Morgunblaðið - 26.07.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1985
7
Forstjóri Philips staddur hér á landi
FORSTJÓRI hollenska fvrirtækisins Philips, dr Wisse Dekker, er
staddur hér á landi á vegum landsnefndar AlþjóAaverslunarráósins. í
gærmorgun flutti hann erindi í Átthagasal Hótels Sögu um byltingu í
fjarskiptum og áhrif hennar.
Fundurinn var fjölmennur og var Hörður Sigurgestsson forstjóri,
fundarstjóri. Um kvöldið flutti dr. Dekker einnig erindi um alþjóðlegar
fjárfestingar og fjölþjóðafyrirtæki. I>á heimsótti hann Heimilistæki hf.
sem hefur umboð fyrir Philips á íslandi.
Dr. Wisse Dekker heldur af landi brott í dag. Nánar verður sagt frá
erindum hans í viðskiptablaði Morgunblaðsins næstkomandi fimmtu-
dag.
Morgunblaöið/ölafur K. Magnússon
Dr. Wisse Dekker, forstjóri Philips, skoðar gömul viðtæki af Philips-
gerð í húsakynnum Heimilistækja í gær. Með honum á myndinni eru
Arni Árnason, t.v. og Rafn Johnsen til hægri.
Engin ákvæði í lögum
heimila 80 % lán til Búseta
EINSTÖK SPARNEYTNI
í SPARAKSTURSKEPPNi BIKR
OG DV 9.685 SIGRAÐIESCORT
LASER í SÍNUM FLOKKI.
BENSÍNEYÐSLA REYNDIST
AÐEINS VERA 4.55 LÍTRAR
Á 100 KM.
NÆSTU DAGA FÁUM VIÐ NÝJA
SENDINGU AF ESCORT LASER,
SEM LENGI HEFUR VERIÐ
BEÐIÐ EFTIR. ÞAR SEM AÐEINS
FÁEINUM BlLUM ER ÓRÁÐ-
STAFAÐ BENDUM VIÐ VIÐ-
SKIPTAVINUM OKKAR Á AÐ
HAFA SAMBAND VIÐ KRISTÍNU
EÐA ÞORBERG í SÖLUDEILD
OKKAR STRAX, EF ÞEIR VIUA
TRYGGJA SÉR BÍL.
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifan 17
Sími: 685100
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugascmd frá Magnúsi
Ármann fyrir hönd Gunnars Guðjóns-
sonar sf., umboðsmanna Rainbow
Navigation Inc. á íslandi:
„Vegna ummæla Harðar Sigur-
gestssonar, forstjóra Eimskipafé-
lags íslands í Morgunblaðinu 23.
júlí sl., varðandi þreifingar um los-
un á Rainbow Hope í Reykjavik,
vill undirritaður hér með lýsa yfir,
að engar slíkar þreifingar eða
samningaviðræður varðandi losun
á Rainbow Hope hafa átt sér stað
síðan siglingar skipsins hófust í
maí 1984. Hlýtur því að vera um
einhvern misskilning að ræða hjá
forstjóra Eimskipafélagsins."
— segir Halldór Blöndal, alþingismaður
„ENGIN ákvæði í lögum heimila að menn geti fengið betri fyrirgreiðslu en
aðrir úr húsnæðislánakerfinu með því að stofna félög um byggingu íbúða,
hvort sem það er með kaupleigukjörum eða svokölluðum búsetarétti, sem
ekki hefur verið skilgreindur í lögum,“ sagði Halldór Blöndal, alþingismað-
ur, sem sæti á í milliþinganefnd um húsnæðismál, er Morgunblaðið bar
undir hann frétt í NT í gær þess efnis að Búseti fengi lán frá Húsnæðisstofn-
un ríkisins er nemi 80% byggingarkostnaðar.
„Sannleikurinn er sá að við höf- að kasta verkamannabústaðakerf-
um mjög takmarkað fé til hús- inu fyrir róða fyrir leiguíbúðir.
næðislána og urðum að efna til Sjálfseignarrétturinn hefur verið
sérstakrar skattheimtu á þessu einkenni íslensks þjóðfélags og ég
ári og því næsta til þess að mæta
brýnasta vandanum. I mínum
huga kemur ekki til greina að
þrengja kosti þeirra sem eru að
eignast sína fyrstu íbúð fyrir ein-
hvern óskilgreindan hóp fólks og
það kemur heldur ekki til greina
Staðgreiðsla búvara
til bænda:
Enn óleyst
með fjár-
mögnun 9%
mjólkurverðs
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorg-
un lagði Matthías Á. Mathiesen,
viðskiptaráðherra fram bráða-
birgðaskýrslu nefndar sem hann
skipaði til að athuga möguleika á
staðgreiðslu búvara til bænda.
