Morgunblaðið - 26.07.1985, Síða 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
165. tbl. 72. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1985________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
GOÐAR UPPSKERUHORFUR
Morgunbladid/Sig. Sigm.
íslenskt grænmeti er nú sem óðast að koma á markað. Uppskeruhorfur eru sagðar góðar. Hér má sjá Sigurð Tómasson, reyndan
garðyrkjubónda, á Hverabakka í Hrunamannahreppi, í matjurtagarði sínum.
Tökin hert í Póllandi:
Háskólarnir sviptir
mikilvægum réttindum
Verkamönnum bannað að hafa nema eitt verkalýðsfélag
Lítils háttar
lækkun á olíu-
verði OPEC-
ríkjanna
Mikil óeining ein-
kenndi fundinn f Genf
Genf, 25. júlí. AP.
SAUDI-ARABÍA knúði í dag
fram lítilsháttar lækkun á olíu-
verði OPEC-ríkjanna. Nemur
lækkunin annars vegar 50 sent-
um og hins vegar 20 sentum á
hverja olíutunnu, eftir því í
hvaða gæðaflokki olían er. Verð-
ur verð á olíu af bezta gæða-
flokki þannig 28 dollarar hver
tunna, en 27,20 dollarar og 26
dollarar á lakari gæðaflokkum.
Markmiðið með verðlækkuninni
var að jafna ágreininginn milli að-
ildarríkjanna og auka eftirspurn
eftir olíu. Ekki er þó talið líklegt,
að þessum markmiðum verði náð
að svo stöddu. íran, Líbýa og Alsír
greiddu atkvæði gegn lækkuninni,
þannig að ljóst er, að mikill
ágreiningur er eftir sem áður á
meðal aðildarríkjanna. Þá eru litl-
ar horfur á aukinni eftirspurn eft-
ir olíu á næstunni og jafnvel líkur
á því, að olíuverð muni enn fara
lækkandi í heiminum.
Það er talið táknrænt um
ástandið, að olíuframleiðsla
Saudi-Arabíu er minni nú í sumar
en nokkru sinni undanfarin 20 ár.
Stjórnvöld þar í landi vonast þó
eftir mun meiri eftirspurn eftir
olíu með haustinu.
Þá þykir það bera glöggt vitni
þeirri óeiningu, sem nú ríkir innan
OPEC, hve langan tíma það tókst
að knýja fram svo óverulega lækk-
un á olíuverðinu og raun varð á.
Belkacem Nabi, olíumálaráðherra
Alsír, sagðist vera mjög ánægður
með þá ákvörðun, sem tekin var á
fundinum. „Ég skil ekki þessa
ákvörðun," sagði hann. „Hún þjón-
ar engum tilgangi. Það er kominn
tími til að OPEC leiti annarra
ráða en að lækka olíuverðið og
minnka framleiðsluna."
Varsjá. 25. maí. AP.
PÓLSKA þingið samþykkti í dag að
svipta háskóla í landinu mikilvægum
réttindum, sem þeir fengu á sínum
tíma vegna baráttu Samstöðu, sam-
taka óháðu verkalýösfélaganna í
landinu. Jafnframt samþykkti þingið
að banna verkamönnum að hafa
meira en eitt verkalýðsfélag í hverri
verksmiðju.
Ýmsir kunnir menntamenn í
Póllandi hafa gagnrýnt breyt-
ingarnar á skipulagi háskólanna
og sagt, að markmið stjórnvalda
með þeim væri greinilega að auka
vald kommúnistaflokksins yfir
háskólunum. Benda þeir á, að völd
menntamálaráðherra landsins
verða aukin verulega. Þannig fær
hann vald til að reka þá kennara
úr starfi, sem ekki styðja og kenna
hugmyndafræði kommúnista.
