Morgunblaðið - 16.05.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985
3
Söngleikurinn Chicago verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu 24. maí nk.
Æfingar eru hafnar fyrir nokkru. Hér má sjá Pálma Gestsson í hhitverki
skuggalega lögfrsðingsins í hópi umbjóðenda.
Stjórnarfrumvarp á þingi:
• •
Oryrkjabandalagið
fái að reka getraunir
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt til á Alþingi að dómsmálaráðherra verði veitt
heimild til að veita Öryrkjabandalagi Islands leyfi til að starfrækja getrauna-
happdrKtti.
Segir í frumvarpinu, að getraun- happdrættinu (getraununum) verði
irnar fari fram með þeim hætti, að greiddir í peningum.
þátttakendur skrá eða velja röð bók- Hér er á ferðinni grundvallar-
stafa. Gert er ráð fyrir að miðaút- breyting vegna þess að til þessa hef-
gáfa fari fyrst og fremst fram með ur Háskóli íslands haft einkarétt á
aðstoð tölvukerfis og að vinningar í peningahappdrætti hér á landi.
Þjóðvegir landsins
nú aliflestir opnir
ÞJÓÐVEGIR landsins hafa nú allflestir verið opnaðir. Þó er enn takmarkaður
öxulþungi víða um land og sjmir vegir aðeins færir jeppabifreiðum vegna
aurbleytu.
Hjá Vegagerð ríkisins fengust þær
upplýsingar að búið væri að ryðja
Lágheiðina en hins vegar hefði hún
enn ekki verið opnuð sakir mikillar
aurbleytu. Þá er orðið fært um Vest-
firði en víða er takmarkaður öxul-
þungi. Um hálsana í Barðastrandar-
sýslu er umferð aðeins leyfð jeppum.
Fært er norður í Árneshrepp á
Ströndum, en eftir er að ryðja Axar-
fjarðarheiði og Hólssand. Á leiðinni
milli Mývatns og Fljótsdalshéraðs er
takmarkaður öxulþungi 5 tonn og
aðeins er jeppafært af Möðrudals-
öræfum niður í Vopnafjörð og sömu-
leiðis um Breiðdalsheiði.
Hjörleifur ólafsson hjá vegaeftirl-
iti sagði að vegir væru nú farnir að
þorna á sunnan- og vestanverðu
landinu og farið væri að afnema
töluvert af þeim takmarkaða öxul-
þunga sem settur hefði verið I vor
vegna aurbleytu. Hjörleifur gat þess
ennfremur að Vegagerðin hefði nú
auglýst umferðarbann um alla há-
lendisvegi til að koma itveg fyrir
skemmdir og yrði bannið líklegast í
gildi fram undir miðjan júní.
KARNABÆR
Austurstræti 22 — Laugavegi 66 — Glæsibæ. Sími 45800
Umbodsmenn um land allt
ITALIA
Italskt hjarta
fyrír þig
Þú verður sjálfur að komast gegnum
Gullna hliöiö
en við veitum þér aðgang
á Gullnu ströndina,
„paradís" fyrir alla fjölskylduna
Ótrúleg ferðakjör 29. maí
„Blá brottför"
frá kr. 18.450
í 3 vikur (meöalverö í 4 manna fjölskyldu)
Reykjavík: Austurstræti 17, sími 26611.
Akureyri: Ráöhústorg 3, sími 25000.
Þú sparar
í Fríklúbbsferð
í öllum viöskiptum.
Lignano - Bibione
50% barnaafsláttur
19. júní, 3. júlí (uppselt), 10. júlt (fá sæti),
24. júlí, 31. júli, 7. ág„ 14. ág„ 21. ág„ 28. ág.