Morgunblaðið - 26.07.1985, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1985
Vaganjan
sigraði
örugglega
VAGANJAN bar sigur úr býtum í
millisvæóamótinu í skák í Biel í
Sviss í gær. Hann hlaut 12,5 vinn-
inga, Seiravan hlaut 11,5 vinninga
og Sokolov 11 vinninga. Ekki er Ijóst
hver hreppir fjórða sætið á mótinu,
því Short, Torre og van der Wiel
fengu allir 10,5 vinninga. Þeir keppa
um eitt sæti í áskorendamóti.
Polugajevskij, Ljubojevic og
Anderson fengu 9,5 vinninga, Sax
og Rodriguez 8, Jansa og Quinter-
os 7,5, Margeir Pétursson 7, Gut-
man 6,5, Li 6, Partos 4 og Martin
rak lestina með 3,5 vinninga.
í síðustu umferðinni urðu úrslit
meðal annars þau, að Vaganjan
vann Partos, Seirawan og Sokolov
gerðu jafntefli, Short vann van
der Wiel, Sax vann Torre og Mar-
geir og Anderson gerðu jafntefli
eftir biðskák, eins og búist hafði
verið við, en flestar skákir Mar-
geirs fóru í bið, og flestum skáka
Andersons lauk með jafntefli.
Léttskýjað
um allt land
í DAG er spáð breytilegri vindátt
um land allt. Inn til landsins verð-
ur víða léttskýjað en sums staðar
skýjað á miðum og annesjum. Að
öllum líkindum verður úrkomu-
laust á landinu, hiti 11—18 stig
sunnanlands og 9—14 stig norðan-
lands. Um helgina er gert ráð
fyrir góðu veðri víðast hvar, nema
e.t.v. á austur- og suðausturlandi
þar sem spáð er alskýjuðu.
Fimm innbrot
í Hveragerði
Hveragerði, 25. júlí.
BROTIST var inn í fimm fyrirtæki í
Hveragerði síðastliðna nótt, Ullar-
þvottastöð SÍS, Steypuiðjuna og
garðyrkjustöðvarnar Blómaborg,
Paradís og Grósku. Litlu var stolið
en töluverðar skemmdir unnar. Þá
var gerð tilraun til að stela bfl við
Hveramörk en stýrið var læst og
varð því ekki komist langt á bflnum.
Lögreglan í Árnessýslu, sem gaf
þessar upplýsingar, sagði innbrotin
nú öll upplýst.
Að verki voru gestir — annar
frá Akureyri en hinn frá Vogum á
Vatnsleysuströnd. Að undanförnu
hefur nokkuð borið á innbrotum
hér og hafa nú margir komið upp
þjófavarnarkerfum, en aðrir vakta
fyrirtæki sín og virðist ekki af þvi
veita.
Sigrún
Aflaverðmæti
Siglfirðings
16 milljónir
Sigluflrði, 25. júlí.
FRYSTITOGARINN Siglfirðingur
SI 150 frá ^jjglufirði kom í höfn í gær
með aflaverðmæti 16 til 17 miiljónir
króna og er það dýrasti farmur, sem
siglfírskt skip hefur nokkurn tíma
landað.
Uppistaða aflans var þorskur.
Einnig kom Sigluvík inn í gær
með 95 tonn eftir þriggja daga
veiði, allt þorsk og Skjöldur kom
með 55 tonn af ýsu og þorski.
— Matthías
Tollgæslumenn búa sig undir að ganga um borð í Rainbow Hope. MorgunbUWð/Július
Lög um gin- og klaufaveikivarnir frá 1928 banna innflutning á hráu kjöti:
„Varnarliðið verður að
fara að íslenskum lögum“
— segir fjármálaráöherra, sem segir að Rainbow-deilan hafí vakið athygli
sína á ólöglegum innflutningi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
FRAMVEGIS fær varnarliðið á Keflavíkurflugvelli ekki að flytja inn hrátt
kjötmeti til eigin neyslu, eins og gert hefur verið allt frá þvf varnarsamning-
urinn tók gildi 1951, að því er Albert Guðmundsson fjármálaráðherra sagði
í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. Hann sagði að samkvæmt samn-
ingnum frá 1951 væri bannað að flytja til landsins matvæli umfram það,
sem lög um varnir gegn gin- og klaufaveiki frá 1928 gerðu ráð fyrir.
