Morgunblaðið - 15.05.1985, Side 46
46
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
Bretland:
Frjálst útvarp er enn
kennt við sjóræningja
Tskjabúnaður í upptökusal rásar 2. í Bretlandi telja menn unnt að smíða örbylgjusenda, er draga allt að 15 km, fyrir
2300 krónur.
— eftir Kevin
Sutcliffe
Umræður um afnám ríkiseinok-
unar á útvarpsrekstri fara nú
fram víða um lönd. í byrjun þessa
árs hófust útsendingar einkaaðila
á sjónvarpsefni i Vestur-Þýska-
landi. Stöðin nefnist Aktuelle
Presse-Fernsehen (APF) og á að
dreifa sendingum hennar með
kapii. Ýmis fylki í þýska sam-
bandslýðveldinu eru treg til að
veita samþykki sitt við því að kap-
alkerfi komist i notkun. Ýmsir
forystumenn þýskra jafnaðar-
manna eru hræddir um að einka-
stöðvar verði of hallar undir sjón-
armið borgaraflokkanna. Nýja
sjónvarpsstöðin í Vestur-Þýska-
landi var stofnuð með samvinnu
10 fyrirtækja, sem flest hafa unn-
ið að útgáfumálum. Auglýsingar
standa undir rekstrinum. Eigend-
ur stöðvarinnar vona, að i lok
þessa árs nái sendingar hennar til
um milljón áhorfenda.
Jafnaðarmenn í Frakklandi af-
námu ríkiseinokun á útvarps-
rekstri þar í landi 1981. Nú eru
yfir 70 útvarpsstöðvar í Paris, þar
sem íbúar eru 8,5 milljónir og yfir
1.000 i landinu öllu, en ibúar
Frakklands eru tæplega 55 millj-
ónir. Þess er vænst að sjónvarps-
rekstur verði gefinn frjáls i
Frakklandi áður en langt um lið-
ur. Ekki alls fyrir löngu fóru 200
þúsund ungmenni í mótmælag-
öngu á götum Parísar til að and-
mæla því, að útvarpsstöðin NRJ,
sem sendir út dægurlög var látin
sæta viðurlögum fyrir að nota of
mikinn sendistyrk.
í Bretlandi er enn litið á út-
varpsstöðvar einkaaðila sem sjó-
ræningjastöðvar. Einnig þar eykst
þrýstingur á stjórnvöld og kröfur
verða ákafari um afnám ríkisaf-
skipta. Sú grein sem hér birtist
eftir Kevin Sutcliffe er úr breska
vikuritinu Observer og segir frá
aðstöðu þeirra sem stunda frjáls-
an útvarpsrekstur í Bretlandi
þrátt fyrir bann yfirvalda.
„Það er af því þeir vilja ekki að
óbreyttir borgarar fái að tala í út-
varp án opinberrar ritskoðunar.
og þeir vilja ekki að við fáum að
nýta okkur tæknina," segir „Mart-
in C“ (sem er ekki hans rétta
nafn), tvítugur maður sem við
hittum uppi á þaki háhýsis hátt
fyrir ofan ósasvæði Mersey-ár-
innar. Hann er að setja upp loft-
net svo Storeton Community
Radio (SCR) — „sjóræningja-út-
varpsstöð" sem hann hóf rekstur á
fyrir þremur árum — geti hafið
sínar daglegu útsendingar. Stað-
urinn, einn af mörgum sem SCR
hefur notað í Birkenhead, er vand-
lega valinn með það fyrir augum
að útsendingarnar nái yfir sem
mest landsvæði (rúmlega 130 fer-
kílómetra svæði í Lancashire og
Cheshire). Þetta er einnig ákjós-
anlegur staður til að fylgjast með
því hvort starfsmenn RIS (Radio
Investigation Service) séu á leið-
inni, en þeir vinna á vegum iðnað-
arráðuneytisins við að leita uppi
sjóræningjastöðvar og loka þeim.
