Morgunblaðið - 26.07.1985, Page 48
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-02.00
DTT KORT AliS SIIÐAR
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Slys í Lækjargötu:
Sex ára
barn al-
varlega
slasað
SEX ára stúlka hlaut alvarlega höf-
uðáverka þegar hún varð fyrir bif-
reið í L*kjargötu laust fyrir klukkan
hálfellefu í gærmorgun. Stúlkan var
á leið yfir götuna þegar bifreið, sem
ekið var suður Lækjargötu eftir
hægri akrein, hægði á sér til að
hleypa henni yfir en ökumaður pall-
bifreiðar, sem ók eftir vinstri akrein
á suðurleið, uggði ekki að sér og
varð stúlkan fyrir bifreiðinni.
Hún var flutt í slysadeild Borg-
arspítalans.
Varnir gegn
snjóflóðum
efldar ofan
við Ólafsvík
IÓLAFSVÍK er nú unnið að upp-
setningu nýrra snjóflóðavarnar-
girðinga, og verða þær staðsettar
í hlíðinni fyrir ofan Heilsugæslu-
stöðina. Ráðgert er að setja upp
tvær girðingar sem hvor um sig
verður 100 metrar á lengd. A
fjallstindinum er hafin uppsetn-
ing hreyfanlegra vindpramma er
hafa áhrif á hvar vindur setur
niður snjó. Þrír slíkir hafa verið
settir upp en fyrirhugað er að
þeir verði fjörutíu talsins í fram-
tíðinni.
Svipuðum varnarbúnaði hef-
ur aðeins verið komið fyrir á
einum stað á landinu, í Auð-
bjargarstaðarbrekku í Keldu-
hverfi, þar var sett upp 35
metra löng girðing í fyrra-
haust.
Morvunblaftið/MG
Frá uppsetningu varnargirðingar-
innar: Ingi Ragnar Nigurbjörns-
son, Roger Gateff og Sigurður
Oddsson. í baksýn sjást næst
heilsugæzlustöðin og fjölbýlishús
í Ólafsvík.
Morgunbladið/Júlíus
íslenskir tollgæslumenn gera leit í bflagámi úr flutningaskipinu Rainbow Hope í Njarðvíkurhöfn í gær.
Seljendur og
oddamaður
í meirihluta
um loðnuverð
NÝTT loðnuverð var ákveðið á
fundi yfirnefndar Verðlagsráðs
sjávarútvegsins í gær með atkvæð-
um oddamanns og seljenda gegn
atkvæðum kaupenda. Verðið gildir
frá 1. ágúst til 30. september og er
1.175 krónur á hvert tonn miðað
við 16% fituinnihald og 15% þurr-
efni. Verðið breytist um 74 krónur
til hækkunar eða lækkunar fyrir
hvert 1%, sem fituinnihald breyt-
ist og 79 krónur fyrir hvert 1%,
sem þurrefnismagn breytist frá
viðmiðun.
„Þetta er hlutfallslega heldur
lægra verð en í fyrra ef tekið er
mið af auknum kostnaði, en
jafnframt er það einnig óhag-
stæðara verksmiðjunum. En við,
í samvinnu við sjómenn, buðum
loðnuverksmiðjunum, — kaup-
endum að ákveða verðið með því
að hafa það frjálst. Þeir þorðu
ekki af ótta hver við annan,"
sagði Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna, í samtali
við Morgunblaðið. Hann sagði,
að LÍÚ væri nú að afla upplýs-
inga um loðnuverð í nágranna-
löndum, þannig að hægt verði að
meta hvort borgi sig að sigla
með loðnuna og selja erlendis.
„Verðið er í hærra lagi, en af-
koman ræðst auðvitað af mark-
aðsverðinu," sagði Jón Reynir
Magnússon, fulltrúi kaupenda í
nefndinni. Gert er ráð fyrir að
greidd verði 6% uppbót úr verð-
jöfnunardeild Aflatryggingar-
sjóðs á þann afla, sem landað er
til vinnslu hér og að kaupendur
greiði eina krónu fyrir hvert
tonn til reksturs loðnunefndar.
Verðið var ákveðið af odda-
manni, Jóni Sigurðssyni, for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar og
Helga Laxdal og Kristjáni
Ragnarssyni af hálfu seljenda
gegn atkvæðum Guðmundar Kr.
Jónssonar og Jóns Reynis Magn-
ússonar af hálfu kaupenda.
Njarðvíkurhöfn:
Tollverðir kyrrsettu vör-
ur úr Rainbow Hope
— Fjármálaráðherra segir lög banna kjötinnflutning
varnarliðsins, en utanrflkisráðuneytið telur svo ekki vera
ALBERT Guðmundsson fjár-
málaráðherra hefur ákveðið að
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
fái ekki framvegis að flytja inn
hrátt kjöt til eigin nota, eins og
gert hefur verið í nær hálfan
fjórða áratug. Fimm frystigámar
með matvælum, sem komu til
Njarðvíkur í gær með banda-
ríska flutningaskipinu Kainbow
Hope, voru meðal 75 gáma, sem
kyrrsettir voru á brvggjunni þar
fram eftir degi undir eftirliti
tollvarða frá Reykjavík og
Keflavík og var um tíma útlit
fyrir að gámunum yrði skipað
aftur um borð og þeir sendir til
baka til Randaríkjanna. Banda-
ríska sendiráðið í Reykjavík
mótmælti ráðstöfun fjármála-
ráðherra við utanríkisráðuneytið
í gær.
Morgunblaðið sneri sér til
utanríkisráðuneytisins af
þessu tilefni. Ólafur Egilsson,
sem nú gegnir þar störfum
ráðuneytisstjóra, upplýsti að
fyrir lægi lögfræðileg greinar-
gerð Benedikts Sigurjónsson-
ar, fyrrv. hæstaréttardómara,
þar sem niðurstaðan væri
ótvírætt sú, að umræddir
kjötmetisflutningar væru
heimilir lögum samkvæmt.
Fjármálaráðherra telur að
varnarliðið hafi ekki heimild
til að flytja kjöt til landsins og
vitnar til laga um varnir gegn
gin- og klaufaveiki frá 1928.
Hann leyfði um kvöldmatar-
leytið í gær að maturinn yrði
fluttur inn á völlinn en sagði í
samtali við blm. Morgunblaðs-
ins að framvegis yrði varnar-
liðið að fara að íslenskum lög-
um eins og aðrir.
Sjá nánar á bls. 4.