„Viðauki við varnarsamninginn gerir ráð fyrir að þeir geti flutt til sín
frá '28 vfkja að sjálfsögðu ekki fyrir
hæfilegar vistir og birgðir en lögm
þeim samningi," sagði ráðherrann.
75 af rúmlega hundrað gámum,
sem komu til landsins með
bandaríska flutningaskipinu
Rainbow Hope i gær, þar á meðal
fimm frystigámar með matvæl-
um, voru kyrrsettir á bryggjunni
í Njarðvík mestan hluta gær-
dagsins. Var leitað í rúmlega
tuttugu bílagámum áður en leyfi
fékkst til að flytja þá frá höfn-
inni upp á völlinn en beðið átekta
við hina þar til um kvöldmatar-
leytið, að kyrrsetningunni var af-
létt að boði fjármálaráðherra.
Var gert ráð fyrir að gámarnir
yrðu fluttir á Keflavíkurflugvöll
árdegis í dag. Bandaríska sendi-
ráðið í Reykjavík setti í gær fram
formleg mótmæli við kyrrsetn-
ingunni við íslenska utanríkis-
ráðuneytið.
»Ég mun leyfa að þessi mat-
vara verði flutt til varnarliðsins
að þessu sinni enda var komið
með hana til landsins í þeirri trú,
að hún fengi sömu afgreiðslu og
áður,“ sagði Albert Guðmunds-
son. „Það er hinsvegar ljóst, að
það verður farið að lögum með
allan innflutning til varnarliðs-
ins og á meðan lögin frá 1928 eru
í gildi má varnarliðið ekki flytja
hrátt kjöt til landsins." Hann
sagði að deilan um siglingar á
vegum bandaríska skipafélagsins
Rainbow Navigation Inc. hefði
vakið sig til meðvitundar um
hvaða reglur giltu í raun og veru
um innflutning á vegum varnar-
liðsins. „Ég er einfaldlega að
framfylgja íslenskum lögum,"
sagði hann. „Ég viðurkenni að ég
þekkti ekki þessar reglur ná-
kvæmlega áður, ég hélt að þeir
mættu flytja inn á völlinn þann
mat, sem þeir teldu sig hafa þörf
fyrir. Islensk skip þurfa að sæta
strangri tollskoðun í hvert sinn
sem þau koma til hafnar og
bandaísk skip verða að hlýta
sömu reglum. Þeir verða að hlíta
íslenskum lögum í þessu sam-
bandi rétt eins og við verðum að
fara eftir bandarískum lögum um
flutninga til varnarliðsins. Þeir
mega því búast við, að það verði
framvegis gerð ítarleg skoðun á
varningi í þessu bandaríska skipi
sem öðrum. Þótt þeir fái að fara
með þennan mat inn á völlinn
núna, vegna þess að þeir komu
með hann í góðri trú, þá gildir
það ekki lengur — og hermenn-
irnir verða að fara að borða þann
mat, sem við höfum alist upp á.“
Sá háttur hefur verið hafður á
um skoðun á varningi til varnar-
liðsins, að sögn Kristins Ólafs-
sonar tollgæslustjóra, að farm-
skrá bandaríska skipsins hefur
verið send íslenskum yfirvöldum
til yfirferðar eftir að allur varn-
ingurinn hefur verið fluttur inn á
Keflavíkurflugvöll. Hann sagði
að tollgæslan hefði fengið um það
skýr fyrirmæli frá fjármálaráð-
herra að athugað yrði hvað væri í
hverjum og einum gámi, sem kom
með skipinu í gær. Magnús Ár-
mann framkvæmdastjóri Gunn-
ars Guðjónssonar sf., umboðs-
manna Rainbow Navigation Inc.
hérlendis, sagði að venjulegur
gangur málsins væri sá, að um-
boðsfyrirtækið fengi senda skrá
yfir vörur um borð í skipinu.
