Morgunblaðið - 16.05.1985, Qupperneq 72
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Bjórinn í neðri deild:
Samþykktur
með 25:14
atkvæðum
MEGINGREIN svokallaós bjórfnim-
varps, sem heimilar bruggun, inn-
flutning og sölu medalsterks öls,
4—5% aó rúmmáli, var samþykkt (
neöri deild Alþingis í gær, eftir aðra
umraeðu ( þingdeildinni og að við-
höfðu nafnakalli, með 25 gegn 14 at-
kvæðum. Breytingartillaga þess efnis,
að frumvarpsgreinin komi ekki til
framkvæmda fyrr en hún hafi verið
staðfest ( þjóðaratkvæði, var felld,
einnig að viðböfðu nafnakalli, með 22
atkvæðum gegn 9 en 9 sátu hjá.
Frumvarpið gengur nú til þriðju
umræðu í þingdeildinni og síðan til
efri deildar þar sem það verður
rætt við þrjár umræður, auk um-
fjöllunar í þingnefnd.
Sjá nánar á þingsíðu Morgun-
blaðsins í dag, bls. 40.
Húsnæðislánakerfíð:
750 millj. vantar svo lán-
veitingar gangi eðlilega
UM 750 milljónir króna vantar í hú.snæðislánakerfið á þessu ári svo
lánveitingar í ár geti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti, að mati
sérfræðinga Húsnæðisstofnunar ríkisins, skv. upplýsingum, sem Mbl.
hefur aflað sér.
Áfengi í 84
ávaxtadósum
VIÐ LEIT um borð í Álafossi, sem
kom til landsins á þriðjudag, fundu
tollverðir áfengi í 84 dósum, sem
merktar voru sem ávaxtadósir. Hver
dós innihélt 0,9 lítra af vodka. Tveir
skipverjar hafa viðurkennt að eiga
góssið. Dósirnar voru í íbúðum skip-
verja, enda heimilt að flytja inn niður-
soðna ávexti.
Skipverjarnir höfðu sett áfengi í
dósirnar og lokað með þartilgerðum
tækjum, þannig að ekki sást að við
dósirnar hefði verið átt. Síðan voru
dósirnar merktar hinum ýmsu
ávaxtategundum, svo sem ananas,
jarðarberjum eða blönduðum
ávöxtum, svo eitthvað sé nefnt.
Smygl á áfengi með þessum hætti
hefur ekki orðið uppvíst áður hér á
landi.
Morgunblaðið/Júlfus
Hluti góssins. Alls var áfengi sett á 84
dósir sem síðan voru merktar hinum
ýmsu ávaxtategundum.
Enn er ekki ljóst hversu mikið
fé stofnunin fær til húsnæðislána
í ár, en ólíklegt er talið að það
verði nema um 300 milljónir
króna, skv. upplýsingum Mbl.
Ákvörðun um það verður væntan-
lega tekin í næstu viku, þegar
fjárhags- og viðskiptanefnd neðri
deildar Alþingis afgreiðir frá sér
lánsfjárlög.
Talan 750 milljónir er miðuð við
að um eitt þúsund íbúðir verði
fokheldar á þessu ári, að því er
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra sagði i samtali við blaða-
mann Mbl. í gær. JLánsfjáráætlun
gerir ráð fyrir að 1.790 milljónir
fari til húsnæðislána á þessu ári,“
sagði hann. „Til viðbótar vantar
um 300 milljónir til að mæta
væntanlegri skerðingu á tekjum
byggingasjóðs vegna greiðslujöfn-
unarinnar, sem verið er að ganga
frá í þinginu."
Ráðherrann sagði það ljóst, að
hafnar hefðu verið framkvæmdir í
mun stærri stíl en húsnæðismála-
stjórn hefði gert ráð fyrir. Fok-
heldar íbúðir á síðasta ári hefðu
verið allt að 100% fleiri en ráð
hafði verið fyrir gert. Hann sagði
að á tímabilinu mars til maí á
þessu ári hafa verið að koma fram
fokheldisvottorð, sem ekki var vit-
að um á síðasta ári, enda væru hús
nú gerð fokheld á mun skemmri
tíma en áður.
