Morgunblaðið - 15.05.1985, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAf 1985
Björn Bjarnason cand. mag.
frá Steinnesi — áttræður
Aldur er misjafnastur, segir
máltækið. Sumir eru „fæddir
gamlir", aðrir yngjast með árun-
um, og finnst mér hið síðara geta
átt við Björn, vin minn, Bjarnason
frá Steinnesi. Hann ber að vísu
hvítar hærur, en sinnið er sem í
ungum manni. Ævi manns mælist
ekki í almanaksárum, það er vist.
Margir munu í dag senda hon-
um, áttræðum, kveðjur, því fáa
menn veit ég vinsælli en hann.
Þeir eru óteljandi, nemendur
hans, sem hann hefir leitt til
skilnings enskrar tungu, þess
orðauðuga og flókna tungumáls,
sem nú telst heimsmál þjóða í
milli. Aðrir, þeirra á meðal undir-
ritaður, eiga honum þakkir upp að
inna fyrir langa samleið í lifinu og
tryggja vináttu. Langar mig þvi til
að lauma þessari litlu kveðju inn á
milli hinna eiginlegu afmælis-
greina i blaðinu.
Björn mun hafa verið á sex-
tánda árinu, þegar ég fyrst kynnt-
ist honum. Hann var þá nýkominn
til náms í Gagnfræðaskólanum á
Akureyri, ungur Húnvetningur,
fríður sýnum, hávaxinn, með fág-
uðu yfirbragði, er bar vott um
vandað uppeldi og meðfædda eðl-
>iskosti. Enda þótt ég væri nokkru
yngri en hann og vanþroskaðri
tókst brátt með okkur vinátta,
sem hefir haldizt síðan fram á
þennan dag. Við sátum saman í
skólanum og skaraði Björn þar
fram úr i málakunnáttu, enda
mun menntabraut hans hafa ráð-
izt á þessum árum.
Við bjuggum síðan saman i
Kaupmannahöfn, er Björn hóf þar
nám sitt við háskólann í ensku og
enskri bókmenntasögu sem aðal-
námsgrein en lagði jafnframt
stund á þýzku og þýzkar bók-
menntir. Skildi leiðir, þegar hann
lauk prófi og hélt til framhalds-
náms við háskólann í Öxnafurðu,
þá frægu stofnun. Það er trúa
mín, að Björn hefði naumast orðið
sá heimsborgari og afburða kenn-
ari sem hann varð, ef hann hefði
ekki farið víða um lönd, kynnzt
þjóðum og numið tungur þeirra
við uppspretturnar, ef svo má að
orði komast. Tungumál skilst mér
að séu mótuð af náttúrlegum,
sögulegum kringumstæðum, sið-
um og lífsvenjum þjóða. Það hlaut
því að verða upprunaleg fræðsla,
sem Björn miðlaði nemendum úr
fjársjóði sínum, er heim kom.
Sem kennari naut Björn síns
músíkalska eyra, sem nam hin
hárfínustu blæbrigði i málfari
manna. Músíkin hefir alla tíð ver-
ið honum hjartans mál, og áttum
við það áhugamál saman á Hafn-
arárum okkar beggja. Það var
gaman að fara með honum á tón-
leika á þeim árum, er við nutum
enn þeirrar náðargáfu að geta
hrifizt og hafizt í hæðir við áheyrn
tónlistar. Björn hefir aldrei slitið
sambandi við þá list. Hann hefir
átt sitt hljóðfæri, síðan hann eign-
aðist það og leikur enn á það sér
til yndis.
Kennarar með listræna hæfi-
leika geta orðið aðfinnslusamir.
Þeir eru sjálfir særanlegri fyrir þá
sök, hve næmir þeir eru og við-
kvæmir. Enginn óvenjulegur mað-
ur kemst hjá aðkasti og áreitni
annarra, sem minna mega sín.
