Morgunblaðið - 26.07.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ1986
Síðari hluti Hunda-
dagahátíðar á Akur-
eyri um helgina
SÁ HLUTI Hundadagahitíðarinnar, sem ráðgert hafði verið að halda í
Akureyrarbe dagana 8.—14. þ.m., en var frestað vegna veðurs, verður
haldinn nú um helgina.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem fengust hjá Haraldi ínga
Haraldssyni, framkvæmdastjóra
hátíðarinnar, er nú bjartara yfir
þar nyrðra. Veðurstofan spáir
blíðviðri um helgina og var því
ákveðið að láta loks til skarar
skríða.
Hefst hátíðin á föstudeginum
með útsendingum útvarpsstöðvar-
innar „Síríus“, sem mun útvarpa
alla helgina. Útimarkaður verður
einnig settur á fót þennan dag og
munu hinir ýmsu tónlistarsnill-
ingar bæjarins skemmta gestum
og gangandi með hljómlistarflutn-
ingi sínum undir berum himni.
Kraftakonungar Norðurlands
munu einnig láta til sín taka og
standa fyrir svokölluðu Akureyr-
armóti í þeirri kraftaíþrótt sem
kennd er við sjómenn, auk þess
Vinsældalisti rásar 2:
„Frankie“
datt í ann-
að sætið
1. (2) There must/angel Eurythmics
2 (1) Frankie Sisters Sledge
3 (7) Live in one day Howard Jones
4 (12) Keyleigh Marillion
5 (-) Life is life Opus%
6 (3) A view to a kill Duran Duran
7 (-) Ung og rík P.S. og Co.
8 (4) Icing on/cake ,Tin Tin* Duffy
9 (6) Get it on Power Station
10. (15) History Maitai
sem almenningi gefst kostur á að
spreyta sig á aflraunum ýmiss
konar.
Á laugardeginum hefst dag-
skráin kl. 13 með því að gengið
verður fylktu liði frá Laxdalshúsi
að útihátíðarsvæðinu, sem verður
á flötinni fyrir neðan leikhúsið.
„Verður skrúðganga þessi bæði
litrík og hávaðasöm," upplýsti
Haraldur Ingi, „þar sem grímu-
klæddum göngugörpum verða af-
hent sérhönnuð sambahljóðfæri,
sem niðursuðuverksmiðjan K.
Jónsson hefur hannað. Efniviður
töfratækjanna eru steinar sem
soðnir hafa verið niður í dósir,
rétt eins og grænar baunir og gefa
dósirnar frá sér hin ægilegustu
hljóð, eins og nærri má geta,“
bætti hann við.
Á hátíðarsvæðinu munu lyft-
ingakapparnir halda kraftasýn-
ingu í miðaldastil, leikklúbburinn
Saga stendur fyrir ýmiss konar
leikjum og uppátækjum fyrir
yngri kynslóðina og slökkvilið
staðarins leikur vatnsknatt-
spyrnu. „Dansað verður síðan í
tunglsljósinu á laugardagskvöld
og fram á rauða nótt,“ sagði Har-
aldur, „en dagskrárliðir sunnu-
dagsins munu að miklu leyti ráð-
ast af þeirri stemmningu sem rík-
ir á svæðinu, eftir þessa helgar-
hátíð."
INNLENT
Morjfunblaöið/Þorkell
Það var í mörgu að snúast hjá krökkunum í Vinnuskóla Hafnarfjarðar þegar Ijósmyndara Morgunblaðsins bar
að við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði í blíðviðrinu í síðustu viku.
Lokahátíð Vinnuskóla Hafnarfjarðar:
Hafa lagt 20.000 m2 af túnþökum
VINNUSKÓLI Hafnarfjarðar lýk-
ur sumarstarfi sínu í dag með loka-
hátíð. Að sögn Ingvars Viktorsson-
ar forstöðumanns skólans unnu
tveir árgangar við fegrun og snyrt-
ingu bæjarins í sumar, unglingar
fæddir 1970 og 1971, en einnig
starfrækir skólinn leikjanámskeið
fyrir yngri börn og starfsvelli eða
svokallaðar kofaborgir.