„Þegar öllum vamingi hefur ver-
ið ekið til hersins hefur skráin
verið send til tollyfirvalda í um-
dæminu, stundum fimm eða sex
dögum síðar. Eiginleg tollskoðun
hefur ekki farið fram nema í und-
antekningartilvikum eftir að vör-
urnar eru komnar á Keflavíkur-
flugvöll," sagði hann.
Utlit var fyrir í gærkvöld að
Rainbow Hope héldi áætlun og
gæti farið frá Njarðvík áleiðis til
Bandaríkjanna um hádegisbilið.
Talsmenn varnarliðsins og
bandarísku upplýsingaþjónust-
unnar í Reykjavík vildu í gær
ekki láta í ljós álit á aðgerðum
fjármálaráðherra að öðru leyti en
því, að Dorothy Schmidt, blaða-
fulltrúi varnarliðsins, sagði að í
gildi væri samkomulag um inn-
flutning á matvælum til eigin
nota liðsins í samræmi við varn-
arsamninginn frá 1951.
Mikill Yiðbúnaður af
hálfu Tollgæslunnar
MIKILL vióbúnaður var af hálfu Tollgæslunnar er flutningaskipió Rain-
bow Hope lagðist að bryggju í Njarðvíkurhöfn laust eftir hádegi í gær. Þau
fyrirmæli höfðu borist frá fjármálaráðherra aö leita í skipinu og jafnframt
kyrrsetja frystigáma, sem höfðu að geyma matvæli. Skírskotað var til laga
frá árinu 1928 um gin og klaufaveiki, en samkvæmt þeim er innflutningur
á hrámeti bannaður. Lögum þessum hefur hins vegar ekki verið beitt til
þessa og hefur varnarliðið sjálft allar götur frá árinu 1951, annast matvæla-
innflutning til eigin þarfa. Ennfremur er tollskoðun, eins og hér var
fyrirskipuð afar fátíð, því venjan er að flytja varning varnarliðsins beint frá
skipshlið og inn á Völlinn, í svokölluðu „tollbandi", og annast varnarliðs-
menn þá sjálfir tollskoðun.
Þegar Rainbow Hope lagðist
við festar fóru tollgæslumenn frá
Keflavík og Rannsóknardeild
tollgæslunnar um borð. Gerðu
þeir fyrst hefðbundna leit í vist-
arverum skipverja og lögðu hald
á lítilsháttar umframmagn af
áfengi, sem þar fannst. Síðan var
gámum skipað á land. Fyrst var
skipað upp 22 gámum með bif-
reiðum og eftir hefðbundna skoð-
un, voru þeir settir á vörubíls-
palla og ekið upp á Keflavíkur-
flugvöll. Öðrum gámum, samtals
75 gámaeiningum, var skipað upp
á hafnarbakkann, þar sem ætlun-
in var að gera nákvæma leit í
þeim.
Brynjólfur Karlsson, sem var
fyrir rannsóknardeildarmönnun-
um, og Zakarías Kjartansson,
talsmaður keflvísku tollgæslu-
mannanna, vildu lítið tjá sig um
ástæðun fyrir þessum aðgerðum.
Baldvin Magnússon, hjá skipa-
miðlun Gunnars Guðjónssonar,
sem er umboðsaðili fyrir Rain-
bow Navigation Inc., sagði að
engin fordæmi væru fyrir aðgerð-
um sem þessum og í sama streng
tók ólafur ólafsson, fram-
kvæmdastjóri flutningafyrirtæk-
isins Suðurleið, sem annast hefur
flutninga frá skipshlið.
Nokkur óvissa ríkti fram eftir
degi um hver yrði framvinda
málsins, þótt fyrirmæli ráðherra
um kyrrsetningu frystigámanna
og leit í hinum væri skýr. Gengið
var frá gámunum á hafnarbakk-
anum með það fyrir augum að
Gosdrykkjadósir komu á móti
tollvörðum þegar þessi gámur var
opnaður.
hefja tollskoðun í þeim morgun-
inn eftir. Um kvöldmatarleytið
leystist hins vegar málið skyndi-
lega, þegar fjármálaráðherra
ákvað að aflétta kyrrsetningunni.