Morgunblaðið - 15.05.1985, Side 31

Morgunblaðið - 15.05.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAf 1985 31 Ítalíæ Bjartsýni í efnahagslífinu MíUoó, 14. maí. AP. HLUTABRÉF í (yrirtækjura i Ítalíu snarhækkuðu (dag og niðu hærra verdi en nokkru sinni síðan fyrir stríð. Ástæðan er talin vera fylgistap kommúnista í héraðskosningunum nú um helgina. I samræmi við þetta hækkaði líran hvarvetna i gjaldeyrismörkuðum heims gagnvart Bandaríkjadollar, sem lækkaði og varð gengi hans lægra en nokkru sinni síðan snemma í febrúar sl. lyndir. Nam fylgi þeirra í heild 58,1%, en kommúnistaflokkurinn fékk 30,2% og er hann því eftir sem áður stærsti kommúnista- flokkurinn á Vesturlöndum. Mest varð ásóknin i hlutabréf i ítölskum fyrirtækjum i kauphöll- inni í Mílanó, enda er þar stærsti verðbréfamarkaður Ítalíu. Hækk- uðu hlutabréf sumra italskra fyrirtækja um ein 5% i dag og voru stórfyrirtæki eins og Fiat, Montedison, Pirelli og Olivetti þar hvað fremst. Samkvæmt endanlegum niður- stöðum kosninganna unnu stjórn- arflokkarnir fimm undir forystu Bettinos Craxi forsætisráðherra verulega á, en þeir eru sósialistar, kristilegir demókratar, lýðveldis- sinnar, jafnaðarmenn og frjáls- Spár um, að kommúnistar kynnu að fara fram úr kristilegum demókrötum í þessum kosningum, voru farnar að setja svip á fjár- mála- og efnahagslif á Italiu og draga úr kjarki áhrifamanna á þeim vettvangi. Miklar hrotur kunna að vera hættulegar Helsingfors, 14. m*í. AP. HROTUR kunna að vera merki um sjúkdóm og geta einar sér verið heil.su viðkomandi manns bættulegar i mörgum tilfellum. Kemur þetta fram í skýrslu, sem hópur finnskra lækna hefúr látið gera. „Hættan er mest hjá þeim, sem þjást af sjúklegum hrotum og jafnframt kunna að vera veilir fyrir hjarta," var í dag haft eftir Marrku Koskenvuo, lækni við háskóla- sjúkrahúsið i Helsingfors. Miklar hrotur valda truflunum á önduninni, sem geta varað allt að 10 sekúndum, segir i skýrslu finnsku læknanna, en hún birtist fyrir skömmu i brezka læknaritinu Lancet Slíkar öndunartruflan- ir leiða til þess, að líkaminn gripur til sinna ráða með þvi að auka framleiðsluna á adrenalíni i þvi skyni að örva hjartað til þess að starfa hraðar og veita blóðinu þannig örar um líkamann, svo að hann fái meira súrefni. „Ef slíkar truflanir eiga sér stað oftar en 30 sinnum á einni nóttu eða oftar en 7 sinnum á einni klukkustund, þá er alvara á ferðum," sagði Kosk- envuo læknir í dag, er hann gerði frekari grein fyrir skýrslunni. Finnska skýrslan er byggð á niðurstöðum könn- unar, þar sem 3.847 karlmenn og 3.664 konur voru spurð um, hvernig þau svæfu. Aðeins 9% karl- mannanna og 3,6% kvennanna svöruðu á þann veg, að þau „hrytu nær alltaf". Hins vegar svöruðu 25% kvennanna og 11% karlmannanna á þann veg, að þau „hrytu aldrei" og enn aðrir sögðust hrjóta „stundum" eða „oft“. Miklar hrotur eru algengastar hjá þeim feit- lögnu. Sovétríkin: Bandarískri konu meinuð landganga Helnnki, 13. meí. AP. Cæ KW BANDARÍSK kona, sem kom ( dag til Helsinki frá Moskvu, segir, að henni