Morgunblaðið - 15.05.1985, Síða 1
64 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
108. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fjöldamorð
á Sri Lanka
Colombo, 14. maí. AP.
SKÆRULIÐAR tamfla á Sri
Lanka myrtu í dag 78 manns og
særðu aðra 100 í árás, sem þeir
gerðu á bæ í norðurhluta lands-
ins. Var hann byggður sinhales-
um, sem eru í meirihluta á eynni.
„Grimmdarverkin í Anura-
dhapura eru mestu hryðjuverk,
sem um getur á Sri Lanka,"
sagði einn embættismanna
stjórnarinnar, en meðal hinna
föllnu eru 30 konur og fimm
börn. Sagði hann, að tamílarn-
ir, sem berjast fyrir sérstöku
ríki tamíla á norðurhluta eyj-
arinnar, hafi komið inn í bæinn
og skyndilega ráðist á fólk, sem
beið eftir strætisvagni, og engu
skeytt um hvort þeir vógu
karla, konur eða börn. Gengu
mennirnir um öskrandi og æp-
andi meðan þeir stóðu í mann-
vígunum en forðuðu sér síðan á
brott áður en hermenn stjórn-
arinnar komu a vettvang.
Morðin áttu sér stað snemma
að morgni en ekki var skýrt frá
þeim í útvarpinu á Sri Lanka
fyrr en fimm stundum síðar.
Herinn í landinu hefur hafið
mikla leit að morðingjunum en
talið er, að þeir hafi sloppið til
skógar, inn í þjóðgarð rétt hjá
bænum, en þar hafa fimm þjóð-
garðsverðir fundist vegnir. Tal-
ið er þó ólíklegt, að morðingj-
arnir muni komast undan.
Fullvíst þykir, að ein skæru-
liðahreyfing tamíla standi að
baki morðunum í dag, en hún
berst fyrir því, að tamílar
stofni sitt eigið ríki á norður-
hluta eyjarinnar. Eru þeir
minnihlutahópur á eynni en
sinhalesar í miklum meiri-
hluta. Talsmenn stjórnvalda
segja, að allt verði gert til að
koma í veg fyrir, að sinhalesar
hefni morðanna með öðrum
morðum.
Svíþjóð:
Varaðir við
vændiskonum
Stokkbólmi, 14. maí. Frá frétUriUra Mbl.
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í
Svíþjóð hafa varað alla karl-
menn við og beðið þá um að
forðast vændiskonur eins og
heitan eldinn. Er ástæðan sú,
að veiran, sem veldur áunninni
ónæmisbæklun, aids, hefur
fundist í blóði sex kvenna, sem
hafa ofan af fyrir sér með
vændi.
Heilbrigðisyfirvöldin hafa
ekki aðeins skorað á sænska
karlmenn að koma ekki ná-
lægt vændiskonum heldur
hafa þau einnig skorað á
vændiskonur almennt að taka
upp annað og betra líferni.
Ólíklegt þykir þó, að vændis-
konurnar sex, sem reyndust
vera með aids-veiruna í blóði,
láti sér segjast því að þær eru
forfallnir eiturlyfjasjúkl-
ingar.
Heilbrigðisyfirvöldin hafa
einnig beðið kynvillta karl-
menn um að fara sér hægt i
kynferðisnautnum sínum
enda á þessi hópur manna
mest á hættu auk eiturlyfja-
sjúklinga og þeirra, sem tví-
kynhneigðir eru.
Slmamynd/AP
Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, brostu breitt þegar þeir
tókust í hendur fyrir fundinn í gær. Stóð hann í sex tíma, hálfu lengur en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir.
Gromyko og Shultz á fundi:
A fvopnunarmálin
aðalumræðue fnið
Vín, 14. nuf AP.
GEORGE P. Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og Andrei
Gromyko, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, áttu í dag með sér sex tíma
fund í Vínarborg.
Á fundinum, sem stóð í sex
'Ím 3 9 í m
Sovéskir hermenn í Afganistan.
tíma, ítrekaði Gromyko afstöðu
Sovétmanna til geimvarnaathug-
ana Bandaríkjamanna og sagði, að
þær yrði að ræða ásamt tillögum
þjóðanna til að draga úr vígbún-
aði.
