Morgunblaðið - 26.07.1985, Síða 34

Morgunblaðið - 26.07.1985, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1985 Minning: Asdís Asmunds- dóttir Akranesi Fedd 18. águst 1912 Díin 21. júlí 1985 Að kvöldi sunnudagsins 21. þ.m. lézt í Sjúkrahúsi Akraness skóla- systir mín og mágkona, Ásdís Ásmundsdóttir, eiginkona Júlíus- ar Þórðarsonar framkvæmda- stjóra. Hvíldina fékk hún að lokn- um annasömum ævidegi og eftir alllanga sjúkdómsraun, sem var bæði henni sjálfri og ástvinum hennar þungbær. En þótt treginn rati jafnan sína leið, ber samt að þakka þráða hvíld frá þrautum. Nú við andlát Ástu hvarflar hugurinn til fyrstu kynna. Þau hófust, þegar við hittumst sem innritaðir nemendur í Samvinnu- skólann haustið 1929. Við höfðum þá aldrei sézt, enda þótt ég þá þeg- ar hefði kynnzt báðum alsystkin- um hennar harla vel á Núpsskóla í Dýrafirði; þeim Þorvaldi Ellert og Gróu unnustu minni. Það var dá- lítið „skrýtið" og olli mér sérstakri eftirvæntingu að sjá og heyra þessa tilvonandi tengdasystur mína — og líklega hefur hún helzt kviðið fyrir því að hitta mig; fjar- lægan strákling vestan af fjörð- um! Það er skemmst af að segja, að allvel fór á með okkur Ástu, þótt viö aðstöðunnar vegna hefðum ekkert mikið saman að sælda. Minnisstæðast er mér, hversu óvenju fögur hún var og aðlað- andi, enda leit hana þá margur sveinninn hýru auga, því fyrir utan útlitið, leyndu sér ekki góðar gáfur og jafnvel skáldlegt draum- lyndi, sem öðrum þræði einkenndi hana alla tíð. Og á góðum stund- um gat hún veriö allra manna skemmtilegust svo sem fleiri ætt- menni hennar. Ásdís heitin fæddist á Akranesi 18. ágúst 1912; fjórða barn hjón- anna Þóru Þorvaldsdóttur og Ásmundar Magnússonar sjó- manns og kennara. Vegna erfiðra heimilisástæðna móðurinnar, var Ásdísi tæplega 2ja ára að aldri, komið í fóstur til Guðrúnar Ein- arsdóttur og Jónasar Guðmunds- sonar bónda á Bakkakoti í Skorra- dal. Þau hjón reyndust henni æ síðan sem beztu foreldrar. Þau voru barnlaus sjálf, svo Ásta varð þeim sannarlega sólargeisli { líf- inu. Og kærar æskuminningar úr hinum fagra og friðsæla dal fylgdu Ástu síðan alla ævi og áttu sinn mikla þátt í að móta persónu- leika þessarar rómantísku og draurr.lyndu telpu. Um tíu ára ald- ur Ástu, brugðu fósturforeldrar hennar búi og fluttu til Akraness. Þau byggðu sér hús f næsta ná- grenni við móður Ástu og stjúpa, Gísla Jónsson. Þá urðu mikil þáttaskil í lífi hennar, því þá fyrst kynntist Ásta móður sinni og systkinum, og raunar hafði hún þá allt í einu eignast „tvær mömmur og sjö systkini", eins og hún sjálf sagði. Á Akranesi átti Ásta síðan öll sín bernsku- og æskuár f leik og starfi. Eftir barna- og gagnfræða- skólanám lá svo leiðin í Sam- vinnuskólann sem fyrr segir, og stundaði hún eftir það verzlun- arstörf um nokkurra ára skeið. Hinn 3. ágúst 1933 giftist Ásdís glæsilegum og góðum dreng, eftir- lifandi eiginmanni sínum: Júlíusi Þórðarsyni Ásmundssonar, út- gerðar- og kaupmanns, frá Grund á Akranesi. Þar með tengdist hún mannmargri ætt og fyrirferðar- miklu dugnaðar- og manndóms- fólki í athafnalífi