Morgunblaðið - 16.05.1985, Síða 46

Morgunblaðið - 16.05.1985, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1985 + Systir okkar, MARQRÉT ÞÓROARDÓTTIR, Hátaigsvegi 18, lést í Landspítalanum 2. maí. Útfðrin hefur farið fram í kyrrþei aö ósk hinnar látnu. Jónína Þóröardóttir, Siguröur Þóröaraon, Sigríöur Þóröardóttir, Þorvaröur Þóröaraon. t Elskuleg eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, JÓNA Þ. SÆMUNDSDÓTTIR, lézt aö heimili sínu, Auöarstræti 11, aö kvöldi 14. maí. Siguröur Ó. Jónaaon, Sæmundur Siguröaaon, Snæfríöur Jenadóttir og barnabörn. + JÓRUNN JÓNSDÓTTIR frá Smiöjuhóli, Hverfiagötu 28, Reykjavík, lést í Landspítalanum aöfaranótt 15. maí. Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna. Pétrfna Þorateinadóttir. + SESSELJA GUDRÚN SVEINSDÓTTIR fré Patreksfirði, andaöist aö morgni 11. maí á Hrafnistu. Fyrlr hönd aöstandenda. Kristjén Davíöason, Jóhanna G. Davföadóttir, Sveinn Davfösson. + Móöir okkar, tengdamóölr og amma, HELGA I. HALLDÓRSDÓTTIR, Dvalarheimilinu, Borgarnesi, er lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 9. maí, veröur jarö- sungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 18. maf kl. 14.00. Ástrún Valdimarsdóttir, Guörún Valdimarsdóttir, Þóröur Valdimarsson, Valdís Valdimarsdóttir, Halldór Valdimarsson, Þorsteinn Valdimarsson, Guöbjörg Valdimarsdóttir, Ingibjörg E. Halldórsdóttir, barnabörn og Aóalsteinn Sigurósson, Ámi Jóhannsson, Marfa Ingólfsdóttir, Inga Ingólfsdóttir, Guömundur Rögnvaldsson, Sigurjón Stefénsson, barnabarnabörn. + Útför SÓLVEIGAR SIGURBJARGAR SÆMUNDSDÓTTUR fré Hrútatungu, Kvöldúlfsgötu 11, Borgarnesi, fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 17. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaöir. Jón B. Ólafsson, Kristrún Jóna Jónsdóttir, Sæmundur Jónsson. + Systir mín og fósturmóöir okkar, ÞÓRDÍS VALGERDUR PÉTURSDÓTTIR, Baröavogi 36, veröur jarösungin föstudaginn 17. mai. Athöfnin fer fram frá nýju Fossvogskapellu kl. 15.00. Sigrföur Pétursdóttir, Holga Hjélmtýsdóttir, Bjarni Hjélmtýsson. + Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug viö andlát eiginmanns míns, fööur og stjúpfööur, BERNHAROS PÁLSSONAR, fyrrv. skipstjóra. Sigríöur Þorléksdóttir, Edda B. Frlar, Sverrir P. Jónasson. Minning: Eggert P. Briem Fæddur 6. júní 1898 Dáinn 8. maí 1985 Hinn 8. maí lézt í sjúkrahúsi hér í borg Eggert P. Briem, er lengst af starfaði sem fulltrúi hjá Eim- skipafélagi íslands. Hann hafði búið við vanheilsu undanfarin ár, löngum legið rúmfastur í heima- húsum, en lokaþátturinn var 4 daga sjúkrahúsvist. I veikindum sínum naut hann slikrar um- hyggju konu sinnar Sigríðar, að í minnum verður haft hjá þeim, sem til þekktu. Hún bókstaflega hélt í hönd hans, unz yfir lauk. Eggert ólafur Pálsson Briem, eins og hann hét fullu nafni, fædd- ist á Akureyri 6. júní 1898. For- eldrar hans voru hjónin Páll Briem, sem þá gegndi amtmanns- embættinu norðan og austan, og kona hans Álfheiður Helgadóttir. Páll Briem var sonur hjónanna Eggerts Briem, sem lengst var sýslumaður Skagfirðinga og bjó á Reynistað, og konu hans, Ingi- bjargar Eiríksdóttur Sverrissonar sýslumanns. Börn þeirra hjóna voru nítján að tölu, en þar af kom- ust þrettán upp. Af átta sonum þeirra, sem upp komust, luku sjö stúdentsprófi og þar af sex há- skólaprófi. Er hér um þjóðkunna menn að ræða eins og marga nán- ustu frændur