Morgunblaðið - 15.05.1985, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
Cargolux:
Flytur íslenzka soðn-
ingu til San Fransicso
hákarla til Hollands, jarðarber og
kýr til Persaf lóans auk annarra ótrúleg
ustu hluta heimshornanna á milli
CARGOLUX flytur allt, sem nöfn-
um tjáir að nefna, segir meðal
annars í auglýsingum félagsins.
„You name it, we fly it“. Eftir að
hafa hitt svæðisstjóra fyrirtækis-
ins í Bandarfkjunum, Þórarin
Kjartansson, að máli efast undir-
ritaður ekki um að það sé rétt.
Fyrirtækið flytur ótrúlegasta
varnig milli heimshornanna; Jarð-
arber frá San Francisco til Persa-
flóans; Kýr frá Bandarkjunum á
sama stað; lifandi hákarla frá Mi-
ami til Hollands og íslenzka soðn-
ingu til San Francisco. Fyrirtækið
átti í miklum rekstrarörðugleik-
um fram á síðasta ár, en er nú á
uppleið að nýju. Morgunblaðs-
menn hittu Þórarin Kjartansson
að máli í San Francisco fyrir
skömmu og rakti hann gang mála
fyrir þá. Fyrst var hann spurður
hvernig til hefði komið að Cargo-
lux flytti ferskan fisk frá íslandi
til Bandaríkjanna:
Bara millilent til
að taka bensín
„Þetta hófst nú allt þannig, að
Magnús Þórðarson hafði samband
við mig vorið 1984,“ sagði Þórar-
inn. „Eiginlega út af öðru máli.
Hann hafði heyrt að við flygjum í
gegnum ísland, en fiskflutningar
komu ekki upp á yfirborðið strax.
Við lentum þá nokkuð reglubundið
í Keflavík til að taka bensín, því
flugbrautin i Lúxemborg hafði
ekki verið iengd þá. Ég hafði ekki
hitt Magnús áður, en hann fór að
segja mér frá því hvað hann væri
að gera og var að velta því fyrir
sér hvort hann gæti haft einhver
not af fluginu frá Keflavík til San
Francisco. Þá kom upp sú hug-
mynd hjá okkur hvort ekki væri
hægt að flytja ferskan fisk frá fs-
landi vestur. Cargolux gæti þá
hugsanlega tekið einhvern flutn-
ing til íslands á móti. Síðan gerð-
ist þetta eiginlega miklu hraðar
en við höfðum átt von á. Royal
Iceland komst inn á stóra verzlun-
arkeðju með hörpudiskinn og
Magnús minntist á möguleika á
ferskfisksölu við þá. Þeir vildu þá
koma þeim flutningum af stað
undir eins, eiginlega bara „í gær“.
Þá var allt í einu komið að mér, að
koma þessu f gegnum stjórn
Cargolux.
20 lestir af grænmeti
og 30 af fiski
Það var þó nokkuð mál þar til það
tókst að sýna fram á hagkvæmni
flutninganna. Við tókum tvo
farma til reynslu í september í
fyrra og það kom mjög vel út. Svo
gerðist það, eftir reynslutúrana,
að flugbrautin í Lúxemborg var
lengd, svo ekki reyndist lengur
þörf á því að millilenda í Keflavik
til að taka bensín. Hins vegar
höfðum við í millitíðinni kannað
málin talsvert betur og vorum í
sambandi við flutningamiðlunina
Cosmos, en stuðningurinn þaðan,
einkum frá Sigtryggi Jónssyni,
var okkur mjög mikilvægur.
Ennfremur var rætt við Flugleið-
ir, en forráðamenn þeirra voru
ekkert allt of ánægðir með að sjá
okkur komna inn á þessa leið.
Engu að síður samdist um það við
Flugleiðir, að við flyttum fyrir þá
grænmeti frá Lúxemborg til Is-
lands auk fleiri hluta og við ynn-
um þannig frekar saman en hvorir
gegn öðrum. Þetta kom allt saman
mjög vel út. Við höfum flutt um 20
lestir af grænmeti vikulega til
landsins og 22 til 30 lestir af fiski
frá Keflavík til San Francisco.
