Morgunblaðið - 06.07.1985, Page 33

Morgunblaðið - 06.07.1985, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1985 33 Björn Sigurbjörnsson, framkyæmdastjóri Norðurlandsleika: „Furða míg mest á þeim krafti, sem í krökkunum býr“ — Mótsstjórnin í sjöunda himni með leikana Óhætt er að fullyrða að mikið hafí verið um dýrðir á Sauðárkróki — þórsarar." Aðspurðir hvort helgina 28.—30. júní sl. fbúum bæjarins fjölgaði um ein 50%, enda æska rígurinn væri raunverulega eins Norðurlands samankomin á þessum eina stað, til þess að eiga saman mikill og af er látið, milli þessa eftirminnilega stund og reyna með Norðurlandsleikum æskunnar 1985. Óneitanlega var það líka æði skrautleg sjón að sjá 1100 bros- andi börn þramma um götur bæjarins, undir merkjum heima- héraða sinna. Glaðværð þeirra og lífsfjör fengu útrás í ósam- stæðum hrópum og köllum, þar sem allir keppendur fundu sig knúna til að lofsyngja eigin heimabyggð og íþróttafélag. Eft- ir hátíðlega setningarathöfn var ekkert verið að tvínóna við hlut- ina, heldur athyglinni óskiptri beint að íþróttaviðureignum æskunnar. Keppnisskap og metnaður þátttakenda höfðu þvílík áhrif að fyrr en varði voru jafnvel hreinræktaðir borgarbú- ar farnir að hrópa hástöfum hvatningarorð út á leikvanginn — og skipti þá minnstu máli hvaða lið voru að keppa. Eins og oft vill verða, þegar ungmenni koma saman, var æði glatt á hjalla í svefnskálum krakkanna, langt fram eftir nóttu. Spenningur og tauga- óstyrkur gerðu það að verkum að það var ekki fyrr en undir morg- un, sem ró færðist yfir mann- skapinn. Ekki var þó að sjá að svefn- leysi háði þessum kátu ærsla- belgjum á laugardeginum, þegar keppni hófst. Á dagskrá var fjöldi leikja og viðureigna í knattspyrnu, frjálsum íþróttum, sundi, handbolta, skák, golfi, körfuknattleik og reiðhjóla- þrautum, svo dæmi séu nefnd. Var greinilegt að þátttakendur lögðu allt sem þeir gátu af mörk- um — staðráðnir í að gera sitt besta. Sú keppnisgrein, sem hvað mesta athygli vakti, var hið svokallaða „Hlaup æskunnar", sem Frjálsíþróttasamband ís- lands og rás 2 stóðu fyrir. Keppt var í 4 aldursflokkum beggja kynja og sá rás 2 um að ræsa keppendur á Sauðárkróki, Eg- ilsstöðum og í Reykjavík, sam- tímis. „Já, ég var mjög hissa á hvað mér gekk vel,“ sagði Soffía Lár- usdóttir, 9 ára Skagastrandar- mær og sigurvegari í hlaupi 9—10 ára stúlkna, er blm. innti hana eftir því hvort úrslitin hefðu komið henni á óvart. „Auðvitað er ég samt ofsalega ánægð með sigurinn," bætti hún við. „Ég æfi bæði hlaup og lang- stökk með USAH — og þó svo ég sé enn ekki farin að hugsa út í hvað ég ætla að verða, þegar ég verð stór, er ég alveg ákveðin í að halda áfram að æfa.“ Aðspurð kvaðst hún alla ævi hafa búið á Skagaströnd og gæti því ekki hugsað sér að flytja þaðan. „Þar er gífurlegur íþróttaáhugi," sagði Soffía, „og alltaf nóg við að vera. Til dæmis eru haldin alls konar námskeið þar á sumrin, og er ég einmitt á leikjanámskeiði, nú í sumar. Á veturna fer maður svo á skíði og skauta. Það er samt lítið sem ekkert um böll, fyrir minn aldurshóp, á Skaga- strönd, en mér er alveg sama um það. Sennilega færi ég ekki einu sinni á þannig samkomur, þó svo þær yrðu haldnar." Hlynur Heiðberg Konráðsson, frá Húsavík, bar sigur úr býtum sér í hinum ýmsu íþróttagreinum, á í hlaupi 11—12 ára drengja. „Já, blessuð vertu, ég