Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 15. MAl 1985
41
Ályktanir og ábendingar myndlistarþings:
Hagur myndlistar
stendur höllum fæti
Á mvndli.starþingi sem haldið var
nýlega voru m.a. eftirfarandi ályktan-
ir og ábendingar samþykktar.
Myndlistarþing 1985 telur hag
myndlistar standa höllum fæti
miöað við aðrar listgreinar.
Þingið telur að þrátt fyrir áhuga
almennings á myndlist séu lista-
söfn í fjársvelti og geti ekki fram-
fylgt lögum sínum.
Þá er bent á að hráefni og tæki
til myndlistar hafi verið tolluð ár-
um saman meðan aðrar listgreinar
fá niðurfellingu gjalda. Telur þing-
ið einnig að Islandi beri að gerast
fullgildur aðili að Flórens-sáttmál-
anum um tollfrjálsan flutning
listaverka milli landa.
Þingið telur höfundarrétt ekki
virtan sem skyldi og ekki tekið til-
lit til myndlista í gerðardómi
vegna ljósritunar kennsluefnis í
skólum. Beinir þingið þeim tilmæl-
um til Sambands íslenskra mynd-
listarmanna að könnuð verði rétt-
arstaða myndlistarmanna í þessu
sambandi.
Telur þingið að þörfum fyrir
vinnustofur hafi lítið verið sinnt og
var skipuð nefnd til að kanna hús-
næði í eldri hverfum borgarinnar.
Þá krefst Myndlistarþingið þess að
heiðursbústað Jóhannesar Kjar-
vals verði skilað aftur og húsið nýtt
fyrir myndlist. Jafnframt gerir
þingið þá kröfu að greitt verði fyrir
afnot hússins aftur í tímann og
gæti féð verið framlag til Launa-
sjóðs myndlistarmanna.
Þá er það talið brýnast mála að
stofnaður verði Launasjóður
myndlistarmanna til að jafna hag
þeirra svo fleiri geti nýtt menntun
sína og kunnáttu að fullu.
Þingskipuð nefnd vinnur nú að
heildarendurskoðun sjóða vegna
lista og bindur þingið vonir við
starf hennar og væntir leiðréttinga
fyrir myndlistarmenn.
Morgunblaöiö/Ölafur
Viðstaddir oddvitar af Héraði.
Egilsstaðir:
Valaskjálf tekur stakkaskiptum
KgiLsNtödum, 12. raaí.
Morgunblaðið/Emilía Björg
Jóhanna E. Sveinsdóttir framkvæmdastjóri t.h. og Guðlaug Jónasdóttir með
Ijósrit af forsfðu Morgunblaðsins f tveimur stærðum. Guðlaug heldur á
Morgunblaðinu sem Ijósritað var eftir í hægri hendi.
Fjölritun Nóns hf.:
Býður eigendum Xerox-véla
ódýra ljósritunarþjónustu
Finnur Bjarnason á tali við sýslumann Sunnmýlinga, Boga Nílsson, við opnun
salarkynna.
FYRIRTÆKIÐ Nón hf., sem flytur
inn Xerox-ljósritunarvélar, hefur nú
ákveðið að bjóða eigendum Xerox-
véla og væntanlegum kaupendum
upp á ódýra hraðþjónustu.
Þjónustan felst í því að þessir
aðilar geta látið fyrirtækið Fjöl-
ritun Nóns hf., systurfyrirtæki
Nóns, fjölrita fyrir sig verkefni,
sem þeirra eigin vélar afkasta
ekki.
Eigendur Nóns hf. líta svo á að
venjuleg fyrirtæki þurfi sjaldan
að nota alla þá möguleika sem
stærri og dýrari Xerox-vélarnar
bjóða upp á. Með því að notfæra
sér þessa þjónustu Fjölritunar
Nóns geta þau sparað sér stórfé í
vélakaupum, en jafnframt haft
aðgang að ódýrri ljósritunarþjón-
ustu.
Vélarnar sem Fjölritun Nóns hf.
býður upp á eru tvenns konar. 1
fyrsta lagi er það Xerox 2080 vélin
sem er teikningafjölföldunarvél,
með allt að 6 metra vinnsluhraða
á mínútu. Hún getur tekið inn
frumrit af stærðinni A0, sem er 84
sm breitt og minnkað það niður í
Al, sem er 60 sm og síðan koll af
kolli allt niður í frímerkjastærð.
Vélin getur síðan stækkað upp 1
Al.
