Morgunblaðið - 26.07.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÖLÍ 1985
15
neytt hádegisverðar um borði í
Dettifossi í boði skipstjórans,
Björns Kjaran, kvaddi ég Guð-
mund og lagði leið mína niður á
skrifstofu Hagsmunastofnunar
Rotterdam-hafnar.
Rotterdam-höfn
Það tók Rotterdam-höfn rúm
100 ár að vaxa upp úr litilli fiski-
bátahöfn í það að verða flutninga-
miðstöð heimsins. Þeir þættir sem
réðu mestu um þessa þróun voru í
fyrsta lagi iðnbyltingin í Evrópu,
sem hófst í Englandi 1776, en
breiddist siðan út yfir meginland-
ið á 19. öldinni. Annar mikilvægur
þáttur í þessari þróun var að frelsi
í verslun og viðskiptum var rfkj-
andi stefna á seinni hluta 19. ald-
arinnar. I raun eru flestir þeirrar
skoðunar hér að einmitt sá þáttur
hafi haft afgerandi áhrif á það að
viðskiptaþróunin varð sem raun
ber vitni. I þriðja lagi er hægt að
nefna legu Rotterdam-hafnar við
mynni þriggja stórfljóta Evrópu,
þ.e. Rín, Maas og Schelde. Þær
flutningsæðar, sem þessi fljót
mynda ásamt járnbrautar-, vega-
nesti og flugsamgöngum, sem
tengja höfnina öllum þéttbýlis-
kjörnum Evrópu, skipta þar sköp-
um. Fjórði mikilvægi þátturinn er
framlag Rotterdam-búa sjálfra.
Þannig hafa þeir auk hafnarinnar
og aðstöðunnar þar, byggt t.d.
skipaskurð frá Rotterdam út í
Norðursjó svo að skip sem rista
allt að 72 fet (22 metrar) geta lagt
að hafnarbakka þó svo að það sé
fjara.
Fram til 1940 var flutnings-
magnið sem fór um höfnina árlega
um 30 milljón tonn að meðaltali.
Eftir loftárás Þjóðverja á mið-
borgina og höfnina í maí 1940
jafnhliða innrásinni í Holland,
drógust viðskipti og flutningar um
höfnina mikið saman. Um endur-
bætur á höfninni á stríðsárunum
var ekki að ræða. Eftir stríðið
jókst starfsemin jafnt og þétt.
Kom þar til Marshall-hjálpin og
stöðugur hagvöxtur, sem ein-
kenndi eftirstríðsárin allt að
fyrstu olíukreppunni. Jukust um-
svif og flutningar um höfnina í um
310 milljón tonn árið 1972.
Olíukreppan hafði djúpstæð
áhrif fyrir viðskiptalífið í Rotter-
dam svo sem annarsstaðar í heim-
inum. Afleiðingarnar voru að
flutningar um höfnina minnkuðu.
Síðustu árin hefur aftur á móti
verið stöðug aukning og árið 1983
voru flutningar um 231 milljón
tonn. Frá því að fyrsta olíukrepp-
an skall á hefur nokkur breyting
orðið á þeim vörutegundum, sem
um höfnina fara. Þannig var flutt
mun meira af unnum olíuvörum
síðustu árin en hér áður fyrr.
Einnig lítur allt út fyrir að
kolauppskipun og útskipun í Rott-
erdam-höfn muni dragast eitthvað
saman næstu árin.
Nýir möguleikar —
betri þjónusta
Með tilliti til legu Rotterdam
má búast við að þýðing hafnarinn-
ar þar eigi enn eftir að aukast
hvað varðar flutninga til og frá
meginlandi Evrópu.
Það er því skoðun mín að sú
ákvörðun Eimskipafélags íslands
að opna eigin skrifstofu í Rotter-
dam og taka á þann hátt beinan
þátt í þeirri þróun sem á sér þar
stað í verslun og viðskiptum komi
til með að hafa mikil og jákvæð
áhrif á viðskiptalíf okkar tslend-
inga við fjölda ríkja Efnahags-
bandalagsins. _H K
Félag alifuglabænda:
Endanlega búið að
ná kverkataki á
öllum búgreinum
EKKI hefur enn verió gengið frá regl-
um til endurgreiðslu fóðurgjalds
(80% gjaldsins) sem lagt var á um
síðustu mánaðamót. Búist er við að
gengið verði frá reglunum í dag eða á
morgun, að sögn Guðmundar Sig-
þórssonar, skrifstofustjóra landbún-
aðarráðuneytisins.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
samþykkti bókun á fundi sínum sl.
föstudag, þar sem lagt er til að
fyrst um sinn verði endurgreiddir
þrír fjórðu hlutar fóðurgjaldsins.
Bókun Framleiðsluráðsins I heild
fer hér á eftir:
„Sem svar við fyrirspurn í bréfi
dags. 2. júlí sl. varðandi reglur um
endurgreiðslu (afslátt) á sérstöku
fóðurgjaldi vill Framleiðsluráð
landbúnaðarins taka þetta fram:
1. Lagt er til að fyrst um sinn verði
endurgreiddir þrír fjórðu hlutar
hins sérstaka fóðurgjalds miðað
við það framleiðslumagn sem kem-
ur í hlut hvers framleiðanda.