er þaulvanur hlaupari," sagði Hlynur þegar blm. spurði hvort hann hefði áð- ur tekið þátt í svona keppni. „Ég hef t.d. unnið víðavangshlaupið á Húsavík sl. 3 ár,“ bætti hann við, sigri hrósandi. „Svo æfi ég líka fótbolta með Völsungi." Að- spurður hvort hlaupið hefði ekki verið neitt erfitt svaraði hann — eftir nokkurt hik: „Jú, ég verð nú að viðurkenna það, enda var keppnin bæði hörð og tvísýn." I 4.flokki í knattspyrnu var keppt í 4 riðlum og voru 4 lið í hverjum riðli. Við hittum fyrir nokkra kampakáta KA-stráka, þá Tómas Hermannsson, Jó- hannes Baldursson og Björn Sig- björnsson, sem höfðu rétt nýlok- ið við að vinna viðureign sína við íþróttafélagið Magna frá Greni- vík. „Þá eigum við bara eftir einn Ieik, við B-lið Þórs, til að komast í undanúrslitin," upplýstu þeir. „Við erum búnir að sigra bæði UMSE og Magna og erum nátt- úrlega ánægðir með það — en aðalandstæðingarnir eru þó eftir Sigurlaug Gunnaradóttir, Tinda stólL Soffía Lirusdóttir, USAH. tveggja Akureyrarliða, fullyrtu þeir að svo væri. „Samt er rígur- inn eingöngu bundinn við íþrótt- irnar,“ bættu þeir við. „Fyrir utan völlinn getum við verið ágætir vinir — eða þannig sko. Og við viðurkennum t.d. alveg að A-lið Þórs er okkar helsti and- stæðingur. Það er nokkuð gott“. Þeir kváðust allir hafa mikinn áhuga á íþróttum, sögðust stað- ráðnir í að halda áfram að æfa — en skelltu bara upp úr er blm. spurði hvort þeir hygðust stefna að atvinnumennsku. Félagarnir voru sammála um að svona mót væri mjög skemmtilegt, en fannst þó fjöldi keppenda of mikill. „Svona mót á að halda á Akureyri,“ sagði Jó- hannes, „þar eru í það minnsta 3 grasvellir." Einnig kváðust þeir mjög óhressir með þá ákvörðun yfirmanna KA, að krakkarnir mættu aðeins hafa með sér 200 krónur á mótið — og að farar- stjórarnir skömmtuðu þeim svo 100 krónur á dag. Sögðu þeir þetta gert til að allir yrðu jafnir — en þetta væri bara allt of lítið. Þegar hér var komið sögu fóru strákarnir að ókyrrast, enda stutt í að viðureign þeirra við Hlynur Heióberg Konráðsson, Húsavík. „Ég sagðist ætla að vinna — og mér tókst það.“ Bjarni Gaukur Sigurðsson, Blönduósi. Björn Sigurbjörnsson, framkvsmdastjóri Norðurlandsleika, ávarpar mótsgesti. Sigurvissir og skælbrosandi. Tómas, Jóhannes og Björn. B-lið Þórs hæfist. „I rauninni er- um við eiginlega allt of bjart- sýnir," sögðu þeir, er blm. spurði þá hvernig leikurinn legðist í þá; og með það hlupu þeir í burtu, til að hita upp fyrir leikinn. Síðla dags á sunnudag kom þó í ljós að þeir höfðu haft allan rétt á bjartsýni sinni — hrepptu efsta sætið í 4. flokki. Endanleg úrslit réðust svo á sunnudeginum. Sigurlaug Gunn- arsdóttir, Tindastóli, fór með sigur af hólmi í hástökki 11—12 ára stúlkna. „Nei, þessu átti ég sko ekki von á,“ sagði hún. „Ég er bara 11 ára og var alveg viss um að einhver af stóru stelpun- um myndi vinna þetta.“ Aðspurð kvaðst hún æfa þrisvar í viku frjálsar íþróttir og væru þar há- stökk, langstökk og spretthlaup í mestu uppáhaldi hjá henni. „Ég hef einu sinni keppt í Reykja- vík,“ bætti hún við, „og þá lenti ég í 3. sæti.“ Er Sigurlaug var spurð hvort mikill íþróttaáhugi væri í fjölskyldu hennar svaraði hún: „Nei, ekkert sérstaklega..Þó keppti bróðir minn til dæmis í fótbolta, þegar hann var ungur, en hann er orðinn 20 ára núna og er löngu hættur.