Nefndin gerir ekki beinar tillög-
ur, en telur að 9% muni vanta upp
á fullt grundvallarverð mjólkur til
bænda, þó greiöslum á útflutn-
ingsuppbótum og niðurgreiðslum
verði flýtt til vinnslustöðvanna.
Matthías sagði að næsta
skrefið væri að athuga hvað
vinnslustöðvarnar gætu fjár-
magnað mikinn hluta þess sem
upp á vantaði og hvað hægt yrði
að leysa með auknum afurða-
lánum. Hann sagði að ekkert
hefði verið ákveðið í þessu efni,
en unnið yrði að málinu áfram.
í bráðabirgðaskýrslunni tók
nefndin eingöngu á útborgun
mjólkurverðs, en ekki á útborg-
un sauðfjárafurða sem mun
vera erfiðara mál að leysa.
í nefndinni áttu sæti: Davið
Ólafsson seðlabankastjóri, sem
var formaður nefndarinnar,
Helgi Bachmann deildarstjóri í
Landsbankanum, Stefán Páls-
son bankastjóri í Búnaðarbank-
anum, Ingi Tryggvason formað-
ur Stéttarsambands bænda og
Ketill A. Hannesson hagfræð-
ingur hjá Búnaðarfélagi fs-
lands. Með nefndinni starfaði
Ólafur Klemensson hagfræð-
ingur í Seðlabankanum. Við-
skiptaráðherra skipaði nefnd-
ina í apríl í framhaldi af sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar um
staðgreiðslu búvara til bænda.
Síðan hefur það orðið að í lög-
unum um framleiðslu, verð-
lagningu og sölu á búvörum eru
ákvæði um staðgreiðslu búvara
til bænda, en samkvæmt túlkun
landbúnaðarráðuneytisins
koma þau ákvæði ekki til fram-
kvæmda fyrr en við verðlagn-
ingu varanna samkvæmt nýju
lögunum.
held menn sjái ekki fyrir endann á
því hvaða afleiðingar það hefur ef
ríkið ætlar að byggja yfir alla
landsmenn í einu vetfangi. Vænt-
anlega vilja menn ekki mismuna
fólki og ef ríkið ætlar að kosta
húsrými undir einn verður það
væntanlega að kosta það undir
aðra,“ sagði Halldór.
„Það er alveg ljóst að þetta er
óheimilt samkvæmt lögum, því
bæði þingmenn Framsóknar-
flokksins og þingmenn stjórnar-
andstöðunnar fluttu sérstök frum-
vörp um það á síðustu dögum
þingsins að heimila slikar lánveit-
ingar til Búsetaréttaríbúða, en
þau frumvörp náðu ekki fram að
ganga. Milliþinganefnd i húsnæð-
ismálum hittist á sínum fyrsta
fundi í dag og sú nefnd mun að
sjálfsögðu leggja til grundvallar
það samkomulag sem tókst á milli
stjórnarflokkanna um stefnuna í
húsnæðismálum nú f maímánuði.
Ef okkur tekst að bæta láns-
kjörin í Byggingasjóði ríkisins
fyrir hinn almenna borgara, þá
mun að sjálfsögðu draga úr eftir-
spurn eftir íbúðum í Verkamanna-
bústöðum og auðvitað mun enginn
maður vilja skipta á eigin íbúð og
leiguíbúð ef hann þarf að borga
jafnmikið fyrir hvort tveggja. En
þeir sem nú fara inní búseturétt-
aríbúðir á þessari stundu, verða
auðvitað að borga niður allan
byggingarkostnaðinn nema ein-
hver gefi þeim fé umfram aðra.
Því hefur enn ekki verið svarað
hver ætlar að gefa þessú fólki fé
til að búa í leiguíbúðum, og
Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki
fallast á að ríkið gefi sumum stór-
ar fúlgur umfram aðra, framyfir
það hagræði sem hinir lægstlaun-
uðu njóta með Verkamannabú-
staðakerfinu," sagði Halldór
Blöndal ennfremur.