Morgunblaðið - 15.05.1985, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 15. MAt 1985
61
• Tony Knapp »om hér messar yfir landsliðsmönnunum hefur skilaö mjðg góöum árangri meö íslenska landsliöinu og undir hans stjóm hefur
liöiö unniö óvasnta sigra. Vonandi tekst vel til gegn Skotum é Laugardalsvelli 28. maí næstkomandi.
Tonv Knapp:
„Verðum að leika til
sigurs gegn Skotum“
— VIÐ VERDUM aö leika til sig-
urs gegn Skotum. Ég er ekki aö
segja aö viö munum leika stífan
sóknarleik. Slíkt gengur aö sjálf-
sögöu ekki. Viö veröum aö leika
yfirvegaöa knattspyrnu og beita
síöan skyndisóknum þegar það á
viö. Leikurinn gegn Skotum er
gífurlega mikilvægur fyrir okkur.
Viö veröum aö sigra. Ef staöan er
til dæmis jöfn þegar 25 mínútur
eru eftir þá veröum víö aö taka
áhættu. Vogun vinnur og vogun
tapar, sagöi hinn eldhressi Tony
Knapp um landsleikinn gegn
Skotum.
— Þaö sem skiptir mestu máli
er aö leikmenn landsliösins séu
meö rétt hugarfar. Þeir verða aö
sýna gífurlegan baráttuvilja, kraft,
einbeitingu og leikgleöi. Og um-
fram allt aö vera jákvæöir. Skotar
eru meö sterkt landsliö, á því leik-
ur enginn vafi en viö getum sigraö
þá
A Laugardalsvellinum getur allt
gerst. Viö sigruöum Wales þar og
getum líka sigraö Skota. Þaö er
vissulega mikill missir í Arnóri og
Asgeiri. Tveir leikmenn í heims-
klassa meiddir. Þaö er áfall. Ef þeir
heföu oröiö meö í leiknum gegn
Wales ytra þá heföu úrslit oröiö
hagstæöari þar. En óg hef mikla
trú á leikmönnum íslenska liösins.
Skotar vita vel að þeir veröa aö
sigra okkur í Reykjavík ef þeir ætla
sér aö komast áfram til Mexico og
þeir verða mjög erfiöir andstæð-
ingar. Ég mun fara og sjá ieik Eng-
lands og Skotlands sem fer fram á
laugardeginum 25. maí. Þá mun ég
grandskoöa liöiö. Landsleikurinn í
Luxemborg var góð æfing fyrir ís-
lenska landsliðiö. Ég er meö visst
leikkerfi í huga gegn Skotum. Þaö
gæti skilaö sér vel, sagöi Knapp.
Ert þú búinn aö aö velja lands-
liöshópinn?
— Nei, ekki opinberlega. En ég
get ekki neitaö því aö hann er til-
búinn í huga mér. Ég hef fylgst vel
meö íslensku leikmönnunum í
V-Þýskalandi, Hollandi og Bjarna i
Noregi. Hef haft samband viö þá
og þeir hafa sagt mér í hvernig
æfingu þeir eru. Þeir hafa ávallt
sagt mér sannleikann og veriö ein-
lægir. Nú Guöni Kjartansson hefur
fylgst meö leikmönnum heima á Is-
landi og veriö mór mjög innan
handar.
— Þetta er mikilvægasti leikur
íslenska iandsiiösins undir minni
stjórn og vonandi tekst okkur vel
upp. Knattspyrnan er óútreiknan-
ieg eins og allir vita.
Lukkumiðan
Hæcjt að
spa um
úrslit
SÚ NÝJUNG veröur á lands-
leik Skota og islendinga aö
KSÍ hefur komiö á fót lukku-
potti. Fólk getur keypt sér
lukkumiða á 100 kr. og giskaö
á úrslit leiksins. Sá sem verö-
ur meö rétt úrslit fær svo 30%
af pottinum í sinn hlut. Veröi
margir meö rétt úrslit veröur
dregiö um fyrstu verölaun.
íþróttafélög munu annast sölu
lukkumiöanna. Miöunum
veröur aö skila inn áöur en
leikurinn hefst.
Hálfdán 28 ára
í KYNNINGARBLADI 1. deild-
arliöanna í knattspyrnu í gær
var ein leiöinleg villa. Hálfdán
Örlygsson KR-ingur var sagö-
ur 31 árs. Þaö er ekki rétt,
hann er 28 ára. Beðist er vel-
viröingar á þessu.
Hálft
maraþon í
Keflavík
íslandsmeistaramót í %
maraþonhlaupi veróur háö í
Keflavík/Njarövík næstkom-
andi laugardag kl. 14. Keppt
verður bæöi í karta- og kvenn-
aflokki.
