Morgunblaðið - 16.05.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1985
Vand-
fýsnir
vínþjófar
TIL handalögmála kom við
bar á Hótel Sögu síðdegis í
gær þegar einn þjóna hússins
kom að þremur ungum
mönnum, sem voru að róta í
vínskáp á áttundu hæðinni.
Einn þremenninganna gekk
þegar á brott hinn rólegasti en
hinir urðu eftir. Þjónninn gaf
sig á tal við þá og vildi kanna í
rólegheitum hvað var á seyði.
Annar svaraði með ofstopa og
kom til ryskinga á milli þjóns-
ins og vínþjófanna. Komust þeir
undan og var lögreglan á hæl-
um þeirra í gærkvöld.
Ekki er talið ólíklegt, að þess-
ir sömu piltar hafi áður komið
við í vínskápum á hótelinu, því
þar hafa nokkrum sinnum horf-
ið flöskur. Það sem helst þykir
benda til að sömu menn hafi
verið á ferð er að þjófarnir eru
vandfýsnir á vín — þeir hafa
látið allar ódýrari tegundir vera
en horfið á braut með dýrustu
tegund af viskí. Ekki var ljóst í
gærkvöld hvort eitthvað vant-
aði í skápinn.
VÍHÍndamennirnir slógu upp tjöldum í fimm þúsund feta hæó og höfðust þar við í fimm daga. Þyrla Landhelgisgæslunnar er fjær.
Þyrla Gœzlunnar á Hofsjökli
ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar flutti fimm bandaríska vísindamenn
og tvo íslenzka upp á Hofsjökul vegna rannsókna á mengun.
Bandarísku vísindamennirnir hafa ferðast víða um heim og rann-
sakað mengun. Flogið var með hópinn upp á jökul á fimmtudag og
þeir sóttir á mánudag. „Við flugum með vfsindamennina upp á
Hofsjökul frá Gullfossi og fórum alls þrjár ferðir, því þeir voru með
allmikinn farangur,“ sagði Benóný Ásgrímsson, flugmaður, í sam-
tali við Mbl.
„Vel gekk að lenda á jöklinum, en við lentum í 5 þúsund feta
hæð. Fyrirhugað var að lenda þar sem jökullinn er hæstur, en
það reyndist ógerlegt vegna þoku,“ sagði Benóný. Flugstjóri í
ferðinni var Páll Halldórsson, Benóný flugmaður, Sigurður
Steinar Ketilsson siglingafræðingur og Einar Bjarnason flug-
virki.
Morgunbladiö/Bjarni
i>ær Halla Helgadóttir og Soffía Karlsdóttir voru í óóa önn aó finna vinnu
fyrir þá 230 sem hafa skrið sig hjá Atvinnumiðlun námsmanna. Á meðan
bættist einn í safnið.
Góðar horfur
með sumarvinnu
— segir Gunnar Helgason forstööumaöur
RáÖningarstofu Reykjavíkurborgar
Á NÆNTUNNI lýkur vorprófum og ncmendur streyma út á vinnumarkað-
inn. ( Reykjavík stunda 6500 manns nám í framhaldsskólum, og um 3500 í
þremur efstu bekkjum grunnskóla. Það eru því um 10.000 manns sem
koma til með að leita sér að vinnu f höfuðborginni í sumar. Að sögn
Gunnars Helgasonar, forstöðumanns ráðningarstofu Reykjavfkurborgar,
eru atvinnuborfur skóiafólks mun betri nú í sumar en f fyrra. „Atvinnu-
istandið hefur verið gott það sem af
við Morgunblaðið.
Hjá ráðningarstofunni hafa
þegar skráð sig um 400 stúlkur og
450 drengir. Þetta er töluverð
fækkun frá því á sama tima i
fyrra, þegar um 600 manns af
hvoru kyni höfðu látið skrá sig.
520 unglingar á aldrinum 14—15
ára hafa skráð sig hjá vinnuskól-
anum, og er það svipað og undan-
farin ár. Gunnar sagði að ráðn-
ingar væru þegar hafnar og
gengju vel, hinsvegar gæti boðað
sjómannaverkfall í Reykjavík nk.
föstudag sett strik f reikninginn.
„Það er stór hluti skólafólks sem
vinnur í fiski, og ef vinna í frysti-
húsum stöðvast, þarf það að leita
annað,“ sagði Gunnar.
Kaup í vinnuskólanum hefur
ekki enn verið ákveðið, en það mun
væntanlega verða gert fyrir lok
er þessu ári,“ sagði Gunnar í samtali
þessarar viku. Sl. sumar var tíma-
kaupið í yngri flokki 35 kr., og í
eldri flokki 40 kr.
Um 230 manns eru komnir á
skrá hjá Atvinnumiðlun náms-
manna i Félagsstofnun stúdenta
við Hringbraut. Skráning hefur
staðið yfir frá 2. maí og tekist hef-
ur að finna vinnu fyrir nokkra
tugi manna, aðallega hjá ríkisfyr-
irtækjum. Einkafyrirtæki leita
einnig eftir starfskrafti hjá
atvinnumiðluninni f vaxandi mæli.
Að sögn Höllu Helgadóttur,
starfsmanns vinnumiðlunarinnar,
fengu um 40% þeirra sem skráöu
sig vinnu i fyrra. Þá skráöu sig
alls um 500 manns. „Ég er bjart-
sýn á að okkur takist að halda
þessu hlutfalli,“ sagði Halla.
