Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAl 1985
9
Vesturbær — leiga
Ung kona með 9 ára dóttur óskar eftir að taka á leigu
snyrtilega og góða 3ja—4ra herbergja íbúö helst í
vesturbænum/Högum eða í nágrenni Morgunblaðsins.
Reglusemi og góð umgengni í alla staöi. Meðmæli ef
óskaö er.
Vinsamlegast hringiö í síma 39713, 671873 eöa 83593
helst eftir skrifstofutíma.
Hvítasunnu-
kappreióar
Fáks
veröa haldnar á skeiðvelli félagsins
dagana 23., 24., 25. og 27. maí 1985
Keppnisgreinar verða:
A- og B-flokkur gæðinga
Gæðingakeppni barna og unglinga
150 metra skeið
250 metra skeiö
350 metra stökk
800 metra stökk
300 metra brokk
250 metra stökk unghrossa
Athygli skal vakin á því að keppni í gæöingaflokk-
um er um leið úrtökukeppni Fáks fyrir FM 85.
Þátttökuskráning verður í nýja félagsheimilinu á
Víðivöllum í dag milli kl. 14—18, sími 92355.
Skráningargjald er kr. 300 í A- og B-flokki og kr.
400 fyrir kappreiðahross, er greiðist við skráningu.
Frítt fyrir börn og unglinga.
Hestamannafélagíð Fákur
Fatnaður frá
marimekkó
V *
> ^ . ^g$g|gp»<
Herraskyrtur úr bómull
KRISTJflfl
SIGGEIRSSOn HF.
m
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25170.
Sameiginleg
mannvirkja-
gerð á vegum
NATO
John B. Thompson, eftir-
liLsmaður með mannvirkja-
sjóði Atlantshafsbanda-
lagsins skrifar grein {
NATO-fréttir, sem ber yfir-
skriftina „Sameiginleg
mannvirkjagerð á vegum
NATO — litið fram á veg-
inn“. Staksteinar birta
kafla úr greininni í dag:
„Mannvirkjagerð í þágu
herafla NATO eru kostn-
aðarsömustu framkvæmd-
irnar, sem aðildarríkin
standa að sameiginlega.
Árlegar greiðshir til fram-
kvæmdanna nema nú
tvisvar sinnum hærri fjár-
hæðum en greiðshir til
þess að reka borgaralega
og hernaðarlega starfsemi
á vegum bandalagsins.
Rökin fyrir sameiginlegum
fjárframlögum til þessara
framkvæmda eru þau, að
mannvirkin séu til afnota
fyrir fleiri en eitt aðildar-
ríki og þjóni hagsmunum
þeirra allra, svo að landið,
þar sem mannvirkin eru
(gistilandið), eigi ekki eitt
að bera kostnað af þeim,
ekki sízt vegna þess að
sum aðildarlönd verði
vegna landfræðilegra og
herfræðilegra aðstæðna að
taka að sér að hýsa mun
fleiri mannvirki en önnur.
Þannig er staðið að fjár-
mögnuninni, að öll ríki,
sem þátt taka í fram-
kvæmdum, koma sér sam-
an um það, hve mikinn
hhit kostnaðarins þau beri
hvert um sig, og er þá höfð
hliðsjón af þremur megin-
atríðum: Getu aðildarríkja
til að leggja fram fé; hvaða
hag ríkin, sem mannvirkin
nota, hafa af nýtingunni;
og Ijárhagslegum hagnaði
gistiríkisins.
(ireiðshigetuna má meta
tiltölulega hiutlægt með því
að miða við þjóðarfram-
leiðslu, og er þá einnig tek-
ið mið af þjóðartekjum á
mann, ef ástæða þykir til
þess. Erfiðara er að meta
hag þjóðar af nýtingu
mannvirkja, þar sem
sérhvert NATO-ríki hefur í
raun hag af því, ef eitt
þeirra getur nýtt herafla
sinn með hagkvæmasta
hættL Ejárhagslegur ávinn-
ingur gistilandsins er oft
töluverður. Af þeim mann-
virkjum, sem reist hafa
verið til þessa, er á milli
þriðjungs og fjórðungs til
almennra nota, og þau eru
í flcstum tilvikum reist af
einkafyrirtækjum í gisti-
löndunum. Mörg mann-
virkjanna skapa einnig
fasta atvinnu. Flugvelli,
olíuleiðslur og fjarskipta-
tæki má á friðartímum
nýta í þágu almennings.
