Morgunblaðið - 16.05.1985, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985
Bjóriim í neðri deild:
Samþykktur meö
25:14 atkvæðum
Tillaga um þjóðaratkvæði felld, 22:9
Megingrein svokallaðs bjór-
frumvarps, sem felur í sér heim-
ild til aö brugga eöa flytja til
landsins meðalsterkt öl, 4 % til
5% að rúmmáli, var samþykkt í
neðri deild Alþingis í gær með
25:14 atkvæðum, að viðhöfðu
nafnakalli, en einn þingmaður
var fjarverandi. Frumvarpið
gengur nú til þriðju umræðu í
þingdeildinni og síðan til efri
deildar, væntanlega öðru hvoru
megin við næstu helgi.
Breytingartillaga Kristínar
Halldórsdóttur (Kvl.), þess efnis,
að 1% (í stað 0,5% í tillögum
meiri hluta allsherjarnefndar) af
skatttekjum ríkissjóðs vegna
Dýralæknir í
fisksjúkdómum
FJÓRIR þingmenn úr þremur
flokkum hafa lagt fram frum-
varp um að stofnuð verði sér-
stök staða dýralæknis í fisk-
sjúkdómum. Gert er ráð fyrir
að dýralæknirinn hafí starfs-
aðstöðu við físksjúkdómadeild
tilraunastöðvar Háskóla ís-
lands í meinafræði að Keldum.
Flutningsmenn frum-
varpsins eru Egill Jónsson,
Davíð Aðalsteinsson, Helgi
Seljan og Salome Þorkels-
dóttir.
framleiðslu og sölu áfengs bjórs
gangi til fræðslu um skaðsemi
áfengis almennt var samþykkt
með 16:11 atkvæðum
Breytingartillaga Karvels
Pálmasonar (A), þess efnis, að
heimild til bjórsölu komi ekki til
framkvæmda fyrr en málið hafi
fengið staðfestingu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, var felld með 22:9
atkvæðum og níu sátu hjá.
Fjórir þingflokkar klofnuðu í
afstöðu til megingreinar frum-
varpsins, enda málið ekki flokks-
pólitískt. Allir viðstaddir þing-
menn Alþýðuflokks og Bandalags
jafnaðarmanna í þingdeildinnu
greiddu henni þó atkvæði.
Kvennalistakonur, sem eru tvær í
þingdeildinni, skiptu sér hníf-
jafnt með og móti bjórnum,
Kristín Halldórsdóttir með en
Guðrún Agnarsdóttir á móti.
Þingflokkar Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
UtanríkLsmálanefnd sameinaðs
þings hefur lagt fram tillögu til
þingsályktunar um stefnu Islend-
inga í afvopnunarmálum, svohljóð-
andi:
„Alþingi ályktar að brýna nauð-
syn beri til að þjóðir heims, ekki
síst kjarnorkuveldin, geri með sér
samninga um gagnkvæma alhliða
afvopnun þar sem framkvæmd
verði tryggð með alþjóðlegu eftir-
liti.
Ennfremur telur Alþingi mikil-
vægt að verulegur hluti þess gíf-
urlega fjármagns, sem nú rennur
til herbúnaðar, verði veittur til
þess að hjálpa fátækum ríkjum
heims þar sem tugir milljóna
manna deyja árlega úr hungri og
sjúkdómum.
Alþingi fagnar hverju því frum-
kvæði sem fram kemur og stuðlað
getur að því að rjúfa vítahring
vígbúnaðarkapphlaupsins.
Alþingi ályktar að beina því til
ríkisstjórnarinnar að styðja og
stuðla að allsherjarbanni við til-
isflokks klofnuðu eins og Kvenna-
listinn — en ekki eins hnífjafnt.
Svipuðu máli gegndi með
breytingartillögu Karvels Pálma-
sonar (A) um þjóðaratkvæði, sem
fellt var með 22:9 atkvæðum. Hún
fékk fjögur atkvæði þingmanna
Alþýðuflokks, en Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður flokks-
ins sat hjá. Að auki fékk hún tvö
atkvæði frá Alþýðubandalagi,
eitt frá Bandalagi jafnaðar-
manna, eitt frá Framsóknar-
flokki og eitt frá Sjálfstæðis-
flokki. Það var Ragnhildur
Helgadóttir, menntamálaráð-
herra, sem greiddi tillögunni at-
kvæði úr röðum sjálfstæðis-
manna. Hún gerði grein fyrir at-
kvæði sínu, efnislega svohljóð-
andi: Hér er um umdeilda neyzlu-
vöru og ræða. Það er og löng hefð
fyrir því hér á landi að viðhafa
almenna atkvæðagreiðslu um
áfengismál. Ég greiði tillögu um
þjóðaratkvæði jáyrði.