Þaö er UMFK sem annast
framkvæmd þessa hlaups
sem er aöeins 21 km, og
hiaupi nú hver meö sem
treystir sér.
Fyrirhugaö er að hlaupiö
hefjist kl. 14 viö Holtaskólann
í Keflavík.
Hlaupiö verður sem leiö ligg-
ur niöur Skólaveg, norður
Hringbraut, niður Vesturbraut
og áfram Hafnargötu þar til
kemur aö Skólavegi, þá veröur
stefnan tekin á Sundhöll Kefla-
víkur, þó ekki nema aö Fram-
nesvegi, hlaupiö suöur Fram-
nesveg, niöur Vatnsnesveg,
suöur Hrannargötu og svo Vík-
urbraut aö Hafnargötu á nýjan
leik. Þegar komiö er aö Hafnar-
götu veröur stefnan tekin á
Njarövík, Reykjanesbrautin
hlaupin aö Hafnarbraut, hún
hlaupin þar til kemur aö Sjávar-
götu, beygt inn á Sjávargötu og
hún hlaupin yfir Reykjanes-
braut, Bolafótur aó Holtsgötu,
beygt noröur Holtsgötu og
hlaupiö alla leiö aö Stapa, þar
veröur beygt inn Hlíöarveg aö
Ólafsvöllum þar sem beygt
veröur enn noröur Vallarbraut.
Þá veröur sveigurinn hjá Sam-
kaupum tekinn og hlaupiö upp
flugvallarveg sem leiö liggur
uppaö löavöllum, noröur þá og
Suöurvelli, í gegnum Eyja-
byggöina og niður Vesturgötu
aö Hringbraut, viö Sparkaup,
þar veröur beygt aftur norður
Hringbraut og sami hringur
endurtekinn, niöur Vesturbraut
o.s.frv. Þegar hingaö er komiö í
annaö sinn, verður beygt suöur
Hringbraut, hlaupiö í átt aö
íþróttasvæöinu, beygt upp
Skólaveg, inná íþróttasvæöiö
og í endamark sem veröur á
hinni ágætu hlaupabraut á
íþróttavellinum.
Skráning fer fram á staönum
og er þátttökugjald kr. 100.
Aö loknu hlaupi veröa kaffi-
veitingar fyrir þátttakendur og
verðlaun afhent.
Það er von UMFK aö sem
flestir láti sjá sig og fylgist meö
hlaupurunum á leiöinni og ekki
siöur er þeir koma i mark.
(FréttatHkynntng.)
— ÞR
Mikill undirbúningur
fyrir Skotaleikinn
ÞAD veröur míkíö um aö vera á
Laugardalsvellinum 28. maí.
Knattspyrnusamband íslands
hefur fyrir löngu hafiö undir-
búning fyrir landsleik fslend-
inga og Skota og hefur margt i
deiglunni til aö gera leikinn eft-
irmínnilegan.
Klukkustund fyrir leikinn mun
íslensk popphljómsveit, Drýsill,
leika og skemmta áhorfendum.
Knötturinn, sem leikió veröur
meö, kemur í öruggum höndum
fallhlífarstökkvara beint á miöjan
Laugardalsvöllinn. Þá munu feg-
uróardísir ganga fyrir landslióun-
um inn á leikvanginn meö þjóö-
fánana. Þjóösöngvar landanna
veröa leiknir og sungnir.
i hálfleik mun fara fram aö öll-
um líkindum óvenjuleg keppni.
Sterkasti maöur heims, Jón Páll
Sigmarsson og skoskur 150 kg
kraftajötun munu etja kappi. Þeir
munu draga stóran vörubíl vissa
vegalengd á sem skemmstum
tíma.
Ljóst er aö hinn mikli fjöldi
Skota sem mætir á leikinn mun
setja mikinn svip á stemmning-
una og ef aö líkum lætur þá
veröa skoskir sjónvarpsmenn
meö mikinn viöbúnaö svo og
skoskir blaöa- og útvarpsmenn
sem veröa fjölmargir á leiknum.
Staöan í riðlinum er svo jöfn
núna aö hvert stig er gífurlega
mikilvægt og Skotar veröa aö
sigra hér á landi ef þeir ætla sér
aö eiga einhverja möguleika á því
aö komast i lokakeppnina í
Mexfkó.
— ÞR •
KSi hefur komi á fót „lukku-
potti" þar sem fólk giskar á úrslit
leiksins. íþróttafélögin annast
sölu miöa.
Dómarar og línuveröir í
A-landsleiknum og U-21 lands-
leiknum veröa frá Sovétríkjunum,
en Norömaöur dæmir U-18 ára
landsleikinn og línuveröir veröa
íslenskir.