Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
7
Engar umsóknir um stöður háskólakennara:
Launin fæla
kennara frá
Háskóla Islands
— ekki samkeppn-
isfærir við einkageir-
ann, segir háskóla-
rektor
„ÞAÐ ERU nokkur dæmi um ad
hæfir menn sæki ekki um stöóur við
Háskóla íslands vegna þess hve
launin eru lág. Við höfum til dæmis
auglýst kennarastöður í tölvufræð-
um og endurskoðun en engar um-
sóknir fengið. Nýjustu dæmin eru
svo um tvo nýskipaða prófessora,
sem hafa ákveðið að taka ekki við
stöðum sínum vegna launanna,"
sagði Guðmundur Magnússon há-
skólarektor í samtali við blaðamann
Mbl.
Um var að ræða prófessorsstöð-
ur í verkfræði og eðlisfræði. Báðir
mennirnir starfa við háskóla í út-
löndum, annar í V-Þýskalandi,
hinn i Noregi. Sá fyrrnefndi var
valinn úr nokkrum umsækjendum
en þegar til kastanna átti að koma
skrifaði hann háskólayfirvöldum
og sagði að í kjölfar nýgengins
kjaradóms treysti hann sér ekki
til að taka við starfinu. Háskóla-
yfirvöld hafa þó ákveðið að bjóða
honum hingað heim til viðræðna
og reyna að minnsta kosti að fá
hann til rannsóknasamstarfs.
Hinn prófessorinn hefur ekki
gefið skýringar á hvers vegna
hann sagði stöðunni lausri en
Ragnar Ingimarsson, prófessor og
skorarformaður í byggingaverk-
fræði, sagðist telja víst, að léleg
laun ættu sinn þátt í ákvörðun
hans.
Laun háskólaprófessora eru á
Féll af hest-
baki og
slasaðist
MAÐUR hlaut slæm höfuðmeiðsl
þegar hestur hans fældist með
þeim afleiðingum að hann datt af
baki, festist i istaðinu og lenti
undir hófum skepnunnar. Slysið
varð í Hafnarfirði á sunnudag og
var maðurinn fluttur í slysadeild
Borgarspitalans. Hann var að fara
á bak, þegar styggð kom að hestin-
um og hann festist í gaddavírs-
girðingu.
bilinu 35—40 þúsund krónur og
fara upp í um 45 þúsund krónur
fyrir prófessora í efstu þrepum.
„Þetta er vitaskuld mjög erfitt á
meðan kollegar okkar á almennum
markaði borga i skatta það sama
og við fáum i laun,“ sagði Guð-
mundur Magnússon háskólarekt-
or. „Það er mikil samkeppni um
hæfa menn og i sumum greinum
er háskólinn einfaldlega ekki sam-
keppnisfær, eins og dæmin sanna.
Þetta hlýtur að vekja athygli á
stöðu okkar hér. En þessi dæmi
segja ekki alla söguna, þvi við höf-
um tekið þá stefnu að biðja ekki
um stöður í greinum, sem við vit-
um að hæfir menn myndu ekki
sækja um.
Þetta ástand er endurspeglun af
því, að einkamarkaðurinn er að
styrkjast," sagði háskólarektor
ennfremur. „Það hlýtur óhjá-
kvæmilega að hafa áhrif inn í há-
skólann. Við erum til dæmis að
stofna fyrirtæki í nýjum greinum
og þau getum við að sjálfsögðu
ekki rekið nema við borgum sömu
laun og menn fengju annars stað-
ar.“
Ragnar Ingimarsson prófessor
sagði að hér væri vissulega um að
ræða mjög alvarlegt mál. „Það
hafa verið auglýstar stöður, sem
engir hæfir umsækjendur hafa
sótt um,“ sagði hann. „Háskólinn
gerir meiri kröfur til sinna
starfsmanna en yfirleitt allir aðr-
ir atvinnuveitendur en launin eru
samt ekki nema í meðallagi eða
tæplega það.
Það er beinlínis hætta á að nýj-
ar greinar koðni niður þegar ekki
fást hæfustu menn til að kenna
þær og byggja upp. Það tekur
nokkur ár áður en þetta kemur al-
mennilega í ljós — en svo tekur
líka nokkur ár að byggja upp aft-
ur. Þá kann að vera of seint í rass-
inn gripið. Það er eins og ráða-
menn vilji hvorki hlusta á okkur
né skilja hversu alvarlegt ástandið
er. Það segir sig sjálft, að ef ekki
fást hæfustu menn til að starfa
við háskólann, hlýtur standardinn
í kennslu og rannsóknum að fara
niður á við. Ef við tökum dæmi af
tölvufræðum, þá getum við ekki
verið samkeppnishæfir þar nema
við fáum allra hæfustu menn —
og á meðan háskólinn getur ekki
borgað góð laun, fáum við ekki
slíka menn,“ sagði Ragnar Ingi-
marsson.
Þátttakendur í keppninni ásamt Ingólfi Guðbrandssyni, forstjóra Útsýnar.
Morgunblaöiö/Bjarni
Herra og ungfrú Útsýn 1985, Ingunn Helgadóttir og Friörik Weisshappel, fagna titlinum. Með þeim á myndinni
er ungfrú Útsýn frá því á síðasta ári, Dagný Davíösdóttir.
Herra og ungfrú Útsýn kjörin
á 30 ára afmælishátíð Útsýnar
HERRA og Ungfrú Útsýn 1985
voru kjörin meö pompi og prakt á
30 ára afmælihátíð Útsýnar í veit-
ingahúsinu Broadway sl. föstu-
dagskvöld. Titilinn hrepptu að
þessu sinni þau Friðrik Weiss-
happel, 18 ára nemi og Ingunn
Helgadóttir, 19 ára afgreiðslu-
stúlka.
Á afmælishátíðinni var ýmis-
legt til skemmtunar. Söngkonan
Carol Nielsson söng, starfsfólk
hárgreiðslustofunnar Saloon
Veh sýndi sumarhártískuna,
Módel 79 sýndu sumarföt og
nemendur Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar tóku nokkur létt
spor. Þá komu keppendurnir um
titilinn Herra og Ungfrú Útsýn
fram í sundfötum, tiu stúlkur og
fjórir piltar.
Að síðustu voru kunngjörð úr-
slit í keppninni og sá Ungfrú Út-
sún frá síðasta ári um krýning-
ásamt Ingólfi Guðbrands-
■a Uts
una
syni, forstjóra
Jtsýnar.
Bvikm
Fínar ferðir i þrjár vikur á eina vinsælustu strönd Spánar: Beint leiguflug pg góð gisting á hótelum (með eða án fæðis)
Hvítu ströndina eða í íbuðagistingu. Islenskir fararstjórar.
Benidorm býður upp á fjölbreytta afpreyingu af öllu tagi: Verðdæmi: Ibúðagisting frá kr. 23.910.-
Næturklúbba, diskótek, alpjóðlega veitingastaði, kaffihus, Hión i íbúð með tvö börn frá kr. 17.932.-
skemmtigarða, tívolí, golfvelli, sjóskíði, dýragarð ... miðalda-
veislu. Éitthvao fyrir alía. Brottfarardagar: 29/5, 19/6, 10/7, 31/7, 21/8, 11/9, og 2/10
FERÐAMIÐSTODIIM
AÐALSTRÆTI9
SÍM128133