Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
ffclk í
fréttum
„Flotta galleríið“
Ungt listafólk hefur nú tekið höndum saman og
leigt kjallarahúsnæði á Vesturgötu 2 þar sem
það hyggst setja upp sýningaraðstöðu og gefa staðn-
um nafnið „Flotta galleríið".
Ljósm. Mbl. rak inn nefið þar sem listafólkið var í
óða önn að mála og sópa, þvf sýningarsalurinn verð-
ur opnaður formlega á uppstigningardag.
Eftir samsýninguna sem verður fyrst er meining-
in að hver listamaður verði með sýningu f u.þ.b. 10
daga í einu, en þó mun verða hægt að kaupa þar og
skoða listaverk eftir aðra sjónlistarmenn því þau
munu verða á staðnum í rekkum eða öðru slíku.
MorgunbladiÖ/RAX
A myndinni eru nokkrir af þeim iistamönnum er húsnæðið tóku á leigu: Steingrímur Þorvaldsson, Guðrún
Tryggvadóttir, Sigrún Ögmundsdóttir, Margrét Birgis og dóttir bennar, Lilja Jónsdóttir. Fyrir framan er Megas. Á
myndina vantar Önnu Guórúnu Líndal, Gunnar Karlsson, Kristberg Pétursson, Hörpu Björnsdóttur, Hauk Friðþjófs,
Jón Axel, Valgaró Gunnarsson, Guðnýju Richards og Björgu Örvar.
Frá Japan
til Ástralíu
til Svíþjóðar
til Afríku
Richard Chamberlain er lítið
fyrir að slaka á milli verk-
efna, hann vill hafa nóg að gera
og helst vill hann vera búinn að
tryggja sér næsta hlutverk þegar
því sem yfir stendur lýkur. Hann
hefur verið á fullu í sjóvarps-
myndagerð og hafa íslendingar
ekki farið varhluta af því, Shogun
og Þyrnifuglarnir hafa verið sýnd-
ir hér, hvor þáttaröðin á eftir
annarri og síðan lék Richard
sænsku stríðshetjuna Raoul Wall-
enberg og hver veit nema þættirn-
ir um Svíann verði sýndir hér á
landi. Annars er því verki nýlokið
og auðvitað var Richard eins og
kría á steini að komast f næsta
verkefni. Nú er hann í Afríku að
leika í þáttaröð eftir ævintýrabók-
inni kunnu um Námur Salómons
konungs og leikur hann auðvitað
aðalhlutverkið, Allan Quarterma-
in. Sharon Stone leikur aðal-
kvenhlutverkið ...
SNORRI
WAAGE
Rekur skóverkstæði
með skólanáminu
„Það er ekkert verið að tvístíga við vinnu“
Ibakhúsi við Klapparstfginn get-
ur að líta verkstæði sem lætur
ekki mikið yfir sér, og er inn kem-
ur hefur maður á tilfinningunni
að þetta hljóti að vera verkstæði
gamals manns sem ekki vill
breyta og notfæra sér tækninýj-
ungar heldur hefur þau áhöld sem
hann byrjaði með er hann var
ungur. En það er ekki raunin.
Verkstæðið rekur ungur maður,
Snorri Waage, átján ára gamall,
sem hefur þann starfa ásamt
skólanámi að búa til eins og hann
kallar það „heilsu-ilskó".
Blm. hitti Snorra sem snöggvast
fyrr í vikunni á raeðan hann var að
líma leður á skóbotna.
— Snorri, ertu búinn að vera í
þeðsu lengi?
Ég tók við þessu í ágúst þannig
að það eru að verða tfu mánuðir
síðan. Bróðir minn, óli Waage,
keypti tækin af fyrirtæki sem bjó
þessa skó til erlendis þvf þeir
ákváðu að hætta rekstri þar. Óli
fluttist siðan búferlum til Svíþjóð-
ar þar sem hann rekur skóverk-
smiðju auk annars fyrirtækis,
„Line lights", sem hann er með
ásamt tveimur öðrum Islending-
um, þeim Guðna Guðgeirssyni og
Þorgeiri D. Hjaltasyni.
Eftir að nokkrir aðilar höfðu
rekið þetta litla verkstæði hérna
um skeið tók ég við.
Við óli höfum svolitla sam-
vinnu, hann sendir mér t.d. allt
yfirleður á skó tilbúið sem hann
framleiðir ytra þar sem það kem-
ur betur út þannig.
-Hvernig gengur að samræma
þetta skólanáminu?
Það er nú svona upp og ofan. Ef
stórar pantanir koma inn eins og
t.d. frá Hagkaup þá hefur skóla-
námið setið á hakanum, en annars
hefur mér gengið ágætlega að
samræma þetta, því kosturinn við
þessa vinnu er náttúrulega sá að
ég er minn eigin húsbondi og get
svolítið spilað þetta eftir eyranu.
Ég hef lfka góða hjálp við bókhald
og þessháttar og það er kona sem
Snorri Waage við vinnu.
saumar pokana utan um skóna
fyrir mig.
I sumar er ég að hugsa um að
sinna þessu eingöngu en ekki fá
mér aðra vinnu þannig að þá gefst
mér e.t.v. tækifæri til að vinna
upp góðan lager fyrir næsta vetur.
— Ertu að hugsa um að leggja
skóviðskiptin fyrir þig í framtíðinni?
Maður veit aldrei, en ætli það
verði ekki svo að lokum. Ég á ekki
langt að sækja þetta, pabbi, Stein-
ar Waage, hefur verið í þessu svo
Skóna sem hann framleiðir kallar hann „Óla skó“.