Björn hefir heldur ekki komizt hjá
þeirri reynslu, þótt honum sé lagið
að bera af sér högg með hárbeittu
vopni hæðninnar, er svo ber undir,
og koma skömminni á þann, sem
að honum vegur. Orðleikni hans
var oft frábær, og fara af því
margar sögur. Hann gat með
sanni sagt: „I knocked him down
with a feather!" Soddan elegans
var yfir Birni, þegar hann gaf
mönnum á baukinn fyrir ósæmi-
legt framferði.
Hallmælum ekki ellinni. Hún
þarf hvorki að vera grá né horfa
aftur. Ávextirnir fá þá sitt eigin-
lega bragð, er þeir meyrna. Og
satt sagði Seneca, er hann fullyrti,
að sálin væri þá fyrst í fullu fjöri,
þegar hún fyndi fjötra líkamans
falla af sér. Með þessum orðum
hins vísa manns vil ég óska vini
mínum Birni til hamingju með
aldurinn og lífsþroskann.
Árni Kristjánsson
Ekki mun öllum gefið að hafa
orðið e.k. þjóðsagnapersóna í lif-
enda lífi. Þetta hygg ég að megi þó
ýkjulaust segja um aldursforseta
enskukennarastéttarinnar, Björn
Bjarnason, sem sameinar það að
hafa gert ensku að sérfræði sinni í
bestu akademískri merkingu þess
orðs og helgað ævistarf sitt
kennslu- og prófdómarastörfum i
þessari grein. Raunar er ekki
hlaupið að því að finna þessum
orðum stað fyrir augliti þeirra
sem ekki þekkja Björn: fyrir hug-
skotssjónum vina sinna, fyrr-
verandi samstarfsmanna og nem-
enda hygg ég þó að hann muni
ávallt standa sem einn eftirminni-
legasti samferðamaður þeirra á
lífsleiðinni. Líkast til verður þetta
helst rakið til óvenjulegra per-
sónutöfra Björns, leiftrandi gáfna,
listelsku, kímni og fágætrar orð-
heppni á réttum stundum, og á
stundum þrákelknislegrar hneigð-
ar hans til að neita að taka sem
góða og gilda vöru undirmálsfólk
og fyrirbæri. Þó er Björn manna
ljúfastur og lítilþægastur ef því er
að skipta, en ég hygg að um hann
megi ef til vill hafa orð skáldsins
Bernard Shaw er hann lét falla
um frægasta málvísindamann
Breta á síðustu öld, Henry Sweet,
sem hann dáði mjög: „he would
not suffer fools gladly."
Eins og meiri hluti íslenskra
enskukennara fyrir síðari heims-
styrjöld, svo og annarra sem á
fræðasviði sínu höfðu tengst
enskri tungu fram til þess tíma.
hlaut Björn háskólamenntun sína
við Kaupmannahafnarháskóla. Sú
merka stofnun hefir vissulega
enga aukvisa alið í þessari grein.
Ári áður en Björn innritaðist í
skólann lauk þar ferli sínum sem
prófessor i ensku Otto Jespersen,
einn merkasti málfræðingur sið-
ari tíma. Mun andi hans mjög
hafa svifið yfir vötnunum í stúd-
entstið Björns þar, og veganestið
sem lærisveinar þessa merka
fræðimanns gáfu kynslóð Björns
víst ósvikið, enda sér þess stað i
öllum störfum Björns eftir að
hann kom heim frá háskólanámi
1932. Langur og farsæll starfsfer-
ill hans við Gagnfræðaskóla
Reykvíkinga, síðar Vesturbæjar,
Gagnfræöask. við Vonarstræti,
Menntaskólann í Reykjavik, og í
Rikisútvarpinu, allt til þess að
hann lét af skólakennslu 1964,
skjalþýðarastörf hans i ensku og
þýsku (þýska hafði verið auka-
grein hans til kandidatsprófs) og
umsjón og dæming prófa fyrir
skjalþýðara og dómtúlka eru
kunnari en frá þurfi að segja, enda
þakklátir aðdáendur hans meðal
fyrrverandi nemenda ótrúlega
margir og bera honum allir á einn
veg söguna. En líklega á Björn þó
landsmet sem prófdómari í ensku,
þýsku og dönsku á öllum skóla-
stigum frá gagnfræðaskóla til há-
skóla, allt frá þvi að hann kom
sjálfur heim frá prófborðinu 1932,
þar til að hann lauk við að dæma
síðustu próf sín við Háskóla ís-
lands 1977.
