Morgunblaðið - 16.05.1985, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUK 16. MAÍ 1985
Ölduselsskóli:
Hátíð í tilefni
10 ára afmælis
ÖLDUSELSSKÓLI á 10 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni er ákveðið
að „brjóta upp“ hefðbundið skólastarf vikuna 16.—23. maí.
Dagskrá vikunnar hefst neð
kaffisölu og yfirlitssýningu á
starfi og verkum nemenda á
uppstigningardag. Á laugardag-
inn munu 12 ára nemendur gróð-
ursetja tré á skólalóðinni og kl.
13 hefst grillhátíð á vegum for-
eldrafélagsins og þar leikur
Lúðrasveit Árbæjar og Breið-
holts kl. 14. Guðsþjónusta verður
svo með þátttöku nemenda og
starfsfólks á sunnudag kl. 11.
Á föstudag, mánudag, þriðju-
dag og miðvikudag verður í skól-
anum verkstæðisvinna þar sem
nemendur fá að velja sér ýmis
óvanaleg verkefni að starfa að
t.d. að smfða hljóðfæri svo
eitthvað sé nefnt. Íþróttahátíðir
verða á skólavelli og í íþrótta-
húsi og vorferðalög nemenda
verða einnig þessa daga. Hver
árgangur mun halda sina
skemmtun, m.a. verða yngstu
börnin með furðufataball.
Þá er áætlað að ljúka afmæl-
isvikunni með kvöldskemmtun
fyrir íbúa hverfisins þriðjudag-
inn 21. maí. Foreldrar eru sér-
staklega velkomnir alla dagana.
(FrétUlilkynning)
Ölduselsskóli í Breiðbolti í Reykjavík.
Skólahljómsveit Árbæjar
og Breiðholts til Noregs
Vortónleikar sveitarinnar haldnir í dag
SKÓLAHLJÓMSVEIT Árbæjar og Breiðholts heldur vortónleika sína
fimmtudaginn 16. maí kl. 14.30 í veitingahúsinu Broadway. Við tónleikahald-
ið nýtur hljómsveitin aðstoðar skólakórs Árbæjarskóla.
Tónleikarnir eru haldnir í til-
efni þess að hljómsveitin er á för-
um til Noregs til að taka þátt í
tónlistarmóti í Bergen. Til að afla
fjár til ferðarinnar hafa hljóð-
færaleikarar safnað styrktarfé-
lögum og nú stendur til að leyfa
þeim að kynna sér hvað þeir eru
að styrkja. Tónleikarnir eru öllum
opnir og börn innan 12 ára greiða
ekki aðgang. Aðgöngumiðar eru
jafnframt happdrættismiðar.
Skólahljómsveitin hefur starfað
í rúm 17 ár, undir stjórn ólafs L.
Kristjánssonar. Kennarar eru sex,
og kennslan eru miðuð við nám í
tónlistarskólum. Reykjavíkurborg
sér um rekstur hennar. ótal tón-
listarmenn hafa hafið nám í
hljómsveitinni, og enn fleiri sem
ekki stunda hljóðfæraleik að aðal-
starfi hafa sótt þangað kennslu í
að njóta tónlistar og meta hana.
Hljómsveitin er í örum vexti.
Nú starfa í henni 50 börn og ungl-
ingar. Hún hefur oft komið fram
við opinber tækifæri, svo sem
sumardaginn fyrsta, 17. júní og á
íþróttahátíðum og á útiskemmt-
unum.
Noregsferðin hefst 1. júní með
því að flogið verður til Bergen. Þar
tekur hljómsveitin þátt í tónlist-
armóti ásamt hljómsveitum og
kórum frá ýmsum löndum. ólafur
Noregskonungur verður í hópi
áheyrenda. Heimferðin hefst 11.
júní og verður siglt með Norrænu
til Færeyja og fslands.
(ílr fréttatilkynninifu)
Þessi vinsælu barnaleiktæki nú aftur fáanleg.
Hentug viö sumarbústaöi og heimaleikvelli.
Pantanir óskast sóttar
Bókasýning
Á vegum sovésku viðskiptastofnunarinnar „Mez-
dunarodnaja Kniga", skrifstofu viðskiptafulltrúa
Sovétríkjanna á Islandi og félagsins MÍR hefur
verið opnuð sýning á sovéskum bókum, auglýs-
ingaspjöldum, frímerkjum og hljómplötum í
húsakynnum félagsins að Vatnsstíg 10. Sýningin
er haldin í tilefni þess, að liðin eru 40 ár frá því
sigur vannst á herjum þýsku nasistanna og verð-
ur hún opin til loka mánaðarins, á virkum dögum
kl. 17—19 og um helgar kl. 14—19. Sýningin
„Myndlist í Rússlandi" er opin á sama tíma. Að-
gangur að sýningunum er ókeypis.
HtogitiiMnfttft
Áskriftarsíminn er 83033
HAR85
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNIN
í hárgreiöslu og hárskuröi veröur haldin
sunnudaginn 19. maí í Broadway.
Keppnin hefst kl. 10 f.h. og lýkur kl. 17.
Fyrstu úrslit veröa kynnt kl. 12 á hádegi.
Miðasala við innganginn. Aögangseyrir kr.
200. Hver aögöngumiði gildir sem happ-
drættismiði.
Vinningur er ferð til Noregs á Norðurlanda-
keppnina í hárgreiöslu og hárskurði 25.
ágúst nk.
Dregiö verður kl. 16.30.
Komiö og fylgist með því besta í hárgreiöslu
og hárskuröi á islandi í dag.
Góöa skemmtun.
Samband hárgreiöslu- og
hárskerameistara