“ Það var einstaklega gaman að fylgjast með sigri Bjarna Gauks Sigurðssonar frá Blönduósi, svo geysilega glaður varð hann, þeg- ar ljóst var að hann hefði sigrað í 60 metra hlaupi 9—10 ára drengja. „Já, ég er sko alveg í skýjun- um,“ sagði Bjarni, er blm. náði loks tali af honum, eftir að hafa horft á hann hringsnúast um sjálfan sig dágóða stund, af ein- skærri kátínu. „Sjáðu til, ég var búinn að segjast ætla að vinna til verðlauna, í öllum þeim grein- um frjálsra íþrótta, sem ég tæki þátt í — og nú er ég búinn að því. Ég varð líka í 1. sæti í 800 metra hlaupinu og í langstökki og svo fékk ég silfrið í hástökkinu. Svo það er kannske ekkert skrýtið, þó svo ég sé svolítið ánægður," bætti hann við og brosti út að eyrum. Aðspurður kvaðst hann hafa óhemju áhuga á íþróttum, æfa 6 sinnum í viku frjálsar og 2 sinnum fótbolta, auk þess sem hann stundar svo sund. „Það fer líka allur tími minn í þetta,“ sagði Bjarni, „en maður verður að æfa, sérstaklega þegar maður stefnir að því að verða atvinnu- maður, eins og ég geri. Fjöl- skyldan mín er líka öll á kafi f íþróttum — karlleggurinn þó meira en kvenþjóðin." „Það er búið að vera alveg frábært á þessum Ieikum,“ bætti hann við. „Reyndar er maður búinn að sofa heldur lítið, en það gerir nú minnst til — ég er alveg hæst- ánægður með þetta mót,“ sagði Bjarni Gaukur að lokum. Norðurlandsleikum æskunnar 1985 var slitið kl. 16.30 við sund- laugina, að viðstöddu fjölmenni. „Við í mótsstjórninni erum af- skaplega ánægðir með þessa leika," sagði Björn Sigurbjörns- son, framkvæmdastjóri leik- anna, er blm. innti hann eftir því hvernig mótið hefði gengið, frá hans bæjardyrum séð. „Þátttak- an var mun betri en við gerðum ráð fyrir í upphafi — og satt best að segja, þá óttuðumst við að við hefðum ef til vill færst of mikið í fang með þessu fjöl- menna móti. Raunin varð hins- vegar sú, að krakkarnir stóðu sig eins og hetjur. Engin meiri hátt- ar vandræði eða slys komu upp. Má til gamans geta þess, að á laugardeginum leituðu 2 ein- staklingar til björgunarsveitar- innar, sem séð hefur um slysa- vörslu á svæðinu, og var annar sjúklinganna úr mótsstjórn- inni,“ sagði Björn. „Við vorum staðráðnir í því að gera þetta mót að móti krakk- anna — og það tókst vonum framar. Þau hafa hegðað sér ein- staklega vel, verið kát og glöð og áhugasöm með ólíkindum. Ég hef unnið með ungu fólki i 17 ár — er einn af þeim heppnu, sem tekist hefur að sameina áhuga- mál mitt starfinu — og það, sem ég furða mig alltaf mest á er þessi óþrjótandi kraftur, sem í krökkunum býr,“ sagði Björn. „Annars er það ekki síst frábæru starfsliði og starfsmannastjór- um að þakka, hversu vel leikarn- ir hafa gengið fyrir sig,“ bætti hann við. „Auðvitað er svona mót mjög kostnaðarsamt," sagði Björn er hann var spurður um fjár- hagshlið málanna. „Þó er ég ekki í vafa um að leikarnir hafi verið góð auglýsing fyrir bæinn — og að keppendurnir komi til með að eiga héðan góðar endurminn- ingar, sem ýtir undir að þeir sæki bæinn heim, einhvern tím- ann 1 framtíðinni," sagði Björn Sigurbjörnsson, framkvæmda- stjóri Norðurlandsleika æskunn- ar 1985. Aðspurður kvaðst Björn þó að vissu leyti feginn að mótið væri yfirstaðið og hann hefði nú loks tima til að huga dálítið að fjöl- skyldu sinni, sem setið hefði á hakanum allt of lengi. 1AA Jt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.