■FRETTim^H
Mannvirkjasjóöur NATO
Upplýsingadeild Atlantshafsbandalags-
ins gefur út mánaöarritiö NATO Review á
ensku og fleiri tungum aöildarþjóða
bandalagsins. Þetta rit nefnist NATO-
fréttir á íslensku og kemur út árlega meö
úrvali greina úr mánaöarritinu. NATO-
fréttir eru nýlega komnar út og í þeim er
aö þessu sinni meöal annars aö finna
grein um mannvirkjasjóð Atlantshafs-
bandalagsins. Vaxandi áhugi sýnist fyrir
því hér á landi, aö þaö sé kannaö hvort
Islendingar eigi aö tengjast þeim sjóöi
með einum eöa öörum hætti. í Stakstein-
um í dag er birtur kafli úr umræddri grein
í NATO-fréttum.
samhlida því sem herinn
hefur afnot af þeim.
Frá hagnaði gistilands-
ins má draga kostnað
vegna landakaupa og nauð-
synlegra tengivirkja, svo
sem vegagerðar, sem gisti-
landið kostar venjulega.
En um raunverulegan fjár-
hagslegan hagnað er yfir-
leitt að ræða í gistilöndum,
eins og bezt sést af þvf, hve
hart aðildarríkin keppa oft
um það að láta NATO reisa
mannvirki eða vinna að há-
tækniframleiðslu innan
landamæra sinna, ekki
sízt, þegar harðnar á daln-
um í efnahagsmálum.
Viöurkennd
verkefni
Fé úr hinum sameigin-
lega mannvirkjasjóði er að-
eins veitt til fastra mann-
virkja, sem reist eru vegna
tilmæla helztu herstjórna
NATO tU þjálfunar fyrir
fjölþjóðlegan herafla á frið-
artímum eða til notkunar á
stríðstímum og sem eru í
samræmi við ákveðnar
reglur, sem bandalagið set-
ur um gerð mannvirkj-
anna. Á fyrstu árum Atl-
antshafsbandalagsins var
helmingi af framkvæmda-
fénu varíð til þess að leggja
flugbrautir, vegna þess að
Eisenhower, hershöfðingi,
fyrsti yfirmaður Evrópuher-
stjórnar bandalagsins,
taldi, að án fhigvalla værí
eklti unnt að halda uppi
venjulegum vörnum í Evr-
ópu. Nú eru þessir fhigvell-
ir orðnir 25—30 ára gamlir,
og þarfnast margir endur-
bóta.
Margar olíustöðvar, en
tU þeirra teljast leiðslur,
geymar og dreifibúnaður,
hafa verið reistar fyrir fé úr
mannvirkjasjóði NATO.
TU þeirra var varið miklum
fjárhæðum á fyrstu árum
bandalagsins, og þessar
stöðvar er nú nauðsynlegt
að endurnýja. Fjarskipta-
stöðvar voru fyrst reistar af
Vestur-Evrópusambandinu,
og NATO lét reisa margar
slíkar stöðvar með hefð-
bundnum tæknibúnaði.
Siðar réðst bandalagið í að
koma á fót gervihnatta-
kerfi til fjarskipta, og var
hið fyrsta tekið í notkun
1970. Á því ári var einnig
ákveðið að koma á fót
tölvuvæddu stjórn-, eftir-
lits- og boðkerfi NATO
(OCIS), og 1971 ákvað
NATO að koma upp sam-
ræmdu fjarskiptakcrfi
(NICS) undir eigin stjórn
(NICSMA). Stóð mann-
virkjasjóðurinn undir þess-
um framkvæmdum öllum.
Ratsjárstöðvar hafa
einnig verið reistar fyrir fé
úr sjóðnum, og má þar sér-
staklega nefna loftvarna-
kerfið í Evrópu (NADGE),
sem byggist á ratsjárstöðv-
um, er teygja sig frá
Norður-Noregi til Austur-
Tyrklands. Unnið var að
NADGE á árunum
1966—1973, og þá var
komið á fót sérstakrí
skrífstofu (NADGEMO) tU
að hafa stjórn á fram-
kvæmdum við kerfið, sem
kostuðu 110 milljónir IAU.
