Morgunblaðið - 15.05.1985, Síða 4
4_______
Selfoss:
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
Reynt að koma á sáttum
bæjarstjóra og veitustjóra
B/EJARSTJÓRNARMENN á Selfossi munu á næstu dögum reyna aö koma
á sáttum milli bæjarstjórans og forstoóumanns veitustofnana kaupstaðarins.
Stirt samkomulag þeirra hefur orðið til þess, að bæjarstjórinn hefur sagt upp
störfum, eins og fram kom í Mbl. í gær.
Ágreiningur þeirra tveggja,
Stefáns Ómars Jónssonar bæjar-
stjóra og Jóns Arnar Arnarsonar
veitustjóra, hefur verið að gerjast
um nokkurt skeið. Bæjarfulltrúar
töldu þó að hann væri ekki svo
alvarlegur, sem frá var greint í
viðtölum við þá Stefán og Jón í
blaðinu í gær. Munu þeir á næst-
unni reyna að bera klæði á vopnin
og fá báða til að vera um kyrrt, að
minnsta kosti út kjörtímabilið.
óli Þ. Guðbjartsson, forseti
bæjarstjórnar Selfoss, vildi í gær
ekkert segja um deiluna og stöðu
mála en Ingvi Ebenhardsson,
formaður bæjarráðs, sagði að enn
væri unnið að sáttum. „Það sem
sagt er í Morgunblaðinu er í meg-
inatriðum eins og það, sem bæjar-
stjóri og veitustjóri hafa sagt
okkur í bæjarstjórn nú nýlega eft-
ir að bæjarstjóri sagði upp starfi
sínu,“ sagði Ingvi. „Við höfum
reynt að jafna þann ágreining,
sem virðist vera fyrir hendi. Það
leit nokkuð vel út í síðustu viku,
hvernig sem þetta endar.
Það er hins vegar rétt, hvað
varðar ýmsar samþykktir bæjar-
stjórnar, þar sem bæjarstjóri og
veitustjóri hafa átt að vinna sam-
an, að ákveðnum málum, að það
virðist hafa gengið erfiðlega.
Annars vil ég ekki tjá mig frek-
ar um þetta mál þar sem ég tel að
enn sé unnið að sáttum," sagði
formaður bæjarráðs Selfoss. „Eg
trúi að sættir geti tekist ef vilji
þeirra tveggja og annarra, sem
hlut eiga að máli, er fyrir hendi."
Ungir framsóknarmenn óánægðir með framkvæmdastjóra flokksins:
Vilja að flokksstjórnin segi
framkvæmdastjóranum upp
SAMBAND ungra framsóknar-
manna er mjög óánægt með störf
Hauks Ingibergssonar, fram-
kvæmdastjóra flokksins og snemma
í þessum mánuði gekk formaður
sambandsins, Finnur Ingólfsson á
fund forsætisráðherra og greindi
honum frá þessari óánægju og jafn-
framt frá því að SUF beindi þvf til
flokksstjórnar Framsóknarflokksins
að hún segði Hauki Ingibergssyni,
framkvæmdastjóra Framsóknar-
flokksins upp störfum. í framhaldi
af þessu er vitað að óánægju hefur
Fjögur til-
boð í Hag-
kaupshúsið
FJÖGUR tilboð bárust í að reisa
verslunarmiðstöð Hagkaups við
Kringlumýri, þannig að húsið verði
fokhelt Tilboðin eru frá Byggða-
verki, Vélaleigu Helga Jónssonar,
ístaki og Hagvirki, og eru í þriðjung
byggingarinnar, sem verður um 28
þúsund fermetrar. Fyrirhugað er að
opna verslunarmiðstöðina í júlí
1987.
gætt með störf Hauks innan stjórnar
Framsóknarfélags Reykjavíkur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ræðst þessi afstaða SUF
af óánægju meðstörf Hauks í blað-
stjórn NT, en þeir í SUF vilja gera
hann að miklu leyti ábyrgan fyrir
því upplausnarástandi sem skap-
aðist á NT þegar Magnús Ólafs-
son, ritstjóri NT, sem er varafor-
maður SUF sagði upp störfum.
Auk þess gagnrýna þeir í SUF
störf Hauks í þágu sambands
þeirra, en þeir segja að í fram-
kvæmdastjóratíð Hauks hafi
Samband ungra framsóknar-
manna verið algjörlega fjársvelt.
