Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985 25 Um gleðina? Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Martha Chrístensen: Tusindfryd. ÍJtg. Fremad. Sex þroskaheftir einstakl- ingar, sem hafa verið árum sam- an á stofnun, eiga að hefja sam- býli. Hér er verið að gera „fé- lagslega tilraun" og menn binda vonir við að fólkið geti bjargað sér þrátt fyrir fötlun, að minnsta kosti með tryggri hand- leiðslu. Sjálf hlakka þau öll fjarska mikið til. Guðrún á að verða aðalhúsmóðirin á heimil- inu. Nickie er að vísu fatlaðri en hin og hann fær ekki vinnu, en hann er síglaður og indæll og finnur ekki ýkja mikið fyrir fötl- un sinni, að minnsta kosti ekki framan af. Svo er það Lisa, ung stúlka og eftir lýsingu að dæma mikið þroskaheft, en eins og langflest vangefið fólk jákvæð og blíðlynd. Hún og Morten fá sér íbúð í húsinu. Þau eru par og nú á að sjá hvernig gengur hjá „svona fólki", eins og þau kalla sig sjálf, að búa saman. Svo eru það Ingvar og Frans, einu pers- ónurnar sem ekki birtast ýkja skýrar. Elísabet félagsráðgjafi er vin- ur hópsins og velgerðarmaður og ekki síður maðurinn hennar Jeppe, sem hefur unnið hug og hjörtu og ekki sízt traust þeirra. Með hjálp Elisabetar mun þetta áreiðanlega ganga prýðilega. Martha Christensen Það er alténd lagt upp með mikla bjartsýni í farangrinum. Þessi saga er meistaralega gerð, Martha Christensen nær svo ótrúlega vel stemmningunni á heimilinu, sambúðarörðugleik- unum og vanmættinum sem grípur þau þegar kjölfesta þeirra bregst og umhverfið reynist þeim fjandsamlegt. ótrúlega næmur skilningur og þekking á hugarheimi þroska- heftra dugir þó ekki til, en listr- æn tök Mörthu Christensen gera þessa bók að perlu. Rögnvaldsson varðar ekki um slíkt. Auðvitað kætist hann yfir hverri ambögu og beygingarvillu sem hann heyrir. Það er hans fag að rannsaka soddan. Því fleiri vill- ur, því meira að rannsaka, því meiri efniviður í kenningasmíð alls konar um uppbyggingu máls- ins. Það má ekki skamma Eirík Rögnvaldsson þó hann stundi sín fræði, ekki frekar en jarðfræðing- inn sem hefur eðlilega meira gam- an af eldgosum en sléttum völlum og grónum grundum. Engum dett- ur í hug að biðja jarðfræðing að nota sinn lærdóm til að stöðva eldgos; honum er aðeins ætlað að skilja jarðarinnar aðskiljanleg- ustu náttúrur og við erum öll sam- mála um það hlutverk. Hvers veg"a er ætlast til þess að mál- fræðingar stöðvi þau frjóu umbrot sem gera vart við sig í tungumál- inu? Þetta fánýta reiptog við mál- fræðinga sem nenna hvort eð er ekki að vera með hefur leitt til þess að við gleymum aðalatriðinu: Er yfirleitt nokkur von til þess að mál agnarlítillar útkjálkaþjóðar lifi af þegar þjóðin smáa er ekki lengur vernduð af fjarlægðum og studd dyggilega af fornum bókum, íslenskum, en er skyndilega komin innanum fólk, þjóðir heimsins, milljónir sem ryðja útúr sér ann- arlegum málum og drottna von bráðar yfir allri daglegri menn- ingarneyslu, töluðu og rituðu máli? Ef þus um smáatriði eins og þessa eilífu þágufallssýki verður ekki tekið af dagskrá þá mun út- lenska, líklegast enska, drottna á íslandi innan skamms. Flest lær- um við ensku I skólum, okkur til nokkurs gagns. Okkur er gert að lesa námsbækur á því máli, horfa á íslenskt sjónvarp með ensku tali, tala við endalausan straum ferð- manna sem þykir best að aukist með hverju ári og þar fram eftir götunum. öllum eru ljós þau ógn- arítök sem enskan hefur og ástæðulaust að japla þeim. Hitt vefst fyrir fólki að Islendingar eru svo ógnarfáir að ein og óstudd get- um við aldrei haldið því til streitu að á íslandi verð' töluð íslenska. Við þurfum mótvægi við þá menningarlegu einstefnu sem hlýst af drottnunargirni enskunn- ar á heimsmarkaði. Og það mót- vægi er helst að finna hjá þeim sem búa við sama óttann og við; þeim smáþjóðum sem standa okk- ur næst: Norðurlandaþjóðunum. Ef við höldum ekki fast í hendurn- ar á þeim er hætt við að við týn- umst og hver heyrir þá hróp eybú- ans um að íslenskan sé mál mála — ef við höfum í sjálfbirgings- hætti sleppt hendinni af þeim fáu hlustendum sem við getum vonast eftir? Með stuðningi þessara grann- þjóða okkar getum við snúið okkur að þeirri einu málrækt og mál- vernd sem nokkru skiptir: Að styðja við bakið á allri starfsemi sem hugsanlega getur farið fram á íslensku: Bókmenntum, leikhús- um, blöðum, tímaritum, fræði- skrifum og auðvitað miklu meiri íslensku í fjölmiðlum allra lands- manna, útvarpi og sjónvarpi. Þýð- ingar má stórauka, allt frá auglýs- ingapésum og kennslubókum til vandaðra skáldverka — og þar verður að styrkja hraustlega úr sameiginlegum sjóðum, bæði til að vandaðir þýðendur fáist og útsölu- verði megi stilla í hóf. Ef málpólitík íslendinga snýst ekki um þetta aðalatriði þá verð- um við fyrr en varir komin í þá aðstöðu að hlusta og lesa og tala á ensku í öll mál. Umræðan gamla um málvillur verður hláleg og málfræðingar og brennandi áhugafólk um íslenskt mál munu hittast til að tala gamla málið og syrgja þá tíð þegar íslenskan var lifandi mál, töluð af fólki sem mótaði hana í munni sér og breytti, notaði stundum þágufall fyrir þolfall, hliðraði til merkingu orðanna til að leiða hugsun sína á nýjan veg, var ekki alltaf sam- mála um einstakar beygingarend- ingar en hafði þrátt fyrir allt rænu á að nota málið hvunndags, jaska því út, um leið og upp risu snillingar sem gátu skrifað Njálur og íslandsklukkur — allt á sama málinu; máli sem á kannski eftir að fylla flokk útdauðra mála fyrr en okkur grunar. Og hvers mega sín þá orð skáldsins? Höfundur er riA nám rið háskól- ann í Dyflinni á írlandi. Þessi vinsælu barnaleiktæki nú aftur fáanleg. Hentug viö sumarbústaöi og heimaleikvelli. Pantanir óskast sóttar Aðalhlutverk: Robert Carradine, Anthony Edwards, Ted McGinley. Leikstjóri: Jeff Kanew. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. !!■■■■■ JJJL Sími 78900 frumsýnir grínmynd ársins Hefnd busanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.