Morgunblaðið - 16.05.1985, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1985
Nærri 100 krakkar í kapphlaupi
Saudárkróki, 13. maí.
VORHLAUP Ungmennafélagsins Tindastóls fór fram sl. laugardag. Þátttakendur, nálega 100 talsins, voru á
aldrinum 6—14 ára. Hlaupiö var 1—2,5 km og var aldur hlauparanna látinn ráða vegalengdinni. Allt gekk þetta
að óskum, þótt síðasti spölurinn reyndist sumum nokkuð þungstígur. Meðfylgjandi mynd sýnir nokkra
þátttakendurna við rásmarkið. KÁRI
Þátttakendurnir í keppninni í hjólreiðaþrautunum.
Sauðárkrókur:
Keppt í hjólreiðaþrautum
StuAárkróki, 12. nuí.
Sl. laugardag tóku 25 krakkar á
aldrinum II og 12 ára þátt í hjói-
reiðaþraulum, sem grunnskólinn og
lögreglan hér stóðu að. Var farið eft-
ir reglum, sem umferöarráö ríkisins
hefur látið gera og gilda í þrautum
af þessu tagi. Tækin, sem notuð
voru, lánaði lögreglan á Akureyri.
Það duldist engum, að þátttakendur
lögðu sig alla fram, þótt ekki væri
hér um eiginlega keppni að ræða.
Síðan fór fram reiðhjólaskoðun.
Árlega eru haldin mót í hjól-
reiðaþrautum á Akureyri og í
Reykjavík og eru þátttakendur
víðs vegar að af landinu. Fjórir
hlutskörpustu í hvoru móti keppa
til úrslita, og hljóta tveir þeirra
þátttökurétt í mótum erlendis.
Unglingar hér á Sauðárkróki hafa
náð góðum árangri í bóklegum
fræðum umferðarmenningarinn-
ar, en þeir hafa ekki haft tækifæri
til að æfa sig í hjólreiðaþrautum
fyrr en nú. Þratt fyrir það náði
þátttakandi héðan, Snæbjörn
Jónsson, þeim góða árangri að
verða fjórði á mótinu á Akureyri
4. maí sl. sem gefur honum rétt til
þátttöku í úrslitakeppninni í
Reykjavík síðar á þessu ári.
Umferðarkennsla er í grunn-
skólanum hér í samvinnu við lög-
regluna. Stefnt er að markvissari
fræðslu á þessu sviði, og var hjól-
reiðamótið liður í þeirri viðleitni,
en það voru Björn Sigurbjörnsson
skólastjóri og Björn Mikaelsson
yfirlögregluþjónn, sem höfðu veg
og vanda af því.
Kári
w.
T'r~rr~m
■/. •• •
Keppendurnir í rásholunum.
-
Krökkunum á Sauðárkróki gafst nú í fyrsta sinn kostur á að spreyta sig í
hjólreiðaþrautum.