Samkvæmt frumvarpinu ann-
ast ÁTVR dreifingu ölsins, sem
selt verður í einnota umbúðum.
Lögin öðlast gildi 1. marz 1986, ef
efri deild staðfestir þau. Ákvæði
laganna skulu endurskoðuð í Ijósi
fenginnar reynslu af þeim fyrir
árslok 1988.
raunum, framleiðslu og uppsetn-
ingu kjarnavopna undir traustu
eftirliti, svo og stöðvun á fram-
leiðslu kjarnakleyfra efna í hern-
aðarskyni, jafnframt því að hvetja
til alþjóðlegra samninga um að
árlega verði reglubundið dregið úr
birgðum kjarnavopna. Þessu
banni og samningum um niður-
skurð kjarnorkuvopna verði fram-
fylgt á gagnkvæman hátt þannig
að málsaðilar uni því og treysti
enda verði það gert í samvinnu við
alþjóðlega eftirlitsstofnun.
Leita verður allra leiða til þess
að draga úr spennu og tortryggni
milli þjóða heims og þá einkum
stórveldanna. Telur Alþingi að Is-
lendingar hljóti ætíð og hvarvetna
að leggja slíkri viðleitni lið.
Um leið og Alþingi áréttar þá
stefnu íslendinga að á íslandi
verði ekki staðsett kjarnorkuvopn
hvetur það til þess að könnuð
verði samstaða um og grundvöllur
fyrir samningum um kjarnorku-
vopnalaust svæði í Norður-
Útvarpslög
í efri deild:
Framsókn
boðar
breytingar-
tillögu
við auglýsingaþáttinn
Frumvarp til rýmri útvarpslaga,
sem neöri deild hefur nýsam-
þykkt, var vísað til menntamála-
nefndar efri deildar í gær, að lok-
inni fyrstu umræðu um málið.
Bæði Haraldur ólafsson (F),
formaður menntamálanefndar
þingdeildarinnar, og Jón Krist-
jánsson (F) boðuðu breytingar-
tillögu frá framsóknarmönnum
við þá frumvarpsgrein sem
heimilar jafnstöðu útvarps-
stöðva til auglýsingatekna, sem
þeir töldu rýra stöðu RÚV á
auglýsingamarkaði. Jón komst
svo að orði, efnislega, í umræð-
unni, að hann hefði allan fyrir-
vara á um afstöðu til málsins,
að boðaðri breytingartillögu
felldri, ef til þess kæmi.
Evrópu, jafnt á landi, í lofti sem á
hafinu eða í því, sem liður í sam-
komulagi til að draga úr vígbúnaði
og minnka spennu. Því felur Al-
þingi utanríkismálanefnd að
kanna í samráði við utanrikisráð-
herra hugsanlega þátttöku íslands
í frekari umræðu um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum
og skili nefndin um það áliti til
Alþingis fyrir 15. okt. 1985.
Jafnframt ályktar Alþingi að
fela öryggismálanefnd, í samráði
við utanríkisráðherra, að taka
saman skýrslu um þær hugmyndir
sem nú eru uppi um afvopnun og
takmörkun vígbúnaðar, einkum
þær sem máli skipta fyrir ísland
með hliðsjón af legu landsins og
aðild þjóðarinnar að alþjóðlegu
samstarfi. Á grundvelli slíkrar
skýrslu verði síðan leitað sam-
stöðu meðal stjórnmálaflokkanna
um frekari sameiginlega stefnu-
mörkun í þessum rnálurn."
Vandi húsbyggjenda:
Stuttar þingfréttir
Náttúrufræðisafn á
höfuðborgarsvæðinu
Hið íslenzka náttúrufræðifélag 100 ára 1989
Náttúrufræðasafn á
höfuðborgarsvæðinu
Tólf þingmenn úr öllum þing-
flokkum hafa lagt fram tillögu
til þingsályktunar um náttúru-
fræðisafn. Tillagan felur í sér
áskorun á ríkisstjórnina þess
efnis að hraða, í samráði við
áhugafólk og Náttúrufræði-
stofnun íslands, undirbúningi að
byggingu nútímalegs náttúru-
fræðisafns á höfuðborgarsvæð-
inu. Stefnt verði að því að opna
safnið almenningi 1989 á 100 ára
afmæli Hins íslenzka náttúru-
fræðifélags og náttúrugripa-
safns á þess vegum. Fyrsti flutn-
ingsmaður er Hjörleifur Gutt-
ormsson (Abl.).