Einnig er boðið upp á hrað-
ljósritun í Xerox 9500, en hún var
fyrst notuð hér á landi á þingi
Norðurlandaráðs í mars sl. Vélin
getur afkastað um 7200 ljósritum
á klukkustund og tekið frumrit í
stærðunum A3, A4 og A5. Hún
skilar út ljósritum í stærðunum
A4 og A5 og raðar þeim. Þessi vél
hentar sérstaklega vel til að ljós-
rita skýrslur, bæklinga og mynda-
lista.
Aðaleigendur fyrirtækjanna eru
ólafur Kr. Sigurðsson og örn
Johnson. Framkvæmdastjóri er
Jóhanna E. Sveinsdóttir.
SAMKOMUSALIR Héraðsheimil-
isins Valaskjálfar voru formlega
opnaðir í gær eftir gagngerðar
breytingar og endurbætur — og
hefur húsið sannarlega tekið
stakkaskiptum.
Sigurður Grétarsson, formað-
ur rekstrarnefndar hússins, bauð
gesti velkomna — en Valaskjálf
er sameign allra sveitarfélaga á
Héraði. Breytingar á innviðum
hússins hófust 25. febrúar síð-
astliðinn og hafa því tekið ótrú-
lega skamman tíma. Sigurður
þakkaði verktökum vel unnin
verk og sérstakar þakkir færði
hann byggingastjóranum, Ást-
ráði Magnússyni — og fram-
kvæmdastjóra Valaskjálfar,
Finni Bjarnasyni.
Finnur Bjarnason lýsti síðan
breytingum fyrir gestum og
sýndi þeim salarkynni.
Veitingasölum er nú hægt að
skipta niður í fjórar einingar —
og geta 450 manns setið samtím-
is til borðs í veitingasölunum.
Þar eru nú þrjú dansgólf. Auk
aðaldansgólfsins eru tvö minni
— á sviði og á svölum. Þá hefur
verið byggður smekklegur bar til
hliðar við aðalsal.
Talið er að breytingar salar-
kynna hafi kostað hartnær 6
milljónum.
Á næstunni verða haldin fjöl-
menn landsþing í Valaskjálf.
Landsþing JC nú um hvítasunnu,
viku síðar landsþing Lions-
hreyfingarinnar og síðan lands-
þing Slysavarnafélags íslands,
Brunabótafélags Islands og
Bílgreinasambandsins.
Við opnunina í gær var margt
til skemmtunar. Arni ísleifsson
lék af fingrum fram á flygilinn
meðan á borðhaldi stóð, verslanir
á Egilsstöðum sýndu tískufatnað
og flokkur stúlkna sýndi jass-
ballett auk þess sem indversk
dans- og söngkona kom fram. Að
lokum var stiginn dans fram eft-
ir nóttu. - Ólafur.
Nr. 120
W.IT&WrSÍ1?.
Nr. 121
Nr. 123
Nr. 124
Nr. 125
Nr. 120
Nr. 115
Nr. 102
Kaupir þu dýrara en aðrir?
HPK gefur nú öllum landsmönnum tækifæri til að nýta sér verð
og þjónustu klúbbsins án skuldbindinga.
Þú ræður því hvort þú kaupir eina eða fleiri af þessum hljómplöt-
um. Fyrir venjulegt búðarverð, 499,-, færð þú eina af þessum
hljómplötum og óátekna TDK-kassettu og þú færö skírteini HPK
Nr. 110
V
Nr. 103
> iv». rv tv »
Nr. 128 Nr. 129 Hr 130
Ji, ég ótka *ftir að fé Mndar aftirfarandi hljómptötur og óétaknar
Nr.104
....
Nr. 105
heimsent.
Nýttu þér það
Af hverju verslar þú ekki í gegnum
okkur?
Mundu að við opnum þér Bretlandsmark-| kMMttur á 499,-hvorl tvaggia. Ég gtaiM •JndingárlKMtnaó an fa |
aöinn 1. júní nk. Sérpöntunarþjónusta , mé'- *" *k““bindinB«. |
sem ekki á sinn líka hór á landi.
Pantanir sendist til:
Hljómplötuklúbburinn (HPK),
Pósthólf 8322,
108 Reykjavík.
Ir. 117
Hljomptötur:
, Nr......... N r.......... N r .
^ Nr............ N r.......... N r .
♦ jafnmargar TDK AD 60
| Nafn:_____________________________
■ Iteim ilésfang: -...............
Nr. 118
Oimi:
Nr. 107
Nr. 110
Nr. 111
Nr. 112
Nr. 113
1
Nr. 114