyrir dauða tónskáldsins.
Messa J.S. Bachs í h-moll hefur
sérstöðu meðal tónsmíða hans og
er auk þess einstök meðal allra
tónverka, enda af sumum talinn
„mesti tónskáldskapur allra
tíma“. Verkið hefur að því er full-
víst má telja aldrei verið flutt í
heild á dögum Bachs. Margvíslegir
erfiðleikar og árekstrar urðu milli
Johanns Sebastian og borgaryfirv-
alda í Leipzig. Engin mannleg
skýring er til á afköstum hans,
einkum þegar litið er á hinar
margvíslegu skyldur hans við
kennslu og hvers konar athafnir,
auk þess að vera faðir 21 barns og
sinna skyldum sínum sem heimil-
isfaðir, kennari og uppalandi. Að-
staða hans við flutning tónlistar
var oft bágborin sökum ófull-
nægjandi kunnáttu hljóðfæraleik-
ara og söngvara, eins og fram
kemur í ýmsum bréfum hans til
yfirvalda. Líklegt er að Bach hafi
um skeið hugsað til hreyfings frá
Leipzig. Fyrsti hluti H-moll mess-
unnar, Kyrie og Gloria, var sam-
inn 1733 og sendur ásamt auð-
mjúku bréfi til Friðriks Augustus-
ar 2. kjörfursta af Saxlandi og
konungs Póllands, sem um það
leyti var krýndur sem arftaki
Augustusar sterka, með beiðni um
titil hirðtónskálds við hirðina i
Dresden. Svarið barst 3 árum síð-
ar — og titillinn með — en ekkert
boð um starf við hirðina. Samt
mun þessi titill hafa ýtt við yfir-
völdum í Leipzig og verið nokkur
virðingarauki fyrir höfundinn. En
Bach var kyrr í Leipzig til dauða-
dags 1750.
H-moll messan ber nöfn hinnar
rómversk-kaþólsku messugjörðar,
þ.e. Kyrie, Gloria, Credo, Sanctus,
Hósanna, Beneditus og Agnus Dei
— við hinn lútherska texta há-
messunnar. Ekkert bendir samt
til, að verkið hafi verið hugsað til
messugerðar í rómverskum eða
lútherskum stíl. Verkið er fullt af
táknmyndum og er stærsti minn-
isvarðinn um höfund sinn, skoðan-
ir hans, lífsviðhorf, virðingu fyrir
lífinu og skapara þess, almættinu,
tilbeiðslu, hugljómun, meistara-
lega kunnáttu og snilld.
Síðari þáttum H-moll messunn-
ar lauk Bach fyrst á síðustu ævi-
árum sínum, 1747—’48. í rauninni
er verkið safn 4 sjálfstæðra
tónsmíða, þ.e. Messa, sem lokið
var 1733 og inniheldur kaflana
Kyrie í 3 þáttum og Gloria í 12.
Symbolum Nicenum eða Credo er
trúarjátningin í 9 þáttum, þar sem
krossfestingarkórinn er mið-
punktur og um leið sá öxull, er
verkið snýst um. Sanctus fylgir
næst, magnaður 6 radda kór með
sýn Jesaja spámanns í bakgrunni,
er snyst upp í 6 radda fúgu við
textann Pleni sunt coeli et terra
gloria ejus. t beinu framhaldi og
sömu taktskipan tekur við flókið
tónaflúr Osanna fyrir 2 kóra og 8
raddir, en síðan aríurnar Bene-
dictus og Agnus Dei. Verkinu lýk-
ur með endurtekningu á kór úr
Gloria-þættinum við textann
Dona nobis pacem — Gef oss frið
— sem er jafn tímabært ákall
mannkynsins til skapara síns nú
og nokkru sinni fyrr.
Þegar Johann Sebastian Bach
lauk þessu meistaraverki sínu árið
1748 og setti að venju undir af
hógværð sinni og lítillæti
skammstöfunina S.D.G. (Sali Dei
Gloria — Guði einum sé dýrð) hef-
ur honum varla hugkvæmst að
hann hafði fullgert eitt mesta
snilldarverk mannsandans.
Tiltölulega fá af verkum Jo-
hanns Sebastian Bach hafa nokk-
urn tíma verið flutt á íslandi. Páll
ísólfsson, orgelsnillingurinn
mikli, steig í fótspor Bachs í
Leipzig og varð fyrstur til að
kynna orgelverk hans hér. All-
margir hljóðfæraleikarar, inn-
lendir og erlendir, hafa flutt ýmis
af verkum hans fyrir einstök
hljóðfæri eða kammersveit. Pólý-
fónkórinn hefur flutt stóru kór-
verkin, Passíurnar, Magnificat,
Jólaoratoríuna og H-moll mess-
una, en flestar kantöturnar og
aðrar tónsmíðar eru hér lítt eða
ekki kunnar. Hér er þörf að ráða
bót á og er auðvelt með samstilltu
átaki aðdáenda Bachs, sem nú
ætla að stofna félag til aukins
skilnings, kynningar og eflingar á
tónlist hans á íslandi.
Það er ósk mín og von, að flutn-
ingur H-moll messu Bachs á 300
ára afmælisdegi hans hinn 21.
marz nk. verði hlustendum til
gleði og opni skrá að þeim fjár-
sjóðum snilldar og fegurðar, sem
eru ofar mannlegum skilningi.
Ingólfur Guðbrruidsson, forstjóri
ferðaskrifstofunnnr Útsýnar, er
stjórnandi Pólýfónkórsins og
stjórnar flutningi kórsins og Sin-
fóníuhljómsveitar íslands i H-moll
messu Bachs í kröld. Hann flutti
ofangreint erindi um J.S. Bacb í
Norræna búsinu 17. mars 1985.
Tilvalin fermingargiöf
Gefjunarsvefnpokar eru framleiddir í
fjórum mísmunandi geröum, aöeins
eru notuö bestu fáanleg hráefni og
allt hefur veriö gert til aö tryggja
hámarksgæöi
GEFJUNAR
SVEFNPOKAR
GERÐIR:
2000 fylling I0(X) gr hoílofil
2015 fylling 850 gr hollofil
2020 fyfling 1000 gr gaesadúnn
2025 fylling götuö álfilma og
polyester. laufléttur