„Flest voru börnin 220, öll úr
Hafnarfirði og í hverjum vinnu-
flokki eru 8 til 10 unglingar. í
byrjun sumarsins hreinsuðum
við bæinn og síðan voru snyrt
einstök svæði, svo sem Lækj-
arsvæðið og nýju hverfin. Þar
eru lagðar túnþökur og í allt
hafa verið lagðir rúmlega 20.000
fermetrar af túnþökum í Hafn-
arfirði þetta sumar, sem er met-
ár.“
Ingvar sagði ennfremur að
vinnuflokkarnir hefðu tekið að
sér að snyrta garða hjá öldruð-
um og öryrkjum þeim að kostn-
aðarlausu. „Það starf er snar
þáttur hjá vinnuskólanum og
ánægjulegt hvað unglingarnir
samlagast þeim eldri vel. Þessar
hreingerningar hafa oft á tíðum
endað með veisluhöldum og góð-
um kunningsskap."
Á hátíðinni, sem hefst í dag kl.
14:00, er Rósa Þórsdóttir leikari
kynnir og Jón Páll sterkasti
maður heims mætir á svæðið.
Gengið er frá Lækjarskóla að
Thorsplani í skrúðgöngu og
starfsvellirnir standa fyrir
kassabílarallii niður Linnetstíg.
í keppni vinnuskólans tekur Jón
Páll á í reiptogi við lið skólans,
farið er í hjólbörurallí og poka-
hlaup.
Frá kirkjunni á kristniboósstööinni í Konsó. MorgunblaðiS/Jónas Þóriaaon hjálpar- og uppbyggingarstarfs.
Tvenn kristniboðahjón til Afríkulanda
TVENN kristniboðahjón eru á fór-
um til starfa í Afríku í byrjun ágúst
á vegum Sambands ísl. kristni-
boðsfélaga eftir leyfi á íslandi.
Ingibjörg Ingvarsdóttir og Jónas
Þórisson starfa í Awasa í næstu
tvö árin og Valdís Magnúsdóttir og
sr. Kjartan Jónsson veröa í Diani í
Kenýa til ársins 1989. Sérstök
kveójusamkoma verður næstkom-
andi sunnudag 28. júlí kl. 20.30 í
húsi KFUM og K að Amtmanns-
stíg í Reykjavík, þar sem kristni-
boðarnir koma fram.
Á vegum SlK starfa þá ytra
fern hjón um þessar mundir. í
Kenýa starfa auk Valdísar og
Kjartans Hrönn Sigurðardóttir
og Ragnar Gunnarsson, en þau
eru staðsett á kristniboðsstöð er
íslendingar hafa rekið í Chepar-
eria í norðvesturhluta landsins.
Þar búa Pókot-menn og lifa að
mestu á akuryrkju, en reglulegt
starf er meðal þeirra í nokkrum
þorpum í nágrenni kristni-
boðsstöðvarinnar. Valdís og sr.
Kjartan starfa í Diani, sem er
við strönd Indlandshafsins, um
30 km sunnan við Mobasa, en þar
eru einkum múhameðstrúar-
menn.
I Eþíópíu hafa undanfarin ár
starfað Valgerður Gísladóttir og
Guðlaugur Gunnarsson. Sollamó
heitir stöðin sem þau hafa starf-
að á undanfarin ár, en í haust
flytja þau til Konsó, sem verið
hefur mönnuð íslendingum að
meira og minna leyti síðustu 30
árin eða frá því henni var komið
upp. Skólastarf er rekið í tengsl-
um við stöðina og þar er einnig
sjúkraskýli. Á sama hátt og í
Kenýa fara kristniboðarnir og
starfsmenn innlendu kirkjunn-
ar, Mekane Yesus, um nálægar
byggðir, en það er undir yfir-
völdum komið hverju sinni
hvaða umfang getur orðið á slíku
starfi í Eþíópíu.
Starfsemi SÍK heima og er-
lendis kostar á þessu ári kring-
um 5 milljónir króna og er það
borið uppi af frjálsum framlög-
um kristniboðsvina.
Hætt verði
við áform
um lokun
Hjúkrun-
arskólans
— segir í ályktun stjórn-
ar Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri
Á FUNDI stjórnar Fjóröungssjúkra-
hússins á Akureyri 19. júlí 1985 var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
Stjórn FSA lýsir áhyggjum sín-
um vegna þess skorts, sem orðinn
er á hjúkrun við sjúkrahús lands-
ins. Lokun Hjúkrunarskóla ís-
lands mun enn auka þennan skort.
Því skorar stjórn FSA á yfirvöld
heilbrigðis- og menntamála að af-
létta öllum áformum um lokun
Hjúkrunarskóla Islands.
Framkvæmda-
stjóri HP
á íslandi
í FRÉTT viðskiptablaðs Morgun-
blaðsins í gær var farið rangt með
nafn framkvæmdastjóra Hewlett
Packard á íslandi. Hann heitir
Frosti Bergsson. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.