Morgunblaðið - 16.05.1985, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1985
>
verðmæta sem standa undir þörfum einstaklinga og fjölskyldna.
Eru þér ljós þau áhrif sem skyndilegt fráfall þitt myndi hafa á
stöðu þinna nánustu?
Verðtryggð líftrygging veitir fjölskyldu þinni vernd gegn fjár-
hagslegum áföllum við óvænt fráfall þitt.
Við bjóðum verðtryggingu allt tryggingartímabilið svo líftrygging-
in heldur ætíð verðgildi sínu.
Verðtryggða líftryggingu er hægt að taka annaðhvort sem
einstaklingstryggingu, eða fyrir tvo eða fleiri aðila sem bera
fjárhagsiega ábyrgð sameiginlega.
Hafðu samband við tryggingaráðgjafa okkar - þeir veita allar
frekari upplýsingar.
M'líftrygging
GACNKVtMT TKVCGINGA/ÍIAG
BRUNABÓTAFÉLAG iSLANDS
Skrifstofur. Laugavcgur 103 105 Reykjavík Sími 91 26055 UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
»
Þeir James Garner og John Lithgow í hlutverkum sínum í myndinni
Skuggahliðar Hollywood.
Bak við
stjörnuglitrið
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn: Skuggahliðar Holly-
wood.
Leikstjóri, framleiðandi og höf-
undur tónlistar: Stuart Margolin.
Handrit: Stanley Kallis, byggt á
samnefndri skáldsögu Joseph
Wambaugh. Kvikmyndataka:
Michael Watkins, Eastman-litir,
Widescreen. Aðalhlutverk: James
Garner, John I.ithgow, Margot
Kidder, Coleen Dewhurst, Paul
Koslo, John Marley, Stuart Marg-
olin.
Joseph Wambaugh hefur fyrir
löngu hlotið heimsfrægð fyrir
metsölubækur sínar um endal-
ausa baráttu lögreglu og glæpal-
ýðs Los Angeles-borgar. Hann er
öllum hnútum kunnugur, þar
sem maðurinn starfaði sjálfur
yfir áratug sem liðsforingi við
morðdeild lögreglu borgarinnar.
Því hafa sögur hans yfir sér
beinskeytt raunsæi sem heldur
athygli lesandans í fjötrum.
Wambaugh á jafn auðvelt með
að lýsa hinum skoplegu, og þá
gjarnan grátbroslegu hliðum
starfsins og hinum harðneskju-
legri og átakanlegri. Það fer
aldrei á milli mála að hér heldur
maður á penna sem sjálfur hefur
þrætt þessar götur lasta og
glæpa, staðið sjálfur í eldlín-
unni, með eyru og augu opin.
Bækur hans hafa svo fengið
misjafna útreið í kvikmyndab-
úningnum, sjálfur er Wambaugh
aðeins ánægður með myndina
The Onion Field.
The Glitter Dome — Skugga-
hliðar Hollywood, nær sér aldrei
uppúr meðalmennskunni, enda
er hún ekki gerð af sjáanlegri
metnaðargirni, að auki er hér
um að ræða mynd gerða fyrir
sjónvarpið vestra. En eins og svo
oft hefur gerst áður þegar slíkar
myndir slá í gegn á skjánum,
hafa framleiðendurnir gert sýn-
ingareintök fyrir kvikmyndahús
á utanlandsmarkaði.
Lögreglumennirnir Garner og
Lithgow eru fengnir til að kom-
ast til botns í morðmáli eins
kvikmyndajöfursins í Holly-
wood. Þeim gengur illa að finna
nokkra þræði til að rekja en þeg-
ar þeir loks eru orðnir heitir,
kemur margt miður geðslegt í
ljós bak við stjörnuskinið.
Inn í Skuggahliðar Hollywood
fléttast margvíslegar aukaper-
sónur og hliðarsögur. Af gamal-
kunnu raunsæi lýsir Wambaugh
hinum miskunnarlausu niður-
rifsöflum sem tæta í sig íbúa
borgarinnar, ekki síst þá lög-
reglumenn sem til hafa að bera
mannlegar tilfinningar og með-
höndla samborgara sem slíkir.
Þetta kemst þokkalega í gegn í
myndinni. Lithgow, sem virðist
ekki þurfa að kvarta yfir at-
vinnuleysi um þessar mundir,
nær hinum þunglynda og trúaða
Marty Welborn með svipuðum
ágætum og hann hefur skilað
öðrum hlutverkum á stuttum og
afkastamiklum ferli. Garner er
frambærilegur í hinu aðalhlut-
verkinu. Kidder fær einfaldlega
ekki úr nógu að moða.
Höfuðpaur Skuggahliðanna er
Stuart Margolin, allkunnur sjón-
varpsmyndaframleiðandi, sem
hér lætur ekki deigan síga;
leikstýrir, semur tónlistina og
fer með eitt stærri hlutverk-
anna, auk þess að sjá um fjár-
málin. En allt kemur fyrir ekki.
Myndin geldur uppruna síns, út-
koman er svipuð og Hill Street
Blues á góðum degi.
niö sumri með sumartískunni frá
dagana 17.-25. maí stenduryfir vikukynning á fatnaði frá
Marks & Spencer í kaupfélögum víða um land.
I Reykjavík býður Mikligarður, Torgið, Herraríkið og Domus Marks & Spencer getraun verður í gangi á kynningarvikunni.
fatnað frá Marks & Spencer Vinningur: Vikuferð til London fyrir tvo.
**£ AUGLVStNOADEILD SAMBANOSINS