Morgunblaðið - 16.05.1985, Side 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1985
„Vitum að leikurinn
j* verður mjög erfiður*
— segir landsliösþjálfari Skotlands, Jock Stein
íim
I
$ < ❖
. 4 4 J
Ferðaklúbburinn 4x4
stendur fyrir sýningu á:
• 30-50 stórkosttegum ferða-
bílum
• Aukahlutum frá Bílabúð
Benna, t.d. rafmagnsspil,
driflæsingar, dekk, Ranco
demparar og fjaðrir o.fl. o.fl.
• Vídeomyndum af torfæru-
akstri.
í Austurbæjarskóla-
* portinu n.k. sunnudag
frá kl. 10.00 til 20.00
Aðgangseyrir:
100 kr. fyrir fullorðna
50 kr. fyrir börn
&
ym
Vaðntlic?685825
„ÞAÐ er auðvitað mjög slæmt
aö missa Líverpool leikmenn-
ina, Hansen, Dalglish, Wark og
Nicol. Þeir geta ekki leikið með
okkur vegna þess að þeir leika
til úrslita í Evrópukeppni
meistaraliða daginn eftir. Við
höfum hinsvegar nóg af góðum
leikmönnum og lið okkar hefur
sjaldan eöa aldrei verið betra.
Við vitum líka að leikurinn gegn
íslendingum verður erfiður. Þar
Skíðaverðlaun
afhent í kvöld
Verölaunaafhending tyrir
Reykjavíkurmótið á skíöum verð-
ur í Víkingsheimilinu viö Hæðar-
garð í kvöld, 16. maí, klukkan
20.30.
Einnig veröa veitt verölaun
fyrir firmakeppni og tvíkeppni,
sem haldin var í Bláfjöllum. Verö-
launahafar eru beðnír að mæta
vel og tímanlega.
(Fréttatilfc. trá SkiéwéM R«yk(avfkur)
getur svo margt spilað inní.
Veðrið, völlurinn og fleira. Það
er engin hætta á því að við van-
metum íslenska liðið. Við vitum
að í því eru sterkir leikmenn,
sem geta gert góöa hluti. Og
við uröum að leika mjög vel í
Glasgow þegar okkur tókst að
sigra, 3—0. Þá átti skoska liðið
toppleik. Knattspyrnan er óút-
reiknanleg og óvænt úrslit
gætu séð dagsins Ijós í Reykja-
vík,“ sagði skoski landsliðs-
þjálfarinn Jock Stein um lands-
leik Skota og íslendinga 28.
maí.
„Það er okkur tilhlökkunar-
efni að koma til islands. Viö vit-
um að þar er mikill knatt-
spyrnuáhugi og ég hef sjálfur
haft þá ánægju að kynnast góö-
um íslenskum knattspyrnu-
mönnum. Ég bið að heilsa „Big
• Þjálfari skoska landsliðsins,
Stein. Við vanmetum ekki is-
lenska liöið, segir hann.
Shuggie“ (Jóhannesi Eðvalds-
syni),“ sagði Stein. En Jóhann-
es lék lengi undir hans stjórn
hjá Celtic.
Kappa
Nú kynnum viö hinar vinsælu Kappa-vörur
Bikarínn
Skoittvordusitg 14. stmt 24520
Útsölustaöir: Sporthlaöan ísafiröi og Sporthúsiö Akureyri.
Skotinn lan Ross, sem þjálfar
Valsmenn, hefur gefið Skotum
þær upplýsingar að leikurinn
hér geti reynst þeim erfiöur. lan
segir í spjalli við skosk blöö að
völlurinn sé frekar lítill í
Reykjavík og ekki mjög góöur.
Þá geti veörið haft sín áhrif.
Þaö hefur verið mikið fjallaö
um leikinn í Skotlandi enda er
hann mjög mikilvægur og
Skotar verða að sigra ef þeir
ætla sér efsta sætið í riðlinum.
— ÞR.
1. deildin:
Þrír leikir
á föstudag
LEIKUR Vals og Þróttar í annarri
umferð 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu verður á föstudagskvöldiö
— ekki á laugardag eins og á að
vera skv. mótaskrá. Ástæöan er
bein útsendíng í sjónvarpinu á
laugardag frá úrslitaleik ensku
bikarkeppninnar.
Leikurinn hefst kl. 20 á föstu-
dagskvöldiö. Ekki er ákveöiö
hvort leikiö verður á Valbjarnar-
velli eða að Hlíðarenda.
Á föstudagskvöld eru tveir
leikir til viðbótar í 1. deild: ÍA fær
nýliða Víðis í heimsókn á Akra-
nes og FH-ingar, hinir nýliöar
deildarinnar, leika á Kaplakrika-
velli gegn KR. Allir leikirnir hefj-
ast kl. 20.
Erlingur
hljóp 800 á
1:54,1 mín.
ERLINGUR Jóhannsson hlaupari
úr UBK, landsliösmaður í sprett-
hlaupum, tók þátt í 800 metra
hlaupi í fyrrakvöld í Osló og byrj-
aði þar vel, hljóp á 1:54,1 mínútu.
Hefur Erlingur ekki hlaupið þessa
vegalengd áður.
— Ég vissi ekkert hvernig ég
átti að haga mér, þar sem þetta
var mitt fyrsta 800 metra hlaup.
Var síöastur eftir fyrri hringinn,
millitíminn 56 sekúndur. Á seinni
hring fór óg fram úr þremur hlaup-
urum og varö í þriöja sæti. Mér
finnst ég eiga meira inni og hleyp
800 metra aftur áöur en langt um
líöur,“ sagöi Erlingur í samtali viö
Mbl.
Erlingur sagöist hafa æft mjög
vel í vetur og býst viö framförum í
sumar. Þjálfari hans er Breti, sem
norska frjálsíþróttasambandiö réö
í haust til aö rífa upp árangur
spretthlaupara sinna. „Mér líkar
stórvel hjá þessum þjálfara og
verö hér ytra meira og minna í allt
sumar til aö ná sem mestu út úr
æfingunum. Æfingarnar eru þann-
ig upp byggöar aö ég verö á toppi
þegar kemur fram á sumar. Ég
hleyp aftur 800 metra eftir 2—3
vikur. Þjálfarinn segir mig eiga
meiri möguleika í 400 og 800,
heldur en 200 og 400 metrum,"
sagöi Erlingur.
Erlingur stundar nám viö norska
íþróttaháskólann. Hann náói sín-
um bezta árangri í 400 metrum í
fyrra, hljóp á 49,09 sekúndum.