Morgunblaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1985
C 1985 Universal Press Syndicate LS <
„ Ég aetla. ab spyrja vóV&inn hóorfc pU
meg\r passci SncKta. C nokkn>r vikur."
Ast er...
v <r
að hreinsa hár
hennar úr vaskin-
um.
TM Reg. U.S. Pat. Oft. —all rights reserved
«1985 Los Angeles Times Syndicate
Þtú getur haett, því að það er kvikn-
að í húsinu!
HÖGNI HREKKVÍSI
P\/OTTAPAGUíZIMN --
VEZDUR LEIKUR ÉlNlsl
e> — —------®
„ HANN VINNUR i þUDTTAHÓSl FANGELSlSINS. "
l>A2n»:n*
Ktrr
xitmm
Laun hálfsmánaðarlega
veruleg kjarabót
Launþegi skrifar:
Það var einmitt í viðskiptablaði
Morgunblaðsins um daginn, sem
ég sá þá ánægjulegu frétt, að
fyrirtækið Hekla hf. hefur tekið
upp þann sið að greiða starfs-
mönnum sínum launin á hálfs
mánaðar fresti.
Þetta er atriði, sem er þess virði
að stanza við. Ég hefi einmitt haft
þessa hugmynd í kollinum árum
saman og raunar minnst á hana
við ýmsa þá aðila, sem ég taldi, að
gætu komið henni áleiðis. Þar á
meðal eru menn, sem vinna í bein-
um tengslum við verkalýðsmál,
svo og við menn úr röðum vinnu-
veitenda.
Ekki hafa þeir treyst sér til þess
að kynna þetta mál eða taka það
til umræðu í samningum um kaup
og kjör, hvað sem veldur. — En
einn þeirra tjáði mér þó, að hann
væri þessu mjög hlynntur. Hann
sagði, að það myndi þó vera einn
hængur á. — Það myndi vera svo
mikil vinna í slíku fyrir bókhald
fyrirtækja!
Slíkar viðbárur duga samt
skammt á tölvuöld, þar sem nán-
ast er hægt að setja inn hvaða
mynstur að kaupgreiðslum og
uppgjöri launa sem vera skal. —
Enda hefur Heklu hf. ekki orðið
skotaskuld úr því verkefni.
En hvað er maðurinn að fara?,
spyrja nú kannski sumir. Jú, það
að fá launin sín greidd tvisvar i
mánuði í stað einungis um mán-
aðamót gerir það að verkum, að
mönnum helst betur á fé, hvort
sem menn vilja trúa því eður ei.
Menn munu þá reyna að spara,
láta reyna á hvað launin „duga“,
miklu fremur en nú er raunin,
þegar öll launin koma i einum
pakka um mánaðamót. — Þá skeð-
ur allt í senn, afborganir, uppgjör
og greiðslur hvers konar.
Allt miðast við mánaðamót hér
og segja má að verslun og við-
skipti hér á landi eigi sér stað
svona um það bil sex til sjö daga í
hverjum mánuði. Að því loknu
dettur allt niður, því menn eru að
bíða til næstu mánaðamóta! —
Þessa sex til sjö daga er hér
hreinlega allt „vitlaust". Menn
hlaupa úr vinnu til að greiða
skuldir, keyra um borgina þvera
og endilanga og hlaupa milli
stofnana, því allt verður að gerast
í kringum hinn 1. hvers mánaðar!
Þessi háttur er einsdæmi í ver-
öldinni. Hvergi í nálægum löndum
né fjarlægum eru laun greidd að-
eins einu sinni í mánuði, heldur
tvisvar, jafnvel fjórum sinnum. —
Eða hverjir þeirra, sem nú fá
greidd vikulaun eða fá útborgað
hálfsmánaðarlega myndu vilja
skipta og fá greitt aðeins mánað-
arlega?
Þessi tilhögun hlýtur að koma
sér vel fyrir bæði launþega og
fyrirtæki, og fyrirtæki mörg hver
hefðu þá meira ráðrúm til að afla
sér fjár, helmingi lægri upphæð
en þau þurfa að gera með mánað-
argreiðslum.