Telja menn að þessi ályktun sé í
beinu framhaldi af miðstjórnar-
fundi Framsóknarflokksins, þar
sem hörð gagnrýni kom fram á
flokksstarfið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gekk Finnur Ingólfsson,
formaður SUF á fund Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra
snemma í mánuðinum og kynnti
honum þessa afstöðu ung-
liðahreyfingarinnar. Steingrímur
mun hafa tekið líklega í málaleit-
an Finns, en jafnframt tjáð hon-
um að rétti tíminn væri ekki nú. í
fyrsta lagi væri of skammt um lið-
ið frá því að allt fór í bál og brand
á NT, og það mætti ekki tengja
brottför Hauks NT-málinu, og í
öðru lagi mun hann hafa sagt að
enn væri ekki ljóst hvort af kosn-
ingum yrði nk. haust, og ef kosn-
ingar yrðu, þá mætti Framsóknar-
flokkurinn ekki við því að maður-
inn sem skipulagt hefði starf
flokksins að undanförnu, tæki
ekki þátt i kosningabaráttunni.
Eiga menn því ekki von á að neitt
frekar gerist í þessu máli, fyrr en
með haustinu.
„Innan Framsóknarflokksins er
starfandi spræk og kraftmikil
ungliðahreyfing, sem að sjálf-
sögðu hefur ákveðnar skoðanir á
ýmsum málum, þar á meðal mál-
efnum NT. Milli flokksskrifstof-
unnar og SUF hefur hins vegar
verið ágætt samstarf og þrátt
fyrir takmörkuð fjárráð hefur
Framsóknarflokkurinn stutt SUF
eftir megni, þar á meðal fjár-
hagslega og með því að búa starfi
þeirra sem besta aðstöðu. Því fær
gagnrýni þeirra hjá SUF ekki
staðist," sagði Haukur Ingibergs-
son, framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins, er hann var
spurður hvað hann vildi segja um
gagnrýni þá sem kemur fram í af-
stöðu ungliðahreyfingar Fram-
sóknarflokksins.
MorgunblaSið/Bjarni
Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur, bendir á hvar steypan hefur
molnað utan af kirkjuveggnum. Á innfelldu myndinni er kirkjan með
vinnupöllum.
Miklar steypuskemmdir í
veggjum Kristskirkju
ViðgerÖarkostnaÖur talinn nema um 4 milljónum kr.
STEYPUSKEMMDIR í veggjum Kristskirkju í Landakoti hafa verið að
koma í Ijós á undanförnum árum. Eru skemmdirnar aðallega á utanverðum
veggjum kirkjunnar en einnig hafa töluverðar skemmdir orðið innandyra
vegna leka með gluggum. Þó að viðgerðir hafi verið gerðar á kirkjunni fyrir
12 árum er svo komið að hún er talin í verulegri hættu.
Á nýliðnum vetri var skipuð
sameiginleg nefnd Félags kaþ-
ólskra leikmanna og Kvenfélags
Kristskirkju sem nefnist Bygg-
ingarnefnd Kristskirkju. Fékk
hún Ríkharð Kristjánsson, verk-
fræðing hjá Línuhönnun, til að
kanna skemmdirnar og gera til-
lögur um úrbætur.
Niðurstöður kannana hans voru
kynntar fréttamönnum í vikunni
og kom þar fram að skemmdirnar
á kirkjunni eru miklu meiri en
gert var ráð fyrir í fyrstu.
Skemmdirnar að utan virðast
einkum vera um miðbik kirkjunn-
ar og ná þær allan hringinn. Sagði
Ríkharður að ástæðan fyrir þess-
um skemmdum væri líklega sú að
notuð hefði verið ónýtari steypa í
þennan hluta kirkjunnar. Meiri-
hluti skemmdanna væri af völdum
frosts, enda væri steypa frá þess-
um tíma ekki frostþolin.
Ríkharður hefur og gert tillögur
um viðgerðir á kirkjunni og hefur
þegar verið hafist handa. Sam-
kvæmt áætlun mun viðgerðin á
kirkjunni utanverðri kosta um
þrjár milljónir króna en á henni
innanverðri um eina milljón
króna. Sagði Rikharður að leitast
yrði við að halda upphaflegu útliti
kirkjunnar. Ráðgert er að ljúka
viðgerðunum að utan í sumar og
næsta sumar. Hins vegar verður
ekki hafist handa við viðgerðir
innandyra fyrr en eftir u.þ.b. tvö
ár þegar steypan í útveggjunum
verður fullþornuð.