Páls, en það yrði of langt mál að rekja hér. Tvíbura- systir Páls var Elín Briem skóla- stjóri, alkunn fyrir störf sín að fræðslumálum kvenna og hvers konar baráttu fyrir hagsmuna- málum þeirra. Eins og kunnugt er voru amt- mannsembættin lögð niður með stofnun heimastjórnar 1904. Var Páll nú skipaður bankastjóri við hið nýja fjármálaveldi, Islands- banka hf. Þá var hann einnig kjör- inn á þing öðru sinni. Var nú ákveðið, að fjölskyldan flyttist til Reykjavíkur, og var Páll tekinn að undirbúa húsbygg- ingu við Tjörnina í þvi sambandi, en enginn má sköpum renna. í árslok 1904 fékk hann hatramm- lega lungnabólgu og lézt 16. des. það ár aðeins 48 ára að aldri. Ekkja hans, Álfheiður, var dótt- ir hjónanna Helga Hálfdánarson- ar forstöðumanns Prestaskólans og konu hans, Þórhildar, sem var dóttir Tómasar Sæmundssonar, Fjölnismannsins alkunna. Þeim hjónum varð fimm barna auðið, og komust þau öll upp. Þá dvaldist á heimilinu að nokkru leyti Kristinn sonur Páls af fyrra hjónabandi, og löngu síðar ólst þar upp fósturdóttir, sem Álfheið- ur tók að sér, eftir að hún hafði misst móður sína í spönsku veik- inni 1918. Það horfði ekki glæsilega hjá ekkjunni með 5 börn, hið elzta ný- orðið 8 ára, en með framúrskar- andi dugnaði og viljafestu tókst henni að fleyta öllu áfram með mikilli prýði. Hefur hún sjálfsagt notið einhvers stuðnings vanda- manna sinna í þessu erfiða hlut- verki. Hún kom upp húsinu i Tjarnargötu 24, og bjó hún þar með mikilli rausn frá 1907 til dauðadags 1962, 55 ár samfleytt. Jafnan bjó eitthvað af börnum hennar eða öðrum vandamönnum í þessu húsi með henni. Börn hennar og Páls voru: Þór- hildur, ekkja Theodórs B. Líndal prófessors, Friede Ingibjörg, ekkja Ásgeirs Guðmundssonar lögfræðings frá Nesi, Helgi P. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför EINARS J. GUDMUNDSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsmanna Rafveitu Hafnarfjaröar. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Guömundur Kr. Guömundsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og Jaröarför, BJÖRNS JÓN8SONAR, fyrrverandi forseta ASÍ. Þórgunnur Svainsdóttir, Rannveíg Björnsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Björn Björnsson, Svava Björnsdóttir, Guömundur Karl Jónsson, Pélmar Guöjónsson, Guöný Aöalsteinsdóttir, Emil Gautur Emilsson. + Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát óg útför eiginmanns míns, fööur okkar, afa og sonar, INGA S. HERMANNSSONAR, Krók 3, Isafiröi, Geröur Eliasdóttir, Jóna Guömunda Ingadóttir, Ásdís Sigrún Ingadóttir, Ingi Þórarinn Friöriksson, Guómunda Vigfúsdóttir, Hermann Sveinsson. + Þökkum öllum þeim sem sýndu samúö og heiöruöu minningu fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, PÉTURS EGGERZ STEFÁNSSONAR, sem jarösunginn var frá Hafnarfjaröarkirkju 13. þessa mánaöar. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu i Hafnarf iröi og annarra þeirra sjúkrastofnana sem veittu hinum látna góöa umönnun í veikindum hans. Sólveig Eggerz Pétursdóttir, Ámi Jónsson, Elín Eggerz Stefénsson, Árni Friöfinnsson, Bergljót Siguröerdóttir, barnabörn og barnabarnaböm. Briem sendiherra, kvæntur Doris, sem er af ensku bergi brotin. Hann er nú látinn. Yngst barn- anna er Þórdis siðast læknaritari. Fósturdóttirin er Jóna Einars- dóttir, gift óla Vestmann Einars- syni yfirkennara. Sonur Páls af fyrra hjónabandi, sem áður var