Morgunblaðið - 20.06.1985, Page 1
72 SIÐUR
B
STOFNAÐ 1913
136. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flugstjóri bandarísku þotunnar í Beirút:
Varar við að
valdi sé beitt
Beirút, W aHhington, 19. júní. AP.
KHKÍSTJÚkl bandarísku farþegaþotunnar á Beirút-flugvelli vararti í dag við
tilraunum til að frelsa gíslana með hervaldi og sagði, að það yrði aðeins til þess
að þeir yrðu drepnir. Talsmaður Keagans, Bandaríkjaforseta, sagði í dag að
verið vsri „að vinna að ýmsu, sem vonandi ber góðan árangur".
„Það eru margir menn í flugvél-
inni og það er ekkert skynsamlegra
nú en áður aö beita hervaldi til að
frelsa gíslana," sagði John L. Testr-
ake, flugstjóri bandarísku þotunn-
ar, í viðtali um talstöð við frétta-
mann AP-fréttastofunnar. Augljóst
þykir, að Testrake hafi ekki átt við
gislana þegar hann talaði um
marga menn, heldur mannræningj-
ana, sem upphaflega voru tveir en
eru nú líklega tíu alls um borð.
Líbanon:
Sprengja
banar 31
Beirút, 19. júní. AP.
BÍLSPRENGJA sprakk í
kvöld fyrir utan verslun í
hafnarborginni Tripólí í
Norður-Líbanon og hermdu
fyrstu fregnir, að 31 maður
hefði látið lífið og rúmlega 50
slasast.
Testrake sagði að allir farþegarnir
hefðu verið fluttir frá borði á
sunnudagskvöld en ekki er vitað
hvort einhverjir úr áhöfninni eru
meðal þeirra.
Larry Speakes, talsmaður Reag-
ans, Bandarikjaforseta, sagði í dag,
að verið væri að „vinna að ýmsu,
sem vonandi ber góðan árangur".
Þegar á hann var gengið kvaðst
hann eiga við „viðræður á bak við
tjöldin" og vildi ekki skýra það nán-
ar. Reagan sagði í ræðu í dag, að
ekki yrði látið undan hryðju-
verkamönnunum, það yrði aðeins til
að ýta undir frekari hryðjuverk, en
hins vegar væri verið að reyna allt,
sem hægt væri, til að binda enda á
martröðina í Beirút.
Sjá fréttir um flugránið
á bls. 28 og 29.
Hugað að særðri konu í flugstöðinni í Frankfurt. Auk þeirra þriggja, sem létust, eru 42 slasaðir og þar af fjórir
___________ lífshættulega.
Þrír fórust og tugir slös-
uðust í mikilli sprengingu
Talið er, að á annað hundrað
kílóa af sprengiefni hafi verið í
bílnum, sem var af Volvo-gerð og
hafði verið lagt fyrir utan fjög-
urra hæða hús. Hrundi húsið til
grunna í sprengingunni en á
neðstu hæðinni var sælgætis-
verslun og margt manna þar sam-
an komið. Var slasað fólk og deyj-
andi flutt á sex sjúkrahús borgar-
innar og almenningur hvattur til
að gefa blóð. Þegar síðast fréttist
var ekkert vitað hverjir stóðu að
baki hryðjuverkinu.
nÉg sá húsið falla í rúst og fólk liggja eins og hráviði,“ segir Guðmundur
Olafsson, verkfræðingur, sem var sjónarvottur að atburðinum í Frankfurt
ÞKÍR létust og 42 slösuðust í gífurlegri sprengingu, sem varð í gær í farþegasal
fhigstöðvarinnar í Frankfurt í Vestur-Þýskalandi. Að sögn AP-fréttastofunnar
höfðu í kvöld engir lýst ódæðinu á hendur sér en skelfilegt var um að litast í
flugstöðinni eftir að sprengjan sprakk, blóð og tættur fatnaður, glerbrot og brak
úr innréttingunum. Einn íslendingur, úuðmundur Ólafsson, verkfræðingur, var
sjónarvottur að sprengingunni.
Karl-Heinz Wagner, talsmaður
lögreglunnar í Frankfurt, sagði, að
sprengjan, sem komið hafði verið
fyrir í ruslafötu, hefði sprungið rétt
við farmiðaklefana og hefði brak úr
þeim og gler úr gluggum dreifst um
allan salinn. Sært fólk og alblóðugt
hljóp æpandi um salinn og er haft
eftir vitnum, að skelfilegt hafi verið
um að litast. Fólkið, sem lést, eru
tvö börn og karlmaður en tvísýnt er
um líf fjögurra þeirra 42 sem slös-
uðust.