Byggingarnefnd Kristskirkju
hyggst leita til einstaklinga, innan
safnaðarins sem annarra, stofn-
ana og fyrirtækja um fjárhagslegt
liðsinni til að standa straum af
viðgerðarkostnaðinum. Þá hefur
þegar verið leitað eftir fjárstuðn-
ingi frá ríkisvaldinu og borgaryf-
irvöldum.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á
tæplega 61,5 milljónir króna. Til-
hoð Byggðaverks hljóðar upp á lið-
lega 56 milljónir króna, sem er
86% af kostnaðaráætlun. Tilboð
ístaks og Helga Jónssonar eru
nærri kostnaðaráætlun, en tilboð
Hagvirkis hljóðar upp á um 90
milljónir króna. „Við stefnum að
því að ljúka samningagerð fyrir
mánaðamót," sagði Ragnar Atli
Guðmundsson, sem stjórnar bygg-
ingu verslunarmiðstöðvarinnar, í
samtali við Mbl.
17 stiga hiti
á Húsavík
Hásavfk, 14. nui.
VEÐURFAR í aprfl og það sem af er
maí hefur verið gott þó frekar kalt
hafi verið og gróður því lítill enn
sem komið er.
Gæftir hafa verið góðar og afla-
brögð frekar góð. Einstaka bátar
eru búnir með sinn kvóta. Tíðarfar
hefur verið hagstætt fyrir sauð-
burðinn, sem nú er i fullum gangi.
í dag og í gær hefur verið sér-
stök veðurblíða, sól og hiti. t dag
komst hitinn í 17 gráður. Fólk
gengur um göturnar léttklætt og
brosandi í umferðinni.
— Fréttaritari
Málverkasýning:
Meðferð lit-
anna blíðari
— segir Einar Hákonarson myndlistarmaður
MYNDLISTARMAÐURINN Einar Hákonarson opnar sýningu á 25 olíu-
málverkum á uppstigningardag, flmmtudaginn 16. maí, I Gallerí Borg við
Austurvöll. Þetta er ellefta einkasýning Einars en hann hefur að auki
tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis á undanförnum
árum. Myndirnar á sýningunni eru flestar málaðar á þessu ári en sex eru
málaðar á árunum 1983 og 1984.
Einar Hákonarson er Reyk-
víkingur og stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands á árunum 1960—64. Lauk
síðan námi frá Myndlistaskólan-
um í Gautaborg árið 1967 en var
jafnframt aðstoðarkennari við
skólann tvö síðustu árin. Skóla-
stjóri Myndlista- og handíða-
skólans var hann á árunum
1978—1982, en frá þeim tíma
hefur hann helgað sig myndlist-
inni í eigin vinnustofu og jafn-
framt sinnt félagsmálum. Hann
er nú formaður stjórnar Kjar-
valsstaða og stjórnar Ás-
mundarsafns.
„Ég er alltaf að fást við svipað
viðfangsefni, mála helst fólk.
Það má líta á þessa sýningu sem
beint framhald af síðustu sýn-
ingu minni, er ég hélt fyrir ári. I
myndunum leitast ég enn við að
leysa upp formið, en litameð-
ferðin er orðin blíðari," sagði
Einar þegar hann var spurður
um sýninguna. „Bein áhrif má
finna frá landi og náttúru í verk-
unum þó svo að aldrei sé um
beinar fyrirmyndir að ræða,
heldur umrita ég þau áhrif, sem
ég verð fyrir.
í mínum huga er myndlistar-
maðurinn myndskáld, svipaður
Morgunblaftið/RAX
Einar Hákonarson myndlistannaöur við eitt verka sinna.
rithöfundi eða ljóðskáldi, sem
kemur þeim áhrifum er hann
verður fyrir á blað í rituðu máli.
Það má segja að þetta sé í raun
einkenni listamannsins að vera
alltaf að koma einhverju á blað.
Mynd nær tilgangi sínum þeg-
ar áhorfandinn upplifir eitthvað
svipað og listamaðurinn, sem
skapaði verkið. Það er að vísu
ekki algilt, því hver einstakling-
ur hefur sina eigin túlkun á list-
inni, sem betur fer. Annars væri
listin dauð þvi hún byggir á mis-
munandi áhrifum sem menn
verða fyrir.
Ef tekið er tillit til eldri mál-
ara má segja að menn virðast
geta sameinast um hvað sé góð
myndlist. Það getur að vísu
stundum tekið langan tíma fyrir
fólk að njóta myndlistar, en það
er eins og með allar aðrar list-
greinar, menn þurfa að efla með
sér þroska til að geta notið henn-
ar.“
Sýning Einars stendur til 28.
maí og verður opin frá kl. 12:00
til kl. 18:00 virka daga og frá kl.
14:00 til 18:00 um helgar.