Morgunblaðið - 16.05.1985, Side 27

Morgunblaðið - 16.05.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985 27 _ • • Björg Orvar Myndlist Bragi Ásgeirsson Það er mikill fjöldi ungra listamanna er heldur utan til framhaldsnáms og nemur við hina ýmsu iistaháskóla austan hafs og vestan. Til skamms tíma var næstum því einstefna á Holland en hin síðari ár hef- ur stefnan í sívaxandi mæli verið tekin á Ameríku. Þar munu skólarnir vera mjög vel búnir tækjakosti og skilyrði til náms hin fullkomnustu en hins vegar eru skólagjöld í flestum tilvikum mjög há. En unga fólkið virðist ekki láta það aftra sér og sýnir það stórhug og trú á sjálft sig og framtíð- ina. Björg Örvar, sem þessa dagana og til 19. maí sýnir í Nýlista- safninu lauk við Myndlista- og handíðaskólann árið 1980 og hélt árið eftir til Kaliforníu þar sem hún var við fram- haldsnám við Listadeild Kali- forníu-háskóla í Davis næstu tvö árin. Björg hefur haldið tvær sýn- ingar í Basement Gallery, Dav- is og sýndi einþrykk (mónó- typur) í Gallerí Borg sl. haust. Það var mikill ferskleiki, sem einkenndi sýningu hennar í Gallerí Borg, ásamt úmbúð- lausri tjáningu og krafti enda er þessi sýning mér í ljósu minni. Gerandinn beitir hins vegar annarri tækni og klassískari við gerð verka sinna í Nýlista- safniu, en þau eru öll olíumál- verk á striga. Víst er, að hér vantar ekki málaragleðina en einhvern veginn eru þessi mál- verk gerð af minni funa og sannfæringarkrafti en ein- þrykkin. Hér skortir einhvern kraft og neista er heldur skoð- andanum föstum og vekur for- vitni hans. Útfærsla myndanna minnir í senn á málara nýbylgjunnar og Cobra-hópinn að því leyti, að hér er ekkert fum á vinnu- brögðum né löng yfirlega yfir verkunum og hér ræður til- finningalegt innsæi ferðinni. Einna best þykir mér sem Björg komist frá myndunum „Morgunn" (I) og „Úr albúmi heimskonu-eftirsjá fram á okkar dag“ (7). Einkum virðist mér mikið að gerast í síðasttaldri myndinni en í henni er fjölskrúðugt lit- og formrænt ferli. Máski er listakonan hér að segja frá eig- in lífsreynslu og ef svo er, þá mætti hún gera meira af því. í þessari mynd finnst mér sem Björg Örvar komist næst því að hreyfa við innri lífæðum myndflatarins. SKRIFSTOFUTÆKNI A OKKAR VALDl Viö erum í stöðugu sambandi viö öflugustu fvrirtæki heims á sviöi skrifstofutækni. Við kappkostum aö bjóöa aðeins þaö besta og leggjum áherslu á að þjónusta okkar við viðskiptavini sé fyrsta flokks. Við aðstoðum við val á réttum búnaði, leiðbeinum um notkun og bjóðum örugga tækni- og viðhaldsþjónustu. Við byggjum á áratuga reynslu í þjónustu við íslensk fyrirtæki, og fylgjum þér farsællega inn í framtíðína. U-BIX Ijósritunarvélar, Omron afgreiðslu- kassar, Silver-Reed og Message ritvélar, Stromberg,stimpilklukkur og klukkukerfi, Omic og Monroe reiknivélar. % SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 — Sími 20560 Pósthólf 377

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.