Fordæmi Heklu hf. og kannski
fleiri fyrirtækja með hálfsmánað-
argreiðslu launa er til fyrirmynd-
ar. Þetta gæti verið leið til að létta
kjarasamninga.
Fanginn
á Spáni
S. skrifar:
Ég þakka Guðrúnu Jacobsen
fyrir að vekja máls á því sem verið
hefur ofarlega í huga mínum að
undanförnu sem sé að þörf væri á
að rétta bróðurhönd til mannsins,
sem situr f fangelsinu á Spáni.
Þótt við vitum engin deili á
þessum mánni er hann íslending-
ur, nánast hold af okkar holdi,
bróðir, sem kristur hefur dáið
fyrir. Tökum höndum saman og
fórnum af allsnægtum okkar.
Jafnvel lítil gjöf, sem gefin er með
réttu hugarfari. Það er þjóðar-
skömm að láta þenna pilt örmagn-
ast á sál og líkama í fjarlægju
landi. Sé framkvæmanlegt að
leysa hann út með peningum,
hvert er þá hægt að senda þá? Með
þökk fyrir birtinguna.
Þessir hringdu .
Gód sorp-
hreinsun í
Kópavoginum
Kona úr vesturbæ Kópavogs
hringdi:
Ég er alls ekki sammála
tveimur konum úr austurbæn-
um, sem voru að finna að sorp-
hreinsuninni hér í bæ. Mér
finnst hún til fyrirmyndar
sérstaklega eftir að plastpokarn-
ir komu til sögunnar. Strákarnir
eru eldhressir, hlaupandi við
vinnu sína, sem því miður sést of
sjaldan í öðrum störfum.
Ef eggjaskurn og annað drasl
fýkur út um allt, er það fólkinu
sjálfu að kenna. Ruslið verður að
láta í plastpoka og binda fyrir —
það finnst mér þrifalegasta að-
ferðin.
Verslunar-
ævintýri í
Reykjavflí rekið
með ótakmörk-
uðu tapi
HJ. hringdi:
Heyrst hefur að samvinnu-
verslunin Mikligarður hafi tapað
umtalsverðu fé á sl. ári eða um
30 milljónum króna. Virðist
þessi verslun því hafa verið rek-
in af mikilli óhagkvæmni þvf aö-
staða hennar sýnist vera óvenju
góð, steinsnar að hafnarbakka
og tollvöruafgreiðsla í sama húsi
Lengi hafa menn furðað sig á
hvað kaupfélags- og samvinnu-
verslunin er orðin dýr og bænd-
um og dreifbýlisfólki óhagkvæm.
Verðkannanir sýna að hið svo-
kallaða „kaupfélagsverð" er 20
til 30 prósent hærra en verð ann-
arra verslana. Óskiljanlegt er
hvernig hægt er að reka verslun
til lengdar með þeirri útkomu
sem er í Miklagarði. Flest önnur
fyrirtæki þyrftu líklega, lögum
samkvæmt, að lýsa sig gjald-
þrota. En hvar fær Mikligarður
peninga til reksrar?
Ef Sambandið getur til lengd-
ar rekið verslun með slfkri út-
komu, þ.e.a.s. með ótakmörkuðu
tapi, þá gefur það augaleið að öll
önnur verslun leggst niður og
SÍS, sem sýnist hafa sterk ítök i
Landsbankanum, verður einrátt
um verslunarkjör okkar. Væri
nú ekki eðlilegra að Sambandið
notaði fjármuni sína til að rétta
þeim bændum hjájparhönd sem
að sögn kaupfélagsstjóranna
hafa ekki einu sinni ráð á að
kaupa áburð á túnin sfn þó í
bestu sveitum landsins sé, en að
sóa þeim í slík verslunarævin-
týri í Reykjavík.
Duran Duran
á Listahátíð
D.D. aðdáandi hringdi:
Mig langar að Duran Duran
komi á Listahátíð sem haldin
verður hér á landi í ár og vil ég
að formenn hátíðarinnar taki nú
einu sinni til greina óskir tilvon-
andi áheyrenda.
Einnig vil ég að umsjónar-
menn Skonrokks sýni Duran
Duran leika lagið „Save a
Prayer".