Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 64
SIAÐFEST lANSIRAUST MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. ASÍ, samstaða með færeysku verkafólki: Afgreiðið ekki færeysk skip — meðan á verkfalli stendur í Færeyjum ASf hefur skorað á aðildarfélög sín að sýna órofa samstöðu með fær- eysku verkafólki, sem nú er í verk- falli, og afgreiði ekki færeysk skip eða veiti þeim þjónustu á meðan á verkfallinu stendur. Erindi þar um barst ASÍ í vikunni og var það fram- sent í gær. Islensk og færeysk verkalýðsfé- lög hafa á undanförnum árum veitt gagnkvæman stuðning þegar til aðgerða hefur komið, að því er segir í fréttatilkynningu frá ASÍ. Atvinnurekendur hafa hótað skaðabótakröfum vegna þessarar beiðni færeysku verkalýðshreyf- ingarinnar. Atvinnulíf í Færeyjum er að mestu lamað vegna verkfalls ófaglærðs verkafólks. Verkalýðs- 4r Ovænt úrslit ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu er nú komið í fullan gang. í gærkvöldi voru leiknir þrír leikir í fyrstu umferð og urðu úrslit í þeim nokkuð óvænt. íslands- og bikarmeistarar Akraness brugðu sér norður til Akureyrar og léku þar við Þór. Heimamenn sigruðu í leiknum, skoruðu tvö mörk gegn engu marki meistaranna. Spádómar um fall Víkings og sigur Vals á þessu Is- landsmóti snerust alveg við á Laugardalsvellinum, þegar þeir fyrrnefndu báru sigurorð af Valsmönnum, tvö mörk gegn einu. I Garðinum áttust nýliðar deildarinnar við og þar sigr- uðu FH-ingar, markakóngur- inn Ingi Björn Albertsson tryggði liði sínu sigur, er hann skoraði eina mark leiksins. Einum leik er nú ólokið í fyrstu umferð og fer hann fram á morgun. Þá leika Fram og Keflavík á Laugardalsvelli. Sjá nánar um leiki gærdags- ins á bls. 62 og 63. félögin í Þórshöfn og Klakksvík hófu verkfall á föstudaginn í síð- ustu viku og verkamannasam- bandið í Færeyjum, Foroya Ar- beiðarafelag, hóf boðað verkfall á mánudaginn. Alls eru um tíu þús- und manns í verkfalli í Færeyjum en samningaviðræður sigldu í strand á mánudaginn. Verkalýðs- félögin hafa sett fram kröfugerð í fimmtán liðum og er ein megin- krafan að tímakaup verði hækkað um tvær krónur. Atvinnurekendur hafa ekki tekið undir eina einustu kröfu verkafólksins, segir í frétta- tilkynningu ASÍ. Þetta er í fyrsta sinn í aldar- fjórðung, sem verkalýðsfélögin í Klakksvík og Þórshöfn og Foroya Arbeiðarfelag grípa sameiginlega til verkfallsvopnsins. Atvinnulíf er því lamað, eins og fyrr segir. Engin fiskvinnsla fer fram, bátar liggja bundnir við bryggju því olía fæst ekki afgreidd, almennings- farartæki ganga ekki, reynt er að halda uppi bráðaþjónustu á sjúkrahúsum en skólar starfa þótt ræstingafólk sé einnig í verkfalli. Morgunblaðið/Bjarni Áframhaldandi blíöa um allt land Mmmmmmmmmm ... ís er góður í sólinni! Það má búast við áframhaldandi blíðviðri um allt land í dag og jafnvel að það verði enn hlýrra á Norður- landi í dag en í gær. Þá komst hitinn upp í 19 stig í Aðaldal og 18 stig á Nautabúi í Skagaflrði. Úrkomulaust var um allt land í gær, sólskin eða vel léttskýjað hvarvetna. í höfuðborginni, þar sem þessi mynd var tekin, komst hitinn í 15 stig og þykir bara gott um miðjan maí. Gert er ráð fyrir að bjart og hlýtt verði áfram á norður- og austurlandi í dag, vel hlýtt í inn- sveitum. Á fimmtudag má svo fara að búast við vax- andi austlægri átt við suðurströndina. Stálvík kaupir 3 þús tonna slipp í Noregi Tekinn sundur og fluttur í Garðabæ „Skipasmíðastöðin Stálvík f Garðabæ festi í gær kaup á 3 þús. tonna slipp (3 þús. þungatonna) í Molde f Noregi en dráttarbraut slippsins er 70 metra löng og getur tekið skip sem eru allt að 20 metra