Þótt Frakkar ákvæðu 1966
að hætta aðild að mann-
virkjasjóði NATO, eru þeir
enn þátttakcndur í þessu
loftvarnakerfi.
Af öðrum framkvæmd-
um, sem fjármagnaðar
hafa verið úr mannvirkja-
sjóðnum, má nefna bygg-
ingar fyrir herstjórnir,
flotastöðvar, skotpalla fyrír
eldflaugar, birgöastöðvar
og siglingatæki. Nýjustu
mannvirkin komu til sög-
unnar 1980, og er þeim ætl-
að að auðvelda liðsauka,
sem sendur er til fjarlægs
lands á hættutímum, að at-
hafna sig. Þar má nefna
hvers konar birgðastöðvar,
tækjakost, skotfæri, vara-
hluti og fieira þess háttar.
Verkefnin, sem njóta
fjárstuðnings úr mann-
virkjasjóðnum, hafa
breytzt mikið í samræmi
við breyttar kröfur — jafn-
vel þótt ekki sé litið til
nýrra þátta, eins og stuðn-
ings við liðsauka. Tækni-
framfarir hafa sett mikinn
svip á verkefnin og þá
einkum á sviði fjarskipta.
Nú er verið að Ijúka við
fyrsta hhita NlCS-áæthin-
arinnar, þar sem tækja-
búnaður er mjög fiókinn,
en hann verður enn fiókn-
ari f öðrum hluta hennar.
Sömu sögu er að segja um
stjórn-, eftirlits- og boð-
keifið (CCIS), sem tengir
herstjórnir bandalagsins
saman, og um stjórnkerfi
flughersins (ACCS), sem
nú er unnið að til að full-
komna NADGE-loftvarnar-
kerfið. Fhigvallagerð hefur
orðið margbrotnari með ár-
unum, því að vélarnar, sem
þar athafna sig, þurfa mun
fjölbreyttari þjónustu en
áður.
Þessi nýju mannvirki
eru ekki aðeins dýrari en
hin eldri og krefjast flókn-
arí varahluta og meira
viðhalds, heklur er einnig
erfiðara en áður að standa
að gerð alþjóðlegra útboða,
sem ná til allra þátta.
Lengri tíma þarf nú til að
undirbúa útboðin og semja
þau en þegar um einfaldari
framkvæmdir var að
ræða.“
Námskeið fyrir fólk
í barnaverndarnefndum
SAMBAND íslenskra sveitarfélaga
hefur á undanfórnum mánuðum
haldið námskeið um meðferð barna-
verndarmála fyrir fólk sem starfar í
barnaverndarnefndum og félags-
málastofnunum. Alls hafa verið
haldin fjögur námskeið og voru þátt-
takendur samtals 94.
Á námskeiðinu voru flutt fjöl-
mörg erindi um ýmis mál tengd
barnavernd. Björn Líndal formað-
ur Barnaverndarráðs íslands
fjallaði um yfirlit um lögboðin
verkefni barnaverndaryfirvalda,
Helga Hannesdóttir barnageð-
læknir á Geðdeild Barnaspítala
Hringsins greindi frá athugun á
tengslum barna við foreldra, Drífa
Pálsdóttir deildarstjóri í dóms-
málaráðuneytinu fjallaði um for-
sjá barna við skilnað foreldra
ásamt könnun á helstu þáttum er
taka ber tillit til við ákvörðun for-
sjár, Dögg Pálsdóttir formaður
Barnaverndarnefndar Reykjavík-
ur fjallaði um gerð umsagnar í
forsjármáli og var með verkefni,
Guðrún Erlendsdóttir dósent við
lagadeild Háskóla Islands fjallaði
um meðferð úrskurðarmála hjá
barnaverndarnefndum og Svandís
Skúladóttir deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu flutti er-
indi um skipulag dagvistarmála —
hlutverk barnaverndaryfirvalda.
Þá var starfsemi Geðdeildar
Barnaspítala Hringsins, Ungl-
ingaheimilis ríkisins og Kvik-
myndaeftirlits ríkisins kynnt.
Samband íslenskra sveitarfé-
laga hefur ákveðið að gangast
fyrir ráðstefnu um varnir gegn
áfengis- og fíkniefnum dagana
20.—21. maí nk.