Akurnesinga. Á Skaganum hefur ástríkt og ham- ingjusamt hjónaband þeirra Ástu og Júlíusar staðið í meira en hálfa öld og þau haldið þétt saman i blíðu og stríðu. Þau hjón eignuð- ust sex vel gefin og myndarleg börn. Þau eru þessi: Guðrún Edda, gift Björgvini Hagalínssyni vélvirkja — búsett á Akranesi. Ragnheiður, gift dr. med. Gunnari Þór Jónssyni, yfir- lækni á Slysadeild Borgarspítal- ans — búsett í Reykjavík. Emelía Ásta, fóstra, gift Guðmundi Bert- elssyni raffræðingi — búsett í Garðabæ. Ásdís Elín, bankaritari, gift Aðalsteini Aðalsteinssyni skrifvélavirkja — búsett í Reykja- vík. Gunnhildur Júlía, sjúkraliði, gift Smára Hannessyni rafvirkja — búsett á Akranesi. Þórður Ásm. bankafulltrúi, kvæntur Ernu Gunnarsdóttur meinatækni — bú- settur á Akranesi. Barnabörnin eru orðin 14 og barnabarnabörnin 3. Þetta er stór og mannvænlegur hópur afkomenda, og vissulega var hann bæði stolt og hamingja foreldranna, „Blessun Guðs og barnalán, það borgar, hvað sem er,“ sagði séra Matthías. Þótt hálfur sjötti áratugur sé nú liðinn frá fyrstu samfundum okkar Ásdísar Ásmundsdóttur, og þótt löngum hafi verið „vík á milli vina“, og „ættarmót" að mestu tengd stundum sameiginlegrar gleði og sorgar í fjölskyldum okkar — höfum við þó alltaf „vit- að“ hvort af öðru. En á hvaða landshorni, sem við Gróa systir hennar höfum búið, hefur okkur verið mikil gelði að heyra á góðum stundum glaðværa og hressilega rödd Ástu og Júlla í símanum, en varla var nokkurn tíma nefnt nafn annars án hins, svo samofin voru þau alla tíð. Eftir því sem árin líða verða þær æ fleiri raddir samferða- mannanna, sem þagna. Eftir stöndum við á ströndu i þögulli spurn, en minnumst huggunar- ríkra orða Sigurðar Kristófers: „Hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er.“ Baldvin Þ. Kristjánsson Ásdís Ásmundsdóttir á Grund (Vesturgötu 43), Akranesi, verður lögð til hinstu hvílu í dag. Ég kynntist Ásdísi tengdamóð- ur minni fyrir tæpu 21 ári. Þjak- aður af sjóveiki eftir ferð í norð- vestan desemberbrælu birtist til- vonandi tengdasonurinn náfölur og kaldur á Vesturgötu 43 á Akra- nesi. Móttökurnar voru ógleym- anlegar. Háttaður ofan í rúm, vak- inn með heitu súkkulaði og brauð- sneið. Þar á eftir veislumatur, hlýtt viðmót og fyllsta umhyggja. Það var engu líkara en að sonur- inn í húsinu væri að koma úr langri og erfiðri vetrarferð. Móttökurnar voru dæmigerðar fyrir gestrisni, höfðingsskap og umhyggju Ásdísar og Júlíusar á Grund enda hef ég litið á þau sem aðra foreldra mína frá þessum fyrstu kynnum. Ásdís var yngst þriggja barna hjónanna Þóru Þorvaldsdóttur og Ásmundar Magnússonar. Eldri systkinin voru Þorvaldur Ellert fyrrverandi framkvæmdastjóri sem nú er látinn og Gróa hús- frevja í Kópavogi. Ásdís ólst upp hjá fósturfor- eldrum, þeim Guðrúnu Einars- dóttur og Jónasi Guðmundssyni, fyrst í Bakkakoti f Skorradal 1912—1921 og síðar á Steinum á Akranesi 1921—1933. Ásdís átti 5 hálfsystkini úr seinna hjónabandi Þóru móður sinnar með Gísla Jónssyni. Þau eru: Guðjón bóndi að Fossum, Magnús fyrrverandi skólastjóri og námsstjóri sem nú er látinn, Jón