Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.03.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985 21 Morgunblaðiö/Friöþjófur Alfreð Jóhannsson framkvKmdastjóri ísfugls tv. og Jón Guómundsson bóndi á Reykjum sýna blaðamönnum kalkúnaframleiðsluna. Árs gamlir kalkúnhanar, sem notaðir eru til undaneldis. Útlit fyrir að hægt verði að fullnægja vaxandi eftir- spurn eftir kalkúnakjöti Á Reykjum í Mosfellssveit hef- ur verið stunduð kalkúnarækt frá því árið 1947 þegar Jón Guð- mundsson, bóndi þar, fékk nokk- ur stykki af svonefndum „Brons kalkúnum" hjá klaustrinu í Hafnarfirði. Skömmu eftir 1960 fékk Jón leyfi heilbrigðisyfirvalda til að flytja inn nokkur útungunar- egg af hvítum kalkúnum frá Danmörku og voru þá fram- leiddir nokkrir tugir fugla á ári framanaf, en mest komst framleiðslan upp í 4—600 á ári. Á þessum árum var ekki mikil eftirspurn eftir kalkúnakjöti hér á landi og þessi búskapur einskonar hliðargrein frá bú- inu. Árangurinn að koma í ljós Um 1970 fékkst enn leyfi til að flytja inn útungunaregg frá Noregi. Þessi raektun gekk ekki vel vegna þess- að eggin voru illa frjó. Úr því var síðan bætt þegar Jón rifjaði upp aðferð við tæknifrjóvgun fyrir u.þ.b. tveimur árum. Seint á árinu 1983 fóru svo tveir starfsmenn búsins til Noregs til þjálfunar. Þaðan komu þeir með tæki og góðan undirbúning og hófu sæðingar á síðastliðnu sumri. í vetur fór árangurinn að koma í ljós og hefur tekist að fá 90% frjó egg og er unga- fjöldi í samræmi við það. Sæði er nú tekið úr hönum tvisvar í viku og hver hæna sædd viku- lega. Vaxandi eftirspurn Þeir Jón Guðmundsson, Guð- mundur Jónsson, Mark Birch- back og Aðalsteinn Jóhannsson framkvæmdastjóri „ísfugls" kynntu kalkúnaræktunina á Reykjum fyrir blaðamönnum nú í vikunni. Þar kom fram að nú væri útlit fyrir að hægt verði að fullnægja vaxandi eft- irspurn eftir kalkúnakjöti. Sláturhúsið ísfugl er að sérhæfa starfsfólk sitt til að slátra kalkúnum í verulegu magni. Einnig hefur verið ráð- inn danskur matvælatækni- fræðingur til tsfugls og er hann með ýmsar hugmyndir um það hvernig hægt verði að vinna þetta kjöt. Jón Guðmundsson sagði að heilbrigðisyfirvöld væru mjög varkár með innflutning og væri því beitt ströngu úrvali, bæði hvað snertir vaxtarhraða og vaxtarlag fuglanna, svo og eggjafjölda. Hver fugl hefur sitt númer og eru haldnar skýrslur um helstu og æski- legustu eiginleika einstakra fugla. Tekið hefur verið á leigu húsnæði fyrir kalkúnafram- leiðsluna til bráðabirgða og það innréttað eftir þðrfum framleiðslunnar. Kalkúnar hentugir til kjötframleiðslu Best er að slátra kalkúnun- um þegar þeir eru um fjögurra mánaða gamlir. Þá vega þeir um 4—5 kg. og er það talin hentug stærð í máltíð fyrir eina fjölskyldu. Ýmsir eiginleikar kalkún- anna gerir það að verkum að þeir eru mjög hentugir til kjötframleiðslu. I því sam- bandi má nefna að gæði kjöts- ins breytast ekkert þó fuglinn stækki. Einnig vegna þess að um 80% af þyngd fuglsins nýt- ist til kjötframleiðslu. Guðmundur Jónsson, bú- stjóri á Reykjum, sagði að um 400 fuglum verði slátrað nú fyrir páska. Alls verður slátrað um 2—3000 fuglum á þessu ári. Guðfræðing- ar á ferð á Snæfellsnesi Stjkkisbólmi 17. nure. S.I. fostudag komu 24 guðfræði- nemar hingað til Stykkishólms. Er þetta einn liður í náminu að heim- sækja staði úti á landi. Guðsþjón- usta var svo í Stykkishólmskirkju kl. 10 á fostudagskvöldið og þar flutti prédikun einn úr hópnum Yrsa Þórð- ardóttir. Á sama tíma og þessi guðsþjón- usta var voru nemendur Gagn- fræðadeildar miðskólans með árshátíð. Þó var þessi athöfn sæmilega sótt. Daginn eftir heimsóttu guð- fræðinemar katholska sjúkrahús- ið og héldu bænastund i kapellu sjúkrahússins. Skoðuðu sjúkra- húsið ásamt viðbyggingu og prentsmiðju systranna sem er ein snyrtilegasta prentsmiðja hér á landi. Þá borðuðu þau hádegisverð hjá systrunum á sjúkrahúsinu. Eftir hádegi var haldið að Helga- felli, og farið þar i kirkju eins og í Stykkishólmi. Síðan var förinni heitið inni í Dali. Árni jpglýsinga- síminn er 2 24 80 RENAULT 9 NÍJTÍMABÍLL MEÐ FRAMTÍÐARSVIP Renault 9 er sparneytinn, snarpur og þýður, auk þess er hann framhjóladrifinn. Faliegtogstilhreintútllt.vandaðurfrágangur.öryggiogendlng hafa tryggt Renauit 9 vinsældlr viða um lönd. Renault 9 er þvi draumabíll íslenskra ökumamuu Komdu og taktu i hann, þá veistu hvað vlð melnum Pú getur reltt þfg a Renauit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.