Tæknilega séð hefur þetta jafnvel
gengið betur en við þorðum að
vona, því mjög vel gengur að halda
réttu hitastigi í lestunum og fisk-
urinn er í mjög góðu ásigkomulagi
er hann kemur vestur. Þegar þess-
ir tveir liðir eru lagðir saman,
flutningarnir til fslands og frá
landinu, kemur þetta fjárhagslega
mjög þokkalega út.
Fyrstu reglubundnu
flutningarnir til
íslands og frá
Þetta eru fyrstu reglubundnu
flutningarnir, sem Cargolux hefur
verið með til íslands og frá. Það
hefur lengi verið gælt við hug-
myndina að þjóna íslandi á ein-
hvern hátt, því við höfum flogið
mikið bæði yfir landið og í gegn-
um Keflavík. Það hefur hins vegar
aldrei orðið neitt úr þeim hug-
myndum fyrr en nú, aðeins verið
um óreglubundið leiguflug þangað
að ræða. Það er svo spurningin
hvernig þetta heldur áfram. Við
gerðum samning við Royal Iceland
sem gildir út aprílmánuð. Það er
ljóst að erfiðara er að halda þessu
gangandi yfir sumartímann, en
það er bæði hugur hjá Royal Ice-
land og okkur að halda þessu sam-
starfi áfram. Það byggist auðvitað
á því, að flutningar séu stöðugir.
Við erum búnir að leggja til hliðar
30 lesta flutningagetu vegna
þessa. Verði hins vegar einhver
óregla á því, verðum við að fara á
markaðinn í Evrópu og hlaupa eft-
ir fragt. í dag væri það auðvelt þvf
svo mikil eftirspurn er eftir flutn-
ingum milli Evrópu og Bandaríkj-
anna, að það er allt að tveggja
vikna bið eftir því að koma fragt
vestur. Ef flutningarnir í gegnum
fsland detta niður einhvern tíma,
getur það þvi haft það f för með
sér, að við verðum orðnir háðir
einhverjum öðrum aðilum með
flutninga. Því er það nauðsynlegt
að stöðugleiki verði f flutningum
gegnum Island.
Útlitid mjög gott
Cargolux á og rekur tvær
Boeing 747-flutningavélar, sem
anna öllum helztu reglubundnu
flutningaleiðunum, milli Evrópu
og fimm borga í Bandaríkjunum,
milli Evrópu og Persaflóa og
Austurlanda. Auk þess höfum við
verið með minni flugvélar á leigu
til að þjóna óreglubundnum og
minni flutningum, sem tengjast
þó oft flutningum með stóru vél-
unum. Til síðustu áramóta átti
fyrirtækið tvær 747-vélar og tvær
DC-8. DC-8-vélarnar voru seldar
vegna rekstrarörðugleika á arun-
um 1982 og 1983 og sömuleiðis
seldum við nú fyrir skömmu aðra
747-vélina, en tókum aðra á kaup-
leigusamningi. Þó rekstur fyrir-
tækisins hafi batnað mikið á síð-
asta ári og það skilað nettó hagn-
aði upp á tæpar 70 milljónir
króna, dregur fyrirtækið á eftir
sér nokkurn skuldahala vegna
tapáranna. Því hefur verið gripið
til þess ráðs að losa fé með sölu
véla og leigu f staðinn og með þvf
jafnframt að auka útþenslumögu-
leikana. Útlitið í ár er mjög gott
vegna mikillar eftirspurnar eftir
flutningum á öllu helztu leiðum,
sem við fljúgum á.