Það var einmitt við prófborðið
sem leiðir okkar Björns lágu fyrst
saman — að vísu ekki sömu megin
við það rómaða borð! — á gagn-
fræðaprófi í Menntaskólanum á
Akureyri vorið 1943. Björn var
mér að vísu ekki alveg ókunnur af
afspurn: hann hafði verið i hópi
nemenda föður mins i söng við
* Ágætur afli á Vestfjarðamiðum í aprílmánuði:
Bessi hæstur togara
með tæpar 600 lestir
— helmingi meiri rækjuveiði í aprfl nú en í fyrra
MORGUNBLAÐINU befur borizt
veftirfarandi yfirlit um afiabrögð og
sjósókn í Vestfirðingafjórðungi. Tek-
ur það til aprflmánaðar og hefur
skrifstofa Fiskifélags íslands á Isa-
firði tekið það saman:
Ágætur afli var á Vestfjarða-
miðum allan mánuðinn og góðar
gæftir. Afli togaranna í mánuðin-
um var nær eingöngu grálúða, en
afli bátanna steinbítur. Þorskafl-
inn var innan við 18% heildarafl-
ans í mánuðinum.
t apríl stunduðu 13 (13) togarar
og 30 (26) bátar með botnfiskveið-
ar frá Vestfjörðum, réru 20 (23)
með línu, 7 (3) með net og 3 með
dragnót. Heildaraflinn í mánuðin-
um var 6.518 lestir, og er heildar-
aflinn á árinu þá orðinn 22.670
lestir. í fyrra var aflinn í apríl
7.262 lestir og heildaraflinn í lok
apríl var þá 25.363 lestir.
Aflahæsti línubáturinn í apríl
var Flosi frá Bolungarvík með
213,6 lestir I 21 róðri, en í fyrra
var Þrymur frá Patreksfirði afla-
hæstur í apríl með 193,3 lestir í 17
róðrum. Þrymur frá Patreksfirði
var aflahæstur netabátanna (réri
einnig með línu) með 255,5 lestir í
18 róðrum, en í fyrra var Vestri
frá Patreksfirði aflahæstur með
105,8 lestir. Bessi frá Súðavík var
aflahæstur togaranna með 597,0
lestir, en í fyrra var Guðbjörg frá
ísafirði aflahæst togaranna í aprfl
með 611,1 lest.
Afiinn í einstökum verstöövum:
Patreksfjörður:
Þrymur 1/n
Vestri 1/n
Brimnes
> Patrekur n.
Björgvin Már
Sæbjörg
Færabátar
Tálknafjörður:
Tálknfirðingur tv.
Jón Júli dr.
Geir dr.
Bíldudalur.
Sölvi Bjarnason tv.
Þingeyri:
Framnes I tv.
Sléttanes tv.
"vGísli Pál’
Dýrfirðingur
Guðm. B Þorláksson
Tjaldur
Máni
Flateyri:
Gyllir tv.