hafi verið meinuð landganga þar vegna þess að hún hafði i fórum sínum trúarleg rit. Hún kveðst hafa orðíu að sæta yfirheyrslum á hóteli á flugvellinum í marga klukkutíma. Konan, sem heitir Regina Sipple og er 32 ára að aldri, er frá Salt Lake City í Utah. Hún segist hafa haft með sér margar bækur um trúmál og hljómsnældur með tón- list fyrir börn, sem hún hafi ætlað að gefa. Hafi það allt verið gert upptækt. Sipple segist ekki hafi fengið að hafa samband við ferðafélaga sína Moskvu áður en hún var send úr eða bandariska sendiráðið i landi. Syðri-Straumsfjörður: Aflýsa verkfalli Kaupmannahöfn, 14. maí. Frá Nils Jörgen Bruun frétUriUra Mbl. AFLVST hefur verið verkfalli 9 flug- vinnuveitenda þeirra, danska umferðarstjóra í Syðri-Straumsfirði, rikisins. Fengu flugumferðarstjór- sem koma átti til framkvæmda 25. arnir hækkun á launum sínum, maí nk. sem nemur milli 250 og 450 dönsk- um krónum á mánuði. Gildir sam- Um helgina náðist samkomulag komulagið fyrir tímabilið milli flugumferðarstjóranna og 1983—85. ^ÖLUBOÐ rauðkál 720 gr. appelsínu marmelaði 450 gr. bakaðar baunir 439 gr. ÍU tekex 200 gr. lcr log IJkruður nogr. w RÚSSNES | grænar 1 baunir ibogr. k PELMC ) gular 500 gr. hálfbaunir s • blandaðar kextegundir 6 tegundir ...vöruverð í lágmarki SHEENA Vic Casey (Ted Wass), er iþróttafróttamaöur viö stóra, bandaríska sjónvarpsstöö. Hann, ásamt vini sínum og samstarfsmanni, Fletcher (Donovan Scott), heldur til Afríku til aö kvikmynda þátt um Otwani prins. Prinsinn hefur stundaö nám viö háskóla í Bandaríkjunum og unniö sér góöan oröstír sem frá- bær íþróttamaöur. Hann er einnig góövinur Vics. Jabalani, konungur, bróöir Otwanis, tekur á móti þeim félögum og býöur þeim til konunglegrar veislu. Otwani er fégráöugur maöur og hefur lagt á ráöin um bróöurmorö, til aö komast sjálfur til valda, meö aö- stoö Zöndu, prinsessu. Otwani vill grafa eftir títaníum i landi Zambúla, en Jabalani segir svæöiö heilaga jörö og þar megi engu raska. I landi Zambúla býr hvit kona, Sheena (Tanya Rob- erts). Foreldrar hennar bæöi læknar, höföu látiö lífiö, er þau rannsökuöu fjalliö helga, Gudjara. en þá var Sheena barn aó aldri. Shaman töfralæknir Zambula (Elizabeth a Toro), hefu' aliö Sheenu upp, ot; þess unga kona hefur lært ýmislegt um frumskóginn og ibúa hans, sem nútímafólki er framandi. Vic og Fletcher ná af tilviljun mynd af örinni, sem banar Jabalani konungi. Þegar Otwani kemst aö því tryllist hann. Hann hefur ákært Shaman fyrir kon- ungsmoröiö og fangelsaö hana. Sheenu tekst aö frelsa hana og veröa Vic og Fletcher vitni aö flóttan- um. Þeir félagar elta konurnar inn í frumskógin og Otwani og hermenn hans eru staöráönir í aö fella þau öll, halda til landa Zambúla og grafa eftir titaníum úr fjallinu helga. Upphefst nú hinn ógurlegasti eltingaleikur um frum- skóginn. Sheena og Vic reyna aö ná til Zambúialands á undan Otwani, en hann er vel vopnum búinn á meöan þau hafa einn fararskjóta — sebrahest. Sýnd kl. 5, 7.05, 9.10 og 11.15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.