Morgunblaðið - 26.07.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1985
5
Oft hagkvæmara
að vinna fljót-
unna vöru í ódýr-
ari pakkningar
— segir Ólafur Gunnarsson framkvæmda-
stjóri SH um fréttir þess efnis að meöal-
verð Sambandsfrystihúsa sé 12%hærra
en frystihúsa innan SH
„IMEÐALVEKÐ á freðfiski segir að mjög takmörkuðu leyti til um hagkvæmni
framleiðslunnar. I»að verður auðvitað einnig að Ifta til tilkostnaðarins við
framleiðslu einstakra tegunda og það er auðvelt að nefna dæmi um að hag-
kvæmara sé að framleiða fljótunna vöru fyrir lægra verð en seinunna vöru fyrir
hærra verð,“ sagði Ólafur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, er Morgunblaðið bar undir hann fréttir um 12% hærra
meðalverð Sambandsfrystihúsa en frystihúsa innan SH á útfluttum freðfiski.
Frá þessu var sagt í Morgunblaðinu á miðvikudag.
„Stjórnendur frystihúsanna taka
á hverjum tíma um það ákvörðun,
hvort hagkvæmara er að frysta eða
salta fisk. SH hefur ekkert með það
að gera. Hins vegar gefur augaleið
að hagkvæmara er að salta fisk á
vertiðarsvæði en annars staðar og
því meira gert af því þar. Stjórn-
endur frystihúsanna láta sitja í
fyrirrúmi að frysta aðrar fiskteg-
undir en þorsk, þar sem ekki er
hægt að nýta þær í aðra vinnslu.
Við það lækkar meðalverðið á út-
flutt freðfisktonn og sýnir þetta
meðal annars hve vitlaus viðmiðun
meðalverðið er,“ sagði Ólafur.
Hann sagði tæknibúnað í frysti-
húsum SH síst verri en þann sem
væri í frystihúsum SÍS. Það væri
misskilningur að meiri þorskfryst-
ing væri í frystihúsum innan SÍS
vegna einhverra lausfrystitækja,
en það kemur fram í samtali við
Sigurð Markússon, framkvæmda-
stjóra sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins, að það sé ein skýringin á
hærra þorskhlutfalli Sambands-
frystihúsa. Ólafur sagði frystiaf-
köstin engan flöskuháls í fram-
leiðslunni og fullyrðingar um
hærra vöruþróunarstig hjá SÍS-
húsum en hjá frystihúsum innan
SH væru gjörsamlega út í hött.
Ólafur sagði að á síðastliðnum
tveimur árum hefði SlS framleitt
hlutfallslega meira i svonefndar
neytendapakkningar og minna í
blokk en SH. Þetta stafaði af því að
SH hefði talið nauðsynlegt að bæta
enn gæði neytendapakkninga
vegna síharðnandi samkeppni á
mörkuðum í Bandaríkjunum. Þetta
hefði valdið því að nú væri aðeins 4
mánaða birgðatími á 5 punda
þorski í neytendapakkningum hjá
SH, á meðan SÍS lægi með sínar 5
punda pakkningar í 7-9 mánuði og
hefði nú orðið að takmarka fram-
leiðsluna í 5 punda pakkningar
vegna þessa.
„Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur ekki gert mikið af því á und-
anförnum árum að standa í áróð-
ursstríði við sjávarafurðadeild
Sambandsins um hvað sé verra og
hvað sé betra hjá hvorum aðilanum
fyrir sig. Enda er það engum vafa
undirorpið, sé saga þessara tveggja
samtaka skoðuð til lengri tíma, að
SH hefur yfirleitt skilað betra ár-
angri,“ sagði Ólafur Gunnarsson að
lokum.
Góð sala hjá
Ými í Hull
TOGARINN Ýmir frá Hafnarfirði
seldi 170 tonn af fiski í Hull í gær-
morgun, fyrir rúmar 7,8 milljónir isl.
kr. Aflinn var aðallega þorskur og
mjög gott verð fékkst fyrir fiskinn,
eða 45,82 kr. að meðaltali fyrir kílóið.
Skúmur GK seldi einnig í Hull í
gær. Var það 51,6 tonn, að stórum
hluta koli, og fékk hann 2,1 milljón,
eða 41 krónu að meðaltali fyrir
hvert kíló. I gær voru seld 115 tonn
af ísfiski sem fluttur var út með
gámum. Heldur lélegt verð fékkst
fyrir fiskinn, eða 32,11 kr. kílóið, á
móti rúmum 48 krónum í fyrradag.
Verðið féll vegna hita á Bretlandi
og mikils framboðs af isfiski í gám-
um.
Vogalax:
Fleiri laxar komnir
á land en í fyrra
Vogum, 25. júli.
í G/ER, miðvikudag, var metdagur
hjá hafbeitarstöðinni Vogalaxi. Það
komu 417 laxar á land yfír sólar-
hringinn.
Endurheimtur hafa verið mjög
góðar og eru þegar orðnar mun
meiri en á síðasta ári, en þá
heimtust 1.100 laxar. I ár eru
heimturnar komnar í 1.325 laxa,
bæði árin er um að ræða sama
fjölda slepptra seiða. Langur tími
er enn eftir af endurkomutiman-
um.
Af löxunum sem heimtir eru í
ár eru rúmlega 400 er sleppt var í
sjó árið 1983. Veruiegt magn laxa
er merkt hjá stöðinni og er
merkingarhlutfall heimtra laxa í
réttu hlutfalli við sleppingu. E.G.
Hlutabréf ríkisins:
Nokkuð um fyrir-
spurnir fyrsta daginn
HLIfFABRÉF ríkisins í Flugleiðum, Eimskip og Kafíia voru falboðin hjá
Fjárfestingarélagi íslands i gær. Bréfín voru ekki seld en nokkuð var um
fyrirspurnir.
Þorsteinn Guðnason, hagfræð-
ingur hjá Fjárfestingafélaginu,
sagði að ýmsir aðilar hefðu rætt
við sig um hlutabréfin en hann ætti
eftir að ræða við þá nánar áður en
mál skýrðust. Hann sagði að það
hefði sérstaklega vakið athygli sína
hvað margir hluthafar í þessum fé-
lögum hefðu hringt til þess að
spyrjast fyrir um hvers virði hluta-
bréf þeirra væ-u í raun og veru.
Hann sagðist ekkert geta sagt um
það, en það væri þarft umhugsun-
arefni fyrir stjórnendur viðkom-
andi hlutafélaga hvort ekki væri
rétt að gefa út jöfnunarhlutabréf.