bóndi á Skeljabrekku, Eygló hús- freyja í Reykjavík og Elín hús- freyja í Reykjavík. Ásdís hlaut góða menntun á þeirra tíma mælikvarða og út- skrifaðist úr Samvinnuskólanum 1930. Hún stundaði verslunar- og skrifstofustörf árin þar á eftir. Árið 1933 giftist hún Júlíusi Þórðarsyni framkvæmdastjóra og útgerðarmanni frá Grund á Akra- nesi. Þeim hjónum varð ekki barna auðið fyrstu 5 árin en eign- uðust síðan 6 börn frá 1938—1951. Þau eru: Guðrún Edda, gift Björgvin Hagalínssyni, vélvirkja á Akranesi, Ragnheiður, gift Gunn- ari Þór Jónssyni, prófessor í Reykjavík, Emilía Ásta, fóstra, gift Guðmundi Bertelssyni raf- verktaka í Garðabæ, Þórður bankafulltrúi á Akranesi, giftur Ernu Gunnarsdóttur, meinatækni, Ásdís Elín, bankafulltrúi í Reykjavík, gift Aðalsteini Ó. Aðal- steinssyni, rafeindavirkja, og Gunnhildur Júlía, sjúkraliði, gift Smára Hannessyni, rafvirkja á Akranesi. Barnabörn Ásdísar eru 14 talsins og barnabarnabörnin 3. Þau Júlíus og Ásta byggðu draumahús sitt á Grundartúninu á Akranesi í stríðsbyrjun og bjuggu þar í nábýli við ættfólk Júlíusar úr Grundarættinni. Þar voru öll börnin fædd og uppalin í frygg'J umhverfi og góðu atlæti. Á þeim árum var oft líf og fjör á „Goddastöðum" eins og Ásdis tók gjarnan til orða. Barnahópurinn var stór og mikið af gestum og gangandi á heimilinu. Umhyggja Ástu fyrir öðrum, gestrisni og snilli í matargerðarlist naut sín vel á þessum erilsömu tímum. Auk fjölskyldunnar bjuggu fósturfor- eldrar Ástu á heimilinu en hún annaðist þau á aðdáunarverðan hátt meðan þau lifðu en Jónas var blindur síðustu árin. Enda þótt hússtjórn færi Ástu vel úr hendi og hún tæki allan tíma hennar á uppvaxtarárum barnanna, átti hún sér fjölmörg áhugamál enda var hún kona vel greind. Er um fór að hægjast gafst henni tími til lestrar og varð hún víðlesin í ættfræði. fagurbók- menntum og ljóðum. Ásta var ætt- fróð mjög og rakti ættir sínar af stolti langt aftur í merkustu ættir sunnan- og vestanlands svo sem Bergsætt og Deildartunguætt. Hún ræktaði frændsemi sína vel og átti stóran þátt i að koma á fót ættarmótum frændfólks síns og afkomenda. Ásta var rómantisk kona og ljóðelsk. Bestu stundir hennar á seinni árum voru er fjöl- skyldan og tengdabörnin voru samankomin á hátiðum og sungin voru ljóð og lög af rómantískum toga. Var þá oft rætt um skáld og skáldskap og í ljós kom kunnátta hennar í þeim efnum. Sjálf var hún hagmælt þótt lágt færi og í þau fáu skipti sem hún fékkst til að koma fram í ræðu eða riti var það gert með sóma. Á seinni árum gafst henni kost- ur á að ferðast talsvert henni til mikils yndisauka. Ferðir til róm- antískra sögustaða voru henni mest að skapi og lifði hún lengi i endurminningu um slíkar ferðir og sá draumsýnir um hina næstu. Ásta veiktist fyrst af banameini sínu fyrir 3 árum. Eftir mikla skurðaðgerð og erfiða lyflæknis- meðferð virtist bata vera náð. Á öndverðu þessu ári fór þó að bera á einkennum að nýju sem leiddu til endurtekinnar sjúkrahúsvistar. Ásta lifði æðrulaus með sjúkdómi sínum og sýndi mikinn andlegan styrk og raunsæi er halla tók und- an