Asía — Evrópa —
Ameríka — Asía
Við fljúgum nú reglubundið til
Miami, San Francisco, Seattle,
Houston og New York í Banda-
ríkjunum, Abu Dhabi og Dubai við
Persaflóa og síðan Singapoore,
Hong Kong og Taipei. Sumar þess-
ara borga eru notaðar sem dreif-
ingarmiðstöðvar. Taipei er til
dæmis mikilvæg dreifingarmið-
stöð fyrir Japan, sem er stærsta
viðskiptaland okkar i Asíu, þó við
fljúgum ekkert þangað. Eins kem-
ur mikið frá Kóreu til Taipei, sem
við flytjum síðan áfram til Evr-
ópu. Sama má í raun segja um
Þórarinn Kjartansson, svæðisstjóri
Cargolux í Bandaríkjunum.
borgirnar, sem við fljúgum til í
Bandaríkjunum. Lúxemborg er
náttúrlega höfuðdreifingarmið-
stöð okkar og tengist mjög þéttu
neti flutningabíla um alla Evrópu
og erum við þar í forystu. Flutn-
ingalínurnar hjá okkur liggja að-
allega frá Asíu til Evrópu, Evrópu
til Bandaríkjanna og Bandaríkj-
unum til Persaflóans.
Allt sem nöfnum
tjáir ad nefna
Við flytjum allt, sem nöfnum
tjáir að nefna. Frá Bandaríkjun-
um flytjum við til dæmis mikið af
tækjum til olíuborana frá Houst-
on til Persaflóans og Singapoore
svo dæmi séu nefnd. Við flytjum
mikið af jarðarberjum frá San
Francisco til Dubai og tölvum til
Evrópu og alls konar óvenjulega
hluti. Um daginn fluttum við þrjá
lifandi hákarla frá Miami til Hol-
lands í sérstakri „sundlaug". Við
flytjum talsvert af dýrum, til
dæmis fórum við með fulla vél af
kelfdum beljum til Saudi-Arabíu
fyrir skömmu, þeir ætla að fara að
rækta nautgripi Þá fluttum við
mikið fyrir Ólympiuleikana, með-
al annars róðrarbáta, öll tæki til
tímamælinga frá Sviss svo eitt-
hvað sé nefnt. Ennfremur höfum
við flutt mikið af bílum frá Evr-
ópu til Bandaríkjanna.
64.000 lestir á
síöasta ári
Við erum mjög vel í stakk búnir
til flutninga sem þessa, þar sem
við erum með sérhæfðar vélar. Því
getum við bæði tekiö stærri hluti
en hin félögin, sem eru bæði með
fólks- og fragtflutninga, og enn-
fremur flutt ýmsa hluti, sem
óleyfilegt er að flytja með far-
þegavélum. Þá virðist það aukin
tilhneiging í viðskiptaheiminum
að flytja vörur með flugvélum,
meðal annars til að koma þeim
fyrr og öruggar á markaðinn. Við
flytjum meðal annars mjög mikið
af dýrum viðkvæmum vörum eins
og tölvum og slíkum búnaði og má
því segja, að við séum orðnir hluti
af framleiðslukeðju viðkomandi
framleiðenda. Ennfremur er orðið
nokkuð um það, að vörur séu flutt-
ar sjóleiðina frá Japan til vestur-
strandar Bandarfkjanna og þaðan
með flugi til Evrópu. Við fluttum
á síðasta ári um 64.000 lestir af
vörum og flytjum til dæmis meira
en bæði SAS og Sabina svo dæmi
Úr flugstjórnarklefa Boeing 747. Áhugamanni virðist þaó nánast ógerningur
aó hægt sé að læra á öll þau stjórntæki, sem fyrir augun ber, en flugmennirn-
ir eru greinilega ekki á sama máli því vélinni stjórnuðu þeir af miklu öryggi.
Það er ekki fyrr en með samningi Cargolux við Royal Iceland að Cargolux
lendir reglulega í Keflavík.
Vélarnar eru sérhannaðar fyrir vöruflutninga. Gámar og vörustaflar á brett-
um eru sérstaklega lagaðir til að falla sem bezt inn í hringlaga búkinn og
færibönd í gólfinu flytja vöruna fram og aftur eftir farangursrýminu.
Það verður ekki sagt um „jumbóþotur" Cargolux að þær séu litlar eða
vanmáttugar cnda bera þær yfir 100 lestir varnings.