Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
33
Myndin sýnir sovéskar orrustuþotur um borö I flugmóóurskipinu Kiev á
siglingu í nágrenni Islands.
lendinga í garð ráðamanna i
Washington, þar sem „86% ís-
lendinga vilji að Norður-Evrópa
(„the European North") sé lýst
kjarnorkuvopnalaust svæði, en
ráðamenn í Washington reyna án
þess að spyrja íslendinga sjálfa að
nota land þeirra í þágu eldflauga-
og kjarnorkustefnu sinnar." Með
þessu vísar Zubko að líkindum til
þess, sem fram kom í könnun er
Ólafur Þ. Harðarson gerði og ör-
yggismálanefnd gaf út 1984, en
þar voru svarendur á höfuðborg-
arsvæðinu látnir lýsa áliti sínu á
þessari fullyrðingu: „Ástæða er
fyrir íslendinga að styðja hug-
myndina um kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum." 73%
sögðust „alveg sammála“ fullyrð-
ingunni, 13% sögðust „frekar
sammála" henni.
1 greininni í Isvestía segir síðan
með stórum stöfum: „Við minnum
á það, að ævintýramennska
Bandaríkjamanna vekur ótta og
áhyggjur í mörgum löndum
heims.“ Og henni lýkur með því að
minnt er á bann stjórnar Nýja
Sjálands við því að bandarísk
herskip með kjarnorkuvopn komi í
hafnir þar í landi. Rifjað er upp að
danska þingið hafi ályktað gegn
staðsetningu kjarnorkuvopna á
friðar- og stríðstfmum og and-
mælt þátttöku Dana í „stjörnu-
stríðsáætlunum" Reagans. Norska
þingið hafi ályktað gegn stjörnu-
stríði og grísk stjórnvöld vilji að
kjarnorkuvopn verði flutt á brott
frá Grikklandi.
ast. Borgaralegt eftirlit lögregl-
unnar — sem lýtur stjórn ráð-
herra laga og reglu (áður dóms-
málaráðherra) — er einnig stór-
gallað. Það hefur — að miklu leyti,
en þó ekki öllu — verið eftirlit
hvítra yfirvalda með blökku-
mönnum.
Nú kem ég að því sem liggur
mér næst hjarta — og ég á án efa
eftir að vekja andúð hjá sumum
lesendum. Það háðulegasta við
stjórnmálaskoðanir mínar nú er
að, rétt eins og þjóðernissinnaði
Búinn er farinn að gera sér grein
fyrir því að dagar landvinn-
inganna eru á enda og kominn
tími til að afnema yfirdrottnun-
ina, og þegar hann er að taka
fyrstu hikandi skrefin í því af-
námi, stendur hann frammi fyrir
þessari heiftarlegu opinberun á
hatri blökkumanna á apartheid-
lögum hans.
Hvað leiða þessir árekstrar af
sér? Ég hef ekki trú á því að hann
hætti við takmarkaðar tilraunir
sínar til „umbóta“. Hins vegar er
mjög líklegt að hann missi fleiri
fylgismenn sína úr röðum þjóð-
ernissinnaðra Búa yfir til róttæka
hægriarmsins. Framtíðin er erfið
og krefjandi. Ég get ekki sagt ykk-
ur hver hún verður, og það getur
heldur enginn annar.
Ég hef orð að mæla við þá
Bandaríkjamenn sem halda að
þeir geti flýtt „degi lausnarinnar"
með því að grafa undan efnahag
Suður-Afríku, til dæmis með því
að afturkalla fjárfestingar. Ég
held ekki að það verði okkur til
hjálpar ef efnahaginum er spillt.
Það veldur mörgum blökkumönn-
um fjárhagslegu tjóni. Það verður
að gera Bandaríkjamönnum það
ljóst að þeir munu færa fjölda
blökkumanna hungur og þján-
ingar. Oft má heyra blökkumenn í
Suður-Afríku hrópa: „Það gerir
ekkert til þótt við þjáumst. Við
höfum vanizt því.“ En þessi hróp
heyrast helzt frá þeim blökku-
mönnum sem meira mega sín og
þurfa síður að þjást. Ég, sem
kristinn maður, vil ekki sjá neina
afturköllun á fjárfestingum. Að
trúa því að sú afturköllun geti
„knésett" ríkisstjórn okkar er fá-
vizka.
Hvað gerðist ef Vesturlönd
sneru algjörlega við okkur baki?
(Að sjálfsögðu fyrir utan viðskipti
með hernaðarlega mikilvæg hrá-
efni.) Hvað gerðist ef Vesturlönd
skildu Suður-Afríku eftir í tóma-
rúmi? Hver gæti fyllt það tóma-
rúm? Lesendur fá að geta einu
sinni.
