Morgunblaðið - 16.05.1985, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 16.05.1985, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985 Akranes: Bátur stórskemmdist í bruna í höfninni Altranesi, 15. maí. ELDUR kom upp í mb. Leyni AK 9 í Akranesshöfn síðastliðna nótt og skemmdist báturinn mikið. Slökkviliðið var kallað að bátn- um á þriðja tímanum í nótt. Var þá rnikill eldur laus í Leyni. Tók um klukkustund að slökkva eld- inn. Báturinn skemmdist mikið, eins og fyrr segir, og er ljóst, að yfir- bygging hans er ónýt, svo og öll tæki um borð. Ekki er fullvíst hvort skrokkurinn hefur skemmst. Leynir AK er 9 tonna frambyggð- ur piastbátur, eign Birgis Jóns- sonar útgerðarmanns, og hefur á vertíðinni stundað þorskaneta- veiðar og aflað vel. Tjón eigandans er mjög tilfinn- anlegt því jafnframt útgerð rekur Birgir fiskverkun. Óljóst er um eldsupptök. — JG. Heldur gítartónleika í Njarðvík og Húsavík UM ÞESSA helgi heldur Þórarinn Sig- urbergsson gítarleikari tvenna ein- leikstónleika á tveimur stöðum á land- inu. Sá fyrri verður í Ytri-Njarðvíkur- kirkju fostudaginn 17. maí og hinn síð- ari verður í Húsavíkurkirkju sunnu- dagínn 19. maí. Þórarinn fæddist í Hafnarfirði 1958 og hóf ungur nám í klassískum gitarleik í Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar undir handleiðslu Eyþórs Þorlákssonar. Lauk hann einleikara- prófi frá skólanum vorið 1980 og hélt það sama ár út til Spánar, þar sem hann stundaði framhaldsnám hjá Jose Luis Gonzales í fjögur ár sam- fleytt. Lauk þaðan „Diploma" sumarið 1984. Síðastliðinn vetur hef- ur Þórarinn starfað sem gitarkenn- ari við tónlistarskólann í Keflavík, Njarðvík og í Garði. Á efnisskrá tónleikanna um þessa Þórarinn Sigurbergsson, gítarleik- ari. helgi eru m.a. verk eftir Bach, Scarl- atti og Albeniz, og hefjast þeir báðir kl. 20.30. Hagkaup á heimavelli: Veruleg aukning í sölu á íslenzk- um vörutegundum SÖLU- og kynningarátaki Hag- aukning í sölu á 13 vörutegund- kaups í samvinnu við Félag ís- um af íslenzkum neyzluvörum. lenzkra iðnrekenda lýkur á laug- Reyndist hún vera 63% að með- ardag. Kynningarherferð þessa altali miðað við sðlu á viku tvo nefnir fyrirtækið „Hagkaup á mánuði á undan. heimavelli" og hefur verið mæld Sontakonur á Akureyri og frá Reykjavík við Nonnahús. Morgunblaðið/G. Berg Akureyri: Nýr Sontaklúbbur stofnaður Akureyri, 14. maí. Á Akureyri var stofnaður nýr Sonta-klúbbur síð- astliðinn laugardag og hlaut hann nafnið „Þórunn hyrna“. Fyrsta verkefni klúbbsins verður að safna fé til að endurgera styttuna af Helga magra og Þórunni hyrnu en hún er mikið skemmd. Þetta er annar klúbburinn sem starfandi er á Akureyri en fyrir var Sontaklúbbur Akureyrar. Formaður hins nýja klúbbs er Guðlaug Hermannsdóttir en varafor- maður Svava Árnadóttir. Stofnfundurinn var haldinn í Nonnahúsi, sem Sontaklúbbur Akureyrar hefur séð um rekstur á frá upphafi eða frá stofnun sinni 1947. Sérstakur gestur á stofnfundinum var Senikka Heiskanen, sem er formaður norrænu deilda Sonta-klúbb- anna. Til gamans má geta þess að það þykir nokkuð sérstakt að í ekki stærra bæjarfélagi en Akureyri skuli nú vera starfandi tveir Sontaklúbbar. í Helsinki og Stokkhólmi eru þrír, en í Kaup- mannahöfn og Osló eru tveir klúbbar. — G.Berg. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 14.00 á degi aldraöra, uppstigningar- dag. Pétur Sigurösson alþingis- maöur predikar. Séra Hjalti Guömundsson þjónar fyrir altari. Eftir messu er kaffisamsæti í Oddfellowhúsinu fyrir eldri borg- ara, 67 ára og eldri. Séra Hjalti Guömundsson. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guös- þjónusta i safnaóarheimili Ár- bæjarsóknar kl. 14.00. Steinn Stefánsson fyrrverandi skófastj. flytur stólræöuna. Organleikari Jón Mýrdal. Öllu eldra fólki í söfnuöinum sérstaklega boöiö tll guösþjónustunnar. Samvera eftir messuna með dagskrá og kaffi- veitingum í boöi Kvenfélags Ár- bæjarsóknar. Meöal dagskrárat- riöa: Ingólfur S. Sveinsson flytur ræöu, Bogi Arnar Finnbogason syngur einsöng, upplestur og al- mennur söngur. Sr. Guömundur Þorsteinsson. ÁSKIRKJA: Dagur aldraöra. Guðsþjónusta kl. 14.00. Eftir messu býöur Safnaöarfélag Ásprestakalls eldri sóknarbörn- um upp á veitingar í safnaöar- heimili Áskirkju. Sólveig Björlíng syngur viö undirleik Gústafs Jó- hannessonar. Almennur söngur. Þeir sem óska eftir akstri til og frá kirkju geta hring í Áskirkju milli kl. 10 og 12 aö morgni upp- stigningardags, sími 84035. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚST AÐAKIRK JA: Messa kl. 14.00. Prestur sr. Jón Bjarman. Eftir messu verður sýning á vetr- arstarfi aldraöra og kaffiveit- ingar. Sóknarnefndin. DIGR ANESPREST AK ALL: Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2.00. Sr. Árni Pálsson þjónar fyrir altari, sr. Þorbergur Krist- jánsson predikar. Aldraðir lesa ritningarorö. Aö lokinni guðs- þjónustu veröur samverustund í safnaöarheímilinu Borgum meö kaffiveitingum og dagskrá. Sóknarnefndin. LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 11.00. Organleikari Birgir Ás Guömundsson. Séra Hjalti Guö- mundsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Guösþjónusta kl. 14.00. Bibliu- lestur föstudagskvöld kl. 20.30. Bænastundir eru í kirkjunni þriöjudaga, miövikudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 18.00 og standa í stundarfjórö- ung. Sr. Gunnar Björnsson. GRENSÁSKIRKJA: Kvöldvaka meö helgistund fyrir aldraöa kl. 20.00. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárus- son. Ferö á vegum starfs aldr- aöra á Kjálarnesi kl. 14.00. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Guösþjón- usta kl. 10.00. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Guös- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.00. Sr. Þorbergur Kristjáns- son predikar, sr. Árni Pálsson þjónar fyrir altari. Aldraöir lesa ritningarorö. Aö lokinni guös- þjónustu verður samverustund í safnaöarheimilinu Borgum meö kaffiveitingum og dagskrá. Sókn- arnefnd. LANGHOLTSKIRKJA: Dagur aldraðra. Guösþjónusta kl. 11. Ræöa: Gísli Sigurbjörnsson, for- stjóri. Einsöngur: Harpa Harö- ardóttir. Prestur Siguröur Hauk- ur Guöjónsson. Organisti Jón Stefánsson. Hátíðarsamkoma kl. 14.00. Helgistund. Söngur: Einar Örn Einarsson. j safnaöarheimil- inu veröur sýning á hannyröum þeirra, sem hafa tekiö þátt í sam- verustundum á miövikudags- kvöldum í vetur. Aöstandendum og vinum hinna öldruöu boðið aö veisluboröi. Kynnum okkur hvað gert er meö hinum elztu í söfnuö- inum. Leggjum okkur fram til þess aö gera daginn aö sönnum hátíöisdegi. Safnaöarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Messa á uppstigningardag kl. 14.00. Lára Siguröardóttir og Guömundur Bernharösson lesa ritningarorö. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 14.00. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SELJASÓKN: Fyrirbænasam- vera kl. 20.30 í Tindaseli 3. Sóknarprestur. STARF aldraöra í Kópavogi: Aldraöir eru minntir á guös- þjónustu í Kópavogskirkju á upp- stigningardag kl. 14.00. Söfnuö- urnir bjóöa uppá kaffidrykkju meö dagskrá aö guösþjónustu lokinni í safnaöarheimilinu Borg- um. GARÐAPRESTAKALL á Akra- nesi: Messa veröur kl. 14.00 í dvalarheimilinu Höföa í tilefni dags aldraöra. Sr. Björn Jóns- son. HJÁLPRÆÐISHERINN FAGNAÐARSAMKOMA í Nes- kirkju í kvöld kl. 20.30. Lúöra- sveit Musterisins í Osló leikur. Ofurstilt. Bergljót og Einar Mad- sen og Guöfinna Jóhannesdóttir stjórna og predika. NORSKUR þjóöhátíðarfagnaður í Neskirkju föstudaginn kl. 20.30. Veitingar. Allir hjartanlega vel- komnir. NORSK 17. MAÍ FEST: i tilefni af þjóöhátíöardegi Norömanna heldur Hjálpræöisherinn sam- komu í Neskirkju föstudaginn kl. 20.30. Templet Hornorkester leikur og syngur og aöalritara- hjónin frá Noregi flytja ávarp. Veitingar. Allir eru hjartanlega velkomnir. FÍLADELFÍUKIRKJAN Reykja- vík: Almenn guösþjónusta kl. 14.00. Ræöumaöur Einar Gísla- son. Kór kirkjunnar syngur. Sam- skot til kirkjunnar. Kynningarfund- ur á samtök- unum Lífsvon LÍFSVON, landssamtök til verndar ófæddum börnum, efna til kynningar- fundar í íslensku óperunni nk. laugar- dag, 18. maí, kl. 13.30. Á kynningarfundinum munu eftir- taldir flytja ávörp: Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson alþingismaður, Guð- jón Guðnason yfirlæknir, Kristin Kvaran alþingismaður, Katrín Fjeldsted læknir og séra Solveig Lára Guðmundsdóttir. Þá mun Öldutúnsskólakórinn syngja, sýndir verða þjóðdansar og Þorvaldur Hall- dórsson syngur einsöng. Kynnir verður Hulda Jensdóttir. (Úr fréttatilkjrniiinzu)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.