Morgunblaðið - 16.05.1985, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 16.05.1985, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985 INNLENT SVS og Varðberg: Fundur um varna- kerfi í geimnum og afvopnunarmál Glerdreki Leifs í kaffistofu Kjarvalsstaða Reykjavíkurborg hefur fest kaup á hinu mikla gierverki Leifs Breiðfjörð sem nú er á sýn- ingunni „Norrænt gler“ á Kjar- valsstöðum. Verkið heitir „Gler- dreki" og hefur því verið komið fyrir í fundarsal hússins meðal á sýningunni stendur til þess að gefa sýningargestum kost á því að skoða það í návigi, að sögn Þóru Kristjánsdóttur listráðu- nautar Kjarvalsstaða. Að sýn- ingunni lokinni verður drekan- um komið fyrir í kaffistofu húss- ins þar sem hátt er til lofts og líkur á að verk sem er svo stórt í sniðum njóti sín mjög vel. Þóra sagði að fyrir nokkrum árum hefði Leifur Breiðfjörð verið einn þeirra listamanna sem mynduðu svonefndan kjarna í sýningu á vegum Félags íslenzkra myndlistarmanna. Þar hafi hann sýnt verk sem Reykja- víkurborg hefði falast eftir en þegar til átti að taka var það verk selt. Var þá brugðið á það ráð að óska eftir því við lista- manninn að hann gerði verk sér- staklega fyrir Kjarvalsstaði og nú er „Glerdrekinn" full- skapaður og mun eftirleiðis gleðja augu gesta hússins. Dagur ljóðsins á laugardag LAUGARDAGINN 18. maí nk. gengst Rithöfundasamband íslands fyrir Degi Ijóðsins til að vekja sérstaka athygli í Ijóðinu sem listformi. Á Degi ljóðsins verða haldnir opinberir upplestrar I Reykjavík og i Akureyri. Ennfremur munu nokkur skáid fara á stúfana og heimsækja Landspítal- ann, Hrafnistu og Kleppsspítalann með Ijóðalestri. í tilefni af Degi Ijóðsins hefur verið haft samband við bókaverslanir og bókasöfn og óskað eftir því að þeir aðilar kynni undan og eftir Degi Ijóðsins. I Reykjavík verður upplestur í Iðnó og hefst hann kl. 14. Eftir- talin skáld munu lesa þar. Einar Bragi, Einar ólafsson, Jóhann Hjálmarsson, Ingibjörg Har- aldsdóttir, Matthías Johannes- sen, Nína Björk Ámadóttir, Sig- fús Bjartmarsson, Sigurður Pálsson, Steinunn Sigurðardótt- ir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Þór Eldon og Þórarinn Eldjárn. Ijóðabækur sérstaklega vikurnar á Á Akureyri verður upplestur í kjallara Sjallans og hefst hann kl. 17. Þar munu eftirtalin skáld lesa ljóð sin: Bragi Sigurjónsson, Brynjólfur Ingvason, Einar Kristjánsson, Eiríkur Stefáns- son, Guðlaugur Arason, Guð- mundur Frímann, Kristján frá Djúpalæk, Kristján Pétur Sig- urðsson, Kristján Arngrímsson, Jón Laxdal, Martin Næs, Nick Cariglía, ólöf Sigríður Valsdótt- ir, Sigurður Ingólfsson, Skafti Helgason og Sigurður Pálsson. Eftirtalin skáld munu skipta sér niður á Landspítala, Hrafn- istu og Kleppsspitala: Dagur, El- ísabet Þorgeirsdóttir, Gylfi Gröndal, Jón frá Pálmholti, Kristín Bjarnadóttir, Sigmund- ur Ernir Rúnarsson, Þorri J6- hannsson, Þóra Jónsdóttir og Þórarinn Eldjárn. Þriggja manna nefnd skipuð af stjóra Rithöfundasambands- ins sá um undirbúning og valdi þau skáld sem að þessu sinni munu lesa upp á Degi ljóðsins. Stefnt er að því að gera Dag ljóðsins að árvissum atburði. (Frétt frá Kithöfunduafflbandi InUnda.) 29 kvikmyndir á Kvikmyndahátíð Hátíðin opnuð með barnamynd eftir sögu Astrid Lindgren, sem verður viðstödd opnunina KVIKMYNDAHÁTIÐ í Reykjavík, sú 7. í röðinni, verður opnuð á laug- ardag kl. 14.00 f Austurbæjarbíói, þar sem hún verður haldin fram til 28. maí. Borgarstjóri, Davíð Oddsson, setur hátíðina, en sú ný- breytni verður að þessu sinni, að Kvikmyndahátíð mun veita viður- kenningu til aðila sem þykir skara framúr í kvikmyndagerð. Opnun- armyndin verður síðan barnamyndin „Ronja ræningjadóttir" sem Tage Danielsson leikstýrði eftir sam- nefndri sögu Astrid Lindgren, en hún kemur hingað til lands í dag og verður viðstödd opnunina. Lindgren mun einnig, ásamt leikstjóranum, verða í Norræna húsinu á sunnudag kl. 16.30, þar sem þau lesa upp úr verkum henn- ar. Einnig les Guðmundur Ólafs- son leikari upp úr „Bróðir minn Ljónshjarta", Heimir Pálsson úr „Elsku Míó minn“ og fleira verður gert til skemmtunar og ekki síst til heiðurs hinum ástsæla barna- bókahöfundi. Ronja ræningjadóttir