Morgunblaðið - 21.03.1985, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985
Innilega þökkum viÖ öllum þeim sem glöddu
okkur á sextugsafmælinu 15. mars sl. með
heimsóknum, gjöfum, kortum og skeytum.
LifiÖ heil!
Margrét og Guðbjörg,
Minna-Núpi.
AFMÆLISÞAKKIR
Kæru vinir og frændur nær og fjær.
Hjartanlega þakka ég ykkur öllum sem glöddu
mig ósegjanlega í tilefni af 90 ára afmœli
mínu meö kveöjum, höföinglegum gjöfum og
vinarfundum.
GuÖ blessi ykkur öU.
Sigurjón, Raftholti.
Hj á embætti skattrannsóknarstjóra er unnið
í þágu þeirra sem hafa framtalið í lagi
Það er sjálfsagður réttur allra heiðarlegra skattgreiðenda að eftirlit sé haft
með þeim sem reyna að brjóta lög og svíkja undan skatti. Hjá embætti
skattrannsóknarstjóra vinna sérfróðir menn með aðstoð nýjustu tölvutækni
við slíkt eftirlit.
Hluti starfs þeirra felst í fyrirbyggjandi aðgerðum - heimsóknum í fyrirtæki
vegna almenns eftirlits og til ráðgjafar.
Með fjölgun starfsmanna og tölvuvæðingu má nú fara yfir margfalt fleiri
framtöl og reikninga á mörgum sinnum skemmri tíma en áður. Samanburður
allra fyrirtækja í sömu starfsgrein er fljótlegur. Til dæmis tekur aðeins
skamma stund að sjá hvernig hlutfallið milli heildarveltu og skattskyldrar
veltu lítur út í rekstrarreikningi fyrirtækis.
Skattrannsóknarstjóri skal hafa meö
höndum skatteftirlit og rannsóknir. Hann
skal fylgjast með eftirlitsstörfum
skattstjóra, leiðbeina um eftirlitsaðgerðir og
veita þeim upplýsingar um atvinnugreinar,
atvinnuvegi eða önnur atriði sem þýðingu
hafa við skatteftirlit. Skattrannsóknarstjóri
getur hafið rannsókn á hverju því atriði er
varðar skatta, lagða á samkvæmt lögum.
Hvaða óróleiki er
þetta þó sölu-
skattsskýrslan sé
á núlli nokkra mán
uði í röð .. ?
FJARMALARAÐUNEYTIÐ
Friðrík S. Kristinsson
Einsöngstón-
leikar í Stykk-
ishólmi
FRIÐRIK S. Kristinsson söngvari
og Lára S. Rafnsdóttir píanóleikari
halda tónleika í Félagsheimilinu í
Stykkishólmi laugardaginn 23. mars
kl. 17.00.
Á efnisskránni verða m.a. söng-
lög eftir Karl ó. Runólfsson, Jón
Þórarinsson, Pál ísólfsson, F.
Schubert, A. Scarlatti og P. Tosti.
Friðrik hefur undanfarin ár
stundað nám i Söngskólanum í
Reykjavík og hefur Magnús Jóns-
son verið kennari hans. Vorið 1984
lauk Friðrik 8. stigs prófi í söng og
síðastliðið haust innritaðist hann í
Söngkennaradeild Söngskólans í
Rvk.
Þetta eru fyrstu sjálfstæðu
tónleikar Friðriks.
Menntaskólinn
í Reykjavík:
Stjórn Fram-
tíðarinnar
vikið frá
STJORN Framtíðarinnar, málfunda-
félags Menntaskólans í Reykjavík,
hefur orðið uppvíst að misferli með
fé félagsins og hefur henni verið vik-
ið frá og bókhald félagsins gert upp-
tækt. Upphæð sú sem þarna um ræð-
ir nemur 57 þúsund krónum í risnu,
en auk þess er um að ræða reikn-
inga vegna kostnaðar við leigubfla
að upphæð krónur 10.300. Til sam-
anburðar má geta þess að á síðasta
ári var fé það sem fór til sömu liða 5
þúsund kr. í risnu og 1.056 krónur í
leigobfla.
Framangreindar upplýsingar
komu fram á blaðamannafundi
sem stjórn skólafélags Mennta-
skólans í Reykjavík boðaði til í
gær. Framtíðin er eina félagið
innan veggja Menntaskólans I
Reykjavík sem ekki heyrir undir
skólafélagið og er það sakir gam-
alla hefða sem haldnar eru í heiðri
í skólanum. í Framtíðinni eru fé-
lagar um 450 af 820 nemendum
skólans og sér félagið um stóran
hluta félagslífs nemenda, svo sem
árshátíðir. Löggiltir endurskoð-
endur fara ekki yfir reikninga fé-
lagsins, eins og reikninga skólafé-
lagsins, heldur hafa tveir félagar
verið kjörnir til að fara yfir reikn-
ingana.
Tómas Guðbjartsson, inspector
scholae, sagði að í samráði við
rektor og í krafti embættis síns
sem æðsta embættismanns nem-
enda í skólanum, hefði hann vikið
stjórn Framtíðarinnar frá vegna
þessa, en í reglum um embætti
hans segir að honum beri að bera
hagsmuni allra nemenda fyrir
brjósti.
Málið verður ekki kært, en
skólastjórn, sem í eiga sæti tveir
fulltrúar nemenda og kennara
hvorra um sig, auk rektors, tekur
ákvörðun um frekari meðferð
málsins á fundi sínum í dag.