Morgunblaðið - 16.05.1985, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985
TÓNABÍÓ
S(mi 31182
Borgarmörkin
(City Limits)
Æsispennandi, ný amerísk litmynd er fjailar um
„gengi“ unglinga. Annars vegar eru Snarfarar og hins
vegar DA. Þeir hafa skipt borginni á milli sin og
dregiö skýr mörk á milli yfirráöasvæöa.
Aöalhlutverk: Darell Larson, John Stockwell.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuö innan 14 ára.
Sídustu sýningar á „Gæjum og píum“
85. sýningin á söngleiknum „Gæj-
ar og píur,“ eftir Frank Loesser, Jo
Swerling og Abe Burrows, verður í
Þjóðleikhúsinu að kvöldi uppstign-
ingardags og er það jafnframt næst-
síðasta sýningin á þessu vinsæla
verki. Síðasta sýningin verður föstu-
daginn 17. maí. Gæjar og píur verður
ekki á dagskrá Þjóðleikhússins á
næsta leikári.
Fjöldi áhorfenda er farinn að
nálgast 50.000, en aðeins ein upp-
færsla Þjóðleikhússins önnur hef-
ur fengið meiri aðsókn. Það var
söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu
á sinum tíma en rösklega 50.000
áhorfendur sáu þá sýningu.
Leikstjórar söngleiksins eru
Kenn Oldfield og Benedikt Árna-
son, en þeir vinna nú saman á ný
við að setja upp söngleikinn Chic-
ago, sem frumsýndur verður síðar
í þessum mánuði. Flosi ólafsson
þýddi Gæja og píur, en hann hefur
einnig þýtt nýja söngleikinn Chic-
ago. Leikmynd fyrir Gæja og píur
gerði Sigurjón Jóhannsson og Una
Collins gerði búninga. Með helstu
hlutverk fara Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Egill Olafsson, Sigríð-
ur Þorvaldsdóttir, Bessi Bjarna-
son, Sigurður Sigurjónsson, Flosi
ólafsson o.fl.
Sölutjöid 17. júní 1985 í
Reykjavík.
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátiðardaginn 17.
júní 1985 vinsamlegast vitjiö umsóknareyðublaða að Fríkirkjuvegi 11,
opið kl. 08.20 - 16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því aö þeir þurfa að afla viðurkenningar
Heilbrigöiseftirlits Reykjavikursvæöis á sölutjöldum og leyfi þess til
sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilað í síöasta lagi þriðjudaginn 4. júní kl. 16.15.
ÆSKULÝÐSRÁÐ
REYKJAVÍKUR
Fríkirkjuvegi 11
Harmónikutónleik-
ar í Háskólabíói
Fjáröflunartónleikar fyrir félags-
heimili tónlistarmanna verða haldnir
18. maí kl. 2.00 í Háskólabíói.
„Ákveðið hefur verið að Félag
harmonikuunnenda taki þátt í upp-
byggingu félagsheimilisins, en hús-
næðisþörfin er brýn fyrir æfingar
og félagsstarfsemi enda félagið i
stöðugri sókn. Tuttugu manna
hljómsveit félagsins mun koma
fram á þessum tónleikum ásamt
fjölmörgum öðrum listamönnum,"
segir í frétt frá félaginu.
Big band Svansins, Blásarakvint-
ett Reykjavíkur, Félag íslenskra
tónlistarmanna, Jasskvartett
Kristjáns Magnússonar, Félag ís-
lenskra leikara, óperudeild,
Kvæðamannfélagið Iðunn, Musica
Nova, Nýja strengjasveitin og Kór
íslensku óperunnar.
Kynnir verður Jón Stefánsson.
Tónleikarnir hafa hlotið nafnið
Vorblót ’85 og verður efnisskráin
létt og fjölbreytt, segir ennfremur.
Þýsk furusófasett
Höfum einnig aðrar gerðir af furusettum. Verð frá
staögr. 16.500 og sófaborð frá kr. 3.850.
Opid á föstudag til kl. 7 og
laugardag til kl. 4.
Tilvalin í sumarbústaðinn
Furusett sem nota má sem tveggja-manna rúm. Verð á
þriggja-sæta sófa og tveim stólum. Staögr. 21.700.
G.Á. Húsgögn Skeifar 8. Sím 39595.
BARNAÖRYGGI
Bömunum er óhætt í baði
þarsem hitastillta Danfoss
baðblöndunartækið gætir
rótta hitastigsins. Á því er
öryggi gegn of heitu vatni.
Kannaðu aðra kosti Dan-
foss og verðið kemur þér á
óvart.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2.SIMI 24260