er ein þriggja barnakvikmynda á Kvik- myndahátíð nú, en alls eru mynd- irnar 29 talsins. Verða þær sýndar ýmist einu sinni eða allt að tíu sinnum í einhverjum þriggja sala Austurbæjarbiós, fyrir utan tvær sem verða sýndar í Norræna hús inu og í Menning„rstofnun Banda ríkjanna. Tímasett dagskrá hátíð arinnar hefur verið gefin út of liggur hún frammi í kvikmynda húsum, ýmsum verslunum og víð ar. Þá eru sýningarnar auglýstar : blöðum. Auk Astrid Lindgren og Tag* Danielsson verða gestir Kvik myndahátíðar að þessu sinni þýsk leikstjórinn Hart Bohm, fransk leikstjórinn J.L. Godard og Geralc Pearly, bandarískur doktor í fjöl- miðla- og kvikmyndafræðum Hann mun flytja fyrirlestur Menningarstofnun Bandaríkjanna 20. maí kl. 20.30. Formaður undirbúningsnefndar Kvikmyndahátíðar er Hrafr Gunnlaugsson kvikmyndagerðar- maður sem jafnframt er formaðui framkvæmdastjórnar Listahá- tíðar. Auk hans eru i undirbún- ingsnefndinni kvikmyndagerðar- mennirnir Kristín Jóhannesdóttr, Sigurður Sverrir Pálsson og Frið- rik Þór Friðriksson og Birgir Sig- urðsson rithöfundur. í Fram- kvæmdastjórn Listahátíðar eiga síðan sæti, auk Hrafns, Kristínar og Birgis, þeir Kristinn Hallsson óperusöngvari og Stefán Baldurs- son leikhússtjóri. Framkvæmda- stjóri hátíðarinnar er Salvör Nordal. Morgunblaöið/ölafur K. Magnússon Aðstandendur kvikmyndahátíðar og Listahátíðar. F.v.: Friðrik Þór Frið- riksson, Birgir Sigurðsson, Hrafn Gunnlaugsson, Kristín Jóhannesdóttir, Salvör Nordal, Stefán Baldursson og Kristinn Hallsson. 1 þeirra hópi er ennfremur Sigurður Sverrir Pálsson. Ljóðskáld fyrir fnunan Iðnó, hhiti þeirra sem lesa upp 18. maí, talin frá vinstri: Nína Björk Arnadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir, Þorsteinn frá Hamrí, Einar Olafsson, Vilborg Dag- bjartsdóttir, Matthías Johannessen, Sigurður Pálsson, Þér Eldon, Sigfús Bjartmarsson, Þorri Jóhannsson, Einar Bragi, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jóhamar og Dagur Sigurðarson. DR. CHRISTOPH Bertram, stjórnmálaritstjóri vikublaðsins „Die Zeit“ i Ham- borg, er staddur hér á landi um þessar mundir á vegum Samtaka um vestræna samvinnu (SVS). Laugardaginn 18. maí flytur hann erindi og svarar fyrirspurnum á fundi, sem SVS og Varðberg gang- ast fyrir í hádeginu í Átthagasal Hótel Sögu. Erindið, sem flutt verð- ur á ensku, nefnist Varnakerfi í geimnum, afvopnun og samstarf Vesturlanda. Fundarsalur verður opnaður kl. tólf og er fundurinn Eftirspurn eftir lóðum er nú dræm „Eftirspurn eftir lóðum er dræm um þessar mundir, en lóðir eru til reiðu í Grafarvogi og Selási," sagði Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri borgarverk- fræðings í samtali við Mbl. A síðast- liðnu ári var 356 einbýlishúsalóðum út- hlutað í Reykjavík, 173 raðhúsalóðum og fram í miðjan ágúst hafði 215 íbúð- um í fjölbýlishúsum verið úthlutað. Árið 1983 var 133 einbýlishúsalóð- um og 63 raðhúsalóðum úthlutað, auk 481 íbúð í fjölbýlishúsum. Árið 1982 var 170 einbýlishúsalóðum, 78 raðhúsalóðum og 70 íbúðum í fjöl- býlishúsum úthlutað og 1981 var 41 einbýlishúsalóð, 126 raðhúsalóðum og 420 íbúðum í fjölbýlishúsum út- hlutað. opinn félagsmönnum i SVS og Varðbergi. Dr. Christoph Bertram er fæddur í Kiel árið 1937. Eftir nám (lögfræði og stjórnmálafræðum við háskólana í Berlín, París og Bonn, stundaði hann lögfræðistörf og var síðan starfsmaður Áætlanadeildar vest- ur-þýzka varnarmálaráðuneytisins. Á árunum 1967 til 1982 vann hann við Alþjóðlegu herfræðistofnunina (International Institute for Strateg- ic Studies) í Lundúnum, aðstoðar- framkvæmdastjóri frá 1969 og aðal- framkvæmdastjóri frá 1974. Árið 1982 varð hann stjórnmálaritstjóri við „Die Zeit“. Meðal rita sem hann hefur samið eða ritstýrt má nefna Mutual Bal- anced Force Reductions in Europe, London 1972; Arms Control and Technological Change — Elements of a New Approach, London 1978; Prospects of Soviet Power, London 1980; The Future of Strategic De- terrence, London 1981; Thrid World Conflict and International Security, London 1982; America’s Security in the 1980’s, London 1982. (FrétUtlIkyimiiig.) Christoph Bertram
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.