fæti. Hugur hennar var hjá fjölskyldunni og æðsta óskin var að líta enn einu sinni heimsins dýrð í garðinum á Grund sem hún hafði ræktað af alúð í gegnum ár- in. Er endalokin nálguðust snögg- lega kvaddi hún ástvini sátt við þennan heim. Við kveðjum í dag merka konu sem lokið hefur giftudrjúgu starfi á lífsferli sínum. Ég votta eftirlifandi manni hennar, Júlíusi Þórðarsyni, og börnum þeirra dýpstu samúð mína. Úr mjallhvítri marmaraskál er minningin endurskírð. Lindanna ljúflingsmál er ljóðið um heimsins dýrð. Vatnsins gimsteinaglit og glóandi perlutár vitna með villtum þyt um vængjuð og hverful ár. Lífið er eins og lind sem lifandi perlum gýs. Við glitrum af gleði og synd í geislum frá Ijóssins dís. Við syngjum uns bresta brár. Við biðjum af hjarta og sál og djúpum sem daggartár í dauðans marmaraskál. (Davíð Stefánsson) Gunnar Þór Jónsson Nú er amma horfin á braut eftir langar og miklar þjáningar. Amma sem alltaf var svo góð og natin. Amma vildi alltaf gleðja alla og þó börnin væru mörg gerði hún aldrei upp á milli þeirra. Hverjum og einum fannst hann vera hennar uppáhald. Mér fannst alltaf gaman að gera eitthvað fyrir hana því hún var alltaf svo þakklát, hvað lítið sem það var. Við munum öll sakna ömmu sárt, en ást hennar og umhyggja mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Ingibjörg Guðmundsdóttir — Kransar og kístuskreytingar. Sendum um allt land. + Fósturmóöir mín, tengdamóöir, amma, systir og mágkona, INGIGERÐUR Ó. SIGUROARDÓTTIR, óöur Álfheimum 50, lést á Elliheimilinu Grund, mánudaginn 22. júlí. Ragnhildur J. Pálsdóttir, Vilhelm Ingimundarson, Hjörtur I. Vilhelmsson, Jóhanna E. Vilhelmsdóttir, Sæmundur Sigurösson, Sigríöur Þóröardóttir. t Eiginmaöur minn, KJARTAN ÓLAFSSON, fyrrverandi öryggiseftirlitsmaöur, Efstasundi 51, er látinn. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Steinunn Jónsdóttir. + Faöir okkar og tengdafaöir, SIGURGEIR HALLDÓRSSON, Hrafnistu, Reykjavík, áöur Þórsgötu 10, veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju mánudaginn 29. júli kl. 13.30. EyÞór Óskar Sigurgeirsson, Hrafnhildur Sveinsdóttir, Guóbjörg Sigurgeirsdóttir, Klara Sigurgeirsdóttir, Halldór Sigurgeirsson, Þórey Björnsdóttir, Oddrún Sigurgeirsdóttir, Þorsteinn Auöunsson, Sigríöur Sigurgeirsdóttir, Kristján Andrésson. + Faöir okkar, ÁGÚST FRIDRIKSSON járnsmíöameistari, andaöist á Hrafnistu 24. júlí. Fyrir hönd aöstandenda, Ásta Ágústsdóttír, Ragna Ágústsdóttir. + Sambýlismaöur minn og faöir okkar, BRAGI SIGURBERGSSON, húsasmíöameistari, Safamýri 36, Reykjavík, lést í Landspítalanum miövikudaginn 24. júli. Hjördís Einarsdóttir, Halldór Bragason, Trausti Bragason, Bylgja Bragadóttir. + Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, HJÖRTUR SIGURDUR JÓHANNSSON, kennari, Laugaskaröi, Hverageröi, sem lést i Borgarspítalanum 21. júlí sl., veröur jarösunginn frá Hverageröiskirkju laugard. 27. júlí kl. 14.00. Margrét Þorsteinsdóttir, Ester Hjartardóttir, Jóhanna Hjartardóttir, Þorsteinn Hjartarson, Erna Ingvarsdóttir, Álfhildur Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.