Alexander Stefánsson kvaðst
gera ráð fyrir að fengjust þær 300
milljónir til viðbótar, sem hann
nefndi, þannig að heildarfjármagn
til húsnæðismála á þessu ári yrði
um 2,1 milljarður króna, „þá verð-
ur það fullnægjandi, þótt aukning-
in verði mikil,“ sagði hann. „I rík-
isstjórninni og milli stjórnar-
flokkanna er fullt samkomulag
um að húsnæðismálin skuli vera
númer eitt og hafa fullan for-
gang.“
'Banaslys í Borgarfirði
í blíóviðrinu í gær þótti þessum hóp í Æfingastöðinni ( Engihjalla í Kópavogi ástæðulaust að æfa leikflmi innanhúss. Hópurinn brá sér því út í
sólskinið með Jónínu Benediktsdóttur í broddi fylkingar og gerði þar æflngar sínar undir berum himni.
Sumarskap í sumarveðri
Blíðskaparveður var um allt land í gær, og tóku margir fram sumar-
fötin og skapið. Á hádegi var léttskýjað í Reykjavík, og 10 stiga hiti. Á
Akureyri var hitinn 13 stig, 9 stig á Egilsstöðum, og á Galtarvita var 14
stiga hiti. Hæst fór hitinn í 18,7 stig á Staðarhóli ( gær.
I dag er búist við björtu og hlýju veðri um mest allt land. Við
suðurströndina verður austanátt og stinningskaldi, og þykknað
gæti upp suðaustan til þegar líða fer á daginn. Annars staðar
verður hægari vindur og hitinn getur farið upp í 18 stig inn til
landsins, að sögn veðurstofunnar.
Spáin fyrir föstudag og laugardag gerir ráð fyrir austan og
suðaustan golu, skýjað verður á Suðaustur- og Austurlandi, en víða
léttskýjað. Hitinn verður í kringum 12—14 stig. Það er því lítil
ástæða fyrir landsmenn að skipta um föt eða skap á næstunni.
AKUREYRINGUR á fertugs-
aldri lést í bílslysi í Norður-
árdal í Borgarfirði síðdegis í
gær er bfll, sem hann var í
ásamt fjórum öðrum, fór út
af veginum við brú skammt
ofan við bæinn Hvamm.
Tveir aðrir í bílnum slösuð-
ust talsvert og voru fluttir með
þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík.
Slysið varð laust fyrir kl. 18 í
gær. Bíllinn frá Akureyri var á
leið til Reykjavíkur þegar hann
fór út af við brúna yfir Litluá.
Lenti bíllinn á hvolfi neðan við
brúna.
Ekki er hægt að skýra frá
nafni hins látna að svo stöddu.
MorgunblaðiS/Július
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang í Norðurárdal og er myndin
tekin við komu þyrlunnar að Borgarsjúkrahúsinu.
Birting afmælisgreina
í FORYSTUGREIN Morgunblaðsins í dag er frá því skýrt, að blaðið
muni frá næstu mánaðamótum ekki birta afmælisgreinar um flmmtugt
og sextugt fólk í því formi sem tíðkast hefur hingað til. Frá og með
næstu mánaðamótum er Morgunblaðið tilbúið til að birta mynd af
afmælisbarni, sem á 50 eða 60 ára afmæli ásamt stuttum texta, sem
birta má undir nafni eða upphafsstöfum. Hins vegar er Morgunblaðið
eftir sem áður reiðubúið að birta afmælisgreinar um sjötugt fólk og
eldra.
í forystugrein Morgunblaðsins
í dag segir m.a. um þetta:
„... skoðanir hafa alltaf verið
skiptar um það, hvort eðlilegt sé
að birta afmælisgreinar um til-
tölulega ungt fólk ... Með þeim
þjóðlífsbreytingum, sem hafa
orðið og hér hafa verið raktar er
það skoðun Morgunblaðsins, að
það sé í raun jafn fráleitt að
skrifa afmælisgreinar um fimm-
tugt fólk og jafnvel sextugt, eins
og ef menn tækju upp á því að
skrifa afmælisgreinar í tilefni af
þrítugs- og fertugsafmælum."
Sjá forystugrein á miðopnu.