Er þá nauðsynlegt fyrir Banda-
ríkjamenn að láta okkur fara lönd
og leið? Alls ekki. Þjóðernissinn-
aði Búinn, sem hreykist yfir því að
vera afrískur, er miklu frekar
maður vestræna heimsins. Hann
hefur mikla tilfinningu til sið-
ferðilegs réttlætis á Vesturlönd-
um. Hann hefur miklu meiri til-
finningu fyrir því nú en nokkru
sinni fyrr á 82 ára ævi minni.
Hann er vissulega ekki eins hroka-
fullur og hann var fyrir 30 árum.
Hann er opnari fyrir því að hlusta
á réttlátar skoðanir, en bregzt illa
við sjálfbirgingslegum fordæm-
ingum. Efnahagsleg áhrif Banda-
ríkjanna eru gífurleg, en Banda-
ríkjamenn mega ekki vanmeta sið-
ferðileg áhrif sín. Þeir mega aldrei
einangra okkur frá umheiminum.
Það hefur hættu í för með sér
fyrir okkur öll.
Þegar ég legg frá mér pennann
er verið að tilkynna að ráðherra
okkar sem fer með lög og rétt hafi
verið að banna fundi 29 félags-
samtaka. Það hefur engin áhrif
önnur en að efla andstöðuna. Ég
trúi því að ríkisstjórn þjóðernis-
sinnaðra Búa standi nú írammi
fyrir mestu erfiðleikatímum ferils
síns. Sama má segja um okkur öll
hér í Suður-Afríku.
(Heimild: The New York Times)
Höfundur er rithöfundur. Hann
hefur skrifað margar bækur, þar i
meðal „Grát ástkæra fósturmold“
(Almenna bókafélagið, 1955).
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ERIK LINDEN
IIÉ - \ TGSWrm'
Gífurlegt peningastreymi hefur átt sér stað fri Svfþjóð aö undanfórnu. Astæðan er einkum verulega óhagstæður
vöruskiptajöfnuður.
Svíþjóð:
Vaxtahækkun og
efnahagsaðgerðir
Ákvörðun sænska seölabankans á mánudagsmorgun um að hækka for-
vexti um tvö prósentustig, er fyrst og fremst tekin til að stemma stigu við
gífurlegu peningastreymi úr landi. Samhliða vaxtahækkunum var gripið til
ýmissa annarra efnahagsaðgerða, sem eiga eftir að sverfa að fyrirtækjum og
skerða kjör almennings.
Isíðastliðinni viku einni er tal-
ið að 2,5 milljarðar sænskra
króna, eða 11,5 milljarðar ís-
lenzkra króna, hafi verið fluttir
úr landi. Áætlað er að frá því í
október sl. hafi 11 milljarðar
sænskra króna verið fluttir úr
landi, eða jafnvirði tæplega 52ja
milljarða islenzkra.
Á sama tíma hefur sænskur
útflutningur dregizt saman um
10% og innflutningur aukizt um
5%. Vöruskiptin hafa á skömm-
um tíma orðið neikvæð um 15%,
sem er önnur þróun en stjórnin
gerði ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpi sínu, bæði i janúarfrum-
varpinu og viðbótarútgáfu í apr-
íllok. 1 aprílútgáfu fjárlaga-
frumvarpsins er enn sagt að Sví-
þjóð sé á réttri braut, en það
hugtak er Kjell-Olof Feldt fjár-
málaráðherra einkar hugleikið.
Þrátt fyrir mótlætið siðustu
daga rígheldur hann enn i hug-
takið, því á blaðamannafundi á
mánudag, þar sem vaxtaákvarð-
anirnar voru tilkynntar, hélt
hann því til streitu að landið
væri á réttri leið.
Nauðsynlegar aðerðir
, Menn, sem gerst þekkja efna-
hagsmál, voru sammála um að
samdráttaraðgerðir væru mjög
brýnar. Sögðu þeir vaxtahækk-
animar mikilvægar í því skyni.
Stjómin kaus vaxtahækkanir
umfram hækkun virðisauka-
skatts, sem komið hefði miklu
harðar niður. Með vaxtahækkun
hækka t.d. ekki lífsnauðsynjar,
en töluvert dýrara og erfiðara
verður að taka lán í banka. Einn-
ig verður dýrara að kaupa fjár-
festingarvörur ýmiss konar með
afborgunum eða greiðslukortum.
Almennt er álitið að ákvörðun
bankans og hins opinbera um að
herða að fyrirtækjum og al-
menningi eigi eftir að auka
svartamarkaðsbrask með gjald-
eyri og ýta undir okurlánastarf-
semi.
f stuttu máli gerðist þetta á
mánudagsmorgun:
Forvextir voru hækkaðir um
tvö prósentustig, úr 9,5 í 11,5%.