A- OG B-hluti rikis-
reiknings
Fjármálaráðherra hefur lagt
fram frumvarp til breytinga á
lögum um ríkisbókhald og gerð
ríkisreiknings, sem m.a. gerir
ráð fyrir því að framvegis verði
almannatryggingar og starfsemi
endurlána ríkissjóðs talin til
A-hluta ríkisreiknings.
Samkvæmt frumvarpinu nær:
• A-hluti ríkisreiknings yfir
fjárreiður ríkissjóðs og ríkis-
stofnana, þar með taldar al-
mannatryggingar.
• B-hluti yfir ríkisfyrirtæki og
sjóði í ríkiseign, samkvæmt nán-
ari ákvörðun ríkisreiknings-
nefndar.
Kjarnfóðurgjald
Fram hefur verið lagt stjórn-
arfumvarp, til samræmis við
fjárlög fyrir árið 1985, sem gerir
ráð fyrir að kjarnfóðurgjald
hækki úr kr. 1,30 í kr. 4,00 á
hvert kílógramm.
Efling atvinnulífs
í Mývatnssveit
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.) flytur tillögu til þings-
ályktunar um áætlun um upp-
byggingu og eflingu atvinnulífs í
Mývatnssveit. Tilgangurinn er,
eins og segir í tillögugreininni,
„að leysa þann vanda sem að
óbreyttu mundi skapast ef Kísil-
iðjan hf. yrði að hætta rekstri".
Sjúkraliðar
í gildandi lögum er kveðið á
um að sjúkraliðar skuli aðeins
starfa undir stjórn og á ábyrgð
hjúkrunarfræðings. Nú hafa
tveir þingmenn Bandalags jafn-
aðarmanna, Kolbrún Jónsdóttir
og Stefán Benediktsson, lagt
fram frumvarp til breytinga á
þessu lagaákvæði, þann veg, að
sjúkraliðar geti einnig „starfað
undir stjórn læknis eða ljósmóð-
„Úrbætur fyrir
þinglausniru
— sagði Stefán Benediktsson (BJ)
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði í utandagskrár-
umræðu í efri deild um vanda hús-
byggenda, að lánskjaravísitala og
kaupmáttur launa stæðu í járnum, ef
gerður væri samanburður tímabilið
frá ársbyrjun 1984 til marzloka
1985. Ef teknir væru út úr þrír mán-
uðir, nóvember og desember 1984
og janúar 1985, kæmi sveifla, kaup-
mætti í óhag. Margumrætt misvægi
ætti fyrst og fremst rætur í tímabil-
inu frá miðju ári 1982 til ársloka
1983. Þá hefði þegar þurft að bregð-
ast við breyttum aðstæðum, en það
var ekki gert. Hann minnti á að á
þessum tíma hefði Alþýðubandalag-
ið bæði haft húsbóndavald í húsnæð-
is- og fjármálaráðuneytum.
Forsætisráðherra sagði vanda
húsbyggenda mikinn, en ríkis-
stjórnin hefði brugðizt við honum
að hluta til, eftir því sem þröng
efnahagsstaða þjóðarbúsins
leyfði: með skuldbreytingum, með
viðbótarlánum, með húsnæðisráð-
gjöf innan húsnæðislánakerfisins
og nú með frumvarpi um greiðslu-
jöfnun. Fleiri þættir, svo sem
skattamál, væru í athugun.
Það var Stefán Benediktsson
(BJ), sem hóf umræðuna. Hann
gat þess að stjórnarandstöðu-
flokkar hefðu fundað með „áhuga-
mönnum um úrbætur í húsnæð-
ismálum" þá um morguninn. Þar
hefði komi fram að ríkisstjórnin
hefði sagt nei við málaleitan hús-
byggenda um lausn á vanda þeirra
fyrir þinglausnir nú. Stefán taldi
skýringu á neitun stjórnarinnar
fyrst og fremst þá, að nota ætti
húsnæöismálin sem verzlunarvöru
í kjarasamningum á árinu.
Stefán sagði að greiðslubyrði
húsnæðislána væri að koma mikl-
um fjölda ungra húsbyggenda á
vonarvöl og vandinn færi vaxandi.
Stjórnarandstaðan myndi nýta öll
ráð, „ég endurtek öll ráð“, sagði
þingmaðurinn, til að knýja fram
úrbætur fyrir þinglausnir.
Ragnar Arnalds (Abl.), Eiður
Guðnason (A) og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir (Kvl.) tóku í
svipaðan streng og gagnrýndu
harðlega meint aðgerðarleysi rík-
isstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar í húsnæðismálum.
Tillaga til þingsályktunar:
Stefna í afvopnunarmálum