Morgunblaðið - 26.07.1985, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.07.1985, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐID, FQSTUDAGUR 26. JÚLl 1985 HOLLANDSPISTILL/ Eggert H. Kjartansson Eimskipafélag íslands og Rotterdam-höfn Pyrsta janúar síðastliðinn opnaði Eimskipafélag íslands eig- in skrifstofu hér í Hollandi, eftir 26 ara samvinnu við fyrirtækið Meyer og Ck>. Nú, hálfu ári eftir að skrifstofan opnaði, skrapp ég í heimsókn til Guðmundar Hall- dórssonar, framkvæmdastjóra Eimskip í Rotterdam, og fékk hjá honum upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins hérna út. Sama dag kom ég við á skrifstofu Hags- munastofnunar Rotterdam-hafn- ar og fékk upplýsingar um starf- semi hafnarinnar almennt. Eimskip í Rotterdam Guðmundur Halldórsson sagði að hann hefði komið til Hollands fyrir um tveimur og hálfu ári. Fyrstu tvö árin fóru að mestu leyti í að byggja upp markaðinn og endurskipuleggja flutninganetið í Mið- og Suður-Evrópu. Dæmi um það er Ítalíukerfið svonefnda. Nú- orðið kemur svo til öll vara frá Ítalíu einu sinni í viku beint til Rotterdam með lestum. Á þann hátt hefur verið hægt að samhæfa flutningana og spara í flutnings- kostnaði. Þegar ákvörðun hafði verið tek- in um að draga verulega úr sam- vinnunni við Meyer og Co eftir langt samstarf var í mörg horn að líta. Það þurfti að finna nýtt hús- næði, kaupa tölvu og ráða starfs- fólk svo nokkuð sé nefnt. Einnig var mjög mikilvægt að viðskipta- vinir fyrirtækisins yrðu ekki fyrir neinum óþægindum vegna flutn- inganna. Eimskipafélagsdeildin hjá Meyer og Co. var umfangsmik- il og mikið í húfi fyrir bæði fyrir- tækin að breytingin færi fram í bróðerni. Dæmi um það hversu vel tókst til er að sá kjarni starfs- fólksins sem vann að málefnum Eimskipafélagsins hjá Meyer og Co, fylgdi Guðmundi í nýju húsa- kynnin við Albert Plesmanveg 151 í Rotterdam. Starfsmenn Eimskipafélagsins hér í Hollandi eru 9 að tölu, þar af eru sjö Hollendingar, en Hulda Hákonardóttir skrifstofustúlka og Guðmundur eru einu íslending- arnir. Sama dag og ég kom í heimsókn var Guðmundur Hagalín frá aðal- skrifstofunni í Reykjavík að ganga frá forriti í tölvuna þannig að hægt yrði að senda upplýsingar heim skömmu eftir að skipið legði úr höfn hér. Hann sagði að þessi nýjung kæmi til með að auka enn þá þjónustu, sem Eimskipafélagið getur veitt viðskiptavinum sínum, þar sem ýmsar mikilvægar upp- lýsingar fyrir t.d. innflytjendur yrðu fyrr tilbúnar. Frá höfninni í Rottcrdam Um borð í skipin Eftir að hafa rabbað saman í skrifstofunni og drukkið kaffi- bolla stakk Guðmundur upp á því að við skoðuðum skipin. Dettifoss og Laxfoss lágu við bryggju og ís- lenski fáninn blakti i golunni. Uppi í brúnni á Laxfossi sat Finnbogi stýrimaður og færði inn hleðsluskrá skipsins. Laxfoss er í reglubundnum siglingum milli Rotterdam-hafnar og austur- strandar Bandarfkjanna. Áhöfnin á Laxfosi er íslensk svo sem á öll- um skipum Eimskipafélagsins. Þegar ég innti Finnboga eftir því hversu túrinn vestur tæki langan tíma svaraði hann. „Hann tekur 4 vikur"! Satt best að segja fannst mér það langur tími. Þegar afstaða er tekin til þess- ara flutninga verður að hafa í huga að þeir skapa atvinnu fyrir farmennina okkar auk þess sem útbreiðsla starfseminnar styrkir Eimskipafélagið sem heild. Þann- ig er t.d. hægt að nýta betur við- skiptasambönd hér úti og dreifing áhættu í rekstri er meiri. í hverri viku koma 3—4 skip Eimskipafélagsins til Rotterdam. Það er því óhætt að segja að Rott- erdam-höfn er núorðið ein mikil- vægasta höfn Evrópu fyrir okkur íslendinga, því auk Eimskipafé- lagsins er Hafskip með eitt skip hér í hverri viku og Sambandið- skipadeild er hér einu sinni á tveggja vikna fresti. Eftir að hafa Endurgreiðslureglur eru enn ófrágengnar: Framleiðsluráð leggur til að 3á hlutar sérstaka gjalds ins verði endurgreiddir „ERU kjúklingaframleiðendur að ganga af sauðfjárbændum dauðum?