Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
Spóli vef*ri, Gísli Halldórsson, vaknar af værum blundi.
Síðustu sýningar á
Draumi á Jónsmessunótt
LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýnir
Draum á Jónsmessunótt í næst síö-
asta sinn á föstudagskvöld. f frétt
frá LR segir að sýningin hafi hlotið
einróma lof gagnrýnenda. Þetta er
ein viðamesta og fjölmennasta sýn-
inga, sem Leikfélagið hefur ráðist í
síðari ár.
Með stærstu hlutverkin í sýn-
ingunni fara Gísli Halldórsson,
Þorsteinn Gunnarsson, Bríet Héð-
insdóttir, Guðmundur Pálsson,
Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður
Karlsson. Þá taka átta ungir leik-
arar úr Leiklistarskóla íslands
þátt í sýningunni, þeirra á meðal
Jakob Þór Einarsson, Rósa Þór-
isdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson,
Kolbrún Erna Pétursdóttir og Þór
Thulinius. Leikmynd gerði Grétar
Reynisson, tónlist er eftir Jóhann
G. Jóhannsson, leikstjóri er Stef-
án Baldursson.
Þess má geta að Ása Svavars-
dóttir hefur nú tekið við hlutverki
Hönnu Maríu Karlsdóttur, sem er
við kvikmyndaleik á Ítalíu.
Dagur aldraðra:
Pétur Sigurðsson alþing-
ismaður prédikar við
messu í Dómkirkjunni
Uppstigningardagur er ó morg-
un, en hann hefur verið helgaður
málefnum aldraðra í söfnuðum
landsins undanfarin ár.
Á morgun, fimmtudag 16. maí,
verður messa í Dómkirkjunni, og
hefst hún kl. 14.00. Við messuna
mun Pétur Sigurðsson alþingis-
maður prédika, en Pétur er jafn-
framt forstjóri Hrafnistu í Hafn-
arfirði og er einn þeirra manna,
sem mesta þekkingu hafa á mál-
efnum aldraðra hér á landi.
Eftir messu verður öllum
kirkjugestum 67 ára og eldri boð-
ið til kaffidrykkju í Oddfellow-
húsinu. Á meðan gestir njóta
veitinga mun Magnús Jónsson
óperusöngvari syngja einsöng við
undirleik Marteins H. Friðriks-
sonar dómorganista.
Þetta hafa verið mjög ánægju-
legar samverustundir á undan-
förnum árum og er eldra fólkið í
sókninni eindregið hvatt til
þátttöku.
Að sjálfsögðu eru allir hjart-
anlega velkomnir til messunnar,
bæði ungir og aldnir, þótt þessi
dagur sé sérstaklega helgaður
málefnum aldraðra.
Hjalti Guðmundsson
Egill Vilhjálmsson hf.
selur hluta húss síns
„ÁSTÆÐAN fyrir því að við ætlum
að selja hluta af húsinu er einfald-
lega sú, að þetta er allt of stórt fyrir
starfsemi okkar hér og hentar ekki
fyrir þann rekstur, sem við erum
með,“ sagði Sveinbjörn Tryggvason,
forstjóri Egils Vilhjálmssonar hf., er
hann var spurður hvers vegna fyrir-
tækið hygðist selja hluta af húseign
sinni í Kópavogi. Eignin var auglýst
til sölu í Mbl. á sunnudag.
„Þetta hefur lengi staðið til,“
sagði Sveinbjörn. „Nú látum við
verða af því að selja og förum
jafnframt að hugsa fyrir því að
byggja hentugra húsnæði á góðri
lóð, sem við eigum.“
JMwgmifybifrifr
Áskriftarsíminn er 83033
BAÐHUS VIÐ
SAMSTARFSAÐILAR ÓSKAST
Hitaveita Suðurnesja
hefur ákveðið að leita eftir samstarfsaðilum
um byggingu baðhúss við Bláa lónið í Svartsengi.
Ennfremur gæti verið um rekstur eða rekstraraðild að ræða.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á þessu máli tilkynni það til
Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, 260 Njarðvík, fyrir 1. júní 1985.
HITAVEITA SUÐURNESJA