2. Ráðið telur að til frambúðar
verði að miða endurgreiðslur við
ákveðið heildarmagn sem talið er
að markaðurinn þarfnist af hverri
búvörutegund og byggist á neyslu-
stefnu, er mótuð verði m.a. með
samkomulagi milli framleiðslu-
greina á grundvelli 1. gr. fram-
leiðslulaganna sbr. og 30. gr. sömu
laga. Brýnt er að vinna að reglum
um þessa stjórnum framleiðslu í
samvinnu ráðuneytis, Stéttarsam-
bands bænda og búgreinafélaga.
Fyrst um sinn telur ráðið að
miða verði endurgreiðslu um fram-
leiðslu 6 síðustu mánaða, einkum
til svína- og alifuglabænda.
3. Ráðið telur að til frambúðar sé
ekki annar kostur heppilegri við
notkun fóðurgjalds sem stjórntæk-
is en að gefa út afsláttarheimildir
til framleiðenda í samræmi við það
fóðurmagn, sem þeir þurfa til
þeirra framleiðslu sem í hlut hvers
þeirra kemur. Verði samið um það
við fjármálaráðuneytið að taka við
slíkum plöggum af fóðurseljendum
til greiðslu fóðurgjalds. Þannig
verður ekki um neina endur-
greiðslu að ræða. Það fóður er
menn kaupa án þess að framvísa
slíkum heimildum, greiði þeir með
fullu kjarnfóðurgjaldi."
sjálfstýringar
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskaö er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auöveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greiösluskilmálar.
Atlas hf
Borgartún 24 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
Valgerður Sigurþórs-
dóttir - afmæliskveðja
Níræð varð í gær Valgerður Sig-
urþórsdóttir, fyrrum húsmóðir í
Lambhaga á Rangárvöllum. Val-
gerður bjó í Lambhaga allan sinn
búskap, fyrst með manni sínum
Gísla Nikulássyni en eftir andlát
hans gerðist hún bústýra hjá
stjúpsyni sínum, Nikulási. Er
hann hætti búskap fluttist hún til
Þóru, dóttur sinnar, og hefur búið
hjá henni síðan.
Við hjónin áttum því láni að
fagna að vera heimagangar i
Lambhaga og njóta þar einstæðr-
ar gestrisni. Því þrátt fyrir miklar
annir á heimilinu átti Vala alltaf
aflögu tíma til að sinna gestum.
Valgerður er mjög ern og fylgist
með öllu. Sjaldan kemur maður til
hennar að hún sitji ekki með
prjóna sína. Vala mín, við hjónin
óskum þér innilega til hamingju
með afmælið og góðs gengis í
framtíðinni.
Erla og Gústi
Beóist er afsökunar á því að þessi
afmæliskveðja, sem vera átti í blað-
inu í gær, varð eftir í prentsmiðjunni
og birtist því í dag.
Reykjavíkurmót barnanna í
Hljómskálagarðinum sunnudag
REYKJAVÍKURMÓT barnanna verður haldið í Hljómskálagarðinum í
Keykjavík sunnudaginn, 28. júlí, en mótinu var frestað sl. sunnudag vegna
veðurs. Þetta er fjórða árið sem skátafélagið Árbúar stendur fyrir Reykjavík-
urmóti í Hljómskálagarðinum. Talið er að um 10.000 manns hafl sótt mótið í
fyrra. Nú, á Alþjóðaári /Eskunnar, er sérstaklega vel vandað til dagskrárinn-
ar og hún þannig úr garði gerð að allir aidurshópar ættu að flnna eitthvað við
sitt hæfl, segir í fréttatilkynningu.
Keppt verður í tíu íþróttagrein-
um, sem flest allir krakkar hafa
þjálfun í, þ.e. sippa, snú-snú,
kassabílarallý, skjóta bolta í
mark, spretthlaup, húlla, körfu-
hittni, skalla bolta í mark, labba á
grindverki og halda bolta á lofti.
Keppt verður í tveimur flokkum
í öllum greinum. Yngri flokkur er
7—9 ára og eldri flokkur er 10—12
ára. Fólk, 20—40 ára, getur tekið
þátt í hverjum flokki svo heild-
arfjöldi keppnisflokka getur orðið
allt að 700 manns. Mótsgestum
verður boðið upp á að taka þátt í
fimmtar- og tugþraut. Auk þess
verður boðið upp á róðratúra á
Tjörninni, kraftakeppni, frisbý,
flugdrekakeppni, kajakróður,
þrautabrautir, leiktæki, veiði-
keppni og útieldun. Ýmis
skemmtiatriði verða á svæðinu,
m.a. koma fram Bergþóra Árna-
dóttir, Hljómsveit Birgis Gunn-
laugssonar, Hafnarfjarðarleik-
húsið, Stúdentaleikhús, eldgleypir,
dansflokkar o.fl. Á sér palli verða
rokktónleikar þar sem 8—10
hljómsveitir spila.
Skráning í keppnisflokka hefst
klukkan 13.30, en klukkan 14.00
verður mótið sett og síðan rekur
hvert atriðið annað þar til klukk-
an 17.00 að mótinu verður slitið.
Aðgangseyrir er enginn og
þátttökugjald ekkert.
Smávörur
í bílaútgerðina
og f erðalagið!
-sækjum við í bensínstöðvar ESSO
/---------------\
co