“ er yfirskrift fréttatilkynningar sem Morgunblaðinu hefur borist frá Félagi alifuglabænda. Fréttatilkynningin er á þessa leið: Um síðustu mánaðamót hækkaði landbúnaðarráðherra gjald af inn- fluttu kjarnfóðri úr 60% í 130%. Markmið þessarar hækkunar er að koma á framleiðslustjórnun í ali- fugla- og svínarækt. Með því að koma á slíkrí framleiðslustjórnun hafa landbúnaðarráðherra og framleiðsluráð landbúnaðarins endanlega náð þeim kverkatökum á öllum búgreinum í landinu sem stefnt hefur verið að, en hingað til hefur það kverkatak einungis náð til hinna svokölluðu hefðbundnu búgreina. En hvað er það sem rétt- lætir þessa stjórnsemi landbúnað- arráðherra? í raun er einungis ver- ið að millifæra fjármagn milli bú- greina, þ.e. frá svína- og alifugla- framleiðendum til hinna hefð- bundnu búgreina, því kjarnfóður- gjaldið er notað til að greiða niður áburð og auka ráðstöfunarfé til út- flutningsbóta. Allt byggist þetta hins vegar á þeim áróðri sem beint hefur verið að alifuglaræktinni að undanförnu, að kjúklingabændur séu að ganga að sauðfjárbændum dauðum. Þjóðin sé hætt að borða kindakjöt því að það sé svo dýrt og þess í stað farin aö borða kjúklinga í stórum stíl. Við þessu er verið að sporna með því að hækka rekstr- arkostnað alifuglabúa til að skekkja verðhlutfallið milli kjúkl- inga og kindakjöts. En er þessi full- yrðing, að stóraukin neysla fugla- kjöts sé að ganga að sauðfjár- bændum dauðum, rétt? Nei, svo er ekki. Því til stuðnings er skýrsla um sölu kjöts á árunum 1978—1984. Þar kemur fram að kjúklingaframleiðslan hefur verið mjög svipuð öll þessi sjö ár, á bii- inu 6—7% af heildarkjötsölu í landinu. í skýrslunni kemur einnig fram að kindakjötsframleiðslan hefur verið svipuð öll árin. Ef að- eins er tekið síðastliðið ár kemur í Ijós að kindakjötsneyslan hefur dregist saman um 1.100 tonn en kjúklinganeyslan hefur einungis aukist um 4 tonn. Þannig er ljóst að þessi samdráttur í kindakjöts- neyslu kemur ekki fram í aukinni neyslu kjúklinga svo neinu nemi. Skýringuna er hins vegar að finna í breyttum neysluvenjum þjóðarinn- ar, s.s. aukinni fiskneyslu. Af ofangreindu má Ijóst vera að þessi áróður á ekki við nein rök að styðj- ast og réttlætir á engan hátt til- færslu á fjármagni milli þessara búgreina. Því er það skýlaus krafa að reglugerð landbúnaðarráðherra frá siðustu mánaðamótum um hækkun kjarnfóðurgjalds verði þegar í stað felld úr gildi. Samkomulag í kjötmarkaðsnefnd: Sérstaka fóðurgjaldið verði allt endurgreitt KJÖTMARKAÐSNEFND, sem er samráAsnefnd fulltrúa allra kjötframleiöslu- greinanna, þ.e. sauAfjárræktenda, nautgriparæktenda, kjúklingaframleiAenda. svínakjötsframleiAenda og hrossabænda, kom nýtega saman til fundar. Sam- kvæmt heimildum MorgunblaAsins snerist fundurinn aö miklu leyti upp í umræA- ur um nýsetta reglugerA um kjarnfóAurgjald og var mikil óánægja meAal fundar- manna meA gjaldtökuna. Að lokum komu allir fulltrúarnir sér saman um tillögur um útfærslu gjaldsins, sem er á þessa leið: Fjög- urra mánaða gjaldfrestur verði veittur á grunngjaldinu og sérstaka fóðurgjaldið verði greitt með skulda- viðurkenningu til fjögurra mánaða. Unnið verði að því að grunngjaldið renni framvegis til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins en ekki til ríkis- sjóðs. Lagt var til að sérstaka fóð- urgjaldið verði allt endurgreitt út á framleitt magn búvöru, W hlutar til framleiðenda mánaðarlega eftir framleiðsluskýrslum og W hluti samkvæmt tillögum stjórna sér- búgreinafélaganna, en þó ekki fyrr en frá ársbyrjun næsta árs. Þá lagði kjötmarkaðsnefndin sér- staka áherslu á að virt séu ákvæði 35. greinar laganna um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, um samráð við sérbúgreinafélögin. Þar stendur: „Áður en reglugerðir um beitingu ákvæða þessa kafla (stjórn- unarkafla laganna, þ.m. álagningu fóðurgjalds) eru gefnar út skal leitað tillagna Framleiðsluráðs landbúnað- arins, Stéttarsambands bænda og samtaka framleiðenda i viðkomandi búgrein." Telja margir bændur að þessi lagagrein hafi verið brotin við setningu reglugeröarinnar um fóð- urgjald um síðustu mánaðamót, þvf ekki mun hafa verið leitað tillagna sérbúgreinafélaganna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.