getið, var Kristinn, sem lengst af var kaupmaður á Sauðárkróki. Kona hans var Kristín Björns- dóttir frá Hofsstöðum. Þau eru bæði látin. í Tjarnargötu 24 ólst Eggert upp við mikið ástríki móður sinn- ar og systkina. Ekki þótti annað hlýða en hann legði stund á menntaskólanám. Það stundaði hann 1911—1913, en þá hafði hann veikzt svo alvarlega af brjóst- himnubólgu, að ekki þótti ráðlegt, að hann héldi áfram skólagöngu. Hafa það sjálfsagt orðið honum töluverð vonbrigði. Eigi að síður tókst honum með sjálfsnámi að afla sér mikillar þekkingar, svo að hann varð þegar á unga aldri mjög fjölfróður i beztu merkingu þess orðs. Hann var t.d. mikill tungumálamaður. Á heimili Jóns Helgasonar biskups, móðurbróður síns í Tjarnargötu 26, sagðist Eggert hafa lært dönsku sjálfkrafa og þar með Norðurlandamálin. Ensku og þýzku lærði hann jafnframt og var t.d. 14 ára farinn að taka að sér að vera túlkur fyrir þýzka ferðamenn, sem voru hér tíðir gestir fyrir heimsstyrjöldina fyrri. Þá lærði hann frönsku og var víst fullfær í því tungumáli; hann var meira að segja einhvern tíma farinn að leggja sig eftir rússnesku. Eggert var ákaflega fjölhæfur maður og hafði mörg áhugamál eins og brátt kemur að. Hann var mjög bókfróður og átti prýðilegt bókasafn. Árið 1915 hóf hann störf hjá Eimskipafélagi íslands og gegndi þeim í þetta skipti til ársins 1930. Þá var Emil Nielsen fram- kvæmdastjóri félagsins, og annað- ist Eggert m.a. allar bréfaskriftir fyrir hann á erlendum tungum, bæði á Norðurlandamálum, ensku ogþýzku. Áður hafði hann starfað nokkuð hjá Morgunblaðinu og var síðustu árin Nestor þeirra manna, sem við blaðið höfðu starfað. Ég geri ráð fyrir því, að þar hafi hann fyrst komizt verulega í kynni við prent- un og útgáfustarfsemi, sem voru honum jafnan mjög ofarlega í huga. Á þessum árum var ný tækni við ritvinnslu og að ryðja sér til rúms. Það voru vélritun og fjölrit- un. Eggert fékk mikinn áhuga á þessari ungu tækni. Mönnum þótti það mikið til um þessa tækni, að tvisvar var haldin íslandsmeist- arakeppni í vélritun, og varð Egg- ert í bæði skiptin Islandsmeistari á þeim vettvangi. Hann rak um skeið fjölritunarstofu og vélritun- arþjónustu í Tjarnargötu 24, og eitthvað mun hann hafa fengizt við vélritunarkennslu. Eggert var ágætur teiknari og var oft beðinn að rita á bækur, þar sem einhver viðhöfn var á ferðum. Meðal þess, sem hann teiknaði og margir þekkja, er frumteikningin að vatnsmerki því, sem haft er í löggiltum skjalapappír. Enn má nefna áhuga Eggerts á ljósmyndun. Hann tók mikið af myndum og átti gott safn af ýmiss konar atburðamyndum, sem birzt hafa síðar í blöðum og bókum, enda stundum um að ræða myndir af atburðum, sem ekki er vitað um, að aðrir hafi ljósmyndað. Árið 1930 stofnaði Eggert bóka- búð í Austurstræti 1, Veltunni, sem kölluð var. Hér var mjög farið inn á nýjar brautir við innréttingu verzlunarhúsnæðis. Þetta var í raun fyrsta kjörbúðin á íslandi, og teiknaði Eggert sjálfur innrétt- ingar. Lögð var áherzla á að hafa húsnæðið sem mest opið, þannig að viðskiptamenn hefðu sem bezta aðstöðu til að kynna sér bækur og blöð, en hann lagði mikla áherzlu á að hafa sem fjölbreyttast úrval erlendra bóka og blaða og ein- skorðaði sig engan veginn við Danmörku í þeim efnum eins og algengt var á þeirri tíð. Þarna voru þægilegir stólar, og gátu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.