Útlánaþak banka og pen-
ingastofnana var lækkað úr 4% í
2%.
Refsivextir á útlánum seðla-
bankans til banka hækkuðu úr
13,5% í 16%.
Reglur um vaxtahámark voru
numdar úr gildi.
Vextir á skuldabréfum hækk-
uðu úr 11 í 12%.
Ákveðið var að þau útlán hús-
næðisstofnunarinnar, sem ekki
eru ætluð til forgangsverkefna,
yrðu lækkuð um 25%.
Aukið framlag fyrirtækja
Þá ákvað stjórnin að taka að
minnsta kosti fimm milljarða
króna frá atvinnulífinu með því
að flýta og auka greiðslur þeirra
til hins opinbera. Fyrirtækjum
verður gert að greiða 6% af upp-
hæð greiddra heildarlauna, sem
er umfram 20 milljónir, inn á
reikning í seðlabankanum í ág-
úst. Á næsta ári skulu önnur
fjögur prósent greiðast inn á
sama reikning. Peningarnir
verða bundnir á reikningunum
fram til ársins 1988.
Þá verður dýrara að eignast
bíla, því bílagjald er tvöfaldað í
einu vetfangi, sem þýðir um
4.000 sænskra króna hækkun á
meðalstóra bifreið.
Við bifreiðakaup verður hér
eftir að borga að minnsta kosti
50% bílverðsins er kaup fara
fram og greiða verður bifreiðina
að fullu á einu ári frá kaupdegi.
Breytt var skilmálum sem
gilda um viðskipti með afborg-
unarkjörum. Verður að greiða
vöru upp hraðar og á skemmri
tíma en áður gilti.
Loks voru stimpilgjöld og
þinglýsingargjöld tvöfölduð á
mánudagsmorgun til að draga úr
lánafíkn manna.
Nýjar álögur væntanlegar
Til þess að mæta auknum út-
gjöldum ríkissjóðs vegna vaxta-
hækkunarinnar verða nýjar
álögur kynntar þegar fram í
sækir. Er talið að ríkissjóður
þurfi i þessu skyni a.m.k. millj-
arð sænskra króna, eða 4,6 millj-
arða íslenzkra.
Kjell-Olof Feldt fjármála-
ráðherra sagði á mánudag að
þessar ráðstafanir reyndust
nauðsynlegar þar eð einkaneyzla
hefði aukizt talsvert meira en
ætlað var, einkum það sem af er
árinu. Feldt kvaðst hafa talið að
kaupmáttarminnkun hefði í för
með sér aðgæzlu og varfærni í
fjármálum. Þróunin væri önnur.
í stað sparnaðar hefði fólk tekið
lán til kaupa á bílum og öðrum
fjárfestingarvörum.
Að sögn Feldts verður staðið
við 600 króna skattaafslátt í
júní. Hann sagði að allt útlit
væri fyrir að stefna stjórnarinn-
ar í verðlagsmálum ætlaði að
takast og að verðbólgan yrði inn-
an við 3%. Vaxtahækkunin bæt-
ir 0,7 prósentustigum við verð-
lagsvísitöluna, sem er 2,2%
hærri en við síðustu áramót.
Sagði Feldt að launastefnu
stjórnarinnar yrði haldið til
streitu og engar launahækkanir
væru framundan. Kveðst Feldt á
þessari stundu aldrei hafa lofað
kaupmáttaraukningu á árinu og
að verðbólga færi ekki yfir 3%.
Hvort tveggja sagði hann háð
þróun verðlagsmála í útlöndum
og einnig því hvernig utanríkis-
viðskiptum reiddi af.
Fjármálaráðuneytið reiknar
með að þær aðgerðir, sem gripið
var til á mánudag, nemi sem
svarar 5 milljarða sænskra
króna sparnaði. Segir Feldt að
vaxtahækkunin og aukinn fjár-
magnskostnaður eigi ekki að
íþyngja fyrirtækjum tilfinnan-
lega. Mörg þeirra séu eins og
bankar, með stórar lánadeildir,
og greiðslugeta þeirra því góð.
— Við ætlum að stöðva þessa
lánastarfsemi fyrirtækjanna og
koma í veg fyrir að þau komi
peningum úr landi, sagði Feldt.
Hvorki Feldt né Bengt Dennis
seðlabankastjóri telja að vaxta-
hækkunina muni draga úr nýj-
um fjárfestingum sænskra fyrir
tækja.
Höfundur er blaðamaður rið
Srenska Dagbladet og fréttaritari
Morgunblaðsins í Stokkhólmi.
igis sneri.