breið. Slippurinn í Molde er mjög fullkominn og þarf aðeins einn mann til þess að stjórna tækjabúnaði hans þegar skip eru tekin upp og sjósett. Dráttarbrautin verður sú lang stærsta og aflmesta á íslandi og getur tekið upp nær öll íslensk skip. í samtali Morgunblaðsins við Jón Sveinsson forstjóra Stálvíkur í Molde í gær, kom fram að drátt- arbrautinni væri ætlaður staður austan við nýja hafnar- og viðlegu- garðinn í Garðabæ. Jón sagði að dráttarbrautin fengist á mjög hag- stæðu verði en kvaðst ekki á þessu stigi málsins geta sagt til um það. Slippurinn í Molde er nýlegur og hafa aðeins 16 skip verið tekin upp í honum en stálið í dráttarbrautinni vegur mörg hundruð tonn. Fyrir- tækið sem hefur rekið slippinn hætti rekstri fyrir skömmu vegna rekstrarerfiðleika. Eitt spil dregur þessa stóru dráttarbraut og er það 50 tonn að þyngd, en háreistur stjórnpallur er yfir spilinu. Jón Sveinsson sagði í samtali við Mbl. að með þessum tækjabúnaði sköp- uðust miklir möguleikar fyrir Stálvík, meðal annars möguleikar að ná inn í landið verkefnum frá útlöndum. Stefnt er að því að flytja dráttarbrautina hið fyrsta til Is- lands, en nokkurn tíma tekur að taka hana niður og er áætlaður kostnaður við það í Noregi upp á 1,8 millj. ísl. kr. Jón sagði að ekki væri ráðgert að setja upp hliðarbrautir við dráttarbrautina sjálfa, heldur leggja áherslu á að hraða vinnu sem mest við hvert skip sem kæmi í dráttarbrautina. Veiðar smábáta frá áramótum til aprílloka: Þorskaflinn nær þrefalt meiri en reglugerð leyfir Morgunblaðið/Árni Johnsen Myndin sýnir hina stóru dráttar- braut í Molde, sem Stálvík hefur fest kaup á. ÞORSKAFLI báta undir 10 lestum að stærð var orðinn tæplega þrefalt meiri en leyfílegt var samkvæmt reglugerð um síðastliðin mánaðamót. Á tímabilinu frá áramótum til aprflloka mátti veiða samtals 1.913 lestir af þo.ski, en veiðin þetta tímabil varð alis 5.154 lestir. þrátt fyrir stöðvun veiðanna um tíma. Sjávarútvegsráðuneytið íhugar nú hvernig bregðast skuli við þess- ari miklu þorskveiði smábátanna. Leyfilegur heildarafli þeirra af þorski er 11.775 lestir allt árið, en þvi er skipt niður í fjögur mislöng tímabil og má veiða ákveðið magn hvert þeirra. Fari veiðin eitt tíma- bil fram úr leyfilegum afla, skal, samkvæmt reglugerð, afli næsta tímabils skerðast sem umframveið- inni nemur. Verði farið eftir því má á yfirstandandi tímabili veiða sam- tals 309 lestir, en þar sem veiðar hafa enn ekki verið stöðvaðar þe*t.a tímabil, er afli þess orðinn mun meiri. Þórður Eyþórsson, deildar- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í gær í samtali við Morgun- blaðið, að verið væri að vinna að lausn þessa máls og lægi hún lík- lega fyrir í lok þessarar viku. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér hjá Fiskifélagi íslands er heildarafli smábátanna umrætt tímabil 5.577 lestir, þar af þorskur 5.154. Mestur afli hefur komið á land á Suður- og Suðvesturlandi, 3.298 lestir, þorsk- ur 3.086, á Norðurlandi hafa komið á land 1.040 lestir alls, þorskur 998, á Austfjörðum hefur 931 lest borizt á land, þorskur 851 og á Vestfjörð- um er aflinn 308 lestir, þar af 219 lestir af þorski. Þorskaflanum er ekki skipt eftir landsfjórðungum og getur hann því skipzt mjög mis- jafnlega niður á þá eftir gæftum og aflabrögðum. Fernt handtekið eftir húsleit FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar gerði leit í íbúð í Reykjavík um helgina og fann 26 skammta af ofskynjunarlyfinu LSD, 4 grömm af amfetamíni auk hass og mar- ijúana. Fernt var handtekið, þar af sambýlisfólk búsett í íbúðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.