Tvennt
I SAKADÓMI Reykjavíkur var tvennt
úrskurðað í gæzluvarðhald í gær vegna
rannsóknar Rannsóknalögreglu rikis-
ins á fjársvikamili. Um helgina var
þremur ávísanaheftum stolið úr fyrir-
tæki í Reykjavík. Við handtöku fund-
ust útfyllt ivísanablöð fyrir 155 þúsund
í gæzlu
krónur í fórum mannsins. Grunur leik-
ur á, að þegar sé búið að selja ávísanir,
en ekki er Ijóst bve margar né upphæð
þeirra.
Maðurinn, sem er um þritugt, var
úrskurðaður í 9 daga gæzluvarðhald
en konan í viku gæzluvarðhald.
Veiðar smábátanna
bannaðar um
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur nú ákveðið með reglugerð
að banna allar veiðar smábáta undir 10 lestum um helgar og aðra
frídagu í sumar. Jafnframt verða veiðar annarra en þeirra, sem þær
stunda í atvinnuskyni, bannaðar frá 1. september til áramóta.
Ákvörðun þessi er tekin vegna
þess að þorskafli smábátanna er
orðinn nær þrefalt meiri en gert
var ráð fyrir í reglugerð um
veiðarnar og nærri helmingur
leyfilegs heildarafla til áramóta
eins og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu. Eftirgreindar
takmarkanir á veiðum smábát-
anna hafa því verið ákveðnar:
Á tímabilinu frá 24. máí til 1.
september 1985 eru allar veiðar
bannaðar á laugardögum og
sunnudögum.
Dagana 27. maí, 17. júní og á
tímabilinu frá og með 1. ágúst
til og með 5. ágúst um verzl-
unarmannahelgi eru allar veið-
ar bannaðar.
Á ofangreindum dögum er
óheimilt að hafa nokkur veiðar-
færi í sjó.
helgar
Á tímabilinu 1. september til
31. desember 1985 eru öllum
bátum í þessuni stærðarflokki
bannaðar veiðar öðrum en þeim,
sem hafa veiðarnar að aðalat-
vinnu. Eigendur þeirra báta
þurfa fyrir 15. ágúst næstkom-
andi að sækja sérstaklega um
slík leyfi til ráðuneytisins.
Þá mun ráðuneytið fylgjast
áfram með aflabrögðum smá-
bátanna og verða takmarkanir
þessar endurskoðaðar ef þurfa
þykir.
Suðureyrarhreppur:
Lögfræðingur aðstoðar við
innheimtu gjalda af Freyju
Fyrirtækið á hausnum, segir sveitarstjórinn
SKULDIR Fiskiðjunnar Freyju
á Suðureyri við Suðureyrarhrepp
skipta orðið milljónum króna.
Hefur hreppurinn vegna þess
leitað aðstoðar lögfræðings við
innheimtuna og líkur eru á því,
að gengið verði frá greiðslu á
næstunni.
Viðar Aðalsteinsson, sveitar-
stjóri, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að fiskiðjan væri mjög
skuldug við hreppinn og hefði
því verið leitað aðstoðar lög-
fræðings við innheimtuna. Að
öðru leyti væri ekki mikið um
þetta mál að segja nema menn
væru uggandi vegna ótryggs
rekstrargrundvallar fyrirtækis-
ins, sem væri nánast eini at-
vinnurekandinn á staðnum.
Spurning væri hvað eigendur
Freyju ætluðu sér að gera við
fyrirtækið, í hans augum væri
það á hausnum eins og kannski
fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi.
Það væri ljóst að það hlyti að
segja nokkra sögu að fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
hefði sagt upp.
Þessi greiðslutregða Freyju
hefði auðvitað haft slæm áhrif á
framkvæmdir á vegum hrepps-
ins, en aðalframkvæmdatíminn
væri auðvitað á sumrin svo
ástandið vegna þess væri ekki
það versta, rekstur hreppsins
krefðist alltaf meira og meira
fjár og hefði hann verið þungur
af þessum sökum.
Andvirði Ásgarðslands í
Grímsnesi til lögerfingja
Skógrækt ríkisins og Hjartavernd töpuðu málinu
í GÆR féll úrskurður í skiptarétti þess efnis, að andviröi Ásgarðslands
í Grímsnesi skuli renna til lögerflngja Sigurliða Kristjánssonar og konu
hans, Helgu Jónsdóttur, en ekki til arfleiðenda, Skógræktar ríkisins og
Hjartaverndar, sem gerðu tilkall til fjárins. Sigurliði og Helga ánöfnuðu
Skógræktinni, Hjartavernd og Reykjavíkurborg jörðinni í erfðaskrá
Grímsneshreppur átti for-
kaupsrétt að jörðinni og ákvað
hreppsnefnd að notfæra sér rétt
sinn. Á síðastliðnu ári gekk dóm-
ur í Hæstarétti og var jörðin
metin á tæpar 15 milljónir
króna. Reykjavíkurborg féll frá
tilkalli til andvirðis jarðarinnar,
en Skógræktin og Hjartavernd
annars vegar og lögerfingjar
hjónanna, 10 talsins, hins vegar
gerðu tilkall til andvirðis jarðar-
innar.
Ragnar Hall, borgarfógeti,
kvað upp úrskurðinn.