Martin veit full vel hvað það
kostar ef þeir hafa upp á honum.
Árið 1981, stuttu eftir að SCR hóf
sendingar, fannst stöðin; Martin
var handtekinn, sakaður um brot
á útvarps- og símritunarlögunum
frá 1949, honum gert að gert að
greiða £115 (5.277 kr.) í sekt og
tækjabúnaðurinn gerður upptæk-
ur. Ekki hefur SCR orðið fyrir
árás RIS síðan, og er stöðin nú
mjög vel tækjum búin. En Martin
er það ljóst að samkvæmt nýju
fjarskiptalögunum má loka stöð-
inni fyrir fullt og allt ef hún
finnst. Hvers vegna þá að taka
áhættuna?
„Við erum með útvarpssend-
ingar vegna þess að löglegu stöðv-
arnar hér við Mersey-ósa bjóða
ekki upp á þá fjölbreytni og þau
gæði sem Liverpoolbúar kerfjast.
Komið er fram við hlustendur eins
og kjána.“
Frumstæö tæki
í upphafi var starfsemin mjög
frumstæð og fólst í því að Martin
lék nokkur lög af plötum sem send
voru út á notaðri bylgjulengd, en
SCR hefur nú þróast yfir í út-
varpsstöð, sem sendir út svo til
allan sólarhringinn, og þar starfa
20 sjálfboðaliðar (meðalaldur 22
ár), sem fjármagna starfsemina
með gjafaframlögum og eigin
vasapeningum. Auglýsingar eru
bannaðar. Aðstandendur SCR
álíta, að þær hafi skaðleg áhrif á
útvarpsefnið, og Martin heldur því
fram, að auglýsingatekjurnar séu
óþarfar þar sem útvarpsrekstur sé
„ódýr, auðveldur og skemmtileg-
ur“.
Martin smíðaði sjálfur mið-
bylgju-sendistöð sína — sem hann
viðurkennir að sé nokkuð flókið
verk — fyrir alls um £200 (9.100
kr.). En örbylgju sendistöðvar sem
heyrast í um 15 km. fjarlægð má
smíða fyrir allt niður í £50 (2.300
kr.). Þeir sem ekki treysta sér til
að setja saman sína eigin sendi-
stöð, geta víða fengið tæknilega
aðstoð. Einn fyrrum eigandi sjó-
ræningjastöðvar lifir nú á því að
smíða úrvals sendistöðvar fyrir
ólöglegar útvarpsstöðvar. Verðið
er frá £450 (20.464 kr.) fyrir
sendinn sjálfan upp í £1.000
(46.000 kr.) fyrir fullkominn
tækjabúnað í útvarpsstöð.
í niðurlagi Sykes-skýrslunnar
frá 1923 um eftirlit og notkun á
öldum ljósvakans í Bretlandi í
framtíðinni segir svo: „Við álítum
að þessi miklu umráð yfir skoð-
anamyndun almennt og lífi þjóð-
arinnar eigi að vera í höndum
ríkisins." Þessari umsögn í skýrsl-
unni hefur siðan verið beitt sem
rökum til stuðnings stefnunni í út-
varpsmálum. Innanríkisráðuneyt-
ið og leyfishafarnir, BBC og IBA,
fylgjast stranglega með öllum
dagskrám útvarpsstöðvanna. í
samanburði við útvarpsrekstur í
öðrum löndum virðist þessi stefna
mjög hamlandi og úrelt. í flestum
löndum Evrópubandalagsins hef-
ur verið dregið úr hömlum út-
varpslaganna eftir þrýsting frá
stjórnendum ólöglegra sendi-
stöðva. Lögin í Bretlandi hafa
hinsvegar verið hert.