Shultz sagði eftir fundinn, að
viðræðurnar hefðu verið gagnleg-
ar og aðallega snúist um afvopn-
unarmál. Kvaðst hann þó einnig
hafa fært í tal þann atburð þegar
sovéskur hermaður skaut banda-
rískan majór til bana í Austur-
Þýskalandi. Hefur það mál valdið
miklum stirðleika í samskiptum
ríkjanna enda vilja Sovétmenn
ekki biðjast afsökunar á mann-
drápinu. Fréttamenn margspurðu
Shultz um hugsanlegan fund
Gorbachevs og Reagans en hann
vék sér undan að svara spurning-
unurn og sagði, að það mál hefði
ekki verið rætt.
Grimmdaryerk sovéska
herliðsins í Afganistan
Tólf þorp þurrkuð út og íbúarnir skotnir
lnlamabad, PakisUn, 14. nuf. AP.
SOVÉSKIR hermenn myrtu nýlega um 1000 óbreytta borgara í árásum, sem
gerðar voru á 12 afgönsk þorp. Eftir mordin fóru hermennirnir ruplandi og
rænandi um þorpin en brenndu þau síðan til grunna. Voru þorpsbúarnir
grunaðir um að styðja skæruliða, sem berjast gegn sovéska innrásarliðinu. Eru
þessar fréttir hafðar eftir vestrænum stjórnarerindrekum.
Vestrænir sendimenn í Islama- arverk, sem sovéskir hermenn hafi
bad í Pakistan segjast hafa stað- framið í Laghman-héraði í Khar-
festar fréttir um ótrúleg grimmd- aghaí-fylki. Gerðust þessir atburð-
ir um miðjan mars en fréttir eru
fyrst nú að berast með flóttafólki,
sem lifði af. Að sögn eftirlifend-
anna umkringdu Sovétmennirnir
þorpin 12 með skriðdrekum og
brynvörðum vögnum og voru allir
skotnir, sem reyndu að flýja á
brott. Því næst var fólkinu, sem
eftir var, smalað saman og skotið
til bana.
Er haft eftir heimildum, að afg-
anskir stjórnarhermenn séu ekki
notaðir í svona aðgerðum vegna
þess, að þeim sé ekki treyst til að
myrða landa sína með köldu blóði.
Eftir öðrum heimildum er haft,
að skæruliðar hafi 25. apríl sl. gert
eldflaugaárás á herflugvöll fyrir
sunnan borgina Jalalabad og að
fjöldi sovéskra hermanna hafi fall-
ið.
Svíþjóð:
Flugrekstur
á heljarþröm
Stokkbólmi, 14. nuí. Frá fréttariUra MbL
VERKFALL ríkisstarfsmanna I
Svíþjóð hefur haft mjög alvarleg
áhrif á afkomu flugfélaganna í
landinu og má sem dæmi um það
nefna, að Linjeflyg, sem annast
innanlandsflugið í Svíþjóð, ætlar
að segja upp öllum 1800 starfs-
mönnum sínum.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
segja, að það tapi 50 millj. skr.
(um 234 millj. ísl. kr.) á mánuði
á meðan verkfallið stendur og ef
það stendur fram eftir júlímán-
uði, sem sumir telja jafnvel ekki
fráleitt, verður fyrirtækið búið
að tapa öllu lausafé sínu og
helmingi hlutafjárins. Ef svo fer
verður fyrirtækið tekið til gjald-
þrotaskipta.
Til þessa hafa Linjeflyg og
SAS sagt upp um stundarsakir
700 starfsmönnum en SAS tapar
15 milljón skr. á dag. Það þýðir,
að helmingur hagnaðarins frá í
fyrra er nú uppurinn. Sömu
sögu er að segja af leiguflugfé-
laginu Scanair og ferðaskrif-
stofurnar sænsku telja sig tapa
hálfri þriðju milljón skr. á dag
Sjá cnnfremur „Verkfallið kem-
ur verst...“ i bls. 29