Þá er það ljóst, að nú á enn að
auka áhrif verkalýðssambands
þess, sem stjórnvöld komu á fót á
sínum tíma til að keppa við Sam-
stöðu. Þessu verkalýðssambandi
er þannig í framtíðinni ætlað að
ráða að verulegu leyti úthlutun á
íbúðum og orlofsstyrkjum til
verkamanna og er talið víst, að
þar verði meðlimum Samstöðu
mismunað.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
hefur harðlega gagnrýnt þessar
aðgerðir og sagt, að með þeim
væri verið að afnema það, sem eft-
ir væri af þeim réttindum, er
verkamenn knúðu fram í ágúst
1980. Þá viðurkenndu pólsk stjórn-
völd Samstöðu sem óháð verka-
lýðssamtök. Var það 1 fyrsta sinn,
sem slíkt hafði átt sér stað á með-
al kommúnistaríkja Austur-Evr-
ópu.
Gligoric
neitar að
dæma í
Moskvu
Belgrad, 25. júlí. AP.
Júgóslavncski stórmcistarinn Svet-
ozar Gligoric bióst undan því aö vera
dómari við einvígið um heimsmeist-
aratitilinn í skák, þegar Anatoly
Karpov og Garry Kasparov sctjast að
tafli á ný. Gligorir var aðaldómari
einvígis Karpovs og Kasparovs er
stöðvað var í febrúar sl.
Gligoric segist draga sig til baka
að kröfu áskorandans, Kasparovs.
Einvíginu var frestað eftir 48 skák-
ir, en þá var staðan 5-3 fyrir Karp-
ov. Karpov komst í 5-0, en Kasp-
arov minnkaði muninn og um það
leyti var einvíginu frestað að
ákvörðun Campomanesar forseta
PIDE. Mótmælti Kasparov frest-
uninni ákaft og sagði Gligoric hafa
dregið taum Karpovs.
„íbúar Eystrasaltsland-
anna eru annars flokks
þegnar í sínu eigin landi'
Eystrasaltsréttarhöldin hófust í Kaupmannahöfn í gær
Kaupmannahofn. 25. júll. AF.
IITLAGAK frá Kystrasaltslöndunum byrjuðu í dag að gefa skýrslu fyrir
sérstökum Eystrasaltsdómstóli í Kaupmannahöfn til sönnunar ásökunum á
hcndur Sovétríkjunum um stórfelld mannréttindabrot í Kistlandi, Lettlandi
og Litháen.
„Sovétstjórnin hefur afnumið
nær öll mannleg, þjóðleg og trúar-
leg réttindi í Eystrasaltslöndunum
og gert íbúana þar að annars
flokks þegnum i sínu eigin landi,“
sagði dr. Olgerts Pavlovski, sem
las upp ákæruna á hendur Sovét-
ríkjunum í upphafi réttarhald-
anna. Það eru heimssamtök flótta-
fólks frá Eystrasaltslöndunum,
sem standa fyrir þessum réttar-
höldum, en samtökin hafa aðsetur
í Washington.
f ákærunni voru Sovétríkin
ennfremur sökuð um að misnota
Eystrasaltslöndin í hernaðarskyni,
í fyrsta lagi með því að koma þar
upp eldflaugum og kafbátahöfnum,
sem nota ætti til árása á Vestur-
Evrópu og í öðru lagi væru ungir
menn frá Eystrasaltslöndunum
teknir í sovézka herinn og notaðir
til árása í löndum eins og Afgan-
istan.
Rússnesk áhrif á menntun og
menningu Eystrasaltslandanna
ykjust sífellt, en um ein millj.
manns hefði verið flutt frá þessum
löndum í vinnubúðir eða til fjar-
lægra héraða í Sovétríkjunum á
þeim 45 árum, sem liðin væru síð-
an Rauði herinn innlimaði þessi
ríki í Sovétríkin.
„Markmið okkar er að sýna fram
á — bæði fyrir þessum dómstóli og
fyrir heiminum öllum — að megin
markmiðið með aðgerðum Sovét-
ríkjanna er að skapa slikt ástand í
Eistlandi, Lettlandi og Litháen, að
það yrði til að útrýma þjóðerni
íbúanna þar.