100 stöövar
Margir „sjóræningar" telja að
fjarskiptalögin frá því í fyrra, þar
sem sekt fyrir ólöglegan útvarps-
rekstur er hækkuð í £2.000 (92.000
kr.), feli það í sér að ríkisstjórnin
sé nú farin að gera sér grein fyrir
þýðingu þeirra. Martin C var fljót-
ur að benda á að stöð hans sé ekk-
ert einangrað fyrirtæki í andófi
gegn útvarpslögunum. í hverri
viku eru nú starfandi allt að því
100 sjóræningjastöðvar í Bret-
landi. Þeim má skipta í tvo flokka:
svonefndar „sveitarfélagsstöðvar"
sem ná til íbúa á takmörkuðu
svæði (t.d. í einu úthverfi) með al-
menna útvarpsþjónustu, og hins
vegar stöðvar „sameiginlegra
hagsmuna" sem laða til sin hlust-
endur með ákveðin sameiginleg
áhugamál, eins og ákveðna tegund
tónlistar eða annað tungumál.
Síðarnefndu stöðvarnar eru í
miklum meirihluta, og þær sinna
ákveðnum þörfum, sem löglegu
stöðvarnar vilja ekki eða geta ekki
sinnt.
I miðborg Lundúna eru aðeins
þrjár löglegar útvarpsstöðvar, Ein
BBC stöð og tvær ILR (Independ-
ent Local Radio), sem er mun
minna en í öðrum stórborgum
Evrópu. í París eru stöðvarnar til
dæmis 15. Það er því ekki undar-
legt þótt höfuðborgin státi af
mesta samansafni sjóræningjast-
öðva í landinu (um 20). Áfram-
haldandi velgengni þeirra leiðir
hugann að ótrúlegum áhrifum
fyrstu sjóræningjastöðvarinnar,
Radio Caroline, sem hóf sendingar
á popptónlist til Bretlands frá
skipi úti á Norðursjó árið 1964, og
tókst á þremur vikum að tryggja
sé sjö milljónir hlustenda vegna
þess að BBC sinnti ekki kröfum
„Steiki
kleinur á
staðnum“
- segir Ragnar Eövaldsson bakari í Keflavík um
nýja verslun sína
Keflavík, 10. mai.
RAGNARSBAKARÍ í KeBavík er
fyrirtæki sem segja má gróió inní
mannlífið á Suðurnesjum. Árum
saman hefur fyrirtækið verið mjög
framarlega í allri brauð- og köku-
gerð á svæðinu. Á síðustu árum l.ef-
ur Ragnar Eðvaldsson bakari verið
að færa út kvíarnai Stór hluti fram-
leiðslunnar fer á markað á Reykja-
víkursvæðinu og í dag, föstudag,
opnaði hann verslun með framleiðs-
luvörur sínar í húsakynnum Sam-
kaupa, stærstu verslunar Kaupfélags
Suðurnesja. Mjög mikil aðsókn var í
baksturinn og fjölmenntu Suður
nesjamenn í Samkaup og kynntu sér
nýjungarnar hjá Ragnarsbakarí. sem
bauð upp á vöfflur með rjóma til
efni dagsins Þegai tækifæn galsi
tók ég Ragnai Eðvaldsson bakaram
eistara tal> og spurði hann un moi
tökur viðskiptavinanna
„Þetta hefui' veriö afveg brjál-
að,“ sagði Ragnai „Ég átt/ nú von
á góðum viðtökum en engu í lík-
ingu við þetta. Ég hef núna ekki
Kagnai Eðvaldssor bakar í hinn nyjn ‘erslur sinn>
MorfcUP blaöið/EF
verið með búð > fjögur ár, her ein
göngu verið a heildsölumarkaðin-
um. Bakarana var farið að langa
ti) aó spreyta sig á einhverju nýju
i bakstrinum og þvi tök ég þvi feg-
ins hendi þegar mér bauðst þessi
aðstaöa héi Þess> búð sen/ ég; er
aö opna og vörurnai henn> koma
algerlega sem viðbót við heildsölu-