Danmörk:
Verulegar breytingar
á tekjuskattslögunum
Kaupmannaborn, IS. jnní. AP.
MIKIL og almenn samstaða var í gær á danska þinginu um verulegar
breytingar á tekjuskattslögunum en að því er stefnt, að skatthyrðin á árinu
1987 verði flestum Dönum öllu léttbærari en nú.
Poul Schlúter, forsætisráð-
herra, sagði, að samkomulagið
væri sögulegt og kvaðst því feg-
inn, að loksins hefði eitthvað ver-
ið hróflað við skattalögunum,
sem væru „rotin út í gegn“. Með
samkomulaginu, sem á að verða
að lögum á hausti komanda,
lækka skattarnir og einkum á
tekjulágu fólki og að auki verður
það ekki eins eftirsóknarvert og
áður að skulda. Efstu skattmörk-
in verða 68% af tekjum, sem eru
meiri en 760.000 ísl. kr., en af
lægri tekjum 47—50%. Nú eru
efstu skattmörk allt að 80%.
Þrátt fyrir samstöðuna á þingi
eru margir mjög óánægðir með
samkomulagið, cinkum talsmenn
ýmissa atvinnugreina. Frammá-
menn í iðnaði og veitingarekstri
segja, að afleiðingarnar muni
verða alvarlegar vegna þess, að
alls konar kostnaður verður ekki
frádráttarbær nema að hluta, og
margir hagfræðingar óttast, að
lægri skattar muni valda gífur-
lega aukinni neyslu meðal tekju-
lágs fólks. Það muni svo aftur
auka erlendar skuldir þjóðarinn-
ar. Schlúter er hins vegar bjart-
sýnn á nýja skattakerfið og segir,
að með því muni fólk ekki lengur
þurfa að „borga skuldir nágrann-
ans“.
Á þá Schlúter við þá reglu að
vextir séu frádráttarbærir en nú
verða þeir það aðeins að hálfu og
dregnir frá skattinum sjálfum.
ekki tekjunum. Gildir þetta einn-
ig um vaxtatekjur, sem verða þá
aðeins skattlagðar að hálfu. Til
að ýta undir framtakssama menn
verður aðeins helmingur hagnað-
ar einkafyrirtækja skattlagður.
Fæstir Danir geta enn gert sér
grein fyrir niðurstöðunum af
breytingunum. Tekjuskatturinn
mun að vísu minnka en svo verð-
ur líka með frádráttarliðina. Það
voru stjórnarflokkarnir ásamt
Radikale Venstre og jafnaðar-
mönnum, sem stóðu að breyting-
unum.
„Ég sá húsið falla í rúst og fólk
liggja eins og hráviði og forðaði
mér við svo búið út,“ sagði Guð-
mundur Ólafsson, verkfræðingur,
er blaðamaður Morgunblaðsins
náði tali af honum í Múnchen í
gærkveldi, en Guðmundur varð
sjónarvottur af því þegar sprengjan
sprakk í flugstöðinni á Frankfurt-
arflugvelli í gær.
Guðmundur var á leið frá
Frankfurt til Múnchen og var rétt
genginn inn i flugstöðina, þegar at-
burðurinn átti sér stað. „Ég var
nýgenginn inn í húsið,“ sagði Guð-
mundur, „og gekk inn í inngang
númer 2. Ef ég hefði gengið inn um
inngang númer 3, þá hefði ég senni-
lega lent í þessu.
Hávaðinn var svo gífurlegur, að
ég hef aldrei heyrt annað eins. Ég
var aiveg heyrnarlaus í talsverðan
tíma á eftir,“ sagði Guðmundur.
Sagðist Guðmundur telja að hann
hefði verið um 60 metra frá
sprengjusvæðinu. Framhlið bygg-
ingarinnar, sem er öll úr gleri, hefði
beinlínis hrunið á um 100 metra
kafla, „auk þess sem loftið kom
meira og minna niður,“ sagði Guð-
mundur.
Hann sagði að eðlilega hefði
myndast hálfgert móðursýkis-
ástand í byggingunni, fólk hefði
hlaupið æpandi fram og til baka.
Hann átti bókað flug frá Frankfurt
klukkustundu eftir að þetta gerðist,
og mest sagði hann að hefði komið
sér á óvart, í allri þessari óreiðu, að
engin seinkun varð á brottfarar-
tíma vélarinnar.