Ásgeir Torfason
vSif
Byr
255,5 lestir í 18 ferðum
218,0 lestir í 12 ferðum
70,6 lestir f 10 ferðum
25,4 lestir í 2 ferðum
19,8 lestir í 5 ferðum
14,3 lestir í 5 ferðum
62,0 lestir
505,8 lestir í 4 ferðum
26,0 lestir f 5 ferðum
26,0 lestir í 6 ferðum
345,4 lestir í 4 ferðum
379.3 lestir i 3 ferðum
100.4 lestir í 1 ferð
35,9 lestir
32,4 lestir
26,5 lestir
21.4 lestir
20,0 lestir
461.4 lestir í 3 ferðum
187,6 lestir í 20 ferðum
108.4 iestir í 17 ferðum
27,4 lestir í 7 ferðum
Suðureyri:
Elín Þorbjarnard. tv.
Þorlákur helgi
Ingimar Magnússon
Jón Guðmundsson
Færabátar
Bolungarvík:
Dagrún tv.
Heiðrún
Flosi
Hugrún
Páll Helgi n.
Völusteinn n.
Ljúfur n.
Skálafell n.
Færabátar
Ísafjörður:
Guðbjörg tv.
Páll Pálsson tv.
Framnes I tv.
Orri
Víkingur III
Björgvin Már
Brimnes
Sæbjörg
Færabátar
Súðavík:
Bessi tv.
409,8 lestir í 3 ferðum
186,6 lestir í 21 ferð
79,8 lestir í 13 ferðum
25,4 lestir í 11 ferðum
19,6 lestir
510.6 lestir í 4 ferðum
209.6 lestir í 3 ferðum
213.6 lestir f 21 ferð
204,5 lestir í 21 ferð
101,8 lestir í 19 ferðum
56,1 lest f 19 ferðum
35.6 lestir í 17 ferðum
16.6 lestir í 12 ferðum
36.6 lestir
139,2 lestir í 1 ferð
107,8 lestir f 1 ferð
79,5 lestir í 1 ferð
70.4 lestir í 8 ferðum
46.5 lestir í 8 ferðum
20.4 lestir í 4 ferðum
16,7 lestir í 4 ferðum
16.4 lestir í 4 ferðum
19,1 lest
597,0 lestir í 5 ferðum
Aflinn í einstökum verstöðvum í aprfl:
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bfldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungavfk
ísafjörður
Súðavík
6.518 lestir
Janúar/mars
1985
678 lestir
574 lestir
373 lestir
654 lestir
832 lestir
754 lestir
1.443 lestir
565 lestir
645 lestir
( 7.262 lestir)
16.152 lestir
22.670 lestir
1984
(762 lestir)
(455 lestir)
(244 lestir)
( 858 lestir)
( 821 lest)
( 583 lestir)
( 1.290 lestir)
( 1.822 lestir)
( 427 lestir)
(18.101 lestir)
(25.363 lestir)
Rækjuveiðar
Rækjuveiðar voru stundaðar á öllum þrem veiðisvæðunum við Vest-
firði, í Arnarfirði, ísafjarðardjúpi og Húnaflóa, og varð heildaraflinn í
mánuðinum 590 lestir, en var 275 Iestir á sama tíma í fyrra. Er heildar-
aflinn frá byrjun haustvertíðar þá orðinn 3.251 lest, en var i fyrra 4.065
lestir á sama tíma.
Rækjuveiðum í Isafjarðardjúpi og Húnaflóa er nú lokið, þar sem búið
er að veiða leyfilegt aflamagn, en í Arnarfirði má ennþá veiða um 200
lestir.
Aflinn í apríl skiptist þannig eftir veiðisvæðum:
1985 1984
Lestii Bátar Alb Leyft Lestir Báiar Alls
Arnarfjördur 71 8 301 500 89 8 411
ísafj.djúp 242 32 1.541 1.500 115 34 2.496
Húnaflói 277 15 1.409 1.400 71 13 1.158
590 55 3.251 3.400 275 55 4.065
rinun skip xiunduAu raekjuvriðar > djúpulóA: H*f)>ói landaói 106,0 lextum, Sólrún 56,9 lestum, örn
12,6 lesturn, Jón Þóróaraon 54,6 lestum og Arnarnes 15,2 lestum.